Morgunblaðið - 16.02.2008, Page 16
16 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"!
# $%
#&$"
'("(
")(
#&$"
#%$!
!
& '"*
'"
#%$
#%$)
"#$%
&
)'(**
+'*"
#&$+
#&$!
'(
)*
)'&&+
&'&"!
,&$"
#&$(
!""#
!"
& + ,-./
++ 01,-./
%2 /
"3,-./
,4 +/
5/%
+. 64 4
78 4 ,-./
9 -. +/
3 +4 /
4/
$:;
$ -
-<- =">=///
#
/
?-/
#$$"%&'( !
@A(/
&4 8 /
& 4 8& & 4 8: 4 -
:B"
%+ +
"4 ,-./
"C 78 4 8,-./
D >/
#
1/
4- 1/
! )!*' $+
E -&4-
-
E/
5, /
5
.> /
(, -!.
/(
($**
)$+%
& $ +
!$!
&*$%)
"%$&)
+$&%
()%$%%
*$()
!)$*%
)$(*
& $"*
)$
!&$%
&$)(
+$
&**$)%
&+%($%%
"+$%%
&$%)
&"+$%%
"$&!
"$%%
($%%
*$)%
&")$%%
&%$%%
+$%%
+.
#4F4+ 9 -.$ 4
HA/)H*/I'J
HH)/J*H/)K*
KIK/@A*/AHH
HAK/''A/('A
'/'HJ/J*H/A)(
'I/(IH/(@I
HJ/'@'/@*A
H/I*)/'')/J))
'/**(/'IH/'(I
A*J/@)@/J(H
'(*/HHI/@@K
))'/K')/'K@
@'I/'J*/***
HH/IH(/J@*
)/J@*/H(J
@/HK)/H**
)J(/(AK
'/'IK/)I*
<
@A/K(*
I'(/KKJ
A/)(*/***
<
<
<
HHI/@'J/KA(
<
<
KLI@
)(L'*
'HL'K
JLJH
'IL**
@*L*(
H(LJ(
K)(L**
HILK(
J)LI*
(LKH
'HLHI
(L'I
J'L)*
'L(A
AL)H
'IKL**
'((*L**
)@(L**
'L*(
'@HL**
@L'(
<
<
<
)'(*L**
<
<
KLII
)(LA*
'HLHA
JLJK
'IL*(
@*L@(
HAL'*
K('L**
HILI*
J(LI*
(LKI
'HL@I
(LH)
JHL(*
'L(I
AL))
'IJL(*
'(K'L**
)@JL(*
'L*A
'@AL**
@L'I
H@L**
<
<
)H'*L**
'*L**
AL**
">14
0+.
'*
'K
@K
)I
AI
')
'H
'*)
(H
I
@I
(@
A
'*
K
'
'
I
<
'
)
(
<
<
<
H'
<
<
0+/0
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
')/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
'(/H/H**I
K/H/H**I
A/'H/H**K
HH/I/H**K
'(/H/H**I
H(/'/H**I
')/'/H**I
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
FALLIÐ á mörkuðum heimsins hélt
áfram í gær. Spá greiningardeildar
svissneska bankans UBS þess efnis
að fjármálafyrirtæki gætu þurft að
afskrifa lán fyrir allt að 203 milljarða
dala dró evrópsku markaðina niður
og þegar við bættist að væntingar
bandarískra neytenda væru í 16 ára
lágmarki var ljóst að ekki var von á
hækkunum við opnun markaða í
Bandaríkjunum.
