Morgunblaðið - 12.02.2008, Side 14
6789:( 006;7<= 60>06
%(63706(
2
7(%>. <
62 ?<
>(:
7%%0
)'6 '%(06
%7<
)60<
)060
2
3(
@
'
+ 1
1
,
,
<
/
;
/1
'
1
&
$
,
:
A" 5,
)'6 '%(006B>>0
0C
0
< '
%$'
>
$0
; <7
:0 :0
<
<'
(;
A0
06
0: 0
>
(:
(0
):
%$ 0C
'
0
$0
<'
06
0: 0
>
(:
A0
(0
):
%$
E+
"
1
1
F
# 1
1
/
GHI HJK LMJ MKJ
! "#!
)7
NM
NO
NH
$%&'()'*
$+,$'-
&(&'.$
/$0*1
$2$&&*
&%3)'%&'
!
""
"
"
"
!
"
E+ E+
4$0$*5677
#"8*$79:$*.
$&';*)(*
,&')'
8*4$0$*;
%<=:*(>:*(;'(&
.*7)%'&'(0*%;0
5$0*5$$*.*-$(
?*5) 7)%'&'( -;0>7$$*;
7AB0B'' C,$:*.
%$00&*9&:
,5$,,
$79:$
?*5,;% &,9&70*5 %&(9;($&''
$,,$*7AB0;''
.7&%&'%*.
5)7)%'&'( ;<C4,&7$'$
9>&:>
?.6<0 Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama er nú kominn með
fleiri kjörmenn en Hillary Clinton í
forkosningum demókrata vegna for-
setakosninganna í Bandaríkjunum 4.
nóvember. Búist er við að forskot
Obama aukist þegar kosið verður í
tveimur sambandsríkjum og Wash-
ington DC í dag.
Um helgina sigraði Obama í
Maine, Washington-ríki, Louisiana
og Nebraska. Clinton hafði vonast
eftir góðu gengi í Maine eftir að hafa
sigrað í grannríkinu New Hamp-
shire í janúar. Svo fór þó að hún fékk
aðeins átta kjörmenn í Maine en
Obama þrettán.
Obama hefur nú sigrað í 20 ríkjum
og Clinton í ellefu.
Til að verða forsetaefni demó-
krata þarf frambjóðandi í forkosn-
ingunum að fá a.m.k. 2.025 kjör-
menn sem velja forsetaefnið
formlega á flokksþingi demókrata
25.-28. ágúst. Samkvæmt talningu
óháðs vefseturs, RealClear-
Politics.com, er Obama kominn með
fleiri kjörmenn en Hillary Clinton í
fyrsta skipti frá því að forkosning-
arnar hófust.
Að sögn RealClearPolitics.com er
Obama með 1.137 kjörmenn og Clin-
ton 1.134, að meðtöldum svo-
nefndum „ofurfulltrúum“ sem hafa
tekið afstöðu til frambjóðendanna.
Alls fá 796 „ofurfulltrúar“ úr röðum
demókrata sjálfkrafa atkvæðisrétt á
flokksþinginu og 213 þeirra hafa lof-
að að styðja Clinton en 139 Obama.
444 hafa ekki gert upp hug sinn.
Stjórnmálaskýrendur segja lík-
legt að síðastnefndu fulltrúarnir
greiði atkvæði með þeim frambjóð-
anda, sem virðist hafa farið með sig-
ur af hólmi í forkosningunum, til að
komast hjá klofningi á flokks-
þinginu.
Erfiður mánuður fyrir Clinton
Obama var í gær spáð sigri í for-
kosningum sem fram fara í Virginíu,
Maryland og Washington DC í dag.
Nýjar kannanir benda til þess að
Obama sé með 16 prósentustiga for-
skot í Virginíu og 18 prósentustiga í
Maryland. Skekkjumörkin voru
fimm prósentustig.
Fréttaskýrendur The Washington
Post segja þó að Clinton eigi mögu-
leika á sigri í Maryland verði kjör-
sóknin mikil meðal kvenna og aldr-
aðra eins og í forkosningunum þar
fyrir fjórum árum. Kannanir fyrir
utan kjörstaði bentu þá til þess að
konur hefðu verið 58% kjósendanna
í Maryland og 22% kjósendanna
voru 65 ára eða eldri, en Clinton hef-
ur notið mikils stuðnings í þessum
kjósendahópum.
Talið er að febrúarmánuður verði
erfiður fyrir Clinton en hún vonast
til þess að geta snúið vörn í sókn 4.
mars þegar kosið verður í Texas og
Ohio. Barist verður þá um 228 kjör-
menn í Texas og 161 í Ohio.
Um 25% skráðra kjósenda í Texas
eru ættaðir úr Rómönsku Ameríku
og kannanir benda til þess að fylgi
Clinton í þessum kjósendahópi hafi
verið um 63% í forkosningum demó-
krata 5. febrúar þegar kosið var í yf-
ir 20 ríkjum.
Obama er nú með fleiri
kjörmenn en Clinton
Obama spáð sigri í Virginíu, Maryland og Washington í dag
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Dili. AP, AFP. | Jose Ramos-Horta, forseti Austur-Tímors,
særðist alvarlega í skotárás hermanna sem gert hafa
uppreisn gegn stjórn landsins. Xanana Gusmao forsætis-
ráðherra slapp ómeiddur í annarri skotárás í misheppn-
aðri valdaránstilraun uppreisnarmannanna.
Ramos-Horta, sem fékk friðarverðlaun Nóbels árið
1996, var fluttur á sjúkrahús í Ástralíu eftir að hafa feng-
ið skot í magann og bringuna. Læknar á sjúkrahúsinu
sögðust vera vongóðir um að hann næði „fullum bata“.
