Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 20

Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING NÝTT gallerí, Reykjavík Art Gallery, verður opnað á Skúlagötu 28 í dag kl. 14. Fyrstu myndlistarmenn- irnir sem opna sýningar á verkum sínum þar eru Magnús Tómasson (f. 1943), sem sýnir málverk og skúlptúrverk, Pétur Már Pétursson (f. 1955), sem sýnir ljóðræn afstraktverk, og Tolli (f. 1953), sem sýnir á sér nýja hlið með ljóðrænum afstraktverkum. Stofnandi Reykja- vík Art Gallery er Þorsteinn Jónsson, sem á árum áður var forstöðumaður Listasafns ASÍ. Reykjavík Art Gallery verður opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 14 til 18. Myndlist Nýtt gallerí opnað á Skúlagötunni Magnús Tómasson „ÞEGAR hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“ Svo hefst saga Gunnars Gunnars- sonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hún kom fyrst út á dönsku, en síðar þýddi höfundurinn hana sjálfur á íslensku. Annað kvöld kl. 20 frum- sýnir Möguleikhúsið við Hlemm Aðventu í leikgerð Öldu Arnardóttur. Sýningin er ætluð áhorfendum frá 13 ára aldri og tekur tæpar 60 mínútur í flutningi. Sýningin verður á faralds- fæti og hægt er að panta hana í heimsókn. Leiklist Aðventa í leikgerð fyrir unglinga Aðventa í Möguleikhúsinu. TÓNLEIKAR strengja- sveita Tónlistarskólans í Reykjavík verða í Áskirkju klukkan 14 í dag. Stjórn- andi yngri hljómsveit- arinnar er Sigurgeir Agn- arsson og leikur sveitin verk eftir Henry Purcell, Berceuse eftir Edvard Grieg og Ungverska dansa nr. 5 og 6 eftir Jóhannes Brahms. Stjórnandi eldri strengjasveitar er Mark Reedman og leikur hún Sónötu fyrir selló og strengjasveit eftir Antonio Vivaldi og er einleikari á selló Ásta María Kjartansdóttir; og þættir úr Holbergssvítu eftir Grieg. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Tónlist Strengjasveitir Tónó með tónleika Edvard Grieg Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is „ÞAÐ eru mun fleiri ógnir sem steðja að tilverurétti tónlistar- manna en þegar félagið var stofn- að,“ segir Jakob Frímann Magn- ússon, formaður Félags tónskálda og textahöfunda sem er 25 ára gam- alt í ár. Ýmsir viðburðir hafa verið skipulagðir af því tilefni, pílagríms- ferð til Bítlaborgarinnar Liverpool, upprifjun á sögu alþýðutónlistar síðustu hundrað árin og garð- tónleikar hljómsveitarinnar Mezzo- forte, en platan Garden Party er einmitt jafngömul félaginu. Jakob segir aldrei hafa verið brýnni þörf fyrir réttindasamtök tónskálda og textahöfunda. „Það sem brennur núna á félagsmönnum er hvernig þeir eiga að verjast þess- ari ólöglegu notkun á verkum sín- um. Það hefur gleymst að ala upp heilu kynslóðirnar í því að það megi ekki stela. Þetta er stærsta ógn sem steðjað hefur að greininni og hefur valdið hruni í sölu hljómrita.“ Ábyrgð símafyrirtækjanna Hann segir spjótin beinast að síma- og netfyrirtækjunum sem geri notkunina mögulega. „Þó að þau standi ekki fyrir stuldinum þá má segja að þau skaffi tækin til þess, án þess að vilja bera nokkra ábyrgð á því hvað fer í gegnum þeirra pípur. Það er náttúrlega inni- haldið sem þau eru að græða á. Hverjir eiga innihaldið? Jú, það eru höfundar og flytjendur þess. Þetta eru tímamótasamningar sem verður að ganga til ef greinin á ekki að hrynja innan frá.“ Jakob hefur lifað tímana tvenna í tónlistarbransanum og segir að- stæður hafa gjörbreyst. „Það teng- ist líka margföldun á framboði af- þreyingarefnis sem allt tekur til sín tíma fólks og athygli. Menn gátu kannski litið fram hjá eilítilli óná- kvæmni í uppgjöri vegna plötusölu á árum áður, en þá voru líka tekj- urnar af lifandi flutningi lifibrauð tónlistarmanna.“ Tónleika- og dansleikjahald er ekki lengur sú tekjulind sem hún var og því er salan á tónlistinni mik- ilvægara hagsmunamál en áður. „Stærstur hluti yngri tónlistar- manna landsins á þessum nýgilda væng, eins og ég kalla hann gagn- vart hinum sígilda, skríður úr holu sinni einu sinni á ári og leikur einu sinni endurgjaldslaust á Iceland Airwaves og fer svo aftur í æf- ingabúðir. Þetta er gjörólíkt því umhverfi þegar hljómsveitir gátu farið í túr um landið og verið með tvöföld árslaun ráðherra fyrir þriggja mánaða vinnu.“ Ekki afætur og ölmusufólk Það eru næg verkefni framundan hjá félaginu og hluti þeirra felst í því að afla störfum tónskálda og textahöfunda viðurkenningar. „Það hefur tíðkast, og er jafnvel enn gert í dag, að líta á vissan hóp tónlistar- manna sem „hobbíista“ sem eru bara svona að leika sér í bílskúrum. En þetta er grunnur atvinnu- starfsemi sem hefur komið Íslandi á kortið um alla veröld af eigin rammleik að langstærstum hluta. Hið opinbera stoðkerfi er svo að segja alveg nýtilkomið, það sem til er af því. Framlag tónlistariðnaðar til landsframleiðslu er 1,5 prósent, sem jafngildir landbúnaðinum, og það er rétt núna að hefjast einhver vitundarvakning um að þetta séu ekki einhverjar afætur og ölm- usufólk.