Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 46
Þetta er ekki ódýr
pakki en maður lætur
sig hafa það, fórnar sér fyrir
málstaðinn … 52
»
reykjavíkreykjavík
SKJÁR Símans býður upp á úrval
mynda í ýmsum flokkum sem hægt
er að leigja fyrir tilstilli svokallaðrar
VOD-tækni (video on demand) í
SkjáBíó, þ.e. vídeóleigu Skjásins
sem aðgengileg er heiman úr stofu.
Þar eru myndir flokkaðar í ýmsa
flokka og einn þeirra er erótík.
Reyni menn að skoða úrvalið í þeim
flokki eru þeir beðnir um lykilorð
sem kaupandi Skjásins velur þegar
hann fær myndlykil í hendur.
Í kjölfarið birtast svo ýmsir flokk-
ar erótísks efnis, Playboy, Adult og
Topp 20. Allar eru myndirnar greini-
lega merktar með 18 ára aldurs-
takmarki og innihald þeirra aug-
ljóslega af kynferðislegum toga.
Friðrik Friðriksson, rekstr-
arstjóri stafræns sjónvarps hjá
Skjánum, segir þetta efni falið hin-
um almenna notanda og hafi aldrei
verið auglýst eða kynnt með neinum
hætti. Það sé innan við 10% þess efn-
is sem leigt er í VOD-kerfi Skjásins.
„Þetta hefur verið hluti af þessu
framboði frá byrjun, við byrjuðum í
lok árs 2005, og það hefur ekki kom-
ið ein kvörtun,“ segir Friðrik. Það
sýni líklega best að þetta efni hafi
ekki lekið til þeirra sem ekki er ætl-
að að sjá það. „Áskrifandinn fær lyk-
ilorð þegar hann fær kerfið afhent til
sín og hann getur síðan breytt því,“
segir Friðrik. Efnisframboðinu sé í
raun skipt upp í fjölskyldu- og eig-
andareikning. Aðeins sé hægt að
nálgast erótíska efnið í gegnum eig-
andareikninginn. „Fólk þarf að bera
sig með ákveðnum aðgerðum til að
komast að þessu efni.“
Hvað lagalegu hliðina varðar segir
Friðrik: „Við töldum að þetta myndi
samræmast gildandi lögum og höf-
um raunverulega gengið út frá því,“
segir Friðrik. Niðurstaðan hafi verið
sú að þetta væri hluti af eðlilegu
framboði í VOD-kerfi.
„Þetta er mjög öruggt kerfi,“ seg-
ir Friðrik, hann viti ekki til tilfella
þess að einhver hafi dottið inn á eró-
tíkina. Þess ber að geta að þessar
kvikmyndir sem leigðar eru út í
flokknum Erótík eru misjafnar og
merktar í X-um eftir því hversu
grófar þær teljast. Playboy-myndir
eru samkvæmt því settlegastar.
Bláar myndir á Skjánum
Morgunblaðið/Helgi Snær Sigurðsson
Erótík Valmynd Skjásins sem sýnir úrval af erótísku efni, m.a. mynd um
Poppy nokkra Morgan „atvinnudræsu“ og nemendur hennar.
Skjár Símans leigir út erótískt efni sem læst er með lykilorði
Ármann Jak-
obsson, íslensku-
fræðingur og
kennari við MR,
segir á bloggsíðu
sinni að hann sé
að velta því fyrir
sér að taka upp millinafnið Fabio í
þeirri von að það muni breyta
ímynd hans. Ármann er hér með
eindregið hvattur til að láta af
þessu verða enda hafa mörg stór-
mennin borið þetta fallega nafn,
þótt nærtækasta dæmið sé að sjálf-
sögðu hið hárprúða ítalska kvenna-
gull Fabio Lanzoni. Það sannaðist
hins vegar á dögunum að Ármanni
og bróður hans Sverri er fleira til
lista lagt en að grúska í bókum. Í af-
mæli Æsu Guðrúnar Bjarnadóttur,
eiginkonu Sverris, fluttu þeir bræð-
ur henni til heiðurs lagið „You’ve
lost that loving feeling“, auk þess
sem Ármann sýndi frumsaminn
dans við lagið. Þótt það væri ekki
nema fyrir það eitt að Fabio-nafnið
myndi fleyta honum langt á dans-
ferlinum þá ætti Ármann að dansa
niður í Þjóðskrá hið fyrsta og klára
málið.
