Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 8

Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÍÐUSTU sjö vikur hafa nemendur vöruhönnunardeildar Listaháskóla Íslands unnið hörðum höndum að því að sérhanna nýjar íslenskar matvörur í samvinnu við samstarfs- bændur sína. Nemendurnir hafa framleitt takmarkað magn af þess- um matvörum og almenningi gefst nú tækifæri til að kynnast, bragða á og kaupa þessar afurðir í dag, laug- ardag, í Grandagarði 8 kl. 14-17. Stefnumót hönnuða og bænda er frumkvöðlastarf og á sér enga fyr- irmynd annars staðar. Markmiðið er að styrkja íslenskan landbúnað með því að skapa íslenska matvöru sem byggir á sérstöðu og rekj- anleika. Sérhannaður íslenskur matur ÁSETNING nautkálfa í fyrra var mjög svipuð og árið áður, að því er fram kemur á vef Bændasamtak- anna. Því má búast við svipaðri nautakjötsframleiðslu á næstu misserum og verið hefur. Árið 2006 voru settir á 7.686 nautkálfar en í fyrra voru þeir 129 fleiri, eða 7.815 talsins. Þetta er 1,6% aukning. Fram kemur að bú- ast megi við aðeins minni mjólk- urframleiðslu í ár en í fyrra og að framboð á kúm til slátrunar eigi eftir að aukast lítillega vegna þessa. Neysla á innlendu nautakjöti hef- ur aukist á undanförnum miss- erum. Ásetning kálfa svipuð Morgunblaðið/Frikki Í DESEMBER sl. var dregið úr um- sóknum um íbúðahúsalóðir við Reynisvatnsás í Reykjavík og var lóðum þar úthlutað í samræmi við val umsækjenda sem dregnir voru út. Nokkrir lóðahafar sem fengu út- hlutað lóðum hafa ákveðið að skila þeim og kemur því til endurúthlut- unar þeirra. Nú eru lausar sjö lóðir, en ákveði fleiri að skila lóðum á næstu dögum verður þeim einnig úthlutað aftur. Umsóknarfrestur er til 10. apríl. Einbýlishúsa- lóðum skilað AÐALMEÐFERÐ í Byrgismálinu svonefnda hófst í Héraðsdómi Suð- urlands í gærmorgun. Áætlað er að þinghaldið, sem er lokað, haldi áfram á mánudag og þriðjudag. Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður meðferðarheimilis- ins Byrgisins, er í málinu ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Þær voru allar vistmenn í Byrginu og var ein þeirra undir lögaldri þegar meint brot áttu sér stað. Guðmundur hefur ávallt neit- að sök. Aðalmeðferð í Byrgismálinu hafin í héraði STUTT ODDUR Sigurðsson, jarðverkfræðingur hjá GeoTek ehf., sem annast um- sjón framkvæmda og eftirlits við Héðinsfjarðargöng, segir að gangi gröft- ur áfram eins og að undanförnu megi gera ráð fyrir að sprengt verði í gegn Siglufjarðarmegin öðru hvorum megin við páskahelgina. Gröfturinn gengur vel og eru aðeins eftir um 55 metrar frá Siglufirði. Oddur segir að erfitt sé að fara út og því fylgi mikil óvissa.                                          !  "  # $%&'() $%*+,)&&) "  # ,%*(-) *%.$-+%,*-)                        Komast í gegn frá Siglu- firði alveg á næstunni SÆMUNDUR Valdi- marsson myndhöggvari andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 13. mars, 79 ára að aldri. Sæmundur var fæddur að Krossi á Barðaströnd 2. ágúst 1918. Hann var sonur hjónanna Guðrúnar Kristófersdóttur og Valdimars Sæmunds- sonar. Sæmundur vann hefðbundin verka- mannastörf alla starfs- ævi sína, lengst af sem vélgæslumaður í Gufu- nesi. Hann gegndi mörg- um trúnaðarstörfum fyrir verkalýðs- hreyfinguna, sótti þing Dagsbrúnar og Verkamannasambandsins um margra ára skeið og sat í stjórn lífeyr- issjóðs Áburðarverksmiðjunnar. Síð- ar hóf hann að gera myndir úr tré og grjóti og höggva styttur úr rekaviði. Hann var einn af al- þýðulistamönnum Ís- lands sem Guðbergur Bergsson hafði hönd í bagga með og skrifaði hann m.a. bók um Sæ- mund og