UBS telur hættu á að skulda-
tryggingafyrirtæki lendi brátt í
greiðsluþrotum sem feli í sér að lán-
veitendur verði að afskrifa lán sín og
segir í skýrslu bankans að vanda-
málin á lánamörkuðum fari vaxandi
og séu ekki lengur einskorðuð við
ótrygg fasteignalán í Bandaríkjun-
um. Stærstu skuldatryggingafyrir-
tæki heims eiga á hættu að lánshæf-
iseinkunnir þeirra lækki á næstunni
en Fitch hefur þegar lækkað ein-
kunn eins þeirra, Ambac, vegna
óvissu um viðskiptalíkan fyrirtækis-
ins. Yfirvöld í New York-fylki hafa
tilkynnt að þau séu að reyna að afla
fjár til þess að bæta stöðu trygginga-
félaganna og koma þannig í veg fyrir
að lánshæfi þeirra lækki en í kjölfar
skýrslu UBS hækkaði iTraxx-vísital-
an, sem mælir skuldatryggingaálag
banka, um 10 stig.
Skömmu fyrir lokun vestanhafs
tóku markaðir að styrkjast vegna
vangaveltna um að yfirtökutilboð
myndi ef til vill berast í fjárfesting-
arbankann Bear Stearns og hækkaði
S&P 500-vísitalan um 0,08% en hún
var þó sú eina sem náði upp fyrir
núllið. Þegar upp var staðið hafði
Dow Jones-iðnaðarvísitalan lækkað
um 0,2% og Nasdaq-vísitalan lækkað
um 0,5%.
Ótti við enn frekari
afskriftir banka vex
Í HNOTSKURN
» Íslenska úrvalsvísitalanvar sú eina sem hækkaði í
V-Evrópu í gær.
» Gengi hlutabréfa CenturyAluminium hækkaði um
5,8% í gær.
» SkuldatryggingafélagiðFGIC hefur óskað eftir
leyfi til þess að verða skipt í
tvennt. Annars vegar félag
sem tryggir skuldabréf banka
og hins vegar félag sem trygg-
ir bréf sveitarfélaga.
Reuters
● JAN Petter Sissener íhugar að
kaupa starfsemi Kaupþings í Nor-
egi. Frá þessu greinir norska blaðið
Dagens Næringsliv en eins og fram
hefur komið lét Sissener af starfi
forstjóra Kaupþings í Noregi í vik-
unni.
Jónas Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs Kaup-
þings, segir alls ekki standa til að
selja starfsemina í Noregi. „Und-
anfarin ár höfum við verið að byggja
upp þessa starfsemi með ágætum
árangri og þeirri uppbyggingu verður
haldið áfram,“ segir Jónas.
Vill kaupa Kaupþing
● EYRIR Invest, stærsti hluthafi
Marel Food Systems, hefur aukið
hlut sinn í félaginu samkvæmt til-
kynningu til kauphallar. Þar kemur
fram að Eyrir hafi keypt 8 milljónir
hluta í Marel, tæplega 2% hlut, og í
kjölfarið er hlutur Eyris orðinn 33,2%.
Þá barst kauphöll tilkynning frá
Atorku þess efnis að félagið hefði
minnkað hlut sinn í Marel úr 5,63% í
4,18%.
Í gær áttu sér stað viðskipti með
1,45% hlut í Marel á genginu 99
krónur á hlut en ekki er ljóst hverjir
áttu hlut að máli.
Eykur hlut sinn í Marel
● FL GROUP
sendi frá sér yf-
irlýsingu í gær
þar sem vísað er
á bug fullyrð-
ingum í frétt
danska við-
skiptablaðsins
Børsen um að fé-
lagið sé að und-
irbúa sölu á flugfélaginu Sterling.
Segir að í fréttinni hafi verið snúið út
úr orðum Jóns Sigurðssonar for-
stjóra, sem aðspurður um hvort hann
teldi að FL Group yrði enn meðal hlut-
hafa í Sterling eftir fimm ár sagðist
telja líklegt að innan fimm ára yrðu
komnir nýir hluthafar að Sterling.
„Það þýðir alls ekki að FL Group sé að
undirbúa sölu á Sterling,“ segir í yf-
irlýsingunni. Einnig er bent á að Sterl-
ing sé ekki í beinni eigu FL Group,
heldur norræna ferðaþjónustufyr-
irtækisins Northern Travel Holding,
sem FL Group á 34% hlut í.
