Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 27
UMRÆÐAN
VERÐHÆKKANIR á mat-
vælum hafa verið
svipaðar hér og á hin-
um Norðurlöndunum
á undanförnum mán-
uðum. Frá 1. mars á
síðasta ári til 1. jan-
úar sl. hefur verð á
matvælum hækkað
um 5,7% hér á landi,
um 7% í Danmörku,
5,8% í Finnlandi 5,4
%, í Svíþjóð og lægst
í Noregi eða aðeins
1%, samkvæmt
neysluverðsmælingum
norrænu hagstofanna.
Ástæðurnar eru fyrst og fremst
hækkanir á framleiðsluverði, þróun
á alþjóðamarkaði og geng-
issveiflur. Hækkanir á matvælum
hérlendis frá 1. mars í fyrra eru
mun minni en hækkun á almennri
neysluverðsvísitölu á þessu sama
tímabili.
Á stundum mætti ætla af um-
ræðu um hækkun matarverðs hér
á landi að ástæðan geti aðeins ver-
ið ein, nefnilega álagning versl-
unar. Bent hefur verið á að verð á
matvælum hér á landi nálgast að
vera hið sama og það var fyrir
lækkun á virðisaukaskatti og af-
námi vörugjalda 1.
mars í fyrra. Þegar
verðhækkanir eru
settar í þetta sam-
hengi er nærtækast
að ætla að kaupmenn
hafi stungið mismun-
inum í eigin vasa.
Þess vegna er mik-
ilvægt að bera saman
þróun framleiðslu-
verðs og smásöluverðs
og almennar verð-
hækkanir á tímabilinu.
Ef borin er saman
hækkun á fram-
leiðsluverði innlendra matvæla
(sem er stærsti hluti þeirra mat-
væla sem seld eru í smásöluversl-
unum) við vísitölu neysluverðs (þ.e.
verð úr smásöluverslun) á sömu
vörum frá 1. mars í fyrra kemur í
ljós að verð frá framleiðendum
hefur hækkað um 4% og í smá-
söluverslun um rúmlega 5%. Á
fyrri hluta tímabilsins hækkaði
framleiðsluverðið mun meira en
smásöluverðið en hefur nú sveifl-
ast í hina áttina eins og oft verður
milli mánaða. Verðþróun þessara
tveggja þátta hefur samt haldist
nokkuð í hendur allt frá 1. mars,
þó einhverjar breytingar hafi orðið
milli mánaða. Þessar upplýsingar
eru fengnar úr vísitölumælingum
Hagstofu Íslands.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
7,2% frá 1. mars í fyrra til 1. febr-
úar sl. Á sama tíma hækkaði mat-
arverð um 5,7%. Almennar verð-
hækkanir hafa því verið meiri en
hækkanir á matvælum.
Ástæður hækkana
á matvælum
Í nágrannaríkjum okkar er um-
ræðan um hækkandi matarverð af
öðrum toga en hér og beinast
áhyggjur manna að öðru en versl-
uninni. Að flestra mati má að
nokkru leyti má rekja ástæðurnar
til bættra lífskjara Kínverja og
Indverja, að nokkru leyti til elds-
neytisframleiðslu og að nokkru til
viðskiptahindrana og sveiflna í
uppskeru. Lítum á nokkur dæmi:
– Mjólk. Aukin eftirspurn eftir
mjólkurafurðum í Kína og Indlandi
hefur valdið því að Evrópuríki
selja mjólkurafurðir sem aldrei
fyrr. Birgðir sem áður söfnuðust
upp eru horfnar. Verðið hefur
einnig hækkað í takt við aukna eft-
irspurn.
– Kjöt. Verð á kjöti hefur einnig
hækkað vegna aukinnar velmeg-
unar í Asíulöndum. Meðalkjöt-
neysla íbúa Sjanghæ hefur t.d.
aukist frá 20 kg í 50 kg á ári á síð-
ustu tuttugu árum. Í þessum mán-
uði er reiknað með því innan Evr-
ópusambandsins að nautakjöt geti
hækkað til viðbótar um 20-40% á
einu bretti þegar viðskiptabann á
kjöt frá Brasilíu kemur til fram-
kvæmda, vegna þrýstings frá Bret-
um.
– Sykur hveiti og maís. Á þess-
um markaði eru alþjóðlegir fjár-
festar og hrávörukaupendur sem
veðja á áframhaldandi hækkandi
verð líkt og á við um verðhækk-
anir á járni, kopar og öðrum hrá-
vörum. Ástæðan fyrir þessari trú
fjárfestanna er aukin neysla á
þessum vörum á nýjum markaðs-
svæðum og að nú er í auknum
mæli farið að nota sykurreyr og
korn til framleiðslu á etanól sem
eldsneyti á bíla. Kornbirgðir hjá
helstu framleiðendum í algeru lág-
marki um þessar mundir.
– Brauð og sælgæti. Verðhækk-
anir á þessum vörum er bein af-
leiðing af hækkun á verði á korni
og sykri. Heyrst hefur að fólki sé
ráðlagt að hamstra sælgæti því
það muni hækka mikið á næstunni
því miklar hækkanir eiga sér stað
á kakói, mjólkurdufti og jurtafeiti.
– Kaffi, kakó og te. Þessar vörur
hækka sem aldrei fyrr. Að ein-
hverju leyti eru þær raktar til
hækkana vegna spákaupmennsku
stórra alþjóðlegra hrávörukaup-
manna og að hluta til misheppn-
aðrar uppskeru. Til dæmis hefur
Kenía minnkað framleiðslu sína á
svörtu tei um 10% og ýmsir kaffi-
framleiðendur í Suður-Ameríku
hafa boðað 10% hækkun á kaffi.
Álíka hækkanir á matvælaverði og á Norðurlöndunum
Emil B. Karlsson fjallar um
ástæður hækkandi mat-
vælaverðs hérlendis og erlendis
» Ástæðurnar eru
fyrst og fremst
hækkanir á fram-
leiðsluverði, þróun á al-
þjóðamarkaði og geng-
issveiflur.
Emil B. Karlsson
Höfundur er forstöðumaður Rann-
sóknaseturs verslunarinnar.
Prófaðu Heimaöryggi í 2 mánuði án endurgjalds – án skuldbindinga.
Hringdu núna í 570 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift!
www.oryggi.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
\
9
08
03
50
Heimaöryggi með útkallsþjónustu öryggisvarða býðst á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Akranesi, Akureyri og í Árborg.