Morgunblaðið - 16.02.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 35
✝ Jóhannes Mar-inó Ólafsson
fæddist í Reykj-
arfirði í Arnarfirði
hinn 9. maí 1919.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu á Patreks-
firði 7. febrúar síð-
astliðinn. Jóhannes
var sonur hjónanna
Ólafíu Vigfúsdóttur
og Ólafs Jóhann-
essonar. Systkini
hans voru þau
Gunnar, f. 9. jan.
1918, d. 1993, og
Guðrún Elín, f. 8. apríl 1923.
Þau systkinin misstu ung að
aldri föður sinn og ólust upp í
Reykjarfirði með móður sinni og
móðurafa. Þrátt fyrir fátækt
byggðu þau upp
jörðina og stund-
uðu búskap þar allt
til 1960, en þá
brugðu þeir bræður
búi og fluttu til
Bíldudals. Þar bjó
Jóhannes hjá systur
sinni og hennar
fjölskyldu til ævi-
loka. Jóhannes
gegndi ýmsum
störfum um ævina
ásamt fjárbúskap
sem hann stundaði
allt fram á síðasta
haust er kraftar voru þrotnir til
erfiðisvinnu.
Jóhannes verður jarðsunginn
frá Bíldudalskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Elskulegur föðurbróðir okkar
hefur nú lokið sinni jarðvist. Jói
frændi, eins og við systkinin köll-
uðum hann, bjó í húsinu á móti
okkur þegar við vorum að alast
upp. Jói kvæntist aldrei né eign-
aðist börn og bjó alla tíð hjá Gunnu
frænku, systur sinni, Birni mági
sínum og börnum þeirra. Það eru
bara góðar minningar sem við eig-
um frá uppvaxtarárunum. Fjöl-
skyldan öll í sömu götunni og jafn
sjálfsagt að fara heim í Hof eins og
Þórshamar. Jói lifði fyrir rollurnar
sínar og gat aldrei hætt að vera
bóndi þó hann flytti úr Reykjar-
firði. Hann þekkti þær allar með
nafni og þó heilsan gæfi sig og
hann gæti ekki sinnt búskapnum
lengur gat hann ekki hætt alveg.
Hann fékk bara gott fólk til að
hjálpa sér og fækkaði aðeins í
stofninum. Jói dró það eins lengi og
hann gat að leggjast inn á sjúkra-
hús. Hann sagði að þá myndi hann
ekki eiga aftur afturkvænt heim.
Það reyndist rétt hjá honum, hann
lést eftir viku. Nú er elsku Gunna
orðin ein eftir á lífi af Reykjarfjarð-
arsystkinunum. Við þökkum Jóa
ánægjulega samfylgd í lífinu og
ógleymanlegar sögustundir sem
flestar byrjuðu á: „Ég get sagt ykk-
ur það“ og munu lifa um ókomna
tíð. Við trúum því að pabbi og allir
hinir gengnu ástvinirnir hafi tekið
honum opnum örmum á nýjum
stað. Við biðjum Guð að vaka yfir
Gunnu frænku og ástvinum öllum á
kveðjustund.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem.)
Ólafur Jóhannes, Anna
Maggý, Selma og Bragi
Geir Gunnarsbörn.
Jóhannes Marinó
Ólafsson
✝ Bryndís Ein-arsdóttir Hólm
fæddist á Eskifirði
30. janúar 1943.
Hún lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans 9. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Kristín Sím-
onardóttir, f. 20.
febrúar 1910, d. 13.
janúar 1960 og Ein-
ar Hólm, f. 6. febr-
úar 1908, d. 6. apríl
1970. Systkini
Bryndísar eru: 1) Jónas, f. 12.
desember 1930, d. 21. júlí 1991, 2)
Lára, f. 1. febrúar 1932, d. 23.
apríl 1978, 3) Geir, f. 9. janúar
1933, 4) Reynir, f. 7. maí 1934, d.
4. júlí 1999, 5) Bára, f. 13. júní
1935, d. 16. nóvember, 6) Hörður,
f. 21. október 1936, d. 1. ágúst
1937, 7) Már, f. 11. ágúst 1938, og
8) Kristín Elísabet, f. 16. júní
1940
Bryndís giftist 22. maí 1966
Birni Lúðvík Jónssyni, skipstjóra
frá Dilksnesi í Hornafirði, f. 7.
september 1942. Börn: 1) Harpa,
f. 30. ágúst 1963
(faðir Svavar Krist-
jánsson frá Skuld á
Eskifirði, f. 14. nóv-
ember 1944), gift
Finni Loftssyni, f.
