Morgunblaðið - 16.02.2008, Blaðsíða 27
MIRALE
Síðumúla 33
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
sunnudag 13–16
www.mirale.is
20% afsláttur
af öllum Kartell vörum
dagar
Reuters
Framandleg Öryggisnælur eru í lykil-
hlutverki í þessari flík Gareth Pughs.
Pífur og kögur Söngkonan Skin á
sýningarpalli Fashion East.
Mótmælaandi Vivienne Westwood
tvinnaði pólitík saman við tísku.
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 27
Franskir vísindamenn hafa uppgötvað að
hættan á alvarlegu fæðingarþunglyndi getur
verið meiri ef konan fæðir dreng. Vefsíða
Berlingske tidende greinir frá þessu.
Vísindamennirnir rannsökuðu 181 nýbakaða
móður og komust að því að um níu prósent
fengu alvarlegt fæðingarþunglyndi. Þrjár af
hverjum fjórum þeirra höfðu fætt drengi.
Áður hafði rannsókn, sem birtist í The Jo-
urnal of Clinical Nursing, gefið til kynna að
neikvæð afstaða til karlmanna gæti ýtt undir
fæðingarþunglyndi.
Breskur sérfræðingur varar þó við því að
fólk taki niðurstöður frönsku rannsóknarinnar
of bókstaflega. Hún byggist á takmörkuðum
fjölda kvenna og því gæti fylgt tölfræðileg
ónákvæmni.
„Það sem kemur mest á óvart í þessari
rannsókn er að kyn barnsins geti skipt máli
varðandi þróun fæðingarþunglyndis,“ segir
prófessor Claude de Tychey, sem leiddi rann-
sóknina.
Meðal annars leiddi hún í ljós að sjö af
hverjum tíu konum sem fæddu dreng töldu
lífsgæði sín lakari en konur sem fæddu stúlk-
ur gerðu að meðaltali. Þetta var alveg óháð
því hvort konurnar höfðu fengið fæðing-
arþunglyndi.
Hins vegar sýndi rannsóknin að hættan á
að fá vægt fæðingarþunglyndi er mest meðal
kvenna sem eignast stúlkur.
Vísindamennirnir hyggjast gera ítarlegri
rannsóknir á fæðingarþunglyndi í tengslum
við niðurstöður sínar.
Drengir auka hættu á fæðingarþunglyndi
Reuters
Lítill drengur Alveg slakur, óháð líðan mömmu.