Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikhúsferð í Þjóð- leikhúsið kl. 20 á Vígaguðinn eftir Yasminu Reza. Bólstaðarhlíð 43 | Myndbandssýn- ing og stofuspjall Friðriks Þórs Frið- rikssonar um gerð myndarinnar Bíódaga, sem byggð er á hans eigin lífi, verður 17. mars kl. 13. Miðvikud. 19. mars kl. 14 verður sérsýning á kvikmyndinni Brúðgumanum í Há- skólabíói. Rútuferð frá Bólstað- arhlíð kl. 13.15. Skráning í s. 535 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Opið hús í félagsheimilinu Gjábakka kl. 14. Upplestur: Svanhildur Th. Valdimarsdóttir. Gamanmál: Guð- laug Erla Jónsdóttir. Myndbrot úr félagslífinu: Kristmundur Hall- dórsson. Kaffiveitingar. Félagsmenn taki með gesti. Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | Skráning er hafin í 8 daga söguferð til Kaupmannahafn- ar, Wroclaw (Breslá) og Berlínar 7.- 14. maí. Gist eina nótt í ferju, þrjár nætur í Wroclaw, tvær nætur í Berl- ín og eina nótt í Kaupmannahöfn. Nánari uppl. og skráning hjá Sögu- ferðum/Þorleifi Friðrikssyni, s. 564 3031, og í síma 554 0999, Þráinn. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú-ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar vinnustofur, spilasalur o.fl. Á mánud. og miðvikud. kl. 9.50 er sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug. Þriðjud. 18. mars er leik- húsferð í Þjóðleikhúsið á „Sól- arferð“, sýning hefst kl. 14, ath. br. tími. Skráning á staðnum og síma 575 7720. Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Ís- landssöguspjall, myndlist, bók- menntir, framsögn og framkoma, Bör Börson, söngur, páfagaukar, hláturhópur, Skapandi skrif, postu- lín, Þegar amma var ung, hug- myndabanki, Müllersæfingar, ný- stárleg hönnun fermingarkorta, Vorferð á vit skálda o.fl. S. 568 3132. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ- landsskóla, Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma 564 1490. Kirkjustarf Hallgrímskirkja | Opnun myndlist- arsýningar Baltasars á vegum List- vinafélags Hallgrímskirkju er í dag kl. 17. Sýningin ber yfirskriftina Sjö orð Krists á krossinum. Baltasar Samper myndlistarmaður hefur unnið sjö ný myndlistarverk byggð á sjö orðum Krists á krossinum úr Passíusálmum Hallgríms Péturs- sonar og myndar kross úr mynd- unum sjö. Salt kristið samfélag | Fögnum lokum átaksins „40 tilgangsríkir dagar“. Vitnisburður og lofgjörð. Kaffiveitingar. Ath. breyttan tíma. Kynningarfundur á starfi sam- félagsins kl. 14-15.30. Barnapössun. Engin samkoma á pálmasunnudag. 80ára afmæli. Áttræður er ídag, 15. mars, Sigurður Þ. Árnason, fv. skipherra Landhelg- isgæslunnar, til heimilis á Otra- teigi 32, Reykjavík. Sigurður tek- ur á móti gestum á milli 16 og 18 í safnaðarheimili Háteigskirkju við Háteigsveg. 80 ára afmæli. Í dag, 15.mars, verður Ragnar Þorbergsson áttræður. Ragnar verður á Gran Canari á afmæl- isdaginn, Rouge Nublo, Aven- ida De Tirajana 28, 35100 Pla- ya del Ingle. Sími 0034-928-765094. dagbók Í dag er laugardagur 15. mars, 75. