Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 10

Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Haltu þér bara fast, og hættu þessu sífellda Evrópu-tuði, kerling. VEÐUR Írar eiga við vandamál að stríða.Bankakerfi þeirra er í kröggum og jafnvel rætt um hugsanlega þjóð- nýtingu bankanna. Fasteignaverð er lækkandi og vanskil eru að aukast skv. frétt í Morgunblaðinu í gær.     Síðan segir ífrétt Morg- unblaðsins:     Morgan Kelly,prófessor við University College í Dublin, segir í samtali við Telegraph í gær, að stjórnvöld ráði nær ekkert við niðursveifluna á fast- eignamarkaði, sem sé að verða al- varlegt vandamál. „Þetta eru dæmigerð eftirköst eft- ir uppsveiflu, en samt getum við ekkert gert, því við erum innan evrusvæðisins,“ segir Kelly og telur að ekki sé hægt að lækka stýrivexti eða fella gengið, í raun séu mun minni möguleikar á innspýtingu í hagkerfið en fólk haldi.“     Í sömu frétt kemur fram, að hús-næðisverð á Írlandi hafi lækkað um 7% á síðasta ári og svipuð lækk- un hafi orðið það sem af er þessu ári.     Atvinnuleysi er komið upp fyrir5%.     Á Írlandi hefur verið mikill upp-gangur í efnahagsmálum í mörg ár og í umræðum bæði hér og ann- ars staðar hefur sá uppgangur verið þakkaður aðild Írlands að Evrópu- sambandinu.     Nú standa Írar frammi fyrir erf-iðleikum og geta ekkert gert vegna þess, að þeir eru á evrusvæð- inu.     Er þetta ekki umhugsunarefni fyr-ir þá Íslendinga, sem telja, að evran mundi leysa allan okkar vanda?! STAKSTEINAR Írar geta ekkert gert SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                    *(!  + ,- .  & / 0    + -                        !""!   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (         #     $$!""%  #  """!  #      :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? &  & '&' & &   & &  & & & & '& '& '&                            *$BC $$$$$                            !  "  *! $$ B *! () *$  $)$     + <2 <! <2 <! <2 ( * "! $, "% -$. ! "/  D                 6 2  #  $  %       &   $     '  B  #               $  $        "      *          (  )   !          01!!$$ 22 "! $$3    $, "% Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ágúst H Bjarnason | 14. mars Veruleg kólnun og skíðasnjór á næstu árum? ... Er von á meiri skíðasnjó og skautasvellum á næstu áratugum? Get- ur verið að einhver deyfð sé að færast yfir sólina? Verða afleiðing- arnar kólnandi veðurfar eins og við vitum að yfirleitt hefur fylgt letiköstum sólar á undanförnum öld- um? Er blessuð sólin að leggjast í þunglyndi eftir bjartsýni undanfarinna áratuga? ... Meira: agbjarn.blog.is Hallur Magnússon | 14. mars Sjálfstæðismenn á réttum teinum ... Ég er ánægður með sjálfstæðismennina í borginni í dag. Þeir hafa lagt fram tillögu þess efnis að kanna skuli hagkvæmni þess og fýsileika að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkur og miðborgar Reykjavíkur. Með þessu undirstrika þeir það sem ítrekað hefur komið fram hjá einstaka borgarfull- trúa þeirra – ekki hvað síst hjá Gísla Marteini – að sjálfstæðismenn ... Meira: hallurmagg.blog.is Stefán Friðrik Stefánsson | 14. mars Merkilegur dómur Það er mjög merkilegt að móðir nemenda hafi ver- ið dæmd til að greiða kennara tíu milljónir króna vegna þess að kennarinn hafi slasast af völdum nemandans. Ég man satt best að segja ekki eftir svona máli áður – þetta eru viss tímamót og einstakt mál. Telja má öruggt að þetta fari fyrir Hæstarétt. Ég hef heyrt dæmi þess að nemendur takist eitthvað á og einhver ólga sé vegna þess, en það eru allavega fá dæmi þess að kennari kæri forráðamann nemenda … Meira: stebbifr.blog.is Pjetur Hafstein Lárusson | 14. mars Steinn Steinarr XVII Fjarri fer því, að Steinn Steinarr hafi verið braut- ryðjandi í þeirri iðju lista- manna, að níða skóinn hver af öðrum. Þetta er ævafornt fyrirbæri og þekkist í öllum heimsins hornum. Orsaka þessa er vafalaust víða að leita. En meginorsökin felst að mínu mati í þeirri þversögn, að list er persónuleg tjáning, sem leitar sér al- mennrar viðurkenningar. Svo er auðvit- að vissara að hafa það hugfast, að í listinni sigla fleiri undir fölsku flaggi, en í öllum greinum mannlegrar tilveru, að stjórnmálunum einum und- anskildum. En hvers vegna nefni ég Stein Stein- ar sérstaklega í þessu sambandi? Jú, mér vitanlega hefur enginn íslenskur listamaður náð lengra í listrænu per- sónuníði um bræður sína í listinni, en einmitt hann. Gott dæmi þessa, er við- tal, sem birtist við hann í „Birtingi“ ár- ið 1955. Tilefnið er útkoma bók- arinnar „Ljóð ungra skálda.“ Þar segir Steinn um Jón úr Vör: „Mér virðist hann hafa nokkra sér- stöðu meðal þessara skálda. Hann er þeirra elztur sem slíkur og hefur ekki orðið fyrir áhrifum frá neinum nema sænsku öreigaskáldunum svokölluðu, sem nú eru löngu gleymd og grafin. Þrátt fyrir það er hann allgott skáld og býsna nýtízkulegur. En hann er varla til eftirbreytni. Það er naumast á nokkurs annars manns færi að þræða það ein- stigi milli skáldskapar og leirburðar, sem hann fer.“ Það verður tæpast sagt, að Steinn fjalli þarna um skáldbróður sinn af mikilli virðingu. Á lymskufullan hátt læðir hann því að, að ef til vill sé Jón heldur gamall til að eiga erindi í um- rætt rit og má vissulega til sanns veg- ar færa. Hann er 38 ára á útgáfuári bókarinnar og þess utan þjóðþekkt skáld. Það á vitanlega síður við um hin skáldin; til þess eru þau of ung. En nú færir Steinn sig upp á skaftið, með því að fullyrða, að Jón úr Vör hafi aðeins orðið fyrir áhrifum frá sænsku öreigaskáldunum; löngu gleymdum og gröfnum. Auðvitað varð Jón fyrir áhrif- um frá þeim. En enn þann dag í dag lifa verk sumra þeirra meðal Svía, hvað þá heldur árið 1955. Þess utan má ekki gleyma því, að uppvaxtarár Jóns á Patreksfirði, meðan kreppan ríkti, eru helsta uppspretta skáld- skapar hans. … Meira: hafstein.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.