28. mars 1963, dæt-
ur þeirra Helga, f.
18. júlí 1985 og
Brynja, f. 10. júní
1989. 2) Kristín, f.
10. apríl 1967, gift
Einari Smárasyni, f.
21. desember 1964,
börn þeirra Bryn-
dís, f. 15. október
1993 og Agnar, f. 4. ágúst 1995.
3) Jón, f. 21. maí 1972, unnusta
Kristrún Ýr Gylfadóttir, f. 14.
september 1980.
Bryndís fluttist til Horna-
fjarðar 1965 og bjó þar alla tíð
síðan. Hún stundaði þar ýmiss
störf en lengst af vann hún í
Kaupfélaginu á staðnum. Hún
var virk í félagstarfi við Rauða
krossinn,Slysavarnarfélagið og
golfkúbbinn á Höfn.
Útför Bryndísar fer fram frá
Hafnarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Með þessum örfáu orðum langar
okkur að minnast Bryndísar Hólm,
sem nú er látin. Eins miskunnarlaus
og dauðinn er okkur mönnunum, er
hann því miður jafnnáinn okkur og
lífið sjálft. Eins og Kristján Fjalla-
skáld orti;
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
en drottinn telur tárin mín –
ég trúi’ og huggast læt.
Kæra fjölskylda, það er mikill
missir af góðri konu, móður,
tengdamóður, ömmu og vinkonu.
Minningin um hana varðveitist í
hjörtum eftirlifenda og eftir því sem
tíminn líður munu allar hinar góðu
minningar verða sífellt kærari. Þó
lífið sé á stundum myrkvað má ætíð
finna ljósgeisla brjótast fram er
lýsa upp þann veg sem framundan
er.
Baldvin, Guðrún Ásta og börn.
Bryndís Einarsdóttir
Hólm
son mágur minn var skyndilega kall-
aður brott.
Farinn án þess að við gætum kvatt
og þakkað fyrir samfylgdina. Minn-
ingarnar streyma að, fátækleg orð
segja lítið.
Meðan Eskifjörður var meðal öfl-
ugustu athafnasvæða landsins var
Tómas verkstjóri, ýmist í frystihúsi
staðarins eða á síldarplönunum. Þá
sótti ég, ásamt fleira fólki af Héraði,
vinnu þangað. Í stað þess að búa í
verbúðum, dvaldi ég hjá Björgu syst-
ur minni og Tómasi, umvafin alúð og
umhyggju.
Eftirminnilegt er hvað Tómas stóð
vörð um að heimilisfólkið nyti hvíldar
og næðis þó hann væri sjálfur, vegna
komu skipanna, á vakt allan sólar-
hringinn.
Aldrei æðruorð, allt kapp lagt á að
ná sem mestum afla á land og koma
honum í verð.
Þrátt fyrir þreytu og annríki var
stutt í glensið og grínið.
Tómas var mjög barngóður og
fóru börnin mín og barnabörn ekki
varhluta af því.
Öldruðum sýndi hann sérstaka
umhyggju og virðingu, þess urðu for-
eldrar mínir aðnjótandi í ríkum mæli.
Svo skammt er síðan Tómas hug-
hreysti mig í minni sorg að mér
finnst ég enn finna hlýja handtakið
hans. Nú situr aðeins söknuðurinn
eftir. Áfram rennur tíminn og tekur
sinn toll. Hversu ásættanlegur hann
er sýnist sitt hverjum, hverju sinni.
Við Grétar vottum Björgu, dætr-
unum og fjölskyldum þeirra okkar
dýpstu samúð og biðjum þeim hugg-
unar í harmi.
Elsku Björg mín, við skulum
hugga okkur við orð Kahlil Gibran:
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft-
ur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem
var gleði þín.
Þín systir
Þórunn.
