Morgunblaðið - 16.02.2008, Qupperneq 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Við leggjum meira upp úrvellíðan en rándýrumhúsgögnum eða risastór-um rýmum. Til dæmis
finnst okkur lýsingin á heimilinu
skipta miklu máli, að hún sé mjúk
og notaleg. Þess vegna erum við
með mikið af ljósaseríum og kert-
um, við kjósum það frekar en sker-
andi birtu frá stórum loftljósum.
Eins viljum við hafa persónulega
hluti í kringum okkur, sem tengja
okkur við fortíðina og minningar,
hvort sem þær eru frá útlöndum,
bernskunni eða einhverjum æv-
intýrum,“ segja sambýliskonurnar
Halla „himintungl“ Frímannsdóttir
galdrakona og Inga Dóra Guð-
mundsdóttir myndlistarkona, en
þær hafa búið sér persónulegt
heimili í risíbúð við Hringbraut.
„Þetta er ekki stór íbúð en hún er
skemmtileg. Út frá stóra kvistinum
í stofunni er hægt að ganga út á
hringlaga svalir og þaðan er útsýni
stórkostlegt, við sjáum til Bláfjalla,
Suðurnesja og yfir hafið og alla leið
til Snæfellsjökuls. Við erum með
enn frekari tengingu við Snæfells-
nes, enda förum við oft þangað, því
í eldhúsinu erum við með stóran
bakka fullan af steinum frá Snæ-
fellsnesi sem eru handvaldir af
gyðju og innan um þá loga kerti.“
Efri hæðin eða svefnloftið er
ekki aðeins svefnstaður, því þar
kennir ýmissa grasa. M.a. er þar
forláta skatthol frá langömmu Ingu
Dóru sem og ágætt safn vínilplatna
sem hún hefur komið sér upp í
gegnum tíðina. Sumar plöturnar
koma frá mömmu hennar, aðrar frá
afa hennar sem var mikið fyrir
djass og flamengó, en svo fer hún
líka í Kolaportið og gramsar þar í
plötunum.
„Okkur finnst gaman að blanda
saman fræðum og því settum við
upp sérstakt velgengnishorn uppi á
svefnloftinu. Þar er til dæmis
gúmmíplanta sem laðar að fjár-
magn, þar hanga uppi öll skírteinin
okkar sem við höfum safnað að
okkur með námi og námskeiðum í
gegnum tíðina. Við erum með svart
og rautt silki, enda fylgir því góð
orka, og við erum líka með altari
þar sem á eru hlutir sem eru okkur
kærir og færa okkur mikla ham-
ingju. Vegabréfin okkar eru í vel-
gengnishorninu, af því að við höfum
svo gaman af því að ferðast.“
Salibunur niður Laugaveginn
Þær eru nýlega búnar að fjár-
festa í borðstofuborði og stólum og
breyttu ýmsu í leiðinni í borðstof-
unni. „Við tókum hjólin undan
bókahillunni sem þar var og sner-
um henni um níutíu gráður og lét-
um hana undir súðina.“ Sérstakur
órói með tunglum vekur athygli
þar sem hann hangir í súðarglugga
yfir borðstofuborðinu, en Guðveig,
sem rak veitingastaðinn Hala-
stjörnuna undir Hraundröngum,
gaf Höllu hann þegar kvenna-
hljómsveitin Heimilistónar spilaði
þar í hlöðunni forðum. Fleira vekur
athygli í borðstofunni. Þar er stór-
merkilegt hjól sem er með stóru
hjóli að framan en miklu minna
hjóli að aftan, svona eins og tíðk-
aðist í gamla daga. „Það eru bara
til tvö svona hjól á landinu skilst
mér. Ég var svo heppin að þetta
hjól var til sölu í Erninum þegar ég
var að skúra þar fyrir átján árum,
og ég horfði á það miklum löng-
unaraugum. Það tók mig heilan
mánuð að skúra til að eiga fyrir
Notalegt Opið er á milli eldhúss og borðstofu og nýja skipulagið hið besta mál. Galdraherbergið Spáspil, rúnir, álftafjaðrir og fleira fallegt.
Hlátur og galdur undir
súð í Vesturbænum
Árvakur/Árni Sæberg
Gaman Þær eru flottar Inga Dóra og Halla, hvor með sitt Didgeri Doo og umvafðar ljósaseríum.
Þær fengu hláturskast
þegar átti að taka af
þeim mynd og þær
dansa stundum á bláa
baðherberginu. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
heimsótti glettna
galdrakonu og hlát-
urmilda myndlist-
arkonu sem búa í ris-
íbúð í Vesturbænum. Gripir Hjólið sem Halla spókaði sig
á og myndverk eftir Ingu Dóru.
Heimshornaflakkarar Arabísk
vatnspípa og ferðastóll frá Malaví.
Undir súð Hillan sem fór á hliðina. Þar er baunaspil frá Nígeríu.
Aðferðirnar er að finna í þessari bók.
Febrúartilboð - 1990 kr.
Virkjaðu
hugann til
góðra verkja