Morgunblaðið - 16.02.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 41
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Laugardagsfundur með
Gunnari Birgissyni í
Kópavogi
Laugardagsfundur verður
að venju laugardaginn
16. febrúar kl. 10.00-12.00
í félagsheimili sjálfstæðis-
flokksins að Hlíðasmára 19.
Byrjað verður í morgunkaffinu en um
kl. 10.45 verður haldið í vettvangsferð um
Kópavog undir leiðsögn bæjarstjórans
Gunnars Birgissonar. Farið verður í rútu og kíkt
á það helsta sem er að gerast í bænum okkar
þessa dagana. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar
Laugardagskaffi
16.feb. kl 11-13
Stefán Snær Konráðsson
bæjarfulltrúi og
formaður skipulagsnefndar
verður gestur í laugardags-
kaffi hjá Sjálfstæðisfélaginu í dag
laugardaginn 16. febrúar. Allir velkomnir.
Húsnæði í boði
Til leigu
aðstaða fyrir snyrtifræðing
Til leigu aðstaða fyrir snyrtifræðing sem vill
starfa sjálfstætt á snyrtistofu á 103 svæðinu í
Reykjavík. Frekari upplýsingar eru veittar í
síma 892 6962.
Raðauglýsingar
EINS og við mátti búast vakti
andlát Bobby Fischers geysilega at-
hygli út um allan heim. Allir helstu
fjölmiðlar heims greindu frá andláti
hans, helstu afrekum hans, „einvígi
aldarinnar“ 1972, sjálfvalinni ein-
angrun, hinu umdeilda einvígi við
Boris Spasskí 1992, fangelsun hans
og þætti Íslendinga í að bjarga hon-
um úr prísundinni í Japan. Síðan
hefur athygli á alþjóðavísu verið
beint að kvikmynd um ævi hans en
útgáfurétturinn að tiltölulega nýút-
kominni bók um einvígið í Reykja-
vík 7́2 „Bobby Fischer goes to war“
var fyrir nokkru keyptur af fram-
leiðendum hinnar þekktu kvik-
myndar „Touching the void“ og leik-
stjóri „The last king of Scotland „
hefur verið fenginn til að leikstýra
myndinni sem verður væntanlega
frumsýnd árið 2010. Ekki verður frá
Fischer tekið að hann hefur staðið
sig vel í landkynningunni. Innan um
aragrúa pistla á netmiðlunum er vit-
anlega eitt og annað misjafnt en á
heildina litið er tónninn vinsamleg-
ur. Kasparov brást ekki bogalistin
þegar hann skrifaði í Time að sigrar
Fischers á árunum í kringum 1970
væru sennilega þeir stórfenglegustu
sem skáksagan kynni frá að greina
og bætti því að ferð Brooklyn-
drengsins á toppinn væri í senn
dramatísk og einstæð.
Fyrir nokkru hringdi í mig fyrr-
verandi skákdálkahöfundur Morg-
unblaðins Daði Örn Jónsson tölvu-
fræðingur og rifjaði upp
skemmtilegt atvik sem tengdist
Fischer. Hann hefur þegar skrifað
um þetta grein á vinsæla hollenska
vefsíðu Chess cafe.
Svo er mál með vexti að skömmu
eftir komu Fischers til landsins 2005
hafði ég samband við Daða og bað
hann um aðstoð vegna lítilsháttar
ágreinings sem uppi var milli mín og
Fischers. Fischer hafði lengi verið á
þeirri skoðun að eigi allfáar skákir í
heimsmeistaraeinvígjum sovéskra
stórmeistara hefðu verið samdar
fyrirfram; og úrslitin fyrir fram
ákveðin. Fyrir þessum grunsemd-
um hans lágu mannleg rök sem voru
m.a. byggð á eigin reynslu Fischers;
eftir áskorendamótið í Curacao 1962
kom upp grundvallar-trúnaðarbrest-
ur milli Fischers og „sovéska skák-
skólans“. Fischer taldi að úrslitum
skáka í mótinu hefði verið hagrætt,
sem var rétt að því leyti að fyrir mót-
ið skriðu þeir saman í eina fylkingu
Petrosjan, Geller og Keres og gerðu
stutt jafntefli í öllum innbyrðis skák-
um sínum. Þetta varð heilmikið mál
sem varð þess valdandi að FIDE
breytti fyrirkomulagi heimsmeist-
arakeppninnar. Fjölmörg þekkt
dæmi eru um keypta vinninga og
selda á sovéskum meistaramótum,
t.d. hafa Karpov og Kasparov við
ýmis tækifæri viðrað grunsemdir
sínar í garð hvor annars og er það
ljót saga sem ekki verður rakin hér.