Tómas Þ. Hjaltason, vinur og fé-
lagi í meir en 40 ár, er látinn. Nú er
skarð fyrir skildi á Eskifirði, því að
þar ól hann allan sinn aldur og var
hverjum manni þekkur. Glettnisblik-
ið í augum þessa granna og kvika
manns skerpir ekki lengur litina í
hversdeginum.
Tómas fór í Sjómannaskólann og
var lærður stýrimaður. Sjómennsk-
an, veiðar og vinnsla áttu hug hans
allan, en hann lagði á margt fleira
gjörva hönd. Þegar við kynntumst,
vann ég hjá Pöntunarfélaginu, en
Tómas hafði tekið að sér að breyta
gömlu húsi hjá félaginu í mjólkur- og
matvælageymslu. Hann var hagur til
hugar og handa, sem sást svo vel á
þeim mörgu bátum, sem hann eign-
aðist. Tómas starfaði lengi hjá þeim
bræðrum Aðalsteini og Kristni Jóns-
sonum, fyrst sem verkstjóri vinnslu í
hraðfrystihúsinu, sem breyttist á
þessum tíma úr gamaldags fiskhúsi í
fullkomið matvælaframleiðslufyrir-
tæki. Seinna stjórnaði Tómas
vinnslu hjá þeim bræðrum í Auð-
björgu, en félagið var um skeið
stærsta félag í síldarsöltun á Íslandi.
Ég átti nokkuð stóran hóp ætt-
ingja á Eskifirði, en þekkti aðeins
náið Arnþór Jensen, hálfbróður
minn, og hans fólk. Þau Tómas og
Björg bjuggu þá í Presthúsi og þá
var Lísa þeirra lítil prinsessa með
stórar slaufur í hárinu. Það má
segja, að þau Tómas og Björg hafi
tekið okkur Helgu í fóstur, og þau
kynntu okkur fyrir mörgu góðu fólki
á Eskifirði, sem þar bjó þar og sumt
býr þar enn. Þau Tómas og Björg
sögðu mér oft í stríðnistón, að þessi
eða hinn væri frændi eða frænka
mín. Og Tómas var hjálplegur maður
og aðstoðaði mig oft í mínu starfi hjá
Pöntunarfélaginu og þá sérstaklega
við skipaafgreiðsluna og olíuna, en
Pöntunarfélagið hafði dreifingu fyrir
BP og afgreiðslu fyrir Hafskip. Vin-
áttubönd við hann og fjölskyldu hafa
verið okkur Helgu dýrmæt og í engu
trosnað við árin mörgu og fjarlægð-
ina. Kynni okkar þættust líka af
fleiru en venjulegum vinafundum og
að lyfta glasi í Trade Mark og Kók,
meðan slíkt nú var.
Eftir að við Helga fórum frá Eski-
firði, héldust okkar góðu kynni við
þau hjón, og fóru dætur okkar í
heimsóknir til þeirra á sumrin svo og
við sjálf, margoft. Við breytingarnar
á bættri aðstöðu við matvælafram-
leiðslu hraðfrystihússins, þurfti
Tómas að sækja nokkur námskeið
fyrir þess hönd til Reykjavíkur.
Tómas bjó þá hjá okkur Helgu. Þá
fórum við mörg kvöld til ættingja
hans og vina, og í bíltúra, sem end-
uðu oft með að fara út að borða á ein-
um frægasta matsölustað Reykja-
víkur, Bæjarins bestu.
Eins og eðlilegt er, þegar góðir
vinir búa hvor í sínum landshluta, er
notaður sími. Þeim Björgu og Helgu
þótti oft nokkuð teygjast á samtöl-
unum. Eitt sinn þegar samkeppnin
var hvað mest hjá flugfélögunum,
sagði Björg við Tómas, segðu Þóri að
það sé orðið svo ódýrt að fljúga aust-
ur. Við hittumst oft á sumrin, og
ferðuðust um Austurland, og Norð-
urland, þar á meðal út í Grímsey,
Drangey og skoðuðum hinn stór-
kostlega Skagafjörð.Það var sama
hvar við komum við sjávarsíðuna, at-
hygli Tómasar var við bátahafnirnar.
En einhver stundin verður hinst.