Ekki að selja Sterling
EKKI er áhættumeira að leggja
sparnað sinn inn hjá Landsbanka og
Kaupþingi en hjá breskum bönkum.
Þetta er niðurstaða Jane Baker, fjár-
málasérfræðings og blaðamanns hjá
Motley Fool, í grein sem hún ritar á
vefinn The Fool.
Bent er á að þrátt fyrir að Moody’s
sé nú að endurskoða lánshæfisein-
kunn íslensku bankanna hafi þeir
mjög háa einkunn, Aa3, sem feli í sér
að skuldabréf þeirra séu í háum
gæðaflokki og lánaáhætta mjög lítil.
Þannig sé einkunn íslensku bank-
anna svipuð og, ef ekki hærri en, ein-
kunn stórra breskra fjármálastofn-
ana á borð við Abbey, Alliance &
Leicester, Bradford & Bingley,
ICICI og Standard Life Bank. Þá er
bent á að Kaupþing sé enn með ein-
kunnina Aa3 þrátt fyrir að hafa verið
í endurskoðun síðan í ágúst.
Breskum sparifjáreigendum var í
grein í Sunday Times um síðustu
helgi ráðlagt að leggja ekki meira en
35 þúsund pund inn á reikninga hjá
íslensku bönkunum. Baker bendir á
að innlán séu tryggð á sama hátt
hérlendis sem í Bretlandi og segir:
„Miðað við aðstæður á lánamörkuð-
um tel ég skynsamlegt að takmarka
innlán sín við 35 þúsund pund á
banka, hvort sem skipt er við ís-
lenskan eða breskan banka.“
Segir íslensku
bankana örugga
VELTA í smásölu jókst um 12,4% í
janúar miðað við sama mánuð í
fyrra samkvæmt smásöluvísitölu
Rannsóknaseturs verslunarinnar
sem birt var í gær. Smásölu-
vísitalan lækkaði um 33% á milli
mánaða en þess ber að geta að vísi-
talan lækkar alltaf á milli desember
og janúar og er jólaverslun helsta
ástæðan. Velta í dagvöruverslun
jókst um 10,4% á milli ára, sem er
töluvert meira en algengt er því að
yfirleitt hefur dagvöruvelta vaxið
um 7,7% á milli ára í janúar.
Í fréttatilkynningu frá RV segir
að að því leyti sem vísitalan gefi vís-
bendingu um einkaneyslu virðist
hún ekki vera að dragast saman.
Samdráttur í hagkerfinu, sem spáð
hefur verið, sé því varla hafinn
ennþá.
Smásöluvelta eykst á milli ára
Árvakur/Golli
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði á ný í
gær og við lokun markaðar var hún
5.116 stig, sem er 1,3% hærra en
við lokun daginn áður. Mest hækkun
varð á hlutabréfum 365, 6,08%, en
bréf Icelandic Group lækkuðu mest,
um 3,33%.
Mest velta var með bréf Kaup-
þings, 2,8 milljarðar, en velta dags-
ins nam 27,5 milljörðum, þar af var
hlutabréfavelta 10,7 milljarðar.
Gengisvísitala krónunnar hækkaði
um 0,62% í gær og veiktist krónan
sem því nemur.
Tryggingarálag á skuldabréf Kaup-
þings og Landsbanka hækkaði lít-
illega í gær en álag Glitnis er
óbreytt. Álagið á bréf Kaupþings er
nú 555 punktar, Landsbankans 270
punktar og Glitnis 520 punktar.
Vísitalan hækkar á ný
TRYGGVI Þór Herbertsson, forstjóri
Askar Capital, sagði í pallborðsum-
ræðum á Viðskiptaþingi að æskilegast
væri fyrir íslenskt fjármálakerfi að
einhverjir stóru bankanna sameinuð-
ust. Nefndi hann samruna Glitnis og
Landsbankans í því sambandi. Skera
þyrfti upp íslenskt viðskiptalíf þar
sem hefðbundin hagstjórnarráð á
borð við vaxtabreytingar væru ekki
nægjanleg viðbrögð við núverandi umróti á markaðnum.
