Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 23
úr sveitinni
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 23
Hiklaust má fullyrða að aðal-umræðuefni fólks
hér í uppsveitum Árnessýslu sé veðráttan sem
jafnan áður. Eins og öllum er kunnugt hefur
verið óvenju illviðrasamt tíðarfar allt frá ágúst-
lokum í fyrra. Á nokkurra vikna tímabili í jan-
úar og febrúar var meiri snjór hér en hefur
verið frá árinu 1995. Frosthörkur voru aldrei
miklar en komst þó nótt eina niður í 20 gráður.
Nú fer að styttast í vorið en margir eiga mikið
undir sól og regni, ekki hvað síst bændurnir.
Ferðafólki fjölgar í uppsveitum. Að sögn
Ásborgar Arnþórsdóttur, ferðamálafulltrúa
uppsveitanna, hefur, þrátt fyrir rysjótta veðr-
áttu, sótt okkur heim fleiri ferðamenn en
endranær og eru horfur góðar í þeim efnum á
sumri komanda. Meðal margra árvissra við-
burða ætla íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
að efna til landnámsdags 31. maí. Á þeim degi
verður ýmislegt gert til skemmtunar og upp-
lýsinga bæði hvað varðar söguna og kynningu á
sveitarfélaginu. Slíkur dagur var haldinn fyrir
fjórum árum og þótti takast vel. Meðal annars
á að kanna hvort einhverjir vilji ganga í vík-
ingabúningum þennan dag. Ja, því ekki það?
Allir tala mikið um vaxandi verðbólgu og þær
miklu hækkanir sem orðið hafa á aðföngum og
fjármagnskostnaði til búrekstrar á undan-
förnum mánuðum, ekki hvað síst á tilbúnum
áburði. Meginhluti gróðurhúsaræktunar lands-
ins er hér á þessu svæði sem kunnugt er. Inni-
ræktaðar plöntur taka sína næringu í fljótandi
formi úr áburði sem leysist upp í vatni en hann
er enn dýrari en venjulegur áburður. Er þá
nokkuð annað hægt að gera en að hækka verð á
afurðunum?
Jarðhitinn er eins og allir vita ómetanleg auð-
lind og er ein helsta undirstaða þess að svo
blómlegt mannlíf hefur þróast hér í okkar frjó-
sama byggðarlagi í uppsveitum Árnessýslu. Ís-
lenskar orkurannsóknir (Isor) hafa unnið að
gerð auðlindakorts fyrir Hrunamannahrepp og
Hitaveitu Flúða. Uppi eru hugmyndir um að
bora eftir heitu vatni á bænum Kópsvatni
skammt frá Flúðum. Verið er að bora eftir
heitu vatni þessar vikurnar á bænum Gýgj-
arhóli II, á svæði við Tungufljót, ekki fjarri
Geysi í Biskupstungum. Oftast hafa boranir
gengið vel og skilað árangri hér um slóðir.
Félagslíf er að vanda blómlegt. Karlakór
Hreppamanna heldur sameiginlega tónleika
með Karlakór Rangæinga n.k. þriðjudags-
kvöld. Eldri borgarar hittast með reglulegu
millibili og er félagsstarf þeirra með ágætum.
Um 30 bridsfélagar hittast einu sinni í viku og
heyja skemmtilega keppni sín í millum. Þá er
vert að minna á að um þessar mundir er leik-
deild Umf. Biskupstungna að sýna þann bráð-
skemmtilega farsa Leynimel 13 og víst er að
það kitlar hláturtaugarnar rækilega að sjá og
heyra leikendurna fara á kostum í sýningunni.
Í kvöld verður svonefnt hjónaball haldið í
Hrunamannahreppnum í sextugasta og fimmta
sinn á Flúðum. Samkomunni svipar til þorra-
blótanna nema hvað þar er snæddur þrírétt-
aður matur. Sextán manna skemmtinefnd sér
um heimatilbúin skemmtiatriði og gert er góð-
látlegt grín að mönnum og málefnum er tengj-
ast íbúum sveitarinnar. Á fjórða hundrað
manns sækir samkomuna að þessu sinni.
Mikil umræða fer fram í Hrunamanna-
hreppnum og reyndar víða um land um hugs-
anlegan fund heilags kaleiks á Kili og eru
margar skemmtilegar kenningar uppi og bíð-
um við spennt eftir að vísindamenn komi með
jarðsjá í sumar til að kanna hvort hvelfing sem
rætt hefur verið um sé á Skipholtskróki, ekki
fjarri Kerlingafjöllunum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps
hefur ákveðið að umbuna starfsfólki sveitarfé-
lagsins vegna mikils álags sem orsakast af
breytingum hjá stofnunum sveitarfélagsins.
Þeir starfsmenn sem eru í fullu starfi fá greidd-
ar 75 þúsund krónur þann 1. apríl næstkom-
andi og aðrir starfsmenn í samræmi við starfs-
hlutfall.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Mjaltir Bændur hafa áhyggjur af mjög svo auknum kostnaði við búrekstur. Hér eru þau
Þórunn Andrésdóttir og Samúel Eyjólfsson í Bryðjuholti við mjaltir.
HRUNAMANNAHREPPUR
Sigurður Sigmundsson
ERTU AÐ
VINNA?
Einn af hverjum níu Íslendingum svaraði játandi og fékk
vinning í Happdrætti Háskólans á síðasta ári. Við stefnum
að því að enn fleiri jánki á þessu ári.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.