Morgunblaðið - 16.02.2008, Blaðsíða 46
Þeir sem standa að
myndinni vona að
hann verði besti vondi gaur-
inn í Bond hingað til … 51
»
reykjavíkreykjavík
Það er gaman að sjá það áhorf
sem Laugardagslögin í Sjónvarpinu
fá en í seinustu viku var það sá sjón-
varpsþáttur sem flestir landsmenn
horfðu á samkvæmt nýjustu áhorfs-
könnun Capacent. Athygli vekur
samt að úrslitin, þar sem tilkynnt er
hvað af þeim lögum sem kepptu í
söngvakeppninni það kvöldið kom-
ast áfram í úrslit, er ekki nema í
átjánda sæti með 25,9% áhorf með-
an aðalþátturinn er með 54,7%.
Úrslitin eru samt tilkynnt aðeins
kortéri eftir að aðalþættinum lýk-
ur. Leiðir það líkum að því að Evró-
visjónþjóðin sé ekki eins spennt fyr-
ir því hver verður fulltrúi landsins í
Serbíu í vor eins og ætla mætti.
Kannski er það allt annað í þætt-
inum en lögin sem laða að skjánum.
Þjóðin ekki spennt
fyrir úrslitunum
Rapparinn ICE heldur útgáfu-
tónleika á Barnum í kvöld.
Á bak við ICE er Soffía Jóns-
dóttir, 22 ára Reykjavíkurmær sem
stundar félagsráðgjöf við Háskóla
Íslands. Hún hefur verið að rappa
frá 16 ára aldri. Þessa dagana er
hún að gefa út frumraun sína sem
ber heitið Interrail og er á fjórum
tungumálum: íslensku, ensku,
sænsku og frönsku. Hún er sett upp
eins og um interrail-ferðalag um
Evrópu sé að ræða og gestir á plöt-
unni eru m.a. franska sveitina Hell
Heat og söngkonurnar Sophie og
Malin frá Svíþjóð. Taktasmiðir á
plötunni eru Fonetik Simbol, úr
hljómsveitinni Original Melody,
Chippe og Earmax, en hann sér
einnig um hljóðvinnslu á plötunni.
Tónleikarnir á Barnum í kvöld
hefjast kl. 21. Þar munu ásamt ICE
koma fram Earmax, Original Mel-
ody og MC Gauti. Fonetik Simbol
og fleiri munu sjá um að þeyta skíf-
um fram eftir nóttu. Frítt er inn.
Rappar á Barnum
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA eru málverk af hinum
og þessum atburðum úr Íslend-
ingasögunum og þjóðsögunum,
máluð í þessum gamla meist-
aralega stíl,“ segir Þrándur Þór-
arinsson myndlistarmaður sem
opnar fremur óhefðbundna mál-
verkasýningu í gömlu kaffi-
brennslu Ó. Jónssonar & Kaaber
við Sæbraut í dag. Á sýningunni
verða til sýnis verk sem Þrándur
hefur unnið á síðustu árum, en
um er að ræða stór olíumálverk
undir áhrifum þjóðernisróm-
antíkur, barokks og end-
urreisnar.
„Þetta er í raun íslensk saga al-
mennt, tekin héðan og þaðan.
Þetta eru þessar kanónur, Njáll,
Egill, Galdra-Loftur, Jón Arason
og fleiri,“ segir Þrándur um
myndefnið óvenjulega. „Þetta er
eitthvað sem mig hefur alltaf
langað til að gera, alveg frá því
ég var lítill strákur að teikna.
Mér fannst það liggja beint við í
ljósi þess að Rembrandt og þessir
gaurar voru mikið að mála upp
úr fornsögum og ljóðum, mest frá
Forn-Grikklandi. Í staðinn fyrir
að gera það fannst mér tilvalið að
mála þetta upp úr íslenskum sög-
um, ljóðum og þess háttar.“
Aðspurður segir Þrándur að
hann hafi lesið mikið af bæði Ís-
lendingasögum og þjóðsögum.
„Þetta eru svo skemmtilegar sög-
ur,“ segir hann, en aðeins eitt
málverk á sýningunni sýnir raun-
verulegan atburð; þegar Jón Ara-
son var hálshöggvinn í Skálholti.