Haft er eftir honum í Viðskiptablaðinu í gær að ef Glitnir
og Landsbankinn sameinuðust væru komnir tveir bank-
ar í svipaðri stærð, þ.e. Kaupþing og Landsbankinn/
Glitnir. Aðrir bankar á markaði yrðu minni, s.s. þeir sem
tengjast sparisjóðakerfinu. Þessi sameining virtist besti
kosturinn fræðilega séð þegar málin væru skoðuð í heild
sinni. Taldi Tryggvi að nú væri rétti tíminn fyrir samein-
ingu þegar erfiðleikar væru fyrir hendi og það myndi
stytti erfiðleikatímabilið verulega.
Bankasamruni æskilegur
Tryggvi Þór
Herbertsson
CENTURY Al-
uminum, móður-
félag Norðuráls,
mun hefja fram-
kvæmdir við álver
í Helguvík á
þessu ári. Þetta
kemur fram í upp-
gjörstilkynningu
félagsins sem gef-
in var út í fyrra-
dag og í Vegvísi
Landsbankans segir að fyrsta skóflu-
stunga að álverinu sé áætluð í lok
fyrsta fjórðungs, þ.e. í mars. Að sögn
Ragnars Guðmundssonar, forstjóra
Norðuráls, hefur það þó ekki endan-
lega verið tímasett hvenær fyrsta
skóflustungan verður tekin.
Century skilaði 112,3 milljarða
dala tapi á lokafjórðungi síðasta árs,
sem þó er betra en árið áður en þá
var 119,1 milljónar dala tap hjá félag-
inu. Í bæði skiptin var þó hagnaður af
rekstri félagsins vegna taps af fram-
virkum samningum sem gerðir eru
upp á markaðsvirði á hverjum fjórð-
ungi, í samræmi við bandarískar
reikningsskilareglur, varð afkoman
neikvæð.
Í tilkynningunni kemur fram að
sala á fjórða ársfjórðungi hafi aukist
um átta milljónir dala frá árinu áður
og þegar litið er á árið sem heild hafi
sala aukist um 200 milljónir dala á
milli ára.
Ragnar Guðmundsson segir Norð-
urál hafa verið skuldlaust um ára-
mót.
Tap hjá
Century
Aluminum
Norðurál var skuld-
laust um áramót
Ragnar
Guðmundsson
HAGNAÐUR Milestone dróst lít-
illega saman á milli ára, nam 21,3
milljarði á árinu 2007 en 21,4 millj-
örðum árið áður. Munar þar eflaust
miklu um síðasta ársfjórðung en á
fjórða fjórðungi síðasta árs var 5,8
milljarða tap af starfsemi félagsins.
Athygli vekur að fjármagnskostn-
aður dróst töluvert saman á milli
ára á meðan efnahagsreikningur
félagsins ríflega tvöfaldaðist. Eig-
infjárhlutfall lækkaði úr 26% í 18%.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að það hyggist færa
allar íslenskar eignir sínar undir
sænska dótturfélagið Invik, sem
stendur til að skrá á markað. Þess-
ar breytingar eru þó háðar sam-
þykki íslenskra og sænskra fjár-
málayfirvalda.
Efnahagsreikn-
ingur tvöfaldast
♦♦♦
● MIKIL viðskipti með hlutabréf
Glitnis áttu sér tvisvar stað í vikunni.
Á þriðjudag skipti 1,75% hlutur um
eigendur á genginu 17,1 og á mið-
vikudag skipti 2% hlutur um eigendur
á genginu 17,3.
Engar tilkynningar hafa borist
kauphöll um hverjir áttu hlut að máli
en samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var Sund ehf. kaupandi
annars hlutarins. Jón Kristjánsson,
stjórnarformaður Sunds, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið að hafa
keypt í Glitni en vildi þó ekki segja
hversu stóran hlut.
Sund kaupir í Glitni