Morgunblaðið - 08.03.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 25
Lofar góðu Málverk eftir Sigurdísi
Hörpu Arnarsdóttur sem Úlfar tel-
ur upprennandi listakonu.
Gluggaskraut Uppstoppaður anda-
steggur og krummi, sem kallar til
sín lifandi krumma á svalahandriðið.
Plokkfiskur að
hætti Úlfars
(aðalréttur fyrir fjóra)
600 g þorskflök, soðin og bein-
hreinsuð. Nota má líka ýsu eða lúðu
1 lítri mjólk
1 meðalstór laukur, saxaður
salt og pipar
karrí
smjörbolla eða sósuþykkni í pakka
kartöflur, soðnar og skornar í bita
2 msk. kalt smjör
Þorskurinn er soðinn og lyft upp
úr soðinu. Mjólkin er hituð að suðu
ásamt lauknum og kryddinu. Smjör-
bollu eða sósuþykkni bætt út í. Hluti
af sósunni tekinn frá. Fiskinum er
bætt út í sósuna ásamt kartöflum og
hrært varlega saman við. Ef plokk-
fiskurinn er of þurr má nota afgang-
inn af sósunni. Kryddi er bætt út í
eftir smekk. Sumir vilja mikinn pipar
en aðrir minna. Í lokin er svo sett kalt
smjör út í til að fá mýkri áferð á rétt-
inn. Plokkfiskurinn er svo gratíner-
aður rétt áður en hann er borinn
fram með því að setja hann í eldfast
mót, hella eggjasósu yfir og strá yfir
hann rifnum osti.
Eggjasósa
5 eggjarauður
500 g smjör
2 msk. lageredik
kjötkraftur
Smjörið er brætt í potti. Eggja-
rauðurnar pískaðar saman yfir vatns-
baði ásamt lageredikinu þar til komin
er kremkennd áferð. Þá er bræddu
smjörinu, sem á að vera við líkams-
hita, hellt varlega út í eggjahræruna
og sósan síðan bragðbætt með smá-
vegis af kjötkrafti. Sósunni hellt yfir
plokkfiskinn. Osti stráð yfir og grat-
ínerað í ofni í örfáar mínútur eða þar
til rétturinn er orðinn gullinbrúnn.
Borið fram með seyddu rúgbrauði.
PR
ET
TY
U
G
LY
FU
R
N
IT
U
R
E.
C
O
M
BURT
MEÐ
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170
www.boconcept.is
LÍFIÐ ER OF STUTT FYRIR LJÓT HÚSGÖGNXEINN B
O
0
8
03
0
01
SKRÚFUDAGUR
Komdu og taktu þátt í skemmtilegri dagskrá
í Fjöltækniskóla Íslands og Flugskóla Íslands við Háteigsveg
í dag kl. 13:00 - 16:30.
NÁMSKYNNING
Stúdentspróf
Einka- og atvinnuflugmannspróf
Vélstjórnar- skipstjórnarpróf
Alþjóðleg réttindi
Nám í Iðnskólanum í Reykjavík
DAGSKRÁ
Véla-, siglinga- og flughermar
Nemendur og kennarar að störfum við vélar og tæki
Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 14:00
Turninn verður opinn gestum
Ókeypis ferðir á milli Fjöltækniskólans og Flugskólans á
Reykjavíkurflugvelli
Ferðaklúbburinn 4x4 verður með jeppasýningu á staðnum
Dregið úr lukkupotti kl. 16:00.
Tímar í flughermi og útsýnisflug yfir Reykjavík í verðlaun.
Útsýnisflugið er strax að útdrætti loknum
Kvenfélögin Hrönn og Keðjan selja kaffiveitingar gegn vægu gjaldi
Allir velkomnir
Vinnið útsýnisflug yfir Reykjavík og tíma í flughermi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 14:00.
HÁTEIGSVEGI 105 REYKJAVÍK SÍMI 522 3300 WWW.FTI.IS
Nám í Fjöltækniskóla Íslands og Flugskóla Íslands hentar m.a. þeim sem
vilja ljúka stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með véltækni,- raftækni,-
skipstækni- eða einkaflugmannsprófi.
Náimið hentar líka þeim sem vilja verða skipstjórar, flugmenn, vélstjórar,
vélfræðingar hjá orkufyrirtækjum eða vilja undirbúa sig fyrir háskólanám
á tæknisviði.