Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG viðurkenni fúslega að ég er bú- inn að vera á eftir Premier í nokkur ár,“ segir Róbert Aron Magnússon, Robbi Kronik, en hann flytur Prem- ier inn. „Þetta er ekki ódýr pakki en maður lætur sig hafa það, fórnar sér fyrir málstaðinn. Hann er einn af mínum stærstu átrúnaðargoðum, hann hafði mikil áhrif á mig þegar ég var að byrja í þessu stússi mínu og hann er sannkallaður risi í hipphopp- heiminum.“ Robbi segir að taktsmíði DJ Prem- ier á sínum tíma hafi sprengt heim hipphoppsins upp og að um skeið hafi allt sem hann kom nálægt orðið að gulli. „Premier á mikið í NAS, Notorius B.I.G. og fleiri köppum þarna frá New York-svæðinu. Færni hans er slík að hann getur látið meðalrappara hljóma eins og einhvern tímamóta- snilling. Hann er hiklaust einn áhrifa- mesti upptökustjóri sögunnar.“ Morgunblaðið/Ásdís Aðdáandi Róbert Aron Magnússon. Hipphopprisi Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að DJ Premier sé þungavigtarmaður í hipphoppheimum og er sú lýsing eiginlega fullléttvæg. Áhrif hans á þróun samtímahipphopps eru ómæld og sporin sem hann hefur markað eru hyldjúp. Premier er taktsmiður, plötusnúður og upp- tökustjóri og sem annar helmingur eins áhrifaríkasta dúetts hipphopps- ins, Gang Starr, skóp hann hipp- hoppinu nýja vídd í upphafi tíunda áratugarins. Hann dýpkaði hljóð- heiminn og gerði hann nett víraðan með tilstuðlan djassplatna og naum- hyggjulegra takta (sjá Step in the Arena (’91) og Daily Operation (’92)) og er Gang Starr álitin ein mikilvæg- asta hipphoppsveit Austurstrand- arinnar (þess má geta að Guru, rappari Gang Starr, kom hingað til lands árið 2002). Dulur og hlédrægur Premier var einn fyrsti upp- tökustjórinn sem reis ofar stjörn- unni eða flytjandanum sem hann vann með. Nafn hans tryggði gæði umfram allt, og það sem meira var – nánast öruggan smell þegar best lét. Líkt og plötur frá kanónum á borð við Dr. Dre, Timbaland og RZA búa þær plötur sem hann kemur nálægt yfir einstökum, einkennandi hljóm. Ólíkt þeirri þrenningu er Premier þó fremur dulur og hlédrægur og kýs fremur að láta verkin tala. Og í þeim efnum er hægt að tala um algera munnræpu. Hinn mikilvirki Premier er með eindæmum afkastamikill og það eru meiri líkur en minni á að þú hafi hummað með Premier-legnu lagi án þess að vita af því að hann hafi komið þar nálægt. Endalaus listi Af „poppaðri“ listamönnum sem hann hefur starfað með má nefna Neneh Cherry, Brandy, Limp Biz- kit, D’Angelo, Craig David, Macy Gray og Christinu Aguilera, en hann lagði til vinnu við síðustu plötu henn- ar, Back to Basics (2006). Listi yfir hipphoppara er svo gott sem enda- laus en af stóru nöfnunum eru helst Eminem, Kanye West, Jay-Z, Nas, Notorious B.I.G., Rakim, Snoop Dogg, Mobb Deep, Common, KRS- One og Mos Def. DJ Premier Einn áhrifamesti upptökustjóri hipphoppsins fyrr og síðar kemur fram á Gauknum í kvöld. DJ Premier, einn fremsti og áhrifamesti upp- tökustjóri hipp- hoppsögunnar, spilar á Gauknum í kvöld Miðasala á midi.is. Einnig koma fram Blaq Poet, DJ Fingaprint, DJ B-Ruff, DJ Magic og Bæjarins bestu. Sá besti …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.