Morgunblaðið - 08.03.2008, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 49
KÍNVERSK stjórnvöld hafa heitið
því að herða viðbrögð sín við op-
inberum stuðningi erlendra lista-
manna við sjálfstæði Tíbet. Þessi
ákvörðun kemur í kjölfarið á því að
Björk Guðmundsdóttir tileinkaði
sjálfstæðisbaráttu Tíbeta, lag sitt
„Declare Independence“ á tón-
leikum í Sjanghæ síðasta sunnudag.
Að því er fram kemur í frétt
frönsku fréttastofunnar AFP gætu
slík viðbrögð haft í för með sér
bann við komu listamannanna til
Kína.
„Við munum herða eftirlit með
erlendum listamönnum svo koma
megi í veg fyrir að svona hlutir ger-
ist aftur,“ segir í yfirlýsingu á
heimasíðu menningarmálaráðu-
neytis Kína. „Við munum aldrei
láta það líðast að reynt sé að stía
Tíbet og Kína í sundur og munum
því ekki bjóða þeim listamönnum til
landsins sem hyggjast beita sér í
þeim efnum. Einhverjir listamenn
hafa að yfirlögðu ráði breytt list-
viðburðum í pólitískar samkomum
sem brýtur í bága við kínversk lög
og særir þá kínversku gesti sem
sækja listviðburði. Það sem Björk
sagði í Sjanghæ hefur mætt mikilli
gremju hjá kínverskum almenn-
ingi,“ segir ennfremur í yfirlýsingu
ráðuneytisins.
Listamenn gagnrýna Kína
Tíbet var innlimað í Kína árið
1951 og síðan hefur Kína farið fram
af mikilli hörku gegn þeim sem
krefjast sjálfstæðis landsins. Er-
lendir listamenn á borð við Richard
Gere og hljómsveitina Beastie Boys
hafa lengi stutt við baráttu Tíbeta
fyrir sjálfstæði og nú síðast afþakk-
aði leikstjórinn Steven Spielberg
boð kínverskrar stjórnvalda um að
koma að Ólympíuleikunum sem
fram fara í landinu síðar á þessu
ári. Ástæðan var sögð vera mann-
réttindabrot Kínverja en þar vegur
þungt framkoma stjórnvalda gagn-
vart Tíbetum.
Aðspurð hvort svo gæti farið að
þeim listamönnum sem styddu sjálf-
stæðisbaráttu Tíbeta yrði bannað
að koma til Kína í framtíðinni,
sagði talskona ráðuneytistins að
svo gæti farið að Björk yrði bannað
að koma fram í Kína ef hún syngi
aftur Tíbetum til stuðnings.
„Ef Björk heldur áfram að haga
sér svona í framtíðinni munum við
íhuga að meina henni að koma aft-
ur fram í Kína,“ sagði talskonan við
AFP.
Stuðningur við Tíbet ekki liðinn
Reuters
Björk Söngkonan gæti átt á hættu að verða meinað að koma aftur fram í Kína.
Kínversk stjórnvöld fljót að bregðast við uppátæki Bjarkar
ROSEN METHOD BODYWORK
INTRODUCTORY WORKSHOP
Reykjavik 25.4-27.4.2008
To register please:
Email maija@rosen.fi
Call +358505140965
For more details: www.rosen.fi
Næstu sýningar
Lau. 8. mars UPPSELT
Aukasýn. fös. 14 mars kl. 20
SÍÐ
US
TU
SÝ
NIN
GA
R
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
Stefnumót við safnara III
Sýnendur: Eymundur Matthíasson • Gunnar Örn Tynes • Joel
Thurman • Magnús Birkir Skarphéðinsson • Pétur H. Jónsson
• Sighvatur Ómar Kristinsson • Sigurlaug Gísladóttir • Sönke
Holtz og hljómsveitin Hey Calypsó! • Viðar H. Gíslason • Úlfur
Eldjárn
Sjö landa sýn
María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslitas-
temmningar frá Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Íslandi,
Japan, Perú og Skotlandi.
Listakonan tekur á móti gestum um helgina!
Hið breiða holt
Ljósmyndasýning þar sem unglingar
eiga stefnumót við afa sína eða ömmur!
Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir.
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Síðustu sleðarnir á
páskatilboði
Mótormax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
Mótormax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070
Mótormax Akureyri - Sími 460-6060
www.motormax.is
Páskatilboð Mótormax á síðustu 2008 vélsleðunum
er ávísun upp á 75.000 kr. í fatnaði og fylgihlutum.
Þú lætur drauminn rætast núna og færð þér t.d.
þennan magnaða Yamaha Nytro RTX ER 40th
anniversary og við hjá Mótormax gefum kaupauka
með eftir þínum óskum upp á 75.000 kr.
BÓNUS
NÚNA!
75.000kr.
Söngtónleikar
Sönglög Jórunnar Viðar
í Salnum, Kópavogi
sunnudaginn 9. mars
kl. 16
Helga Rós Indriðadóttir, sópran
Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanó
ásamt Hallfríði Ólafsdóttur, flauta
Helga Rós Guðrún Dalía