Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 39 AKRANESKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og 14. ÁRBÆJARKIRKJA | Fermingarmessa á pálmasunnudag kl. 10.30 og 13.30. Ath. sunnudagaskólinn verður nk. sunnudag í sal Árbæjarskóla. Aðkoma að salnum er að vestanverðu. Foreldrar, afar og ömmur hvött til að fjölmenna með börnunum. ÁSKIRKJA | Messa og ferming kl. 11. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragn- arsson. Sunnudagaskólinn fellur niður að þessu sinni. Sóknarprestur. BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt Grétu Konráðs- dóttur djákna. Álftaneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í hátíðarsal Álfta- nesskóla undir stjórn Möttu, Bolla Más og Snædísar. BORGARNESKIRKJA | Fermingarguð- sþjónusta kl. 11. Kór Borgarneskirkju syngur, organisti Steinunn Árnadóttir. BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þór- unn Tómasdóttir og Rannveig Ásgeirsdóttir sjá um stundina. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholts- kirkju syngur, organisti Jullina Isaacs. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Nínu Bjargar, Lindu Rósar og Jóhanns Axels. Kaffisopi eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og 13.30. Kór Bústaða- kirkju syngur, organisti Renata Ivan, prest- ur sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Fermingamessur kl. 10, 12 og 14. Prestar sr. Gunnar Sig- urjónsson og Magnús Björn Björnsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digra- neskirkju. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa á pálma- sunnudag kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna. Dómkór- inn syngur undir stjórn Marteins H. Frið- rikssonar. Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Hjálmar Jónsson predikar en einnig þjóna sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Karl V. Matthíasson. Bræðrabandið; Hörður og Birgir Bragasynir, Hjörleifur Valsson og Anna Sigríður Helgadóttir söngkona sjá um tónlistina. Æðruleysisguðsþjónustur eru einkum ætlaðar þeim sem hafa kynnst og tileinkað sér 12 spora kerfi AA- samtakanna, en aðrir eru að sjálfsögðu velkomnir. EGILSSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 14, ferm- ing. Organisti Torvald Gjerde. Kyrrðarstund verður 17. mars kl. 18. FELLA- og Hólakirkja | Á pálmasunnudag verða liðin 20 ár frá því að Fella- og Hóla- kirkja var vígð. Af því tilefni verður hátíð- armessa kl. 14. Biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, predikar. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna með honum fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur og leiðir safn- aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Ein- arsdóttur, kantors kirkjunnar. Alt- arisganga. Kvenfélagið Fjallkonurnar afhendir kirkjunni djáknastólu sem unnin er af listakonunni Sigríði Jóhannsdóttur. Veitingar í boði sóknarnefndanna eftir messu. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagskól- inn fellur niður vegna ferminga. Ferming- armessur eru kl. 10, 12 og 14. Kór Fríkirkj- unnar syngur undir stjórn Arnar Arnarsonar, organisti er Skarphéðinn Þór Hjartarson og bassaleikari Guðmundur Pálsson, prestar Sigríður Kristín Helga- dóttir og Einar Eyjólfsson. Nöfn ferming- arbarna má sjá á heimasíðu kirkjunnar, fri- kirkja.is. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11, leikir, söngur og kennsla. Almenn sam- koma kl. 14 sem unglingastarfið sér um. Gerður Árnadóttir og Björg R. Pálsdóttir predika, barnastarf og lofgjörð og börnin taka þátt í lofgjörðinni. Einnig verða fyr- irbænir og kaffi og samfélag eftir að sam- komu lýkur og verslun kirkjunnar verður op- in. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa á pálmasunnudag kl. 14. Fermd verða: Einar Karl Kjartansson, Guðmar Bjartur Elí- asson, Ingibjörg Ásta Tómasdóttir, Kolbrún Ýr Bragadóttir og Sunna Ósk Stefánsdóttir. Sjá nánar á www.frikirkjan.is. Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller ásamt söngfólki en um ferminguna sjá sr. Ása Björk Ólafsdóttir og sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. Altarisganga. FÆREYSKA sjómannaheimilið | Sam- koma kl. 17 með heimsókn frá Færeyjum. Árni Jacobsen, Hjørmund Foldbo og Rúni Hentze syngja og predika. Kaffi og spjall eftir samkomu. GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming á pálma- sunnudag kl. 10.30 og 13.30. Prestar eru Sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Lena Rós Matt- híasdóttir og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Kór Grafarvogskirkju syngur, organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna, undir- leikari Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgarholtsskóla. Sr. Bjarni þór Bjarna- son, umsjón Gunnar og Dagný, undirleikari er Guðlaugur Viktorsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju o.fl. Messa kl. 11. Alt- arisganga, samskot til Hjálparstarfs kirkj- unnar. Messuhópur. Molasopi eftir messu. Fermingarmessa kl. 13.30. Fé- lagar úr kirkjukór Grensáskirkju leiða söng í báðum athöfnum, organisti er Árni Ar- inbjarnarson. Prestar eru sr. Ólafur Jó- hannsson og sr. Petrína Mjöll Jóhann- esdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðsþjón- usta kl. 14. Halldór Gröndal predikar, sr. Sveinbjörn Bjarnason þjónar fyrir altari. Einsöngur Björn Björnsson, organisti Kjart- an Ólafsson. Félag fyrrum þjónandi presta. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ferming- armessur kl. 10.30 og kl. 14, í endurgerðri kirkju. Prestar eru sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Þórhallur Heimisson. Kantor er Guð- mundur Sigurðsson, Barbörukórinn í Hafn- arfirði syngur. Sunnudagaskóli í Hvaleyr- arskóla kl. 11. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna- starf á pálmasunnudag kl. 11. Börnin fá „pálmagrein“ í tilefni dagsins og ganga syngjandi inn í kirkjuna. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og messu- þjónum. Gamlir félagar úr Mótettukórnum syngja undir stjórn Björns Steinars Sól- bergssonar organista. HÁTEIGSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 10.30 og 13.30. Prestarnir, organisti Dou- glas A. Brotchie. Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 11, Erla Guðrún og Páll Ágúst. HJALLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnu- dagaskóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Nánar á www.hjallakirkja- .is. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sunnu- dagsskóli kl. 11. Samkoma kl. 17. Níels Jakob Erlingsson talar. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma á pálmasunnudag kl. 20. Umsjón Elsabet Daníelsdóttir. Samkoma á skírdag kl. 20 með gospelkór frá Noregi. Opið hús virka daga kl. 16-17.30. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Bible studies at 12.30 in the main hall. Eve- ryone is welcome. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Heiðar Guðnason, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldurs- skipt barnakirkja, öll 1-13 ára börn velkom- in. ÍSLENSKA kirkjan í Svíþjóð | Stokkhólmur. Íslensk guðsþjónusta á pálmasunnudag kl. 14, í Finnsku kirkjunni í Gamla stan. ÍS- ÍS-kórinn syngur undir stjórn Brynju Guð- mundsdóttur, Ingibjörg Guðlaugsdóttir leik- ur á básúnu. Kirkjukaffi í safnaðarheimilinu. Prestur sr. Ágúst Ein- arsson. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Ferming- arguðsþjónusta kl. 11. Michael Langworth fermdur. Friðrik Schram predikar. Sam- koma kl. 20 með lofgjörð, vitnisburði, ávarpi og fyrirbæn. Keith Reed syngur ein- söng. www.kristur.is. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur á pálmasunnudag, nemendur úr Holtaskóla. Nemendur úr 8.HHS fermast kl. 11 og nemendur úr 8. ISÁ kl. 14. Prest- ar kirkjunnar og æskulýðsfulltrúi þjóna við athöfnina. Hún verður einnig send út á svæði Víkurfrétta á sjónvarpskaplinum. KFUM og KFUK | Bænavaka kl. 20. Jó- hanna Sesselja Erludóttir flytur hugleið- ingu. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta á pálmasunnudag kl. 14. Organisti Lenka Mátéová, kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn organista, prestur er sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í Kópa- vogskirkju á pálmasunnudag kl. 20.30. El- ína Hrund Kristjánsdóttir guðfræðingur predikar. Börn úr leikskólanum Urðarhóli syngja undir stjórn kennara síns, Birte Harksen. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Messukaffi í leikskólanum Urðarhóli, Kópavogsbraut 19. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landspít- ala í Fossvogi á stigapalli á 4. hæð kl. 10.30. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, organisti er Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna- starf á pálmasunnudag kl. 11. Börnin verða helming stundarinnar í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið með Rut og Steinunni. Prestur sr. Jón Helgi Þór- arinsson, organisti Jón Stefánsson. Ferm- ingarmessa kl. 13.30. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson, organisti Jón Stef- ánsson, kór Langholtskirkju syngur. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Fermingarmessa kl. 13.30. Prestar, meðhjálpari, kór og org- anisti kirkjunnar þjóna við athafnirnar ásamt hópi sjálfboðaliða. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og 13.30. Prestarnir. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng, org- anisti Steingrímur Þórhallsson, sr. Sig- urður Árni Þórðarson predikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur og brúður, umsjón Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Fermingarmessa kl. 13.30. Kór Nes- kirkju, organisti Steingrímur Þórhallsson, prestar sr. Örn Bárður Jónsson og sr. Sig- urður Árni Þórðarson. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Sunnudags- kóli kl. 11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálms- dóttir, Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, María Rut Baldursdóttir og Jenný Þórkatla Magn- úsdóttir, organisti er Dagmar Kunakova. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fermingamessa kl. 14 og barnastarf á sama tíma. SALT kristið samfélag | Engin samkoma á pálmasunnudag. Uppskeruhátíð laug- ardaginn 15. mars. kl. 16-18. Lokum átaksins „40 tilgangsríkir dagar“ fagnað. Vitnisburðir, lofgjörð og kaffiveitingar. Ath. breyttan tíma. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Ferming- armessur kl. 10.30 og 13.30. Prestur Sigríður Gunnarsdóttir, organisti Rögn- valdur Valbergsson, kór Sauðárkróks- kirkju leiðir söng. SELFOSSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11 á pálmasunnudag. Barnasamkoma kl. 11.15. Sr. Gunnar Björnsson. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, saga, ný mynd. Ferming- arguðsþjónusta kl. 10.30 og 14. Sr. Val- geir Ástráðsson predikar. Kvöldguðsþjón- usta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar, tónlist í umsjá Þor- valdar Halldórssonar, Kirkjukórinn leiðir söng, organisti við athafnir Jón Bjarna- son. SELTJARNARNESKIRKJA | Fermingar kl. 10.30 og 13.30. Kammerkór Seltjarnar- neskirkju leiðir tónlistarflutning undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar. Sunnudagaskólinn er kl. 11. Leiðtogar barna- og æskulýðsstarfsins taka á móti börnunum á neðri hæð kirkjunnar. Prestur er Sigurður Grétar Helgason. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa á pálmasunnudag kl. 11. Mótettukór Hall- grímskirkju syngur, organisti Hörður Ás- kelsson. Sóknarprestur. VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 11. Kennsla fyrir alla aldurshópa. Guðni Þorvaldsson kennir. Létt máltíð að sam- komu lokinni. Bænastund kl. 18.30. Samkoma kl. 19, Högni Valsson predikar. Lofgjörð og fyrirbæn. Samfélag í kaffisal á eftir. www.paskamot.com. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari, kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Sunnu- dagaskóli á sama tíma undir stjórn Ár- manns H. Gunnarssonar djákna. Sjá www.gardasokn.is. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Á pálma- sunnudag er barnaguðsþjónusta kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna. Að þessu sinni eru gestir sunnudagaskólans beðnir að ganga inn um hægri hliðardyr og upp þar sem sunnudagaskólinn fer fram vegna fermingarathafnar í kirkjunni. Ferm- ingarguðsþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur, einsöngur Sigurður Skagfjörð, trompet Eiríkur Örn Pálsson. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fermingarmessa kl. 10.30. