Morgunblaðið - 08.03.2008, Blaðsíða 46
Það sem Björk sagði
hefur mætt mikilli
gremju hjá almenningi … 49
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG ákvað nú bara að reyna að losa
aðeins um mig. Ég er búinn að vera
að leika mikið undanfarin ár og vildi
fara að ráða meira um þau verkefni
sem ég fer í,“ segir Ellert A. Ingi-
mundarson sem hefur sagt upp fast-
ráðnum samningi sínum sem leikari
við Borgarleikhúsið, eftir næstum
tveggja áratuga starf við leikhúsið.
„Þegar maður er fastráðinn leik-
ari tilheyrir maður leikhópnum, en
svo eru lausráðnir leikarar ráðnir
með. Ég reikna með að starfa sem
slíkur í framtíðinni,“ segir Ellert
sem leggur áherslu á að ákvörðunin
hafi ekkert með yfirvofandi leik-
hússtjóraskipti hjá LR að gera.
Ellert hefur verið fastráðinn hjá
Borgarleikhúsinu lengur en margur
annar, frá árinu 1991. „Ég verð bú-
inn að vera fastráðinn í sautján ár
núna í maí, sem er nú ansi langur
tími,“ segir hann, og ljóst að fáir
leikarar í leikhúsinu slái það út. Þó
segir Ellert líklegt að einhverjum af
eldri kynslóðinni takist það. „Ég
held til dæmis að Theódór Júlíusson
sé búinn að vera að minnsta kosti
jafnlengi og ég, og Pétur Einarsson
hefur jafnvel verið enn lengur. Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir og Hanna
María Karlsdóttir hafa líka báðar
verið þarna nokkuð lengi.“
Ellert gerir ráð fyrir að hér eftir
muni hann leika meira fyrir utan
Borgarleikhúsið, þótt hann verði
með annan fótinn þar áfram.
„Ég verð að gera það sem laus-
ráðinn leikari. Nú er ég bara kom-
inn á þennan stað sem ég var á fyrir
sautján árum síðan, að reyna að
harka, en munurinn er sá að nú er
ég með þessa reynslu á bakinu. En
hingað til hef ég þurft að taka öll
þau verkefni sem leikhússtjórinn
hefur sett í hendurnar á mér, sem
hafa sum verið miður skemmtileg,
og að því leyti er þessi breyting
góð.“
Aðspurður segir Ellert alveg
hugsanlegt að hann muni eitthvað
sjást á fjölum Þjóðleikhússins í
framtíðinni. „Það ætla ég alla vega
rétt að vona,“ segir hann að lokum.
Kominn aftur í harkið
Morgunblaðið/Jim Smart
Aftur til fortíðar „Nú er ég bara kominn á þennan stað sem ég var á fyrir
sautján árum síðan, að reyna að harka,“ segir Ellert A. Ingimundarson.
Ellert Ingimundarsson hættir sem fastráðinn leikari hjá LR
Fréttakonan
Jóhanna Vigdís
Hjaltadóttir er
söluhæsti höfund-
urinn á bóka-
markaðnum sem
nú stendur yfir í
Perlunni. Að sögn Forlagsins sem
gefur út matreiðslubækur Jóhönnu,
Í matinn er þetta helst og Seinni
rétti, hafa bækurnar selst í 3.000
eintökum frá því að markaðurinn
var opnaður fyrir rúmri viku í Perl-
unni en þar er að finna gífurlegan
fjölda titla á lægra verði en alla-
jafna er boðið í bókabúðum. Mat-
reiðslubækur Jóhönnu Vigdísar
hlutu góðar viðtökur þegar þær
komu út en bækurnar þykja ekki
síst merkilegar fyrir góðar ljós-
myndir sem Silja Magg og Magnús
Hjörleifsson eiga heiðurinn að. Nú
er bara spurning hvort Fréttablað-
ið þurfi ekki að láta fara fram aðra
kosningu á besta íslenska rithöf-
undinum í ljósi þessara ótrúlegu
vinsælda Jóhönnu. Bókamark-
aðnum lýkur á morgun.
