Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 34

Morgunblaðið - 15.03.2008, Page 34
34 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Í dag kveðjum við Álfhildi skólasystur okkar með þessari fallegu bæn. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Börnum hennar, foreldrum, systkinum og öðrum aðstand- endum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Árgangur ’72 á Ísafirði. Elsku frænka. Það er svo sárt að þú sért farin frá okkur svona ung. Ég á alltaf eftir að geyma minn- ingarnar af þér hjá mér. Þú varst alltaf svo góð við mig og vildir öllum svo vel. Sakna þín og ég vona að þú sért komin á góðan stað. Þinn frændi Karl. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn. Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber. Þótt farin þú sért, þá veistu sem er. Að sorg okkar hjörtu nístir og sker. Við sjáumst á ný þegar kemur að mér. (KK – þýð. ÓGK) Elsku Sigríður Elsa, Stefán Bragi, Birta Dögg og fjölskyldur. Við sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Íris G, Jóna Magnea, Sólborg Halla og fjölskyldur. HINSTA KVEÐJA Elsku mamma mín, ég sakna þín rosalega mikið, ég vona að þú hafir það gott í nýjum heimkynnum. Á kvöldin þegar ég fer að sofa ætla ég að biðja Guð að passa þig og vernda. Svo hittumst við seinna. Amma og afi, Sigga, Stefán og ég söknum þín mikið og allir ættingjarn- ir, og líka langafarnir og langömm- urnar mínar. Ég elska þig, elsku mamma mín. Þín dóttir Birta Dögg. Elsku dóttir, við biðjum algóðan guð að hlúa að þér í nýjum heimkynn- um. Þú varst alltaf tilbúin að hjálpa öðrum en gleymdir stundum sjálfri þér, aldrei hallmæltir þú nokkurri manneskju og varst alltaf tilbúin að taka upp hanskann fyrir aðra. Þegar þið systurnar voru litlar þá gastu aldrei slegið frá þér, svo að systir þín barðist fyrir þig. Það voru oft erfiðir tímar hjá þér í skóla sem mörkuðu djúp spor í sálu þína sem greru aldrei. lífið var ekki alltaf auðvelt hjá þér en það voru góðir og yndislegir tímar sem þú áttir með ástvinum þínum á Selhól þar sem þú áttir þínar yndis- stundir með ömmu þinni og afa. Þar var oft sungið, hlegið og spjallað margt. Þegar þú varst lítil sagðist þú Álfhildur Guðbjartsdóttir ✝ Álfhildur Guð-bjartsdóttir fæddist á Ísafirði 7. júlí 1972. Hún and- aðist 8. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar eru Guð- bjartur Kristinn Ástþórsson, f. 17. júlí 1950 og Sigríð- ur Ingibjörg Karls- dóttir, f. 8. júlí 1952. Systkini Álfhildar eru Margrét Krist- jana, f. 19. júlí 1974, sambýlismaður Hjálmar Þorvaldsson, f. 4. októ- ber 1977, börn þeirra eru Elías Andri Karlsson og Magnús Örn Hjálmarsson. Börn Álfhildar eru Sigríður Elsa Sigurðardóttir, f. 13. maí 1990, Stefán Bragi Ágústsson, f. 2. september 1992, og Birta Dögg Guðnadóttir, f. 23. október 1999. Álfhildur giftist 19. júní 1997 Guðna Elíassyni, f. 30. janúar 1961. Þau skildu 2005. Útför Álfhildar fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. ætla að flytja á Selhól, nú ertu hjá ömmu þinni og afa og ég er viss um að það er glatt á hjalla hjá ykkur. Amma þín og afi á Hlíf eiga eftir að sakna þín sárt. Þær voru ófáar stundirnar sem þú umvafðir þau með þinni miklu hlýju ást og glaðværð. Alltaf komstu brosandi til þeirra og spjallaðir um heima og geima. Þú eignaðist þrjú yndisleg börn sem voru þér gleðigjafar. Við munum reyna að um- vefja þau ást og hlýju. Við eigum eftir að sakna þín sárt, sofðu rótt elsku dóttir. Þú, Guð, sem stýrir stjarna her og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr mínu hjarta’ að hugsa gott og hyggja’ að vilja þínum, og má þú hvern þann blett á brott, er býr í huga mínum. Stýr minni tungu’ að tala gott og tignar þinnar minnast, lát aldrei baktal, agg né spott í orðum mínum finnast. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi, þar mig í þinni gæslu geym, ó, Guð minn allsvaldandi. (Valdimar Briem.) Mamma og pabbi. Elsku systir mín, nú ertu farin langt um aldur fram. Ekki bjóst ég við þessu, þegar ég kvaddi þig eftir áramótin. Ég mun alltaf minnast þín sem þrjóskrar, sjálfstæðrar hlæjandi konu sem geislaði af. Þar sem ég flutt- ist suður þá gátum við ekki eytt mikl- um tíma saman undanfarið, en við hittumst þó um jólin og áttum ynd- isleg jól saman og svo varstu hjá mér um áramótin. Við tvær einar, því ég þurfti að fara suður að vinna, við átt- um góðar stundir saman þá. Ég á eftir að sakna hláturs þíns og söngsins og ekki síður orðaskaksins okkar. Ef ég hefði vitað að ég hefði svona stuttan tíma með þér þá hefði ég faðmað þig oftar og sagt þér hversu vænt mér þætti um þig. Ég vona, elsku besta systir mín, að þér líði vel á þeim stað sem þú ert á núna. Megi Guðs englar vaka yfir þér. Þar til við hittumst á ný kveð ég þig, elsku systir mín. Þín systir Margrét. Lífið er ekki alltaf eins og við kjós- um og stundum stöndum við frammi fyrir atburðum sem okkur finnst ekki réttlæti í. Það á við við fráfall okkar ástkæra barnabarns, hennar Álfhild- ar okkar, sem varð bráðkvödd á heim- ili sínu aðeins 35 ára að aldri. Harmur okkar allra er mikill, ekki síst barna hennar og biðjum við algóðan guð að styrkja þau á þeim tímum sem fram undan eru. Álfhildur færði okkur birtu og yl og fádæma gæsku sýndi hún okkur alla tíð. Hjartans þakkir fyrir alla gæskuna, elsku vina. Guð veri með þér og hvíl í friði. Elsku hjartans Sigríður, Stefán, Birta, Sigga okkar, Bubbi, Margrét, Ástþór og allir aðrir ástvinir. Megi guð almáttugur leiða okkur og styrkja í sorg okkar. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um réttan veg fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt því þú ert hjá mér. Amma og afi, Hlíf. Í dag er til moldar borin elskuleg systurdóttir og vinkona, Álfhildur Guðbjartsdóttir, langt fyrir aldur fram, aðeins 35 ára gömul. Þegar ég skrifa þessar línur og lít til baka er margt sem kemur upp í hugann, og þá sérstaklega árin sem við bjuggum í Hnífsdal, en þá var mikill samgangur hjá okkur systrum en við vorum með börn á svipuðum aldri og þið lékuð ykkur mikið saman. Allar þessar minningar sem koma upp í hugann, stundirnar á Skólaveg- inum hjá ömmu þinni og afa, þar var alltaf opið hús og mikið fjör, fullt af börnum, pláss fyrir alla og fullt af góðgæti fyrir barnabörnin. Minningarnar eru góðar og við geymum þær í hjarta okkar. Það er stórt skarð komið í barnabarnahóp- inn hjá ömmu þinni og afa við fráfall þitt elsku Álfhildur. Það er mikill söknuður að sjá á eftir svo ungri konu yfir móðuna miklu, en mestur er þó söknuðurinn hjá börn- um þínum, Sigríði Elsu, Stefáni Braga og Birtu Dögg. Að missa barnið sitt er það erf- iðasta sem foreldrar ganga í gegnum. Elsku Sigga og Bubbi harmur ykkar er mikill. Við viljum votta börnum Álfhildar, foreldrum og systkinum okkar inni- legustu samúð. Guð veri með ykkur í sorginni. Nú verður duftið dufti hulið, en dufti rís það aftur frá og það sem enn er öllum dulið því auðnast þá í dýrð að sjá; hjá þeim sem kom hér ofan að um eilífð blómgast jafnvel það. (Grundtvig, þýð. V. Briem) Álfhildur mín, við munum sakna þín, hvíldu í friði elsku frænka. Hjördís og Helgi. Hinn áttunda mars bárust mér þær sorgarfréttir að Álfhildur bróðurdótt- ir mín væri látin. Guð minn góður hugsaði ég, hún sem var svo ung og þriggja barna móðir, þeirra Sigríðar Elsu, Stefáns Braga og Birtu Daggar. Ósjálfrátt fór ég að hugsa til baka. Þegar ég var að passa hana tveggja ára í Hnífsdal þegar Margrét systir hennar fæddist. Og húnvar alltaf að læðast út árla morguns á náttkjólnum einum, en alltaf í stígvélum. Og þegar hún var að læðast niður stigann eftir að hafa svæft pabba sinn í staðinn fyr- ir að hann svæfði hana. Eins dvaldi ég ásamt syni mínum Sigga hjá ykkur þegar Ástþór bróðir hennar fæddist, ég man hvað henni fannst það órétt- látt að ég ætti engan afa, því hún átti þá svo marga og ætlaði að gefa mér einn af sínum. Alltaf kom hún barn að aldri með foreldrum sínum á Hellis- sand þegar eitthvað var um að vera; sauðburður, heyskapur eða réttir. Og einar réttirnar minnist ég hennar sér- staklega á kvöldvöku eftir matinn uppi á Laufási er við tvær sungum saman lagið Harpa Sjöfn, já, Álfhild- ur mín, það toppar það enginn. Kærar kveðjur, Álfhildur. Þín frænka Þóra. Eftir að við fluttumst fjölskyldan