Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 18

Morgunblaðið - 15.03.2008, Side 18
18 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT KOSNINGABARÁTTA Barack Obama gæti beðið álitshnekki eftir að bandarískar sjónvarpsstöðvar birtu í vikunni upptökur af fyrrver- andi presti úr kirkju Obama-fjöl- skyldunnar í Chicago. Presturinn, Jeremiah Wright, þykir mjög áhrifa- ríkur en hann lét af störfum fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum The Guardian er Wright þekktur fyrir seiðandi og stórbrotnar ræður sem beinast gjarnan að illri meðferð á blökkumönnum í Bandaríkjunum. M.a. hefur verið haft eftir honum að skipulega sé unnið að því að halda blökkumönnum niðri í samfélaginu og hefur hann líkt leiðtogahlutverki Obama við baráttu Jesú á tímum Rómverja. „Barack veit hvað það er að búa í landi sem er stjórnað af ríku, hvítu fólki. Hillary hefur ekki þá reynslu,“ sagði Wright. Hann hefur einnig látið hörð orð falla um stefnu bandarískra stjórn- valda og sagt árásina á tvíbura- turnana í New York vera afleiðingu af utanríkisstefnu Bandaríkjanna í Miðausturlöndum og maklega eftir árásina á Hiroshima. Wright nýtur virðingar Obama og hann gifti m.a. þau hjónin og skírði dætur þeirra tvær. Obama hefur vilj- að halda kynþáttamiðuðum um- ræðum frá kosningabaráttu sinni og hefur talsmaður hans sagt að Obama horfi ekki til Wrights í stjórnmála- legum skilningi. Obama sé ósammála ýmsu sem Wright segi en beri þrátt fyrir það virðingu fyrir honum og öllu því góða sem hann hafi áorkað. Obama líkt við Jesú Vinir Obama og presturinn Wright. ALLIR þekkja tónlist hans og sög- una af undrabarninu sem sigraði Evrópu en yfirgaf þennan heim allt- of snemma, aðeins hálffertugur. Útlit hans hefur hins vegar um margt verið á huldu, þangað til sér- fræðingur í tónlistarsögu uppgötv- aði tvö portrett af Wolfgang Ama- deus Mozart, sem talið er fullvíst að séu af honum, sökum þess að upp- runa þeirra er hægt að rekja allt aft- ur til náins vinar Leopolds föður hans. Cliff Eisen, prófessor í tónlist- arsögu við King’s College í Lund- únum, á heiðurinn af uppgötvuninni, sem byggir á skriflegum heimildum sem tengjast Mozart og Leopold, að því er fram kemur í breska dag- blaðinu The Times. Á verkinu hér til hliðar var Moz- art nýkvæntur konu sinni Const- anze, á hinu er meistarinn aðeins um átta ára gam- all. Hin róm- antíska túlkun andlitsmynd- arinnar sem aðdáendur Moz- arts þekkja af súkkúlaðikúlum sem kenndar eru við tónskáldið er ekki nákvæm heimild um útlit hans, enda máluð 18 árum eftir dauða hans 1791, af málara sem hafði ekki séð hann í 36 ár. Verkin verða afhjúpuð á ráðstefnu í Lundúnum um helgina. Svona leit hann út Portrett af Mozart frá árinu 1783. Peking. AFP. | Að minnsta kosti tveir týndu lífi og fjöldi fólks þarf á að- hlynningu að halda eftir að örygg- issveitir skutu á mótmælendur í Lhasa, höfuðborg Tíbets, í gær, þeg- ar þeir kröfðust aukinna réttinda í umfangsmestu mótmælunum gegn yfirráðum Kínverja um tveggja ára- tuga skeið. Á mánudag var haldið upp á að 49 ár voru liðin frá því Tíbetar gerðu misheppnaða uppreisn gegn stjórn kommúnista í Kína, með þeim afleið- ingum að Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíbeta, neyddist til að flýja í útlegð á Norður-Indlandi. Mótmælendur báru eld að kín- verskum verslunum og kveiktu í far- artækjum, en mótmælin eru þau fjölmennustu síðan 1989, um það leyti er Hu Jintao Kínaforseti fór fyrir kommúnistaflokknum í Tíbet. Ekki er ljóst hversu margir týndu lífi en samkvæmt útvarpsstöðinni Radio Free Asia létust að minnsta kosti tveir þegar öryggissveitirnar hófu skothríð, en óstaðfestar heim- ildir benda til að táragasi hafi verið beitt. