Morgunblaðið - 15.03.2008, Síða 26
Þegar ekið er inn i Grindavíkmá sjá hvar nýtt einbýlis-húsahverfi er að rísa ávinstri hönd. Götunöfnin
enda þar á hópi, t.d. Suðurhóp og
Austurhóp. Þarna eru mörg stór og
falleg einbýlishús og þar á meðal er
húsið sem Vignir Kristinsson og
Ólafía Jensdóttir hafa reist sér og
fjölskyldu sinni og fluttu í fyrir einu
og hálfu ári. Þetta er danskt timbur-
hús sem fyrirtækið Multikerfi í
Grindavík flytur inn.
„Við bjuggum annars staðar í
Grindavík, í húsi sem var nokkuð
komið til ára sinna og þurfti á tölu-
verðum lagfæringum að halda,“ seg-
ir Vignir. „Þegar ég hafði reiknað út
kostnaðinn við væntanlegar lagfær-
ingar og var kominn upp í sjö eða
átta milljónir, og hafði þá ekki tekið
með í reikninginn eigin vinnu, kom-
umst við að þeirri niðurstöðu að best
væri líklega að selja húsið og byggja
nýtt hús.“
Hátt til lofts og dyr í yfirstærð
Fyrir valinu varð danskt timbur-
hús frá danska fyrirtækinu Skanwo.
Húsið er á þriðja hundrað fermetrar
með bílskúrnum; fjögur góð her-
bergi auk stofu og eldhúss sem eru í
eins konar alrými. Þar er eldhúsið,
glæsismíði Vignis sjálfs, í einu horn-
inu. Til hliðar við eldhúsið er borð-
stofuborðið sem hann á líka heiður-
inn af að hafa smíðað og þegar betur
er að gáð, flest húsgögn á heimilinu
en komum að því síðar.
Beint út frá borðstofunni er geng-
ið út um breiðar dyr út á væntanlega
verönd. Þar verður annað hvort
smíðaður timburpallur í framtíðinni
eða bara hellulagt, ef húsbóndinn
fær að ráða. Hann segir, og það þótt
hann sinni smíðum eða kannski ein-
mitt þess vegna, að töluverð vinna
fari í að viðhalda timburpalli.
Út úr stofuhlutanum eru aðrar tví-
breiðar dyr út á mikinn yfirbyggðan
pall með heitum potti. Lofthæðin er
mikil í húsinu, mest fjórir metrar, og
einmitt þess vegna fara dyrnar í hús-
inu sérlega vel í sinni yfirstærð,
a.m.k. miðað við dyr í flestum ís-
lenskum húsum. Þær eru 211 sm á
hæð og gefa húsnæðinu sérstakt yf-
irbragð. Vignir og Ólafía ákváðu að
hafa breið gerefti og gólflista af
sömu gerð og í sömu breidd með-
fram öllum gólfum. Flísarnar á gólf-
unum eru líka stórar, 60x60 sm, sem
fer vel þar sem rýmið er svona mik-
ið. Ljós litur þeirra hæfir vel bæði
veggjum og panelklæddu og hvítt-
uðu lofti.
Eikarsmíði húsbóndans
Það sem vekur þó svo sannarlega
mesta athygli á heimilinu eru handa-
verk húsbóndans; stór og falleg eld-
húsinnrétting, borð, lítil og stór, hill-
ur, spegilrammar, skápar og sitt-
hvað fleira, allt smíðað úr gegnheilli
eik.
Fyrsta spurningin sem kemur upp
í hugann er hvort Vignir sé ekki ann-
að hvort húsgagna- eða húsamiður?
„Ég er hvorugt,“ svarar hann, „en
ég hef alltaf haft rosalega gaman af
Eik í forsæti
Eikarsmiðurinn Vignir við smíðar á verkstæðinu sínu Krosstré í Grindavík.
Eik í eldhúsi Rúmt er um eldhúsið þar sem það er í einu horni þess sem kalla mætti alrými. Þar er stofan, borð-
stofan, eldhúsið og aðgengi inn í herbergin. Innréttingin er lökkuð með AB lakki.
Baðherbergisinnréttingin Það er kostur að meðhöndlun eikarinnar kem-
ur í veg fyrir að vatn og sápa setji bletti á baðherbergisinnréttinguna.
Lakkað Borðstofuborðið er úr hvíttaðri, olíuborinni eik. Olían
gefur fallegan gljáa. Takið eftir 211 cm háum dyrum í baksýn.
Fortíðin Spegill og hilla eftir Vigni í anda gömlu
borðstofuskápanna sem voru með stórum spegli yfir.
Vignir Kristinsson er mikill hagleiksmaður
sem vílar ekki fyrir sér að innrétta eigið heim-
ili, líkt og Fríða Björnsdóttir komst að er hún
brá sér í heimsókn til Grindavíkur.
lifun
26 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