Réttlátu bræðrunum er
margt til lista lagt
Músíktilraunir Hins hússins og
Tónabæjar hafa gengið eins og í
sögu alla þessa viku og í kvöld kem-
ur í ljós hvaða hljómsveit ber sigur
úr býtum. Rokkið mun vera allsráð-
andi í ár – í ólíkum birting-
armyndum þó – og ljóst er að þessi
tónlistarstefna er engan veginn á
undanhaldi. Ein af þeim hljóm-
sveitum sem spiluðu það sem kalla
má indírokk var hljómsveitin
Unchastity sem kom fram á
fimmtudagskvöldið. Þrátt fyrir að
sveitin hafi staðið sig ágætlega á
sviðinu kom í ljós að meðlimir
höfðu neytt áfengis og því var þeim
umsvifalaust vísað úr keppni.
Vísað úr keppni
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
HEIMILDAKVIKMYNDIN Ketill, um Ketil Lar-
sen, verður frumsýnd á vegum Fjalakattarins í
Tjarnarbíói á morgun klukkan 15 og síðan er
önnur sýning klukkan 20.
„Þessi mynd er svolítið eins og mósaík,“ segir
annar leikstjóranna, myndlistarmaðurinn og
kvikmyndaleikarinn Tómas Lemarquis. Hinn
leikstjórinn er Joseph Marzola, tónlistar- og
myndlistarmaður sem búsettur er hér á landi.
Tómas býr hinsvegar í Þýskalandi og hann segir
að þeir Joseph hafi byrjað á myndinni fyrir
tveimur árum, eftir að Joseph kynntist Katli á
Mokka.
„Ég hafði kynnst Katli á sínum tíma þegar ég
var á reiðnámskeiði í Víðidal og fannst góð hug-
mynd að gera mynd um hann. Í raun var ég hissa
á því að það hefði ekki þegar verið gert,“ segir
Tómas.
Þeir Joseph byrjuðu að hitta Ketil og fylgja
honum eftir á ferðum hans. „Útkoman er ljóð-
ræn 30 mínútna mynd sem byggir á litlum brot-
um úr lífi Ketils frekar en sögulegri framvindu.
Þetta eru lítil brot sem okkur þykir lýsa Katli
vel.“
Ketill er kunnur lífskúnstner og er áberandi
sem foringi jólasveinanna á aðventunni.
„Okkur fannst áhugavert hvernig hann bland-
ar saman listinni og lífinu og hvað líf hans er
ljóðrænt,“ segir Tómas. „Hann finnur sköp-
unargleði í öllum aðstæðum.“
Kvikmyndatökumaður frá Frakklandi tók
myndina upp að hluta, en þeir Joseph munduðu
einnig tökuvélina. Ólöf Arnalds gerði tónlistina
og myndlistarkonan Dodda Maggý vann að
klippingu.
Nokkuð óhefðbundin
Tómas segir myndina hafa verið forsýnda í
galleríi í Varsjá í Póllandi fyrir tveimur vikum.
„Áhorfendur þar voru mjög jákvæðir, myndin
talar greinilega líka til fólks erlendis. Enda þarf
Ketill ekki mörg orð til að gera sig skiljanlegan.
Hann hefur mjög sterka líkamstjáningu.
Myndin er nokkuð óhefðbundin og fellur undir
bæði form, kvikmynd og myndlist. Enda komum
við báðir úr myndlistinni. Við Joseph erum í hinu
og þessu, rétt eins og Ketill.“
Tómas er hér á miðri leið milli myndlistar og
leiknu kvikmyndanna. Hann er þessa dagana að
undirbúa sýningu sem verður opnuð í galleríinu
Airgarten í Berlín í sumar, senn verður frum-
sýnd þýsk kvikmynd sem hann leikur aðal-
hlutverk í, og ef allt gengur eftir leikur hann í
kvikmynd á Spáni síðar á árinu.
„Ég er spenntur fyrir því að halda áfram að
gera kvikmyndir en að sama skapi er það erf-
iðasta sem ég get ímyndað mér að leikstýra
leiknum myndum. Ég ber óttablandna virðingu
fyrir því starfi. En þetta er heimildamynd og það
hæfir mér betur.“
Tómas getur ekki verið við frumsýninguna á
sunnudag, þar sem hann heldur í dag í ferð með
fjölskyldunni til Túnis. „Joseph og Ketill verða á
staðnum. Hugurinn minn verður hjá þeim,“ segir
Tómas.
Listin og lífið í bland
Heimildakvikmynd um Ketil Larsen frumsýnd á morgun í Tjarnarbíói
Morgunblaðið/Valdís Thor
Kúnstnerinn Ketill er kunnur lífskúnstner og er áberandi sem foringi jólasveinanna á aðventunni.
Leikstjórinn Tómas Lemarquis sem Nói Albinói.