Morgunblaðið - 16.02.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
É
g þreytist seint á að vitna í
orð Jóhönnu Jóhanns-
dóttur frá Hamarsheiði í
Gnúpverjahreppi, en Jó-
hanna hefur lifað nær
heila öld með Þjórsá:
„Fegurðin var algjör. Mér varð hugs-
að til Landsvirkjunar sem ef til vill sekk-
ur svo túnum í Haga, á þessari fallegu
landnámsjörð, að ekki verður búandi hér
lengur - og engin situr við glugga og dá-
ist að fegurðinni, eða nýtur góðs af gæð-
um jarðarinnar. Það er mikið vald sem
fáeinir gróðahyggjumenn taka sér.“
Það er oft reynt að gera lítið úr barátt-
unni fyrir náttúruvernd með því að
stimpla hana sem öfgar eða óraunsæi.
Jóhanna Jóhannsdóttir fyrrum bóndi á
tíræðisaldri er engin öfgamanneskja.
Aðrir sveitungar hennar sem halda uppi
hetjulegri baráttu til varnar Þjórsá eru
heldur ekki öfgafólk. Þau eru venjulegir
Íslendingar með ólík áhugamál, ólík
flokksskírteini og ólíka lífssýn. Þau sam-
einast hins vegar í því að vilja vernda
landið sitt - landið okkar allra.
Heimafólk við Þjórsá hefur í meira en
fjörtíu ár staðið vaktina til varnar Þjórs-
árverum. Þar hefur fólk fórnað dýr-
mætum tíma, orku og jafnvel heilsu í
þágu baráttunnar, enda munu kynslóðir
framtíðarinnar verða þeim ævinlega
þakklátar.
Ýmsir sigrar hafa unnist fyrir tilstilli
kraftmikils fólks, en mýmörg dýrmæt
svæði og náttúrugersemar liggja enn
undir fallöxinni á teikniborðum skamm-
tímagróðans. Þar á meðal er neðri hluti
lengsta stórfljóts landsins, Þjórsár.
Með virkjunum í neðri hluta Þjórsár á
að fórna anddyri Þjórsárdals, dyrum
okkar að hálendi Íslands þar sem tindar
Heklu gnæfa yfir. Margrómuð nátt-
úrufegurð við gátt hálendisins, flúðir,
sker og eyjar og bakkar Þjórsár eiga að
sökkva.
Nákvæmlega hver ætlar að banka upp
á hjá Jóhönnu í Haga og segjast bera
ábyrgð á eyðileggingunni? Umhverf-
isráðherra eða iðnaðarráðherra? Fjár-
málaráðherra eða forsætisráðherra?
Sjálfstæðisflokkur eða Samfylking?
Þjóðin öll? Eða er þetta bara sama tób-
akið eins og vanalega: Er þetta allt bara
á ábyrgð einhverra annarra en okkar
sjálfra?
Hver ætlar að bera ábyrgð á því að
Búðarfoss og Urriðafoss hverfi; Hagaey
og hólmar og flúðir Þjórsár hverfi og ár-
farvegur skerðist; jörðum meðfram
Þjórsá og bújörðum bænda sé sökkt;
fuglalíf í Þjórsá og gengd laxa upp ána
skerðist; hrygningarstöðvar þorsks und-
an ósum Þjórsár verði í hættu? Hver
ætlar að bera ábyrgð á því þegar upp
verður staðið að stórskaða lífríki Þjórsár
og gróður, útsýni, landslag, fegurð og
fornminjar frá landnámi?
Þótt sumir séu snillingar í að axla ekki
ábyrgð þá verður reikningurinn á end-
anum sendur þangað sem honum ber.
Nýrri ríkisstjórn er nú í lófa lagið að
sýna skörungsskap í þessum efnum. Við
erum svo heppin að hafa flokk við völd
sem lofaði því ítrekað fyrir kosningar að
vernda náttúruna og taka umhverfismál
alvarlega - og viti menn, verja Þjórsá.
Við eigum ráðherra innan ríkisstjórnar
sem hafa lýst því opinberlega yfir að þeir
leggist gegn virkjunum í neðri hluta
Þjórsár. Hvað er það þá sem tefur?
