Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 53 Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HANN er víst rosalega vel upplagður þessa dag- ana, og tekur lögin sem fólk vill heyra á tón- leikum. Þannig að fólk hefur verið að fá það sem það vill, enda hefur hann fengið góðar viðtökur bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum,“ segir Ísleifur Þórhallsson sem stendur fyrir tónleikum bandaríska tónlistarmannsins Bob Dylan og hljómsveitar hans í Egilshöll hinn 26. maí í sumar. „Þetta eru fyrstu tónleikarnir í þessum hluta tónleikaferðalagsins, þarna munu þeir fara aftur af stað eftir stutt hlé. Þannig að þeir ætla að æfa í Egilshöllinni daginn áður, og verða því vænt- anlega komnir til landsins strax á laugardeginum. Það má því búast við að Dylan verði hérna í nokkra daga,“ segir Ísleifur. Þetta er í annað skipti sem Dylan heldur tón- leika hér á landi, en hann spilaði á Listahátíð í Laugardalshöllinni í júní árið 1990. Dylan, sem er orðinn 66 ára, þarf vart að kynna, en hann er einn áhrifamesti tónlistarmaður síðustu áratuga. Dýrt spaug Ísleifur segir að aldrei fyrr hafi það tekið hann jafnlangan tíma að fá tónlistarmann hingað til lands. „Ég hef verið að vinna að þessu í tvö ár, þannig að þetta hefur tekið ansi langan tíma, og verið langt tilhlaup. Ég hef aldrei verið í tvö ár að ræða við einhvern umboðsmann áður,“ segir hann. „Einu sinni eða tvisvar hefur þetta næstum því verið í höfn, en svo hefur eitthvað komið upp á, án þess að ég hafi fengið skýringu á því. En þetta er ekki spurning um einhverjar samningaviðræður, heldur frekar hvort Dylan sjálfur sé tilbúinn eða ekki.“ Aðspurður segir Ísleifur að fjölmargir aðrir hafi reynt að fá Dylan hingað til lands á und- anförnum árum. „Þetta er tónlistarmaður af þeirri stærðargráðu að flestum á Íslandi hefur dottið í hug að fá hann. Það er alltaf barátta á bak við tjöldin,“ segir Ísleifur. Þegar hann er spurður hvort mögulegt sé að græða á stórtónleikum sem þessum, segir hann svo vissulega vera. „En tón- leikahaldarar eru líka reknir áfram af einhverju öðru en bara gróðavon, og menn hafa nú tapað peningum í þessum bransa jafnoft og þeir hafa grætt eitthvað. En ástríða tónleikahaldarans snýst um að ná svona manni af því að hann er svo ógeðslega virtur og góður, það er það sem drífur mann áfram. En auðvitað vill maður hafa eitthvað upp úr þessu, það er ekkert launungarmál.“ Á bilinu 20 til 30 manns koma með Dylan hing- að til lands, og því ljóst að um kostnaðarsamt verkefni er að ræða. „Já, þetta er mjög dýrt – þetta er meira að segja rosalega dýrt,“ segir tón- leikahaldarinn, sem stendur að komu kappans ásamt Jóni Þór Eyþórssyni. Miðasala verður kynnt þegar nær dregur tón- leikum. Goðsögn í Egilshöll Bob Dylan heldur tón- leika hér á landi mánu- dagskvöldið 26. maí Bob Dylan Spilar fyrir Íslendinga í annað sinn. Ísleifur Þórhallsson MÚSÍKTILRAUNUM, hljóm- sveitakeppni Tónabæjar og Hins hússins, lýkur í kvöld í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Þar keppa tíu hljómsveitir um ýmis verðlaun, en þau helstu eru hljóð- verstímar. Undankeppni músíktilrauna hef- ur staðið frá mánudegi til föstudags og alls kepptu 49 hljómsveitir um sæti í úrslitunum. Þær hljómsveitir sem áfram komust heita Hinir, Ósk- ar Axel og Karen Páls, Endless Dark, Furry Strangers, The Nel- lies, Ástarkári, Blæti, Happy Fune- ral, Agent Fresco og Johnny Computer. Keppnin hefst kl. 17.00 í Lista- safninu, en auk keppnishljómsveit- anna leikur sigurhljómsveit síðasta árs, Shogun, nokkur lög. Sú ný- breytni er að þessu sinni að dóm- nefnd velur hljómsveitir í 1., 2. og 3. sæti, en einnig fer fram símakosn- ing meðal gesta og áheyrenda Rás- ar 2 um land allt þar sem valin verður Hljómsveit fólksins. Tíu hljóm- sveitir keppa til úrslita
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.