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka, þótt erfitt geti reynst að skera úr um mannfallið. „Við erum önnum kafin við að sinna særðu fólki [...] margir eru slasaðir. Öruggt er að það hefur orð- ið mannfall, en ég get ekki sagt um hversu margir hafa týnt lífi,“ sagði ónafngreind kona sem starfar á sjúkrahúsi í Lhasa í samtali við AFP-fréttastofuna í gær. Krefjast meira frelsis Á annað hundrað búddamunkar hófu mótmælin snemma í gær og leið ekki á löngu þar til hundruð manna höfðu gengið til liðs við þá. Að minnsta kosti 900 manns tóku þátt í mótmælunum og sendi Kínastjórn á annað þúsund manna öryggislið til að hafa hemil á ástandinu, að því er talsmenn herferðarinnar Free Tibet Campaign höfðu eftir sjónarvottum. Mótmælendur krefjast þess að Kínastjórn láti af meintum mann- réttindabrotum í Tíbet, auk þess sem þeir fara fram á meira frelsi í trúmálum og stjórnmálum. Kínversk stjórnvöld hafa reynt eftir fremsta megni að halda erlend- um fjölmiðlum frá Lhasa, en eins og sjá má á myndinni hér til hliðar náð- ust þó myndir sem sýna öryggis- sveitir kveða niður mótmælin. Slíkar fréttamyndir koma á afar slæmum tíma fyrir kínversk stjórn- völd, sem leggja nú allt kapp á að bæta ímynd landsins fyrir Ólympíu- leikana í Peking í ágúst nk., ekki síst í því ljósi að mótmælin breiddust til annarra borga innan og utan Kína, þeirra á meðal til Xiahe, í Gansu- héraði, þar sem allt að fjögur þúsund manns komu saman til að krefjast aukinna réttinda Tíbeta. Í Kat- mandu, Nepal, lenti lögreglumönn- um saman við um þúsund mótmæl- endur, þar með talið búddamunka. Í New York var efnt til friðsamlegra mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, þar sem fólkið hrópaði: „Enginn friður, engir Ól- ympíuleikar“. Nota farsímana og netið Þá veldur samskiptabyltingin því að sífellt erfiðara verður að leyna því fyrir umheiminum þegar gengið er gegn mótmælendum af hörku og náði Kínastjórn ekki að ritskoða efni sem sent var með farsímum eða um netið og endurbirt hefur verið í hin- um ýmsu miðlum. Má þar nefna að tveir Belgar sem fylgdust með mótmælunum í Lhasa lýstu þeim sem friðsamlegum til að byrja með, eða þangað til hópur munka, líklega sex til sjö, var fluttur á brott í skyndi. Fjöldi lögreglu- manna hafi komið aðvífandi og ótti gripið um sig, vegna frásagna af pyntingum í fangelsum. Vart þarf að taka fram að þeirri kröfu að erlendir fjölmiðlamenn þurfi að sækja um leyfi til að geta farið til Tíbets hefur ekki verið af- létt. Er þeirri kröfu fyrst og fremst ætlað að fyrirbyggja að erlendir fjöl- miðlar geti grennslast fyrir um að- búnað fólksins og miðlað sjónarmið- um þess til umheimsins, stefna sem nær til héraðanna í Kína, samanber tilraunir til að koma í veg fyrir fréttaflutning af umhverfisslysum. Stjórn kommúnista í Kína hefur farið með völdin í Tíbet frá árinu 1951 og hafa fregnir af mótmælum eða ofbeldi gagnvart Tíbetum ósjaldan verið byggðar á frásögnum fólks sem ekki var viðstatt atburðina og iðulega löngu eftir að þeir gerð- ust. Skotið á mótmælendur í Tíbet Reuters Ólga Mótmælendur í Lhasa, höfuðborg Tíbets, lögðu eld að verslunum og farartækjum í gær, um leið og þeir kröfðust aukinna réttinda. Trúarleiðtoginn Dalai Lama hvatti stjórnina í Peking til að beita ekki hörku. Í HNOTSKURN »Á mánudag var hópur munkahandtekinn fyrir að minnast uppreisnarinnar 1959, daginn eftir beittu öryggissveitir tára- gasi gegn friðsamlegum mót- mælum munkanna í höfuðborg- inni. »Á fimmtudag voru búdda-klaustrin í Lhasa girt af. »Útvarpsstöðin Radio FreeAsia, sem nýtur stuðnings Bandaríkjastjórnar, segir mót- mælendur hafa lagt kínverskar verslanir í Lhasa í rúst. FERÐALAG ER ÞROSKANDI FERMINGARGJÖF GJAFABRÉFIÐ GILDIR SEM GREIÐSLA UPP Í FLUGFAR MEÐ ICELANDAIR ÞÚ VELUR UPPHÆÐINA + Pantaðu fermingargjöfina á icelandair.is/gjafabréf Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi. W W W. I C E L A N DA I R . I S HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 4 15 30 03 /0 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.