Ef Samfylkingunni er alvara þá neitar
hún að láta Sjálfstæðisflokkinn valta yfir
sig í þessum efnum, harðneitar, ef það er
þá þar sem hnífurinn stendur fastur í
kúnni. Fólk við Þjórsá og aðrir Íslend-
ingar eiga ekki að þurfa að berjast í 40 ár
til viðbótar við svikin loforð, ekki í 40
mánuði, vikur eða daga. Baráttan á að
hafa skilað árangri nú þegar.
Saga náttúruverndar á Íslandi er öðru
fremur lituð traustum þræði blekkinga
og svikinna loforða. Í þeim efnum er
ekkert nýtt, en nú er gullið tækifæri til
að breyta af leið. Ég hvet alla sem vett-
lingi geta valdið til að fjölmenna á þver-
pólitískan og óháðan baráttufund til
varnar Þjórsá á morgun sunnudag kl. 16
í Fríkirkjunni. Fundurinn er haldinn
PISTILL » Með virkjunum í
neðri hluta Þjórsár á
að fórna anddyri Þjórs-
árdals, dyrum okkar að
hálendi Íslands þar sem
tindar Heklu gnæfa yfir.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Þjóð með Þjórsá
undir yfirskriftinni „Þjóðin stendur með
Þjórsá“. Þar koma saman heimamenn,
listamenn og fræðimenn til að leggja
baráttunni fyrir vernd Þjórsár lið.
Hvar í flokki sem við stöndum, eða
stöndum ekki, þá skulum við fjölmenna í
Fríkirkjuna á morgun. Heimamenn eiga
skilið að finna fyrir stuðningi okkar allra
- og þau þurfa á slíkum stuðningi að
halda. Þjórsá á skilið þjóð sem kanna að
meta eigin dýrgripi og stendur um þá
vörð. Íslensk náttúra og lífríki á sömu-
leiðis skilið þjóð sem krefst lýðræð-
islegra vinnubragða og sættir sig ekki
við svik og blekkingar.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
les pistilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
HJÓNIN Þórunn E. Sigursteins-
dóttir og Þór Þorvaldsson á Ak-
ureyri urðu fyrir óskemmtilegri
lífsreynslu á Holtavörðuheiði um
síðustu helgi. Þá var ekið á bíl
þeirra í þrígang með skömmu
millibili í miklu hríðarkófi og óhætt
að fullyrða að þau voru heppin að
slasast ekki að ráði.
Þetta var upphaf ferðar til Eng-
lands, en hún varð endaslepp. Þau
ætluðu utan á mánudaginn en fóru
hvergi; sneru heim til Akureyrar
strax daginn sem árekstrarnir
urðu. Það var um tvöleytið á laug-
ardaginn sem Þór ók upp Holta-
vörðuheiðina norðan frá á jepp-
lingi þeirra hjóna. „Það gerði
skyndilega mikinn skafrenning, ég
lúsaðist á 20-30 kílómetra hraða en
þá birtist allt í einu jeppi út úr kóf-
inu og rakst á vinstra framhorn
bílsins,“ sagði Þór við Morg-
unblaðið í gær. „Jeppinn stoppaði
30-40 metrum norðan við okkur og
þegar ég ætlaði að bakka í áttina
til hans kom annar sunnan að og
klessti beint fram á bílinn okkar.
Það var eins gott að ég fór ekki út
til þess að kanna skemmdirnar á
bílnum eftir fyrsta áreksturinn;
hefði ég gert það, eins og menn
hljóta oftast að gera við svona að-
stæður, hefði ekki þurft að sökum
að spyrja,“ sagði Þór.
Örfáum mínútum síðar kom svo
sá þriðji og lenti líka á bílnum.
Þór segir flesta sem leið áttu um
hafa stoppað og spurt hvort orðið
hefði slys og boðið fram aðstoð
sína, en einhverjir hefðu reyndar
brunað áfram á þess að kanna að-
stæður. En þeir sem stoppað
hefðu, sem og lögreglan, hefðu
verið afar elskulegir og hjálplegir.
Einn sem kom sunnan að, á jeppa,
ók spölkorn til baka og varaði þá
bílstjóra við, sem þaðan komu, með
því að setja háu ljósin á og blikka
þeim. „Kona sem ég hitti í Stað-
arskála sagði að það hefði skipt
sköpum. Hún hefði áreiðanlega
ekki hægt ferðina, nema fyrir
þessa viðvörun, og hefði þá
kannski lent á bílnum okkar líka,“
sagði Þórunn.
Hún er með brákað bringubein
og Þór hefur verið til skoðunar á
Sjúkrahúsinu á Akureyri í vikunni.