Skákin sem Bobby var ofarlega í
huga þennan dag var 9. einvígisskák
Karpovs og Kasparovs í Moskvu í
september 1984. Hann taldi fullvíst
að skákin öll hefði verið byggð á við-
ureign Fischers við Anthony Saidy í
lokaumferð bandaríska meistara-
mótsins 1963–́64. Lítum á dæmin
tvö:
HM-einvígi í Moskvu 1984;
9. einvígisskák:
Karpov – Kasparov
45. Re3 Bb1 46. b4 gxh4 47. Rg2
hxg3+ 48. Kxg3 Ke6 49. Rf4+ Kf5
50. Rxh5 Ke6 51. Rf4+ Kd6 52. Kg4
Bc2 53. Kh5 Bd1 54. Kg6 Ke7 55.
Rxd5+ Ke6 56. Rc7+ Kd7 57. Rxa6
Bxf3 58. Kxf6 Kd6 59. Kf5 Kd5 60.
Kf4 Bh1 61. Ke3 Kc4 62. Rc5 Bc6 63.
Rd3 Bg2 64. Re5+ Kc3 65. Rg6 Kc4
66. Re7 Bb7 67. Rf5 Bg2 68. Rd6+
Kb3 69. Rxb5 Ka4 70. Rd6
– og Kasparov gafst upp.
Bandaríska meistaramótið, New
York 1963–́64:
Saidy – Fischer
23. Rd7 24. Kf1 Rf8 25. Ke2 Re6
26. Kd3 h5 27. Be3 Kh7 28. f3 Kg6
29. a4 Kf5 30. Ke2 g5 31. Kf2 Rd8
32. Bd2 Kg6 33. Ke3 Re6 34. Kd3
Kf5 35. Be3 f6 36. Ke2 Kg6 37. Kd3
f5 38. Ke2 f4 39. Bf2 Rg7 40. h3 Rf5
41. Kd3 g4 42. hxg4 hxg4 43. fxg4
Rh6 44. Be1 Rxg4 45. Bd2 Kf5 46.
Be1 Rf6 47. Bh4 Rh5 48. Be1 Kg4
49. Ke2 Rg3+ 50. Kd3 Rf5 51. Bf2
Rh4 52. a5 Rxg2 53. Kc3 Kf3 54.
Bg1 Ke2 55. Bh2 f3 56. Bg3 Re3
– og Saidy gafst upp.
Skyldleiki þessara skák liggur í
augum uppi en þess má geta að Fisc-
her náði 100% vinningshlutfalli með
því að leggja Saidy í elleftu og síð-
ustu umferð. Bobby hélt því fram við
mig að útilokað væri að staða með
svipuðum „strúktúr“ í peðastöðu
með riddara gegn biskup hefði kom-
ið upp í skákum þekktra meistara
fyrir 1963. Þessa fullyrðingu hans
dró ég í efa og lauk viðskiptum okkar
með þeim hætti að ég hét því að snúa
aftur með dæmi sem hrektu fullyrð-
ingu hans. Flestir kannast við að
þurfa að hlusta á aðila, oft stjórn-
málamenn, sem geta engan veginn
haldið þræði röklega séð. En þar
sem skákir Fischers eru ein sam-
kyrjandi röksnilld var hér mikið í
húfi. Og þá kemur Daði Örn til sög-
unnar. Hann var fljótur að setja sig
inn í vandamálið þegar ég hringdi í
hann og verkefnið leysti hann með
því nota Chess assistant gagnagrunn
með ca. þrjár milljónir skáka. Í leit-
arvalkosti var sett upp aðgerð sem
fann stöður með riddara gegn biskup
og sex peðum. Sú leit tók innan við
mínútu og fundust um 20 þús. skákir.
Síðan þrengdi Daði leitina með
býsna flóknum aðgerðum sem hann
rekur í grein sinni og eru áreiðan-
lega afar athyglisverðar fyrir tölvu-
áhugamenn. Hann fann 14 sambæri-
leg dæmi úr skákum tefldum á
árunum 1934–1963. Af þeim fannst
mér athyglisverðust skák frá sov-
éska meistaramótinu 1939 milli Le-
venfish og Kotov. Daði sendi mér
niðurstöður sínar í tölvupósti og ég
prentaði út allt sem skipti máli og
bankaði uppá hjá ellefta heimsmeist-
aranum á herbergi hans á gamla
Loftleiðahótelinu með væna möppu
undir hendinni. Þegar ég sýndi
Bobby gögnin hrópaði hann upp fyr-
ir sig:
„Unbelievable. Great research.“ –
Ótrúlegt. Frábær rannsóknarvinna.