Jóhanna Vigdís
vinsælust í Perlunni
Fyrirsætan Yasmin Le Bon opn-
aði formlega í gær nýja verslun
House of Fraser í Belfast á Norður-
Írlandi en House of Fraser er í eigu
Baugs Group. Um er að ræða versl-
unarmiðstöð á sjö hæðum við Vic-
toria-torg í miðborg Belfast. Meðal
verslana í húsnæðinu eru leik-
fangabúðin Hamleys, sem einnig er
í eigu Baugs, Sisley, Laura Mercier,
All Saints, Agent Provocateur og
La Perla. Yasmine Le Bon, sem er
eiginkona söngvarans Simons Le
Bon, hyggst einnig verða verndari
styrktarsjóðsins „Action Cancer“
sem House of Fraser styrkir.
Fyrirsæta opnar HoFEftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er flensusýning, ég er bú-
inn að vera að vinna þetta í ein-
hverri flensu. En það er ágætt, þá
verður hún svo mannleg,“ segir
myndlistarmaðurinn Jón Sæmund-
ur Auðarson um sýningu sem hann
opnar í 101 Gallery kl. 17 í dag.
Sýninguna nefnir hann „Undra-
verður rafmagnaður talandi hellir“
og er það í höfuðið á laginu
„Amazing Electric Talking Cave“
eftir Anton Newcombe, aðalsp-
rautu hljómsveitarinnar Brian Jon-
estown Massacre, en Jón Sæmund-
ur vann myndband við lagið. „Við í
Project of Iceland-hópnum unnum
13 myndbönd við nýju plötuna
hans, My bloody underground, sem
hann tók upp hér á landi í fyrra,“
segir Jón Sæmundur, en sjá má öll
myndböndin á Youtube.
Auk þess hannaði hópurinn útlit
á DVD-útgáfu plötunnar sem kem-
ur út í september undir nafninu
Book Of Days. „Svo samdi hann
aukalag hérna á Íslandi, og ég var
viðstaddur upptökur á því. Ég
ákvað að gera myndband við það
lag, og út frá því myndbandi
spruttu önnur verk,“ segir Jón Sæ-
mundur, en sýningin sem hann
opnar í dag er í raun framhald af
þeirri vinnu, auk þess sem sjá má
myndbandið á henni. „Mér var boð-
ið að sýna þarna með ansi stuttum
fyrirvara, bara einhverjum mán-
uði, þannig að sýningin end-
urspeglar bara allt sem er í höfð-
inu á mér þessa stundina. Ég hef
verið svolítið upptekinn af Tíbet og
búddisma upp á síðkastið, og lagið
er mjög andlegt, en samt rokkað
þannig að hægt er að dansa við
það. Í rauninni stendur sýningin
svolítið með því lagi, án hljóðs
virkaði hún ekki alveg. Þetta virk-
ar allt saman, ég er þarna með
myndbandsverk, ljósmyndir og
málverk sem kemur fyrir í mynd-
bandinu,“ útskýrir hann.
Á sýningunni hefur hluta af
vinnustofu Jóns Sæmundar verið
komið fyrir og kennir þar ýmissa
grasa. Þar má meðal annars finna
tíbetska muni sem listamaðurinn
hefur sankað að sér.
„Þarna er til dæmis hauskúpan
mín, sem ég hef líka notað í gegn-
um búðina mína, í prent og á boli
og þannig. Þrátt fyrir friðsældina
hefur hún náð að dúkka upp í
draumum þeirra sem hafa komið á
vinnustofuna, og valdið þó nokkr-
um heilabrotum. Hún fær sitt pláss
á sýningunni líkt og starrinn sem
átti stutta en listræna ævi undir
dúndrandi rokktónlist á meðal
málningarpensla og olíulita á
vinnustofunni.“
Rafmagnaður hellir
Jón Sæmundur Auðarson opnar sérstæða myndlistarsýningu í 101 Gallery í dag
Morgunblaðið/Ómar
Rokkaður „Ég hef verið svolítið upptekinn af Tíbet og búddisma upp á síðkastið,“ segir Jón Sæmundur sem sýnir myndbandsverk og fleira í 101 Gallery.