Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 26
Sagan og uppskriftirnar
Sögu Rosette Faust Hal-
pern með gömlum mynd-
um af henni og manni
hennar er að finna í bók-
inni. Á hægri síðunni
eru tvær uppskriftir
frá Rosette; kálböggl-
ar og kálfakjöt fyllt
með kjúklingalifur,
hrísgrjónum og
mörðum kartöflum.
Eftir Fríðu Björnsdóttur
fridabjornsdottir@gmail.com
Matreiðslubækur erumargvíslegar en eigaþað flestar sameigin-legt að snúast um
ákveðið þema, t.d. kjöt, fisk, eftir-
rétti og kökur. Holocaust Survivor
Cookbook er ólík öllum matreiðslu-
bókum sem ég hef séð til þessa. Í
henni eru frásagnir af Gyðingum
sem lifuðu af helförina og uppskriftir
sem koma frá þeim eða fjölskyldum
þeirra. Bókin er því ekki aðeins mat-
reiðslubók heldur líka eins konar
sagnfræðirit eða myndskreytt ævi-
saga á annað hundrað manns.
Tilurð bókarinnar er sú að ung
hjón, Sarah og Jonathan Caras,
ákváðu að fara til Ísrael og dveljast
þar um tíma. Mæður þeirra, Gisela
Zerykier og Joanne Caras, brugðu
sér í heimsókn til þeirra í Jerúsalem
og kynntust þar Carmei Ha’ir súpu-
eldhúsinu þar sem Sarah og Jonath-
an unnu sem sjálfboðaliðar. Þetta er
ekkert venjulegt súpueldhús heldur
líkast góðum veitingastað. Þangað
koma þó daglega um 500 fátækir
Ísraelar, sem ekki hafa ráð á að
greiða fyrir matinn en einnig aðrir
gestir sem borga ríflega fyrir sig.
Súpueldhúsið er skammt frá Mah-
ane Yehuda útimarkaðinum, sem
einhverjir hafa kannski heimsótt og
aðrir eiga eftir að skoða.
Sögum og uppskriftum safnað
Mæðurnar vildu leggja málefninu
lið og hugmyndin að Holocaust
Survivor matreiðslubókinni vaknaði.
Því miður lést Gisela áður er verkið
hófst en Joanne hélt ótrauð áfram.
Tekið var til við að safna sögum og
uppskriftum frá fólki sem lifði af hel-
förina, Gyðingum frá Evr-
ópulöndum á borð við Þýskalandi,
Póllandi, Rúmeníu, Ungverjalandi,
Ítalíu, Belgíu, Hollandi. Alls bárust
129 sögur og yfir 200 uppskriftir.
Allt eru þetta einfaldar hversdags-
uppskriftir sem fólkið hefur haft
með sér frá átthögunum í hinni
stríðshrjáðu Evrópu síðari heims-
styrjaldarinnar og notar enn þar
sem það býr í Bandaríkjunum, Kan-
ada, Suður-Ameríku, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi, víða um Evrópu og
Suður-Afríku, jafnvel í Asíu og auð-
vitað í Ísrael.
Bókin hefur vakið mikla athygli
og verið tilnefnd til verðlauna Asso-
ciation of Culinary Professionals.
Fyrsta prentun, 5000 eintök, kom út
á síðasta ári og seldist upp á átta
vikum. Þar með höfðu 60.000 doll-
arar safnast sem runnu til
góðgerðastarfs Gyðinga í súpueld-
húsinu og víðar. Önnur útgáfa er
komin út og salan heldur áfram m.a.
í söfnum Gyðinga víða um Bandarík-
in og einnig á netinu.
Rosette Faust Halpern býr í Sil-
ver Springs í Maryland í Banda-
ríkjunum. Hún fæddist í Rohatyn í
Póllandi, borg sem skipti stöðugt
um land í kjölfar valdataflsins í
Evrópu.
Rozin Faust, eins og hún hét þá,
átti fjóra bræður og eina systur
sem flest létu lífið í stríðinu, auk
foreldra hennar. Það bjargaði
henni lengi vel að hún talaði úkra-
ínsku án hreims sem gaf til kynna
að hún væri Gyðingur. Þó lenti hún
að lokum í gettóinu í Rohatyn en
sovéski herinn frelsaði bæinn árið
1944 og hana þar með.
Aðeins rúmlega 20 Gyðingar af
þeim 12.000 sem þarna bjuggu fyrir
stríð lifðu helförina af.
Kálböglar Rosette
og Doru Faust
Uppskrift Rosette, sem komin er frá
Doru Faust, móður hennar, er að
kálbögglum, en nokkrar kálböggla-
útfærslur er að finna í Holocaust-
bókinni.
1 stórt hvítkálshöfuð
½ bolli rúsínur
1 kg nautahakk
1 stór, niðurskorinn laukur
1 saxaður laukur
1 súrt epli, rifið niður
½ bolli soðin hrísgrjón
7 piparkökur, sem mýktar eru í
heitu vatni
1 egg
Safi úr ½ sítrónu
Salt, pipar, hvítlaukur
1 lítil dós með tómötum
1 dós af tómatpuré
Hitið ofninn í 170°C. Leggið hvít-
kálshausinn í sjóðandi vatn þar til
kálið er orðið lint. Takið kálhausinn í
sundur. Blandið saman nautahakki,
söxuðum lauk, hrísgrjónum eggi,
salti, pipar og hvítlauk (eftir smekk).
Búið til kálböggla. Saxið afganginn
af hvítkálinu smátt og setjið í pott.