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.) Blóðbankinn þarf um sjötíublóðgjafa daglega til aðanna þeirri þörf sem er fyr-ir gjafablóð á landinu öllu, en á hverju ári þarfnast um 4.000 ein- staklingar blóðgjafar, t.d. vegna slysa, skurðaðgerða og meðferða. Sigríður Ósk Lárusdóttir er deild- arstjóri við Blóðbankann og segir alltaf þörf á nýjum blóðgjöfum í öll- um blóðflokkum: „Blóðgjafir eru einn af hornsteinum heilbrigðiskerfisins, og gerir hver blóðgjöf okkur kleift að bjarga mannslífum,“ segir hún, en tæplega 10.000 manns á aldrinum 18 til 65 ára gefa reglulega blóð hér- lendis. „Það er aðdáunarvert hve margir leggja sig fram við að vera duglegir blóðgjafar, og margir af landsbyggðinni sem gera sér sér- staklega ferð í Blóðbankann þegar ferðast er til höfuðborgarinnar,“ bæt- ir Sigríður Ósk við, en bankinn er með útibú á Akureyri, og við Snorra- braut 60 í Reykjavík þar sem Skáta- búðin var áður til húsa. Það krefst hvorki mikils tíma né fyrirhafnar að gefa blóð: „Lágmarks- aldur til að gefa blóð er 18 ár, og þarf blóðgjafi að vera heilsuhraustur og má ekki nota nein lyf að staðaldri,“ útskýrir Sigríður. „Við fyrstu komu í Blóðbankann er einungis tekið sýni sem er vírusskimað, blóðflokkagreint, járnbirgðir athugaðar og almennt ástand blóðs og blóðþrýstings. Ef allt reynist í lagi má viðkomandi gefa blóð eftir hálfan mánuð, og er þá fyllt út heilsufarsskýrsla en ekki er hægt að taka blóð ef blóðgjafi hefur nýlega fengið flensu eða önnur veikindi.“ Sjálf blóðgjöfin tekur innan við 10 mínútur, og eru teknir um 450 milli- lítrar af blóði í hverri heimsókn. Í heild má vænta þess að heimsókn í Blóðbankann taki allt að 30 mínútum og er þá gert ráð fyrir að blóðgjafi staldri við í rómaðri kaffistofu bank- ans og fái sér létta og járnríka hress- ingu. „Bankinn við Snorrabraut er opinn alla virka daga, á mánudögum og fimmtudögum frá 8 til 19, á þriðju- dögum og miðvikudögum frá 8 til 15 og á föstudögum frá 8 til 12,“ segir Sigríður. Blóðbankabíllinn fer reglu- lega um höfuðborgarsvæðið og þétt- býlissvæðin í nágrenni þess og tvisv- ar á ári er farið um Vesturland og Norðurland. Næstkomandi þriðjudag verður bíllinn við hús Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi, frá 9.30 til 14.30. Sjá nánar á www.blodbankinn.is Heilsa | Starfsemi Blóðbankans er hornsteinn alls heilbrigðiskerfisins Tíu mínútur bjarga lífum  Sigríður Ósk Lárusdóttir fædd- ist í Reykjavík 1957. Hún lauk námi í hjúkr- unarfræði frá Hjúkrunarskóla Ís- lands 1979. Hún starfaði við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki 1979 til 1981 og hefur síðan starfað við Landsspítalann, nú LSH, hjá Blóðbankanum frá 1998 og er nú deildarstjóri. Sigríður Ósk er gift Þorsteini Alexanderssyni kennara og eiga þau tvö börn. Myndlist DaLí gallerí Akureyri | Þuríður Sigurð- ardóttir, Þura, kynnir málverkaröðina „Stóð“ kl. 17-19. Viðfangsefni á sýningunni er íslenski hesturinn og býður listamaðurinn áhorfandanum að taka þátt í rannsókn sinni á tengslum manns og dýrs í gegnum upp- lifun lita og áferðar feldsins. Deiglan Akureyri | Sýning á vegum Gil- félagsins. Jón Henrysson opnar myndlist- arsýninguna „Bakland“ kl. 14.30. Opið kl. 13- 17, mánudaga til laugardaga. Sýningin stendur til 29. mars nk. Gallerí Ágúst | Einkasýning Söru Björns- dóttur, Víma/Intoxication, stendur yfir. Sara sýnir ljósmyndir og myndbandsverk. Gall- eríið er á Baldursgötu 12, Nönnugötumegin. Opið mið.-lau. kl. 12-17. www.galleriagust.is. Hallgrímskirkja | Baltasar Samper opnar sýningu á vegum Listvinafélags Hallgríms- kirkju í dag kl. 17. Hann sýnir sjö ný verk, Sjö orð Krists á krossinum. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna. Árni Bergmann rithöfundur segir frá kirkju- list Baltasars. Kvartett úr Schola cantorum syngur. Allir velkomnir. Norræna húsið | „Norrænar hugrenningar frá Mexíkó“. Sýning á verkum dönsku text- íllistakonunnar Trine Ellitsgaard. Listakonan hefur verið búsett í Mexíkó sl. tuttugu ár og kemur það fram í verkum hennar. Sýningin er í sýningarsal í kjallara hússins og stendur til 6. apríl. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn@mbl.is eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða til- kynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. FRÉTTIR ÞÆR Daria Ilushko og Kseniya Sydorenko frá Ísr- ael taka þátt í Evrópukeppninni í sundfimleikum sem fram fór í Eindhoven í Hollandi í gær. Ekki fylgdi sögunni hvernig þeim stöllum gekk í keppn- inni, en eins og sjá má skein einbeitingin úr augum þeirra. Reuters Samhæfing í sundlauginni HARA-systur munu skemmta í til- efni af Evrópuviku gegn kynþátta- misrétti í Smáralind 18. mars kl. 16. Í DAG, föstudaginn 15. mars, hefst Evrópuvika gegn kynþátta- misrétti og stendur hún til 23. mars, en vikan snýst um alþjóða- dag gegn kynþáttamisrétti, sem er 21. mars. Allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna valdi daginn í minn- ingu 69 mótmælenda sem myrtir voru 21. mars 1960 er þeir mót- mæltu aðskilnaðarstefnu stjórn- valda í Suður-Afríku. Evrópuvikan miðar að því að uppræta mismun- un, fordóma og þjóðernishyggju í álfunni og stuðla þannig að um- burðarlyndu Evrópusamfélagi þar sem allir eru jafnir, óháð útliti og uppruna. „Birtingarmyndir kynþáttamis- réttis eru ólíkar eftir löndum og menningarsvæðum en kynþátta- misrétti nær yfir vítt svið – allt frá fordómum til ofbeldisverka. Kyn- þáttamisrétti á Íslandi birtist helst í útlendingafælni og duldum for- dómum gagnvart fólki af erlendum uppruna en hefur því miður nýlega einnig brotist út í ofbeldi. Fordóm- arnir birtast einkum í hversdagslíf- inu – þegar talað er niður til þeirra sem ekki eru skilgreindir sem ,,hreinir Íslendingar“ og þeir fá lakari þjónustu og atvinnu,“ segir í fréttatilkynningu. Til að vinna gegn misrétti og for- dómum í garð fólks af erlendum uppruna á Íslandi taka Mannrétt- indaskrifstofa Íslands, þjóðkirkjan, Alþjóðahús, Amnesty Internation- al, Rauði krossinn, Ísland Pano- rama og Soka Gakkai á Íslandi þátt í Evrópuviku gegn kynþáttamis- rétti með ýmsum hætti. Eins og áður segir munu Hara- systur skemmta í tilefni af Evrópu- viku gegn kynþáttamisrétti í Smáralind 18. mars kl. 16. Allir eru velkomnir. Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti HEILSUMEISTARASKÓLINN verður með opið hús í dag, laug- ardaginn 15. mars, kl. 14 í húsnæði Yggdrasils við Skólavörðustíg. Almenn kynning verður á þriggja ára námi skólans sem er heildarnám í náttúrulækningum. Kennarar skólans kynna náms- efnið, kennsluformið og fleira og nemendur skólans verða á staðnum til að svara spurningum. Í fréttatilkynningu kemur fram að Heilsumeistaraskólinn (School of Natural Medicine á Íslandi) bjóði upp á nám í almennum nátt- úrulækningum, heilsumeistaranám, sem færi nemendum fjölbreytta færni til að verða meistarar í nátt- úrulegri heilsu og heilun. Boðið er uppá þriggja ára nám. Innritun fyrir haustið 2008 hófst í febrúar og síðasti innritunardagur er 15. júní. Heilsumeistaranám er heiti námsins en erlend starfsheiti eftir sambærilegt nám eru Naturopath eða Heilpraktiker. Kennslan fer fram á þremur árum með helstu kennslulotum á vorin og haustin ásamt fjarnámi og heimanámi. Allir nemar byrja námið á því vinna með eigin heilsu undir leið- sögn Dr. Faridu Sharan og kenn- ara í náminu og þessi sjálfsvinna heldur áfram í gegnum allt náms- ferlið. Opið hús hjá Heilsu- meistaraskólanum Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.