Morgunblaðið - 05.03.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 43
Aðalfundur Ferðafélags Íslands
verður haldinn miðvikudaginn
12. mars kl. 20.00 í sal FÍ Mörkinni 6.
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR FÍ
ENN ein teiknimyndasagan hefur
verið kvikmynduð, nú er röðin kom-
in að ferfætlingnum Underdog, sem
er frekar lítt kunnur hérlendis.
Myndin er leikin en persónur úr
dýraríkinu unnar með tölvutækni.
Líkt og kollegar hans tvífættir
hefur Underdog orðið fyrir stökk-
breytingu vegna mistaka á tilrauna-
stofu og hefur afl á við milljón
manns, getur talað, flogið og sprett
úr spori eins og byssukúla og er þá
fátt eitt talið. Nýtir hann krafta sína
óspart á glæpahyskinu í borginni.
Brjálaður vísindamaður, dvergurinn
Barsinister, á sök á því hvernig er
komið fyrir rakkanum og hyggst
nýta hæfileika hans til að fram-
kvæma sín fólskuplön.
Það hefur ekki verið mulið undir
hundinn, brellurnar eru grófgerðar,
leikararnir með Belushi í far-
arbroddi og flestir í hans styrk-
leikaflokki. Upp úr stendur hinn
smávaxni Dinklage sem illmennið
Barsinister og Patrick Warbutton,
sem leikur aðstoðarmann hans,
langar greinilega til að verða næsti
Leslie Nielsen hvíta tjaldsins.
Í ofurhundsmyndina blandast fjöl-
skylduvandi þeirra Belushi-feðga,
sem er heldur óspennandi líkt og
flest það sem snertir tvífættar sögu-
persónur. Undrahundurinn er með
íslenskum texta og hittir í mark hjá
óvitum og litlum börnum sem
skemmtu sér hið besta. Tilraunir til
að hafa ofan af fyrir fullorðnum með
spotti að teiknimyndasöguhetjum
fara að mestu leyti fyrir ofan garð og
neðan.
Ofurmennið í hundsham
KVIKMYND
Sambíóin
Með íslensku tali. Leikstjóri: Frederik Du
Chau. Aðalleikarar: Jason Lee, James
Belushi, Peter Dinklage, Alex Neuberger.
84 mín. Bandaríkin 2007.
Undrahundurinn – Underdog
bbnnn
Undrahundur „Það hefur ekki verið mulið undir hundinn.“
Sæbjörn Valdimarsson
BRESKA SÖNGKONAN Lily Allen
hefur ekki átt sjö dagana sæla að
undanförnu. Hún missti fóstur í jan-
úar og hætti strax í kjölfarið með
kærastanum, Ed Simmons úr
hljómsveitinni Chemical Brothers.
Áður fór það orð af henni að hún
færi mikið út á lífið og sleppti þá al-
veg fram af sér beislinu. Hún
greindi til dæmis frá því í viðtali að
hún hefði aðeins verið fjórtán ára
gömul þegar hún prófaði e-töflu í
fyrsta sinn. Nú segist hún hins veg-
ar hafa snúið við blaðinu.
„Ég hætti að drekka þegar ég
varð ólétt og svo byrjaði ég ekkert
aftur. Eftir að barnið var farið
hugsaði ég með mér að ég vildi ekki
lenda í sama farinu aftur,“ sagði
hún í viðtali við breska tímaritið
Glamour. Nú eyðir hún flestum
kvöldum ein heima og segir að það
geti tekið á. „Það er ekki margt um
að vera fyrir ungt fólk í skemmt-
anabransanum í London ef það er
allsgáð. Ég er oftast bara heima að
horfa á sjónvarpið því það er ekk-
ert gaman að fara út að djamma
þegar allir aðrir eru á kókaíni að
æpa á mann.“
Reuters
Róleg Lily Allen er heimakær.
Hætt að
djamma
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn