Morgunblaðið - 08.03.2008, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 51
LEIKARINN Matthew McConaug-
hey vill helst af öllu nefna ófæddan
son sinn eftir uppáhaldsbjórtegund-
inni sinni Budweiser. McConaughey
og kærasta hans Camila Alves eiga
nú von á fyrsta barni sínu og vilji svo
til að barnið verði drengur er McCo-
naughey að hugsa um að skíra hann
Bud. McConaughey telst nú hins
vegar ekki mjög frumlegur því bróð-
ir leikarans, Michael McConaughey,
skírði fyrsta son sinn Miller Lyte.
Hins vegar virðast þau Matthew og
Camila ekki vera á einu máli hvað
nafngiftina varðar og samkvæmt
vini þeirra hjóna mun Camila ekki
taka Bud-nafnið í mál. Hafi McCo-
naughey hins vegar vinninginn í bar-
áttunni um nafnið mun drengurinn
bætast hóp þeirra barna fræga
fólksins sem bera skrítin nöfn. Má
þar nefna Apple, dóttur Gwyneth
Paltrow og Chris Martin, Prince
Michael I og Prince Michael II syni
Michaels Jackson og dóttur Dave
Grohl úr Foo Fighters, Everly Bear.
Bud McConaughey?
Ósammála Matthew og Camila eru víst á öndverðu meiði.
BAÐSTOFUNNI eftir Hugleik
Dagsson hefur verið boðið á leikrita-
tvíæringinn í Wiesbaden í Þýska-
landi í sumar. Þar fer fram ein þekkt-
asta leiklistarhátíð Evrópu, helguð
nýjum leikritum. Baðstofan er þriðja
leikrit Hugleiks en verkið var frum-
sýnt í leikstjórn Stefáns Jónssonar í
Kassanum þann 9. febrúar síðastlið-
inn. Að sögn Kristrúnar Heiðu
Hauksdóttur, kynningarstjóra Þjóð-
leikhússins, ferðuðust aðstandendur
hátíðarinnar vítt og breitt um Evr-
ópu til að kynna sér leikhúslífið í
hverju landi fyrir sig og má því gera
ráð fyrir að á hátíðinni verði að finna
allt það besta sem nú er að gerast í
evrópskum leikhúslistum. Hópurinn
sem stendur að sýningunni Baðstof-
unni er að stórum hluta sá sami og
setti upp söngleikinn Leg í Þjóðleik-
húsinu, og Forðist okkur, sem var
sýnt á vegum
Nemendaleik-
húss LHÍ og
CommoNonsense
í Borgarleikhús-
inu. Leg hlaut tólf Grímutilnefningar
á liðnu ári og var sýningum hætt fyr-
ir fullu húsi nú í haust. Í Baðstofunni
beinir hópurinn sjónum sínum að for-
tíð okkar Íslendinga.
Baðstofan til Wiesbaden Baðstofan StefánHallur Stefánsson
í hlutverki sínu í
Baðstofunni.