Óvenjulegt húsnæði
Ekki er þó eingöngu um þjóð-
leg málverk að ræða á sýning-
unni, því þar má einnig sjá sjálfs-
myndir listamannsins. „Maður
fullnægir líka sínum egóisma,“
segir Þrándur og hlær. „En ég er
að vísu með sérherbergi fyrir
þær myndir.“
Ekki er nóg með að myndefnið
sé óvenjulegt, heldur eru húsa-
kynnin það einnig – kaffibrennsla
Ó. Jónssonar & Kaaber við Sæ-
braut. Að sögn Þrándar er þetta
fyrsta sýningin í húsinu svo hann
viti til. „Þarna var að vísu ein-
hver kvikmyndahátíð fyrir svona
ári,“ segir hann og bætir því við
að stefnt sé að því að nota hús-
næðið að hluta til sem vinnustof-
ur fyrir listamenn í framtíðinni.
Fjör fram á kvöld
Þrándur er fæddur árið 1978
og lærði meðal annars hjá norska
listmálaranum Odd Nerdrum á
árunum 2003 til 2006, en hann
hefur einnig stundað nám í
Listaháskóla Íslands og Myndlist-
arskólanum á Akureyri. Þetta er
fyrsta einkasýning hans.
Opnunin hefst klukkan 14 og
Þrándur gerir fastlega ráð fyrir
því að hún muni standa eitthvað
fram eftir kvöldi.
Egill, Njáll og Rembrandt
Þrándur Þórarinsson opnar óvenjulega málverkasýningu á óvenjulegum stað
Spegill, spegill Þrándur við eina af sjálfsmyndunum sem hann sýnir.
Aftaka Svona túlkar Þrándur síð-
ustu andartök Jóns Arasonar.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BÆKUR Arnaldar Indriðasonar
njóta vinsælda víða um Evrópu og
þannig hafa bækur hans notið vel-
gengni í Frakklandi. Á nýlegum
lista yfir söluhæstu glæpasögur í
Frakklandi á Arnaldur t.d. þrjár
bækur af þeim tíu söluhæstu,
L’Homme du lac / Kleifarvatn er í
fjórða sæti, en hún er nýkomin út í
Frakklandi, La voix / Röddin í því
fimmta og Femme en vert / Graf-
arþögn er í sjöunda sæti. Þar að
auki er Cite des jarres / Mýrin í ell-
efta sæti yfir söluhæstu glæpasög-
ur Frakklands.
Þess má geta að bækurnar þrjár í
þúsaldarröð sænska rithöfundars-
ins Stiegs Larssons raða sér í þrjú
efstu sæti listans og norrænir rit-
höfundar því allsráðandi á listan-
um, eða hér um bil.
Kleifarvatn
fljótt vinsæl
Arnaldur er líka ofarlega á sögu-
lista Frnac-verslanakeðjunnar, því
þar er hann í fimmta, sjöunda og tí-
unda sæti; Grafarþögn í fimmta
sæti, Röddin í því sjöunda og Mýrin
í því tíunda. Kleifarvatn er í fimm-
tánda sæti.
Á nýlegum lista L’Express yfir
mest seldu skáldsögur í Frakklandi
á tímanum 4. til 10. febrúar sem
birtur var í L’Express í vikubyrjun
var Kleifarvatn í níunda sæti, en
bókin hafði aðeins verið á markaði í
tvo daga þegar listinn var tekinn
saman.
Frönsk glæpa-
sagnaverðlaun
Arnaldur var í Frakklandi fyrir
skemmstu til að taka við frönsku
glæpasagnaverðlaununum, Grand
prix étranger de littérature poli-
cière, en þau hlaut hann fyrir
franska útgáfu Raddarinnar sem
kom út þar í landi á síðasta ári, en
allar franskar útgáfur bóka hans
hafa fengið verðlaun þar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vinsæll Arnaldur Indriðason.
Arnaldur vinsæll í Frakklandi
Kleifarvatn, Röddin, Grafarþögn og Mýrin seljast eins og heitar lummur
Norðurljós Kleifarvatn á frönsku.