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur, meðhjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir. Sunnudagskóli kl. 11 fer fram í Njarðvík- urkirkju vegna fermingar. Orð dagsins: Innreið Krists í Jerúsalem. (Jóh.12) Fella- og Hólakirkja. MESSUR Á MORGUN Vilborg Jónsdóttir eða Villa á Hrísum er látin. Þegar maður missir eitthvað úr lífsmynstrinu fer hugurinn að rifja upp minningar og tengsl. Fyrstu minningarnar eru um unga og fallega blómarós úr Borg- arfirði sem var nýflutt norður að Hrísum í Húnavatnssýslu og hóf þar búskap með manni sínum. Ýmsar myndir koma upp í hug- ann og maður finnur fyrir söknuði þó að samskiptin hafi ekki verið eins náin og þau voru í gamla daga. Villa á Hrísum á mikið í okkur Sigríður Jónsdóttir ✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist á Meðalfelli II í Nesja- hreppi hinn 15. mars 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Seyð- isfjarðar hinn 24. febrúar síðastliðinn og var jarðsungin frá Seyðisfjarð- arkirkju 1. mars. systkinunum. Allt frá unga aldri var það hluti af tilveru okkar að fara að Hrísum og ávallt fann maður fyr- ir hlýhug og velvild frá Villu. Villa hafði til að bera stórt hjarta, mikla góðvild og allt- af var hún jákvæð. Hún var mjög heil- steypt kona. Bar með sér gæsku og kær- leika. Hvenær sem var, þegar við komum norður, hvort heldur á sumri eða vetri tók Villa vel á móti okkur. Boðið var upp á kaffi og meðlæti af rausnarskap. Við vorum spurð um lífið og tilveruna á áhugaverðan hátt þannig að okkur fannst við skipta máli. Seinna þegar börn okkar systk- inanna komu og dvöldu lengri tíma á Hrísum þá tók hún þeim opnum örmum og leyfði þeim að valsa inn og út á heimili sínu eins og þau væru hennar börn. Það var þeim mikils virði að fá að elta Villu út í fjós, horfa á mjaltir og hænsum gefið og fylgjast með öðrum störf- um sem gera þurfti á stóru sveita- heimili. Þegar þau hjón fluttu til Hvammstanga þá trosnuðu böndin aðeins en ég sumarstelpan og Villa vorum svo lánsamar að hittast síð- astliðið haust fjarri Húnaþingi og þar gafst okkur tími til að segja hvað okkur þætti vænt hvorri um aðra og var það okkur báðum mik- ils virði. Fjölskyldur okkar votta fjöl- skyldu hennar alla sína samúð. Sigríður og Karl Friðriks- börn og fjölskyldur þeirra. Þó að fornu björgin brotni bili himinn og þorni upp mar allar sortni sólirnar aldrei deyr þótt allt um þrotni endurminning, þess sem var. Þessi vísa, sem er eftir Grím Thomsen, er vísan hennar mömmu í afmælisdagabókinni sem ég fékk í afmælisgjöf þegar ég var 10 ára. Mér fannst bókin mjög merkileg þá, en fattaði kannski ekki alveg vísurnar, en það geri ég núna. Og nú er mamma farin en minning- arnar lifa. Mamma var mikil fjöl- skyldukona, sem alltaf var tilbúin að snúast í kringum fólkið sitt. Hún kenndi okkur allt sem hún kunni, sem var ýmislegt, þó ekki væri hún skólagengin. Hún sagði að sig hefði langað í húsmæðraskóla, en því miður, það voru ekki til peningar. Í þá daga, lífsbaráttan varð að ganga fyrir. Eitt það besta sem hún kenndi mér var, að allt sem sæist ekki ætti að vera jafn vel gert og það sem sæist, hvort sem það var tiltekt eða handavinna, eða bara hvað sem var. Og ef ég gerði ekki hlutina vel, þá var betra að sleppa því. Mamma var flink í höndunum bæði í matargerð og handavinnu og henni fannst líka gaman að ferðast, en vildi aldrei vera lengi í burtu í einu. Hún fór nokkrum sinnum til útlanda og skemmtilegast var að sigla með Norrænu, þá naut sú gamla sín vel. Það var líka farið í ,,sveitina mína“ semsagt til Hornafjarðar. Nokkr- um sinnum fóru þær saman, Steina frænka og hún og húsvitjuðu hér og þar og ræddu svo málin þar til farið var næst og halda því örugg- lega áfram nú. Ferðin sem við Gunnar fórum með henni árið 2006 var samt sú skemmtilegasta. Þá sagði hún okkur svo margt frá æskudögunum og það varð síðasta ferðin suður eftir. Eftir það átti hún erfitt með að sitja í bíl, en var að flestu öðru leyti hress. Guja og hún fóru líka í stórheimsókn til Neskaupstaðar árlega og er það kafli út af fyrir sig. Því er ég að rifja upp þetta um mömmu? Jú, hún hefði orðið 91 árs í dag, 15. mars, vantaði bara 20 daga í það þegar hún lést. Þegar hún varð 90 ára hélt hún okkur veglega veislu sem enginn mátti koma nálægt að undirbúa og pantaði því mat á veit- ingastað og skemmtum við okkur vel. Hún grínaðist jafnframt með hvernig veisla ætti að vera þegar hún yrði 100 ára. Af því verður víst ekki, hún fékk hægt og hljótt and- lát þann 24. febr. Alveg eins og hún hefði viljað. Að vera upp á aðra komin var ekki hennar stíll, og hún fékk þá ósk uppfyllta. Mamma mín, að lokum þakka ég þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína og er það nú ýmislegt. Ég bið að heilsa pabba, ættingjum og vin- um sem farnir eru. Við hittumst svo þegar minn tími kemur. Vertu blessuð og sæl. Þín dóttir Guðlaug og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.