Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 74. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VILL LEIKA Í ÁST
BOND-STJARNAN HONOR BLACKMAN
Í LEIKPRUFU HJÁ VESTURPORTI >> 49
Fló á skinni >> 48
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
„SKÍÐAFÆRIÐ hefur verið algjör snilld, næg-
ur snjór og frábært veður,“ segir Magnús
Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæðisins í
Bláfjöllum. Ágætis veðri er spáð um helgina
og næstu daga en um miðbik vikunnar eru
töluverðar líkur á rigningu sem skíðamenn
vonast auðvitað til að breytist í snjó til fjalla.
Því er um að gera fyrir landsmenn að drífa sig
á skíði um helgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á skíði um helgina
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SKIPTAR skoðanir eru um ákvörðun heil-
brigðisráðherra að sameina heilbrigð-
isstofnanir á Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi. Yfirlýst markmið heilbrigð-
isráðherra með sameiningunni er að
styrkja og auka þjónustu við íbúana, nýta
betur þekkingu fagfólks og skapa sterkari
rekstrareiningar.
Engu að síður er það eitt helsta áhyggju-
efni sveitarstjórnarmanna að þjónusta í
þeirra heimabyggð skerðist og spyrja þeir
hvort „verið sé að leita ullar í geitarhúsi“
þegar minni stofnunum sé gert að hagræða,
líkt og einn sveitarstjórnarmaður orðaði
það. „Við erum talsvert brennd af hagræð-
ingum stjórnvalda,“ sagði sá hinn sami.
Framkvæmdastjórar heilbrigðisstofnana
á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík eru mjög
sáttir og telja að með með þessu megi m.a.
ná fram hagræðingu í rekstri, t.d. með sam-
eiginlegum innkaupum. Ánægja með sam-
einingu Heilbrigðisstofnunarinnar á
Blönduósi (HB) við stofnunina á Sauð-
árkróki er hins vegar ekki jafnalmenn enda
þjónusta stofnanirnar íbúa sjö sveitarfé-
laga. Á Vestfjörðum stendur til að sameina
Heilbrigðisstofnanir Bolungarvíkur og Ísa-
fjarðarbæjar, en nú þegar er nokkurt sam-
starf þar á milli, t.d. er sami fram-
kvæmdastjóri yfir báðum stofnunum og
lyfjainnkaup sameiginleg. Er þörf á að
ganga lengra?
„Það þarf að efla þjónustuna í Bolung-
arvík, í því felast sóknarfæri fyrir bæj-
arfélagið,“ segir Grímur Atlason, bæj-
arstjóri þar í bæ.
Á Vesturlandi er m.a. spurt af hverju
ekki sé gengið lengra en að sameina sjúkra-
húsið í Stykkishólmi við heilsugæslur á
Snæfellsnesi, Borgarnesi og í Búðardal og
taka Sjúkrahúsið á Akranesi með inn í
myndina. Menn sjá hins vegar marga já-
kvæða punkta við sameiningarnar. Auk
hagræðingar nefna sveitarstjórnarmenn
möguleika á meiri fjölbreytni og öryggi í
læknisþjónustu. „En við setjum fram þá
skýru kröfu að þjónustustigið haldist að
lágmarki eins og það er núna og bindum
vonir við að það geti jafnvel orðið öflugra,“
segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, bæj-
arstjóri Grundarfjarðar.
Áhyggjur
í heima-
byggð
Sameina á heilbrigðis-
stofnanir víða um land
Morgunblaðið/ÞÖK
Greinilegt? Sveitarstjórnarmenn eru ekki
á einu máli um sameiningu.
FÓLKI sem leitar aðstoðar hjá
Ráðgjafarstofu um fjármál heim-
ilanna vegna greiðsluerfiðleika
hefur fjölgað upp á síðkastið.
Að sögn Ástu S. Helgadóttur,
forstöðumanns Ráðgjafarstofunn-
ar, er mikið um að fólk hringir og
leitar ráða. Er aðsóknin svo mikil
um þessar mundir að fullbókað er
í alla viðtalstíma fram í apríl. Sex
starfsmenn eru á ráðgjafarstof-
unni sem veita fólki af öllu landinu
aðstoð. Ásta segir að margir
hringi vegna gengisbundnu lán-
væri mjög hagstætt að taka er-
lend lán. Þeim fylgir áhætta eins
og fylgir líka verðtryggðu lánun-
um.“
Krónan veiktist um 1,56%
Krónan veiktist um 1,56% í
gær, skv. upplýsingum frá Glitni.
Gengi dollarans er 71,15 krónur,
gengi breska pundsins 144,44
krónur og gengi evru 111,12 krón-
ur og er það hæsta lokun á evru.
anna til að leita upplýsinga og
virðist hafa komið mörgum í opna
skjöldu hve greiðslubyrði afborg-
ana hefur aukist að undanförnu.
Hún segir marga sem leita til
stofunnar hafa tekið bílalán sem
bundin eru við myntkörfu. „Við
höfum vakið athygli á að fjármála-
fræðslu er almennt mjög ábóta-
vant. Við finnum fyrir vanþekk-
ingu á þessu. Ég efast ekki um að
lánastofnanir hafi upplýst fólk um
þetta þegar það tók lánin, en það
var mikið í umræðunni að það
Allir viðtalstímar bók-
aðir fram í aprílmánuð
Margir leita aðstoðar vegna bílalána í erlendri mynt
Höfuðstóllinn | 6
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s
segir horfur í íslenska bankakerf-
inu neikvæðar og endurspegli það
versnandi lánaskilyrði á banka-
markaði almennt auk áskorana
vegna örs vaxtar þeirra, mikillar
samþjöppunar í lánasafni og hás
hlutfalls venslaðra lána. Jafn-
framt endurspegla horfurnar
áhyggjur af endurnýjanleika
tekna bankanna á veikari mörk-
uðum. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Moody’s um horfur í ís-
lenska bankakerfinu. Þar segir
jafnframt að sterk staða bank-
anna á heimamarkaði og góð
landfræðileg dreifing dragi þó
eitthvað úr áhyggjum.
Þá segist Moody’s enn telja
miklar líkur á að ríkið muni styðja
bankakerfið gerist þess þörf.
Neikvæðar
horfur
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Bob Dylan mun
halda tónleika í Egilshöllinni mánudagskvöldið
26. maí næstkomandi. Dylan, sem er orðinn 66
ára, er fyrir löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi og
óhætt að segja að hann sé einn áhrifamesti texta-
og lagasmiður síðustu áratuga. Þetta verður í
annað skipti sem Dylan heldur tónleika hér á
landi, en hann kom fram á tónleikum á Listahátíð
í Reykjavík árið 1990. „Hann er víst rosalega vel upplagður þessa
dagana og syngur lögin sem fólk vill heyra á tónleikum. Þannig að
fólk hefur fengið það sem það vill, enda hefur hann fengið góðar
viðtökur bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum,“ segir tónleika-
haldarinn Ísleifur Þórhallsson. | 53
Bob Dylan heldur tón-
leika á Íslandi í sumar
Bob Dylan