“ Aldrei brýnni þörf fyrir FTT  Tónskáld og textahöfundar fagna aldarfjórðungsafmæli félags síns  Liðin tíð að tónlistarmenn hali inn tvöföld árslaun ráðherra á sumarvertíðinni  Ólögleg notkun stærsta ógnin við atvinnugreinina Morgunblaðið/Valdís Thor Afmæli Forsvarsmenn FTT kynntu dagskrá afmælisársins á Hótel Borg í gær. Hápunktur þess verður ferð á Bítlaslóðir í Liverpool. Í HNOTSKURN »Þrír meðlimir FTT verðagerðir að heiðursfélögum á tónleikum 17. apríl, þeir Gunnar Þórðarson, Ólafur Haukur Sím- onarson og Ólafur Gaukur Þór- hallsson. »Mezzoforte spilar á garð-tónleikum sem verða haldnir 16. júní í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá því að platan Gar- den Party kom út og sló í gegn í Bretlandi. »Freymóður Jóhannsson verð-ur meðal annars heiðraður á tónleikum 12. september, sem var einmitt listamannsnafn hans. Þar verður 100 ára saga alþýðu- tónlistar rifjuð upp. „VIÐ erum enn að 15 árum og tíu börnum síðar. Það er kraftur í kon- um,“ segir Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, en nú eru fimmtán ár síðan hún stofnaði Trio Nordica ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Monu Kontra píanó- leikara. Þær ætla að halda upp á af- mælið með tónleikum á Kjarvals- stöðum annað kvöld í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. „Ein tónleikaferðin mun alltaf standa upp úr hjá okkur. Hún var farin fyrir tíu árum þegar við vor- um allar með pínulítil börn, um þriggja mánaða gömul, og barnapí- ur með. Við ferðuðumst um alla Sví- þjóð og spiluðum á tónleikum, þetta lifir alltaf í minningunni,“ segir Auður. „Það er ekki hægt að vera í vondu skapi innan um svona lítil börn.“ Trio Nordica hefur sérhæft sig í flutningi á verkum eftir konur og norræn tónskáld. „Að sjálfsögðu svo líka allar perlur tónbók- menntanna,“ segir Auður. „Við er- um svolítið á rómantísku nótunum.“ Samstarf þeirra þriggja hefur alltaf gengið vel gegnum árin. „Það er alltaf gaman þegar við hittumst. Okkur tekst mjög vel að vinna sam- an og enginn ágreiningur. Þess vegna hefur samstarfið haldið svona lengi.“ Auður segir þær hafa sett aukinn kraft í starf tríósins í vetur og það verður ekkert slegið af þó að hún sé að flytja búferlum til Finnlands. „Þetta verður mjög samnorrænt samstarf. Við erum að fara að spila á tveimur tónlist- arhátíðum í sumar og taka upp ann- an geisladisk og svo verðum við með norræna kammer-tónlist- arhátíð á Kjarvalsstöðum í sept- ember.“ Á tónleikunum á Kjarvalsstöðum annað kvöld munu þær leika verk eftir Elfridu Andree, J. Brahms og A. Piazzolla. Þeir hefjast klukkan átta, aðgangur að þeim er ókeypis og allir velkomnir. „15 árum og tíu börnum síðar“ Morgunblaðið/Ómar Tríó Nordica Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Mona Kontra halda upp á fimmtán ára samstarfsafmæli um helgina. HÁPUNKTUR afmælisársins er pílagrímsferð til Bítlaborgarinnar Liverpool 30. maí til 2. júní. Fé- lagar FTT ganga fyrir um mið- akaup, en öðrum er velkomið að slást í förina. „Þarna er uppspretta mikils inn- blásturs,“ segir Jakob, en meðal þess sem boðið verður upp á í ferð- inni eru tónleikar með Hljómum í Cavern-klúbbnum, tónleikar með Paul McCartney á Anfield og hátíð- arkvöldverður með Alan Williams, fyrsta umboðsmanni Bítlanna. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu FTT, www.ftt.is. Í fótspor Bítlanna DAGSKRÁ verður í Esper- antohúsinu, Skólavörðustíg 6b, í tilefni þess að liðin eru 120 ár frá fæðingu Þór- bergs Þórðarsonar. Í dag kl. 14 flytur Baldur Ragn- arsson erindið Esperanto og þýðingar. Á morgun kl. 14 verður opnuð myndlist- arsýning þeirra sem teikn- að hafa myndir í þýðing- artímaritið La Tradukisto, en sýningin verður opin kl. 14 til 18 í þrjár vik- ur. Á þriðjudag kl. 14 flytur Benedikt Hjart- arson erindið Þjóðlausar tungur: Hugleiðingar um Þórberg, evrópska tilraunaljóðlist og esperantisma á fyrri hluta 20. aldar. Hugvísindi Þórbergsdagar í Esperantohúsinu Þórbergur Þórðarson Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is Stefnumót við safnara III Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og hljóðfærasafnara! Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir Sjö landa sýn María Loftsdóttir, alþýðulistakona, sýnir vatnslita- stemmningar frá Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Íslandi, Japan, Perú og Skotlandi. Listakonan tekur á móti gestum um helgina Hið breiða holt Ljósmyndasýning þar sem unglingar eiga stefnumót við afa sína eða ömmur! Sýningarstjóri: Berglind Jóna Hlynsdóttir. Styrktaraðili: Beco Vissir þú... ...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur? Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns. Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700. GERÐUBERG www.gerduberg.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.