stytturnar hans (sjá heimasíðu Sæmundar, www.sae- mundurvald.is). Fyrsta sýning Sæ- mundar var haldin í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi 1984 en hann hélt fjölda sýn- inga á Kjarvalstöðum, í Hafnarborg, Gerða- safni og víðar. Eiginkona Sæmundar var Guðrún Magnúsdóttir en hún lést haustið 2007. Síðustu mánuðina dvaldi Sæmundur á Alzheimers- deildinni á Hrafnistu í Reykjavík. Sæ- mundur verður jarðsunginn frá Ás- kirkju 19. mars kl. 15. Andlát Sæmundur Valdimarsson BAUGUR Group hf. íhugar að leita réttar síns fyrir dómstólum vegna endurálagningar skatta á félagið vegna vantalins söluhagnaðar á árinu 1998 vegna sameiningar Hagkaups og Bónuss en yfirskattanefnd féllst ekki á að fella þá skatta niður. Úr- skurðurinn felur hins vegar í sér, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu, að vangreidd stað- greiðsla félagsins vegna starfs- tengdra greiðslna til nokkurra yfir- manna félagsins lækkar um 75 milljónir kr., auk álags. Að lokinni rannsókn skattrann- sóknarstjóra á skattamálum Baugs vegna áranna 1998 til 2002 endur- ákvarðaði ríkisskattstjóri opinber gjöld félagsins í lok árs 2004. Frá því var skýrt á sínum tíma að Baugi hefði verið gert að greiða 464 milljónir kr. en fram kom hjá fyrirtækinu að það þyrfti sjálft að bera 282 milljónir kr. af því. Baugur greiddi kröfuna í jan- úar 2005 en hún var þá 142 milljónir kr. í innheimtukerfi ríkisins, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækis- ins. Jafnframt kærði Baugur endur- álagninguna til yfirskattanefndar sem kvað upp úrskurð sinn 5. mars sl. Úrskurðurinn fæst ekki hjá yfir- skattanefnd þar sem í honum er fjallað um fjármál einstaks skatt- greiðanda og hann fékkst heldur ekki hjá fyrirtækinu. Baugur Group hf. sendi hins vegar frá sér tilkynningu þar sem sagt er frá niðurstöðum og viðbrögðum fyrirtækisins. Ekki staðgreiðsluskylt Einn liður málsins fjallaði um starfstengdar greiðslur til nokkurra yfirmanna fyrirtækisins á umrædd- um árum, samtals að fjárhæð rúm- lega 200 milljónir kr., þar sem ekki hafði verið haldið eftir staðgreiðslu. Í tilkynningu Baugs segir að í úrskurði yfirskattanefndar hafi í öllum aðalat- riðum verið komið til móts við sjón- armið fyrirtækisins. Fallist hafi verið á að stærstur hluti þessara greiðslna hefði ekki verið staðgreiðsluskyldur fyrr en með reglugerð sem tók gildi um mitt ár 2001. Í tilkynningunni seg- ir að samkvæmt niðurstöðu yfir- skattanefndar lækki vangreidd stað- greiðsla félagsins um 75 milljónir kr. frá endurálagningu ríkisskattstjóra. Að teknu tilliti til álags sem félaginu var gert að greiða beri ríkisskatt- stjóra að endurgreiða nokkuð hærri fjárhæð þar sem álagi samkvæmt endurálagningunni hafi verið vísað til ríkisskattstjóra til endurreiknings. Þessi fjárhæð dragist frá þeim 142 milljónum kr. sem fyrirtækinu hafi verið gert að greiða í kjölfar skatt- rannsóknarinnar. Þá hafi ríkisskatt- stjóra verið gert að greiða Baugi Gro- up hf. 300 þúsund kr. í málskostnað. Í úrskurði yfirskattanefndar var ekki fallist á sjónarmið félagsins varð- andi vantalinn söluhagnað hlutabréfa á árinu 1998 vegna sameiningar Hag- kaups, Bónuss og fleiri félaga sem mynduðu Baug hf. Í tilkynningu fé- lagsins kemur fram að þar hafi verið um að ræða að minnsta kosti 407 milljónir kr. Félagið íhugar að leita réttar síns fyrir dómstólum varðandi það atriði. Yfirskattanefnd féllst ekki heldur á kæru Baugs varðandi greiðslur til tveggja manna sem félag- ið hafði talið verktaka en ekki laun- þega. Fella niður hluta af skatta- skuld Baugs Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.