Það kom síðan á daginn þegar við
ræddum niðurstöðuna frekar að
hann kannaðist við nokkrar þær
skákir sem ég hafði meðferðis m.a.
viðureign Paul Keresar gegn Skot-
anum Fairhurst sem tefld var 1955.
Ekki minntist hann á níundu skákina
frá 8́4 aftur við mig.
Samanburðarrannsóknir
SKÁK
d
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Getty images
Niðursokkinn Vasataflið var aldrei langt undan. Bobby Fischer í neðan-
jarðarlest í New York 1962,
Gullsmárinn
Mánudaginn 11. febrúar var spilað
á 11 borðum og meðalskorin 168.
N/S
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbjss.
197
Kristín Óskarsd. – Gróa Þorgeirsdóttir 195
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 192
Díana Kristjánsd. – Ari Þórðarson 190
A/V
Páll Ólason – Elís Kristjánsson 204
Heiður Gestsdóttir – Dóra Friðleifsd. 187
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 181
Jón Jóhannsson – Haukur Guðbjartss. 177
Úrslit í N/S 7. febrúar:
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánss. 200
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 183
A/V
Hermann Guðmss. – Ernst Backman 197
Haukur Guðmss. – Katarínus Jónsson 193
Úrslit í N/S 5. febrúar:
Sigríður Ingólfsd. – Sigurður Björnss. 318
Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 294
A/V
Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 333
Jón Jóhannsson – Haukur Guðbjartss. 319
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Mánudaginn 11. febrúar var spil-
aður tvímenningur og urðu eftirtalin
pör efst í N/S
Guðný Lúðvígsd. – Birgir Lúðvígsson 220
Karl Karlss. – Sigurður R. Steingrss. 215
Þórarinn Bech – Jón Úlfljótsson 211
A/V
Skúli Sigurðsson – Ingolf Ágústsson 266
Marteinn Marteinss. – Kári Sigurðss. 234
Lúðvík Ólafss. – Rúnar Hauksson 232
Meðalskor 192.
Úrslit mánud. 4. febrúar í N/S:
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 198
Sigríður Gunnarsd. – Björn Björnss. 188
A/V
Skúli Sigurðsson – Ingolf Ágústss. 199
Aðalfríður Pálsd. – Steinn Sveinsson 190
Tvímenningskeppni verður fram-
haldið næsta mánudag.
Nóg pláss fyrir ný andlit. Spila-
mennska hefst kl. l9. Spilað er í
Sjálfsbjargarheimilinu.
Mjótt á munum hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur
Þriggja kvölda Butler-tvímenn-
ingi Bridsfélags Reykjavíkur lauk
nýlega. Mikil spenna var allt til síð-
asta slags í mótinu en á endanum
sigruðu Kjartan Ásmundsson og
Hlynur Garðarsson þá Jón Baldurs-
son og Þorlák Jónsson með 0,9 impa
mun!
Efstu pör
143,1 Hlynur Garðarss. –
Kjartan Ásmundss.
142,2 Jón Baldursson – Þorlákur Jónsson
103,5 Guðm. Hermannss. – Helgi Jóhannss.
77,0 Ómar Olgeirsson – Kristján Blöndal
76,5 Kristinn Kristinss. – Halld. Svanbergss.
55,5 Sverrir G. Kristinss. – Páll Valdimarss.
Þriðjudaginn eftir Bridshátíð
verður spilaður eins kvölds tvímenn-
ingur. Aðaltvímenningur BR hefst
svo 26.febrúar. Nánar á bridge.is/br
Minnt er á topp 24 einmenninginn
sem verður haldinn í vor. Efstu
menn vetrarins í bronsstigum:
Jón Baldursson 218
Þorlákur Jónsson 218
Kjartan Ásmundsson 159
Páll Valdimarsson 144
Gunnlaugur Karlsson 129
Kjartan Ingvarsson 129
Hlynur Garðarsson 129
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 14.02.
Spilað á 9 borðum. Árangur N-S:
Ragnar Björnsson - Jón Lárusson 243
Oddur Halldórsson - Oddur Jónsson 243
Jón Hallgrímsson - Helgi Hallgrímss. 232
Árangur A-V
Þröstur Sveinsson - Bjarni Ásmunds 268
Einar Einarsson - Magnús Jónsson 252
Halla Ólafsdóttir - Hilmar Valdimarss. 249
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
11.02. Spilað var á 10 borðum.
Árangur N-S
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 285
Ægir Ferdinandss. – Jóhann Lútherss. 251
Sæmundur Björnss. – Gísli Víglundss. 244
Árangur A-V
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinsson 277
Þröstur Sveinsson – Bjarni Ásmundss. 237
Björn E. Péturss. – Ólafur Theodórss. 233
Meðalskor 216 stig.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Sími 551 3010
Fréttir á SMS