Forseti þings Austur-Tímors sagði að Ramos-Horta væri
úr lífshættu.
Talsmaður hersins sagði að leiðtogi uppreisnarmann-
anna, Alfredo Reinado, hefði beðið bana í átökum eftir að
árásarmennirnir hefðu hafið skothríð á heimili Ramos-
Horta í úthverfi Dili. Einn lífvarða forsetans lá einnig í
valnum.
Um klukkustund síðar var reynt að ráða Gusmao af
dögum í skotárás á heimili hans. Gusmao lýsti yfir neyð-
arástandi í landinu í tvo daga og útgöngubann var í gildi
til dögunar. Stjórn Ástralíu ákvað að fjölga hermönnum
sínum í Austur-Tímor, en Ástralar fara fyrir þúsund
manna alþjóðlegu friðargæsluliði í landinu.
Reinado var á meðal nokkurra herforingja sem tóku
þátt í uppreisn hermanna árið 2006 þegar forsætisráð-
herra landsins ákvað að reka 600 hermenn, sem voru í
verkfalli, eða um þriðjung allra hermanna landsins.
Ákvörðunin leiddi til óeirða sem kostuðu 37 manns lífið
og yfir 150.000 manns þurftu að flýja heimkynni sín.
Ramos-Horta úr lífs-
hættu eftir skotárás
Lýst yfir neyðarástandi á Austur-Tímor eftir að reynt var að
ráða forseta og forsætisráðherra landsins af dögum
ÍRANSKAR skólastúlkur tóku í gær þátt í hátíð-
arhöldum í tilefni af 29 ára afmæli klerkabylting-
arinnar í Íran. Hundruð þúsunda söfnuðust saman á
Friðartorginu í Teheran við þetta tækifæri. Ayatollah
Khomeini var leiðtogi byltingarinnar en með henni var
Pahlavi-ættarveldinu velt úr sessi.
Reuters
Byltingarafmæli fagnað í Teheran
Zürich. AFP. | Vopnaðir menn rændu
fjórum þekktum málverkum, sem
eru metin á sem svarar rúmum ellefu
milljörðum króna, í listasafni í Zür-
ich á sunnudag, að sögn svissneskra
yfirvalda í gær. Er þetta eitt af
mestu málverkaránum sögunnar.
Málverkin eru eftir Paul Cezanne,
Claude Monet, Edgar Degas og Vin-
cent Van Gogh og voru máluð á ár-
unum 1871-1890. Verkin voru í eigu
Bührle-safnsins sem viðskiptajöfur-
inn Emil Bührle stofnaði, en hann
auðgaðist á skotfæraverksmiðju í
Zürich í síðari heimsstyrjöldinni.
„Þetta eru bestu verkin í safni
okkar,“ sagði safnstjórinn Lukas
Gloor.
Svissneska lögreglan sagði að þrír
menn hefðu farið inn í safnið klukkan
4.30 e.h. að staðartíma á sunnudag
og ógnað starfsfólki með skamm-
byssu. Þeir báru málverkin inn í bíl
og komust undan.
„Þetta er mesta rán sem framið
hefur verið í Sviss, jafnvel í Evrópu,“
sagði talsmaður lögreglunnar við
fréttamenn.
Þremur málverkum Van Goghs
var stolið úr safni í Arnhem í Hol-
landi árið 1988 og þau eru metin á
sem svarar 12,3 milljörðum króna.
Reuters
Rán „Pilturinn í rauða vestinu“ eft-
ir Cezanne, eitt horfnu verkanna.
Þekktum
málverk-
um rænt
Metin á ellefu
milljarða króna
TRÚARLÖGREGLAN í Sádí-
Arabíu gengur nú í búðir í höf-
uðborginni Riyadh og skikkar
búðareigendur til að fjarlægja vörur
sem tengjast Val-
entínusardeg-
inum, segir á vef
The Saudi Ga-
zette. Öll rauð
vara eða annað
sem hægt er að
tengja við ást á
einhvern hátt,
rauðar rósir,
gjafapappír, kort
eða bangsar telst
bannvara, en Val-
entínusardagurinn er n.k. fimmtu-
dag. Á Valentínusardaginn gerir
lögreglan alla vöru upptæka sem
ekki hefur þegar verið fjarlægð. Af-
leiðingin er svartamarkaðsbrask, en
verð rósanna stígur ört fram til 14.
febrúar.
Forsjálir viðskiptavinir panta með
fyrirvara „stundum sendum við rósir
um miðjar nætur til að komast hjá
athygli lögreglunnar,“ segir blóma-
sölumaður sem selur forboðnar rósir
þrátt fyrir bannið.
Valentínusardagurinn og svipaðar
hátíðir eru bannaðar í Sádí-Arabíu
þar sem þær þykja ýta undir ósið-
samleg samskipti ógiftra karla og
kvenna.
Rautt er
bannað til
föstudags
Rauðar Bannvara
fram á föstudag.
♦♦♦
Washington. AP. | Bandaríska varnar-
málaráðuneytið hefur ákært sex
fanga úr Guantánamo fangelsinu
fyrir morð og stríðsglæpi tengda
hryðjuverkaárásunum þann 11.
september 2001. Farið verður fram á
dauðarefsingu.
Meðal dæmdu er Khalid Sheik
Mohammed sem á að hafa skipulagt
árásirnar, en flugvélum var rænt og
flogið inn í byggingar í New York og
Washington. Þriðja vélin brotlenti í
Pennsylvaníu. Fangarnir munu
koma fyrir herrétt, en málið gæti
flækst þar sem Mohammed var yf-
irheyrður með umdeildri drekking-
araðferð.
Ákært fyrir
hryðjuverk