Bætið tómatpuré, rúsínum, niður-
skorum lauk, rifnu epli, piparkökum,
sítrónusafa og tómötum út í. Látið
suðuna koma upp. Setjið þessu næst
sósuna og kálbögglana í eldfast mót
og bakið í ofninum í eina og hálfa til
tvær stundir.
Takið lokið af mótinu síðustu 15
mínúturnar og ausið soðinu yfir
bögglana nokkrum sinnum.
Fjölskyldan og bókin Caras-fjölskyldan sem stendur að útgáfu uppskriftabókarinnar. Fyrir miðju er móðirin
Joanne, sem byrjaði að safna uppskriftunum í samstarfi við Giselu Zerykier, móður Söru.
Uppskriftir Gyðinga
sem lifðu af helförina
www.survivorcookbook.org
http://carmeihair.org.il
daglegt líf
26 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
að það væri hægt að
stytta þennan biðtíma
verulega með því að
fjölga starfsfólki á
slysadeildinni. Er það
ekki tímabært?
Aðbúnaðurinn á bið-
stofunni gæti verið
betri, alla vega þegar
hinn langi biðtími er
hafður í huga. Þar situr
misjafnlega vel eða illa
á sig komið fólk. Auð-
vitað er ljóst, að þeir,
sem þurfa á skjótri að-
stoð að halda, fá hana.
En biðin getur verið
löng og erfið fyrir aðra.
Er einhver sparn-
aður í því fólginn að takmarka fjár-
veitingar til slysadeildarinnar svo
mjög, að fólk þurfi stundum að bíða
klukkutímum saman? Í því er ekki
fólgin góð þjónusta og öll viljum við
að heilbrigðisþjónustan sé góð, ekki
sízt þegar við þurfum á henni að
halda sjálf.
Nú stendur yfir á vegum nýs heil-
brigðisráðherra allsherjar endur-
skoðun á heilbrigðiskerfinu öllu. Það
væri æskilegt að í þeirri endur-
skoðun verði hugað að svona aug-
ljósum vanköntum á þessu annars
ágæta kerfi. Biðraðir heyra fortíð-
inni til.
Á slysadeild Land-spítala í Fossvogi
er unnið frábært starf
við á stundum erfiðar
aðstæður. Það er nokk-
ur upplifun að fylgjast
með því, sem þar ger-
ist, hvort sem það er
innan dyra eða á bið-
stofu Slysadeildar.
Þeir, sem hafa tæki-
færi til að fylgjast með
því, sem gerist þar inn-
an dyra gera sér ljóst,
að álagið á starfsfólkið
hlýtur að vera gífur-
legt á köflum.
Þeir, sem sitja á bið-
stofunni tímunum sam-
an sjá þar flóru samfélagsins, sem
ekki er auðvelt að sjá annars staðar.
Þeir sem sitja utan dyra og innan að
næturlagi ekki sízt um helgar kynn-
ast enn einni hlið tilverunnar á Ís-
landi.
Biðtíminn á slysadeildinni er að
sjálfsögðu misjafn en hann getur
orðið nokkrir klukkutímar. Biðtím-
inn á Læknavaktinni er langur en
hann er ekki jafn langur og á slysa-
deildinni.
Þarf þessi biðtími að vera svona
langur? Er eitthvert vit í því, að svo
sé?
Víkverji hefur heimildir fyrir því,
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
VÍSNAHORN
Af bakstri og limru
Enginn getur sagt að PéturStefánsson taki ekki þátt í
heimilishaldinu:
Allt er gott og engin nauð,
aðeins ró og næði.
Meðan konan bakar brauð,
bóndinn yrkir kvæði.
Jón Gissurarson sá þetta fyrir sér
svona:
Pétur er að borða brauð,
er bragðast vel í næði.
Hefur mikinn andans auð
yrkir falleg kvæði.
Konan vel til verka kann
varla mun það saka.
On’í þennan mektar mann
mikið þarf að baka.
og Jón bætir við um bónda
nokkurn, sem var að fara í
kaupstað. Rétti konan honum þá
innkaupalista, en þegar hann sá
listann orti hann.
„Kaffi sykur hveiti rót
konan oft um biður.“
Kona hans sem einnig var hagorð
botnaði.
„Bakar og sýður býsna fljót
bóndinn rennir niður.“
Hallmundur Kristinsson yrkir
limru:
Skotinn í Guðrúnu skapríku
var Skafti sem þrælaði í fabríku.
Hann reyndi hana við
að riddara sið.
Þau rækta nú tómat og papríku.
pebl@mbl.is
• Áttu það til að verða kvíðin(n) eða dapur?
• Ertu viðkvæm(ur) fyrir?
• Viltu öðlast betri líðan?
Sex vikna námskeið í hugrænni atferlismeðferð er að hefjast á
vegum Kvíðameðferðarstöðvarinnar (KMS). Kenndar verða leiðir
til að endurskoða óhjálplegt hugarfar og breyta viðbrögðum
sem stuðla að vanlíðan. Einnig verður fjallað um áhrif athygli á
líðan og hvernig stuðla megi að farsælum samskiptum.
Umsóknarfrestur rennur út 12. mars næstkomandi og fer skráning fram á kms@kms.is
eða í síma 822-0043. Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á
www.kms.is en verð námskeiðs er 25 000 krónur
M
b
l 9
80
37
6
Sóley D. Davíðsd.
sálfræðingur
Bætt líðan með hugrænni atferlismeðferð
Sigurbjörg J. Ludvigsd.
sálfræðingur