„Mikil mildi að ekki fór verr“
Þrisvar ekið á bíl-
inn í hríðarkófi á
Holtavörðuheiði
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Heppin Þórunn E. Sigursteinsdóttir og Þór Þorvaldsson á Akureyri.
BÆJARRÁÐ Kópavogs sam-
þykkti í fyrradag tillögu dóm-
nefndar um að ganga til samn-
inga við Eykt ehf., sem var með
hagstæðasta tilboðið í fram-
kvæmdir við íþróttamannvirki í
Fagralundi í Fossvogsdal. Þar
verður reist nýtt íþróttahús og fé-
lagsaðstaða HK stækkuð veru-
lega en kostnaður nemur rúmum
488 milljónum króna.
Íþróttahúsið nýtist handknatt-
leiks- og blakfólki HK en það
verður með löglegum hand-
boltavelli. Það er þó ekki hugsað
sem keppnishús, nema fyrir yngri
flokka. Nýja húsið nýtist Snæ-
landsskóla fyrir íþróttakennslu
og kemur í stað lítils íþróttasalar
sem er sambyggður skólanum.
Félagsaðstaða HK stækkar
verulega en byggt verður við hús
sem tekið var í notkun í Fagra-
lundi fyrir þremur árum. Þar
verður m.a. rúmlega 250 fer-
metra veitingasalur á efri hæð og
þaðan verður hægt að fylgjast
með æfingum og keppni í íþrótta-
húsinu. Á þeirri neðri verða m.a.
þrír búningsklefar, sem bætast
við þá sex sem þegar eru fyrir á
jarðhæð hússins. Þá verður að-
koma bætt verulega, með stóru
torgi og fjölgun bílastæða. Á
svæðinu eru fyrir grasvellir og
gervigrasvöllur.
Hálfur
milljarður í
Fagralund
Nýtt íþróttahús og stórbætt félagsaðstaða fyrir HK í Fossvogsdal
NORÐMENNIRNIR
Rune Hauge og Tor
Helness sigruðu í lið-
lega 130 para tvímenn-
ingi sem lauk á Hótel
Loftleiðum á áttunda
tímanum í gærkvöldi.
Þeir tóku forystuna
síðla í mótinu og héldu
henni til loka.
Guðmundur Hermannsson og Björn Ey-
steinsson urðu í öðru sæti en þeir settust í
það sæti um miðbik móts og voru vel að
því komnir. Arno Lindermann og Tino
Terraneo urðu þriðju og Jón Baldursson
og Þorlákur Jónsson fjórðu.
Í dag hefst sveitakeppnin og eru á sjö-
unda tug sveita skráðar til keppni.
Norðmenn unnu
tvímenninginn
LANDSPÍTALINN hefur gengið til samn-
inga við Conscriptor ehf. um ritun sjúkra-
skráa fyrir Slysa- og bráðasvið. Fyrirtækið
átti hagstæðasta tilboðið, sem var um 60%
af áætlunarverði spítalans og býr þar að
auki yfir reynslu af ritun sjúkraskráa í Sví-
þjóð. Að sögn Gunnars Kr. Guðmunds-
sonar, læknis og ábyrgðarmanns fyrir til-
boðinu, mun sú reynsla nýtast enda hafi
fyrirtækið þegar búið sér til kerfi fyrir
slíka vinnslu. Hluti eigenda Conscriptors á
Íslandi er sænskur, en starfsstöðvar þess
verða í Reykjavík.
Allt löggiltir læknaritarar
Í tilkynningu frá Gunnari segir að öllum
störfum sem fyrirtækið komið til með að
inna af hendi verði sinnt af löggiltum
læknariturum, þar sem þeim muni bjóðast
traust vinnuumhverfi og laun sem tíðkist
fyrir sambærileg störf annars staðar. Þá
segir í tilkynningunni að félagið leggi ríka
áherslu á að öll starfsemi falli að sjón-
armiðum persónuverndar ásamt lögum og
reglugerðum um heilbrigðisþjónustu. Í
samtali við Morgunblaðið sagði Gunnar lík-
legt að á bilinu sex til níu læknaritarar
myndu sinna störfum fyrirtækisins sam-
kvæmt útboðssamningnum til að byrja með.
Árangur verkefnisins verður metinn að
liðnum sex mánuðum.
Conscriptor ritar
sjúkraskrárnar