Við Tómas töluðum saman í síma að
kvöldi 5. febrúar og daginn eftir var
hann allur. Það var klippt snöggt og
óvænt á hans sterka og kraftmikla
lífsþráð. Það var sárt og sárast fyrir
hans nánustu, Björgu, Elísabetu,
Nönnu, Þórhildi og þeirra fjölskyld-
ur. Við Helga og börnin okkar send-
um einlægar samúðarkveður. En í
gegnum tregann lýsir minningin um
góðan dreng og góðan vin og þakk-
lætið fyrir það að hafa átt hann að
vini.
Þórir Jensen.
Látinn er Tómas Hjaltason frá
Eskifirði á sjötugasta og þriðja ald-
ursári.
Ég man eftir Tómasi frá fyrstu tíð.
Tómas leyfði mér að stýra amerískri
glæsikerru þegar ég var barn. Ég
man eftir því þegar hann leyfði mér
að sitja í jarðýtu þegar hann var að
vinna við byggingu nýju hafnarinn-
ar.
Helsta áhugamál Tómasar voru
skotveiðar. Til er saga af því þegar
þeir feðgar fóru til rjúpna inn á
Fagradal. Hjalti faðir hans fór inn í
Launárdal og kom með á annað
hundrað rjúpna í bílinn. Tómas fór
handan vegarins og kom með litlu
minna, þrátt fyrir að skeftið á byss-
unni hefði brotnað og höndin verið
illa marin af þeim sökum.
Til er önnur saga af Tómasi þegar
hann rann til á svelli á rjúpnaveiðum.
Við það missti hann byssuna, sem
rann á eftir honum og þegar byssan
rakst á stein hleypti hún af skoti en
sem þetur fer snéri byssan í aðra átt
þannig að ekki hlaust skaði af.
Tómas var einnig liðtæk gæsa-
skytta og sótti helst út að Héraðs-
flóa. Lengi vel stundaði Tómas verk-
stjórn hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar. Enn fremur gegndi
hann verkstjóra- og matsmanns-
starfi hjá Auðbjörgu, síldarsöltunar-
stöð í eigu Aðalsteins Jónssonar, svo
og hjá Eljunni hf., sem Guðjón bróð-
ir hans átti. Tómas var einkar vel lið-
inn í verkstjórnarstörfum sínum og
var réttur maður á réttum stað í
þeim störfum.
Síðustu árin stundaði Tómas smá-
bátaveiðar af krafti og hafði þá
gjarnan byssuna meðferðis og eru
þeir ófáir sem fengu frá honum
svartfugl í soðið. Þrátt fyrir dugnað
og eljusemi var Tómas ekki alltaf
hraustur. Í einni sjóferð sprakk
maginn, en af harðfylgi tókst honum
að komast í land af sjálfdáðum.
Tómas kvæntist Björgu Sigurðar-
dóttur frá Borgarfirði eystri. Þau
hjón voru mjög samrýmd og eign-
uðust þrjár dætur, elst er Elísabet
Tómasdóttir, næst er Nanna Tóm-
asdóttir og yngst er Þórhildur Tóm-
asdóttir. Allar eru dæturnar hinar
mætustu manneskjur. Missir ykkar
er mikill, bið ég guð að styrkja ykkur
í sorgarferlinu
Júlíus.
FEBRÚARTILBOÐ
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Á LEGSTEINUM OG
FYLGIHLUTUM
10-50% AFSLÁTTUR
✝
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON
skipstjóri,
Sólvallagötu 82,
sem lést laugardaginn 9. febrúar á sjúkradeild
Hrafnistu, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Margrét Erla Guðmundsdóttir,
Ólafur Sigurðsson, Kolbrún Harðardóttir,
Þorsteinn Sigurðsson, Karen Despane,
Sigurður Sigurðsson, Tanya Ólafsdóttir,
Jens Sigurðsson, Ashlie Prahl,
Þorbjörg Sigurðardóttir, Nickulas Griesback,
Bjarni Sigurðsson, Kelly Fidzgerald,
barnabörn og langafabarn
og systkini.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR,
leikkona,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn
18. febrúar kl. 15.
Sigrún Valdimarsdóttir,
Jón Steindór Valdimarsson, Gerður Bjarnadóttir,
Gunnur Jónsdóttir,
Halla Jónsdóttir,
Hildur Jónsdóttir,
Ísar Logi Arnarsson,
Ari Steinn Arnarsson,
Valdimar Garðar Guðmundsson,
Fanney Jónsdóttir.