Morgunblaðið - 16.02.2008, Blaðsíða 26
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Eftir New York-tískuvikuna, þar sem notagild-ið er yfirleitt haft í hávegum, er röðin kominað London-tískuvikunni – sem segja má að séalgjör andstæða hinnar fyrrnefndu.
Föt fyrir skrifstofuna? Kjóll fyrir stefnumótið? Svo
hversdagslegar hugleiðingar eru yfirleitt víðsfjarri
þegar hönnuðirnir sem hér sýna leggja línurnar fyrir
komandi ár. Og það er einmitt þetta sem gerir tískuvik-
una í London svo heillandi. Hér er það nefnilega víða
hugarflugið, en ekki grár og kaldur hversdagsleikinn,
sem fær að ráða ferðinni. Vissulega laumast raunveru-
leikinn gjarnan inn hjá þeim hönnuðum sem eldri og
reyndari eru. Nichole Fahri yrði t.d. seint sökuð um að
hafa ekki báða fætur á jörðinni og klæðileikinn er óneit-
anlega einnig ofarlega á blaði hjá Betty Jacskon. Jafn-
vel ævintýraleg hönnun sjálfrar Vivienne Westwood
verður um margt fínlegri með árunum.
Frumleikinn er engu að síður víðast hvar það sem
máli skiptir. Þannig var hönnun Markus Lupfer fyrir
Armand Basi í líflegum litum og yfirstærðum, í klæðum
Basso and Broke var forminu skipað í hásæti og lína
Fashion East telst væntanlega allt annað en hefðbundin.
Frumleikin var þó líklega hvergi meira ráðandi en á
sýningu Gareth Pugs sem er lýsa má sem „stjörnustríðs-
legri“. Skúlptúrleg klæði úr rennilásum og öryggis-
nælum, hrosshári, geitaskinni og pvc-plastefnum koma
væntanlega ekki til með að sjást á gólfum kauphall-
arinnar, í næsta bakaríi eða verslunarmiðstöð, en óneit-
anlega myndi það nú gera hversdagsleikann skemmti-
legri …
Stjörnustríðsandinn Löguleg flík
úr rennilásum frá Gareth Pugh.
Klassík Fortíðarandi með fram-
tíðarblæ frá Richard Nicoll.
Umfangsmikil Skúlptúrlínur voru ríkjandi
hjá Basso and Brooke.
Ascot í sumar? Skemmtilegur hattur
úr línu Basso and Brooke.
Eins og sólin Líflegur kjóll og skemmti-
legar sokkabuxur frá Betty Jackson.
Litrík Sterkir litir voru áberandi í
hönnuninni frá Ossie Clarke.
Þar sem hugar-
fluginu eru
enginn tak-
mörk sett
Tíglar Munstrin voru litrík
hjá Eley Kishimoto.
tíska
26 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Árni Helgason í Stykkishólmisendir Vísnahorninu nokkrar
stökur um áfengið, „sem þeir hafa
kveðið sem brennt sig hafa á
áhrifum þess. En hvenær læra
menn að varast?“ Fyrst er vísa eftir
Bólu-Hjálmar:
Ölið veikir minni og mál
mannvit sleikir burt úr sál
limina heykir lostatál
og loksins kveikir eilíft bál.
Þá Ólína Jónasdóttir:
Vínið hrindir frá þér frið
fremd í skyndi dvínar,
samt er yndi að sitja við
sálarlindir þínar.
Ásgeir Jónsson:
Víns er þorstinn voða sterkur
verður hann mér brátt um megn.
Allar heimsins eyðimerkur
aldrei þráðu meira regn.
Valdemar S. Long:
Vínið eyðir ást og tryggð
orku deyðir viti og dyggð,
af sér leiðir hel og hryggð,
háska, neyð um sæ og byggð.
Þorbergur Þorsteinsson Gilhaga:
Flaskan villu veilum fró
velsæld spillir manna
unnið hylli hefir þó
höfuðsnillinganna.
Séra Einar Friðgeirsson:
Ef að þorstinn drepur dáð
og drafar í skrældum munni,
þá er sannreynt þrautaráð
að þamba úr Gvendarbrunni.
Theodóra Thoroddsen:
Augun gerast vot og veik
vitinu sumir farga;
svona eftir sælan leik
svíkur Bakkus marga.
Loks Rósberg G. Snædal:
Sá er gín við fölskum feng
frelsi sínu tapar.
Bölvað svín úr besta dreng
brennivínið skapar.
Árni klykkir út með: „Og svo
vilja menn bæta við og koma
áfenginu nær unglingunum. Venja
þá strax við eitrið. Hvílík vitleysa.“
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Heimsins eyðimerkur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
frá kr. 19.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á síðustu sætunum á skíði í Austurríki í febrúar og
mars. Bjóðum vikuferðir 23. febrúar og 1. mars; frábær sértilboð á flugsætum og
frábær tilboð á flugi og gistingu. Tryggðu þér skíðafrí á besta verðinu og bókaðu strax.
Mjög takmarkað framboð flugsæta.
23. febrúar og 1. mars
Verð kr. 54.990
Flug og gisting í viku
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað
”án nafns” í Zell am See / Schuttdorf / Lungau)
með morgunverði í 7 nætur (sjá skilmála ”stökktu
tilboðs”). Sértilboð 23. febrúar og 1. mars.
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. 23. febrúar. 1. mars kr.
25.890. Netverð á mann.
Verð kr. 89.990
Frábært **** hótel með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku.
Sértilboð 23. febrúar og 1. mars.
Verð kr. 64.990
Vikuferð með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Speiereck *** í Lungau með hálfu fæði í 7 nætur.
Sértilboð 1. mars.
Síðustu sætin
Skíðaveisla
í Austurríki
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.