Morgunblaðið - 08.03.2008, Page 8

Morgunblaðið - 08.03.2008, Page 8
8 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HANNES Hlífar Stefánsson vann portúgalska stórmeistarann Luis Galego í fimmtu umferð Reykjavík- urskákmótsins sem tefld var í gær. Hannes er því í 1.-2. sæti ásamt ítalska stórmeistaranum Fabiano Caruana með 4½ vinning. Þeir munu etja kappi við taflborðið í 6. umferð mótsins sem tefld verður í dag í Skákhöllinni í Faxafeni. Atli Freyr Kristjánsson, sem er aðeins 18 ára, vann skák sína við úkraínsku skákkonuna og al- þjóðlega meistarann Tatjönu Va- silevich í gær. Atli Freyr er því kominn með þrjá vinninga eftir að hafa teflt við mun stigahærri skák- menn en hann er sjálfur í öllum um- ferðum skákmótsins. Hannes í 1.-2. sæti Atli Freyr Kristjánsson, 18 ára, er kominn með þrjá vinninga. UM 80 þúsund félagsmenn í ASÍ eiga rétt á að greiða atkvæði um kjarasamninga, en atkvæða- greiðslu er að ljúka. Niðurstaða verður birt í flestum félögum á mánudag. Flest stéttarfélögin viðhafa póst- atkvæðagreiðslu, en hún þýðir að engin lágmarkskrafa er um þátt- töku í atkvæðagreiðslunni. Nokkur félög eru með kjörfund, en það þýð- ir að 20% félagsmanna að lágmarki verða að taka þátt. Ef færri taka þátt í slíkri atkvæðagreiðslu skoð- ast samningur samþykktur jafnvel þó meirihlutinn hafi verið á móti samningnum. Þó landssamböndin hafi haft samflot um gerð samninganna greiða félögin almennt atkvæði hvert í sínu lagi. Stærstu félögin á höfuðborgarsvæðinu, svokallað Flóabandag, og Boðinn í Þorláks- höfn greiða atkvæði saman. Rafiðn- aðarmenn greiða einnig atkvæði í einu lagi. Félögin í Starfsgreinasamband- inu telja atkvæði á mánudag og sama á við um Samiðn. Talningu hjá VR lýkur á þriðjudag og Rafiðn- aðarsambandið hefur ákveðið að framlengja kjörfund fram á mið- vikudag. Atkvæða- greiðslu innan ASÍ að ljúka FJÖLTÆKNISKÓLI Íslands heldur hinn árlega skrúfudag í dag, laug- ardaginn 8. mars n.k. klukkan 13– 16:30. Skrúfudagurinn er opinn dagur í skólanum þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér nám og starf- semi skólans og skoða húsa- og tækjakostinn. Einnig er dagurinn vettvangur fyrir fyrrverandi nem- endur skólans, Vélskóla Íslands og Stýrimannaskólans í Reykjavík að koma saman, skoða nýjungar og hitta samherja frá námsárunum. Fjölbreytt dagskrá stendur gest- um til boða. Það setur meðal annars mark sitt á skólann að hann tók við rekstri Flugskóla Íslands og sú starfsemi er mun umfangsmeiri en flestir halda, segir í tilkynningu. Flugskólinn býður upp á flugnám til einka- og atvinnuflugréttinda. Árlegur skrúfudagur STUTT Stýrihópur talaði ekki við Hauk Leósson HAUKUR Leós- son segir að stýri- hópur um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest hafi aldrei leitað eftir því að hann kæmi á fund hóps- ins, en hann var stjórnarformaður OR þegar samruni REI og GGE var samþykktur á stjórnar- og eigenda- fundi OR. Þegar Svandís Svavarsdóttir var spurð í umræðu um skýrslu stýri- hópsins á borgarstjórnarfundi, hvort leitað hefði verið til hans, sagði hún meðal annars: „Það voru sérstakar persónulegar ástæður fyrir því að Haukur Leósson var ekki kallaður fyrir nefndina sem ég óska eftir að þurfa ekki að gera grein fyrir hér á þessum fundi en það voru gildar ástæður.“ „Ég veit ekki við hvað hún á, mín ágæta vinkona,“ segir Haukur um þetta orðalag Svandísar. „Ég veit ekkert um þetta og ætla ekkert að tjá mig. Ég er búinn að fá leiða á þessu pólitíska karpi.“ – Var ekkert samband haft við þig? „Nei, nei, ekkert samband. Þau hafa símann minn. En ég var ekki kallaður inn í stýrihópinn. Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Mar- teinn Baldursson höfðu heldur ekki samband, en þau voru líka í stýri- hópnum.“ Haukur Leósson Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is VERIÐ er að undirbúa tillögur um niðurskurð kostnaðar hjá tollgæsl- unni og lögreglunni á Suðurnesjum. Miðað við þá fjármuni sem vantar upp á að endar nái saman má búast við að fækka verði starfsfólki í toll- gæslu og lögreglu um tugi frá því sem verið hefur. Hjá embætti lögreglustjórans og tollstjórans á Suðurnesjum starfa um 240 manns og að auki hafa verið ráðnir um 100 starfsmenn í afleys- ingar á sumrin. Embættið fær sér- tekjur vegna starfa við flugvöllinn auk framlaga á fjárlögum, samtals tæplega 1.800 milljónir á þessu ári. Miðað við óbreytta starfsemi er reiknað með að kostnaður fari hátt í 300 milljónir kr. yfir fjárheimildir. „Embættinu ber að halda sig inn- an ramma fjárlaga,“ segir Ellisif Tinna Víðisdóttir aðstoðarlögreglu- stjóri spurð um stöðu mála. Hún segir að verið sé að vinna að til- lögum um það hvernig það verði gert og verði þeim skilað til dóms- málaráðuneytisins á mánudag. Þá segir hún að yfirmenn embættisins geti ekki tjáð sig um innihald vænt- anlegra tillagna á þessu stigi máls- ins. Tollvörðum sagt upp Sagt var frá því í Morgunblaðinu fyrr í vetur að útlit væri fyrir að fimmtán menn vantaði í lögreglulið- ið fram á vor, meðal annars vegna lögreglunema sem fóru til náms í Lögregluskólanum um áramót. Nú er búist við því að verulega dragi úr ráðningum afleysingamanna í vor vegna fjárskorts. Þá hefur Morg- unblaðið heimildir fyrir því að rætt sé um að segja upp 15 tollvörðum af sömu ástæðum. Fækkun hjá lögreglu- og tollstjóranum SEM kunnugt er fékk Sólveig Arnarsdóttir leikkona ljósará í bakið á æfingu í Þjóðleikhúsinu í fyrradag. Vika er í frumsýningu verksins Engisprettur sem Sól- veig var að æfa, enda var hún mætt aftur á æfingu í gær þegar tal náðist af henni. „Það er ekki um neitt annað að ræða viku fyrir frumsýningu en að mæta,“ sagði Sólveig, sem virtist eldhress. „Þetta var dálítið sjokk og ég meiddi mig, en þetta fór mun betur en á horfðist,“ segir Sólveig sem tognaði á hálsi og marðist, án þess þó, sem betur fer, að meiðast alvarlega. Ekkert frí fyrir slasaða leikara Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.