aftur til landsins eftir margra ára fjarvistir kynntumst við eiginlega á ný, þegar þú bjóst á Selfossi með Guðna og dóttur ykkar Birtu Dögg. Það var fátt skemmtilegra en koma við hjá ykkur í kaffi þegar við vorum á leið á fjöll. Nema þá helst að þið kæm- uð með eins og gerðist oft. Af öllum okkar mörg hundruð fjallaferðum eru þær ferðir sem þið komuð með okkur þær eftirminnilegustu og skemmti- legustu. Og munum við alltaf ferðina með ykkur í Emstrur og Syðra- Fjallabak. Við munum ævinlega minnast þín og átt þú eftir að fara í margar fjalla- ferðir og útilegur í framtíðinni með okkur. Hvíl í friði, Álfhildur. Okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Við biðjum guð að styrkja þau. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Þóra Sigurbjörnsdóttir, Jón G. Snæland, Sigurbjörn, Kristinn og Helena. Kæra frænka, við kveðjum þig með þessu fallega ljóði. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Elsku Sigga, Bubbi, Sigríður Elsa, Stefán Bragi og Birta Dögg, við send- um ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður guð styrkja ykk- ur og styðja. Hugur okkar er hjá ykkur. Ásgerður, Jónas og börn. Okkur brá mikið þegar við fréttum andlát þitt, elsku stelpan okkar, og okkur finnst það ótrúlegt ennþá að þú skulir vera farin. Þú varst alltaf mikið hjá okkur og alltaf jafngaman að fá þig og börnin þín í heimsókn. Þú varst ekki bara uppáhaldsfrænka mín, þú varst líka besta vinkona mín og okkur eins og dóttir. Og hvað það var gaman hjá okkur í karaoke, þú söngst svo vel, þótt þú vildir aldrei viðurkenna það, og varst alltaf svo kát og skemmtileg. Og ég man eftir öllum ferðalögun- um okkar saman og sumarbústaða- ferðunum en ég trúi því að þú hafir það gott núna, sért hjá afa og ömmu, sem þér þótti svo vænt um. Við eigum eftir að sakna þín mikið. Horfin ertu hjartað mitt horfin í aðra heima mundu mig og ég man þig ég mun þér aldrei gleyma. (Höf. ók.) Elsku Sigríður Elsa, Stefán Bragi, Birta Dögg, Bubbi, Sigga, Ástþór, Margrét, Hjálmar og börn, við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Anna Birna, Björn og börn. Mig langar með nokkrum orðum að minnast frænku minnar, Álfhildar. Ég minnist hennar er hún fæddist, hún var fallegasta barn sem ég hafði séð. Stoltir foreldrar Bubbi og Sigga, stoltar frænkur, Halldóra systir Siggu á tólfta ári og ég föðursystir þeirra á ellefta ári, komnar í vist í Brekkuhúsinu í Hnífsdal. Þar bjuggu Sigga og Bubbi á efri hæðinni og Hjördís systir Siggu og Helgi á neðri hæðinni. Frá þessum tíma á ég bara góðar minningar um glaðvær lítil börn. Í seinni tíð hittumst við Álfhildur stundum á Hlíf hjá afa og ömmu. Áberandi var hvað hún bar hag barna sinna mjög fyrir brjósti. Hún hafði ákveðin áform um nánari sam- veru með börnum sínum í framtíðinni, það var alveg skýrt í hennar huga. Mér var mjög brugðið er ég fékk þær fréttir að Álfhildur hefði orðið bráðkvödd á heimili sínu hinn 8 mars sl. aðeins 35 ára gömul. Ég bið guð um að vera með Siggu, Bubba, börnum Álfhildar, systkinum og öðrum aðstandendum og styrkja þau í sorg sinni. Kveðja Agnes.  Fleiri minningargreinar um Álf- hildi Guðbjartsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Faðir okkar, ÞORBERGUR KRISTJÁNSSON, Brúnahlíð, andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fimmtudaginn 13. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín, Guðný, Þuríður Kristjana, Árni og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir og amma, ELÍN INGVADÓTTIR, Brekkustíg 12, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 11. mars. Jarðarför verður auglýst síðar. Jón Kristjánsson, Guðbjörg Böðvarsdóttir, Björg Ingvadóttir, Hrannar Magnússon, Eiríkur Daníel Kristinsson, barnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför stjúpmóður, tengda- móður, ömmu, mágkonu og svilkonu, ELFU-BJARKAR GUNNARSDÓTTUR fyrrverandi framkvæmdastjóra og borgarbókavarðar. Helena Jónsdóttir, Tómas Jónsson og Ýrr Ásbjörg Mörch, Sindri og Bjarki, Sara Jónsdóttir og Ásbjörn Stefánsson, Erla Kristín Jónasdóttir og Birgir Sveinbergsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.