Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 25
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 25 Mikið mannvirki er að rísa norðan hesthúsabyggðar við Hvamms- tanga. Þar byggir Hestamanna- félagið Þytur reiðhöll sem er 1250 fm að stærð. Húsið er stálgrind á steyptum sökklum, klætt ylein- ingum. Áætlaður byggingarkostn- aður er 40-50 milljónir króna. Stjórnarformaður félagsins, Sig- rún Þórðardóttir, segir fram- kvæmdina vekja væntingar hjá fé- laginu. Félagsmenn eru nú 207 og hafa aldrei verið fleiri. Mikil starf- semi er innan félagsins og hrepptu nokkrir félagsmenn Íslandsmeist- aratitla á liðnu ári. Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna verður haldið á Hvammstanga ár- ið 2010 og hefur félagið fengið framlag frá Húnaþingi vestra til byggingarinnar og mótshalds, alls 16 milljónir króna sem greiðist á fjórum árum. Styrkur frá ríkis- sjóði til byggingarinnar er 15 milljónir króna.    Páskalömbum var slátrað hjá Sláturhúsi KVH ehf. í vikunni, alls 860 fjár. Magnús F. Jónsson fram- kvæmdastjóri segir þetta tvöföld- un frá liðnu ári. Kjötið fer að mestu ferskt á innanlandsmarkað. Mikil umsvif hafa verið í húsinu frá áramótum, 343 nautgripum slátrað, 228 folöldum og 135 hrossum. Markaðir fyrir kjötið eru góðir að sögn Magnúsar. Alls var slátrað 72 þúsund sauðfjár árið 2007 og var afkoma sláturhússins dágóð á því rekstrarári.    Lomberspil er þjóðleg íþrótt og hefur verið stunduð í Húnaþingi í langa tíð. Margar sögur eru af spilavenjum og atburðum tengd- um spilinu. Húnvetningar, beggja vegna Gljúfurár, hittast reglulega á hverjum vetri og eiga saman skemmtilegar kvöldstundir. Tvisv- ar hefur verið efnt til móts með Húnvetningum, Héraðsbúum og Austfirðingum og nú er ákveðið það þriðja, sem haldið verður við Eyjafjörð þann 12. apríl. Spilað verður heilan dag og um kvöldið reiknuð út stig einstakra spila- manna. Styrkur hverrar sveitar verður líka mældur og kunn- gerður með viðeigandi hætti. Klúbbar Húnvetninga heita Spadda og Ponti en það er heiti á fjórða hæsta trompi í rauðum lit. Lomberspil er skemmtileg af- þreying og eru uppi áform hjá Ponta að koma á kennslu í spilinu.    Afkomuspá fyrir bændur er ófög- ur, hækkanir á flestum aðföngum og fjármagnskostnaði. Anna Mar- grét Árnadóttir hjá Ráðunauta- þjónustu RHS segir Búnaðarþing hafa ályktað um að tollar á inn- flutningi verði ekki lækkaðir og að afnám útflutningsskyldu á dilkakjöti verði frestað og að fellt verði niður gjald á innfluttar fóð- urvörur. Hún telur að bændur verði að horfa til betri nýtingar í fjárfestingum véla og búnaðar, auka samnýtingu og samstarf milli bænda. Ef ekki verði sýni- legur bati í afkomu muni eflaust ýmsir huga að starfslokum um næstu áramót. Jákvætt er þó að fóðurframleiðsla hefur aukist í Húnaþingi, m.a. hefur bygg- ræktun aukist verulega og ættu bændur almennt að huga að þeim kosti. Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson Lomber Húnvetnskir lomberspilarar á æfingu fyrir mót með Austfirðingum. HVAMMSTANGI Karl Ásgeir Sigurgeirsson fréttaritari athygli. Að þessu sinni var 10% verðmunur á þessum verzlunum. Hann hefur stundum verið lítill sem enginn og stundum kannski ekki meiri en 3%. En 10% munur er tölu- verður verðmunur. Að vísu eru verzlanir Krónunnar betur bún- ar, vörur aðgengilegri og betur fram settar. Í stuttu máli eru verzl- anir Krónunnar orðnar nútímalegar verzlanir og það eitt réttlætir nokkurn verðmun. En réttlætir það 10% verð- mun? Það er skynsamlegt fyrir selj- endur vöru og þjónustu að átta sig á því nú þegar að tími andvaraleysis neytenda um verðlag er liðinn og nú eru að ganga í garð tímar, þegar neytendur hugsa um hverja krónu. Veizlan er búin á mörgum víg- stöðvum, ekki bara á fjármálamörk- uðum. Neytendur þurfa að láta seljendur vöru og þjónustu verða þessa vara. Þeir þurfa að koma því til skila, að þeir láti ekki bjóða sér sneið af epla- köku á 1100 krónur. Eða aðra sam- bærilega verðlagningu. Þegar ein af þekktari sérverzl- unum borgarinnar, Melabúðin, er með lægra verð á sumum vörum en lágvöruverðsverzlanir er eitthvað öðruvísi en það á að vera. Þessa dagana talarfólk mikið sín í milli um matvælaverð og raunar verðlag al- mennt. Ástæðan er einföld. Allir, sem leggja leið sína í mat- vöruverzlun finna, hvað matvörur hafa hækkað mikið og hvað kostnaðurinn er orðinn mikill við að kaupa í matinn. Hið sama á við, þegar fólk fer á benzínstöð og kaupir benzín á bílinn sinn. Sá kostnaður hefur stór- aukist og er fyrst og fremst um að kenna verðhækkun á alþjóðamörkuðum. Hátt verðlag kemur fólki í opna skjöldu. Kona pantaði í sakleysi sínu eina sneið af eplatertu á kaffihúsi án þess að spyrja um verð en þegar kom að því að borga kom í ljós að eplasneiðin kostaði 1100 krónur. Þeir, sem leggja leið sína á bjór- krár (sem enginn ætti að gera að mati Víkverja!) standa agndofa frammi fyrir verði á einu bjórglasi. Það er kominn aftur sá tími á Ís- landi að fólk finnur fyrir því hvað vörur og þjónusta kosta. Að ekki sé talað um húsnæði. Hvernig eiga venjulegir launþegar að geta tekið litla íbúð á leigu fyrir 120 þúsund krónur á mánuði? Í þessu ljósi vekur verðkönnun sem Morgunblaðið gerði í fyrradag á verði matvæla í Bónus og Krónunni      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is PR ET TY U G LY FU R N IT U R E. C O M BURT MEÐ Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170 www.boconcept.is LÍFIÐ ER OF STUTT FYRIR LJÓT HÚSGÖGNXEINN B O 0 8 03 0 01 20% afsláttur af bílaleigubílum erlendis! Bókaðu bílaleigubíl fyrir sumarfríið hjá Avis í mars og þú færð 20% afslátt í formi safnkortspunkta hjá N1. Bókaðu strax bíl á avis.is og safnaðu punktum! Sæktu um Safnkort N1 á avis.is. Einn punktur jafngildir einni krónu. Knarrarvogi 2 • Sími 591 4000 • avis.is E N N E M M / S IA / N M 3 24 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.