Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
flugfelag.is
Ferðalag er góð
fermingargjöf
Pantaðu gjafabréf
í síma 570 3030
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞAÐ á ekki að setja Skólavörðustíg í stokk eins og hugsanlega mætti ráða af
hinum djúpa skurði sem hefur verið grafinn í efri hluta stígsins. Ástæðan fyr-
ir því að svo djúpt er grafið er sú að endurnýja á allar lagnir undir stígnum.
Yfirborðið verður líka endurnýjað með nýjum gangstéttum og trjágróðri
auk þess sem hiti verður lagður bæði í stéttir og akbraut. Að sögn Ámunda
Brynjólfssonar hjá framkvæmdasviði borgarinnar hefur verkið gengið vel.
Morgunblaðið/RAX
Grafa djúpt ofan í Skólavörðustíg
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
BORGARSTJÓRN samþykkti í gær tillögu full-
trúa Sjálfstæðisflokks og F-lista, þess efnis að
Reykjavíkurborg geri áætlun um hvernig höfuð-
borgin komist í fremstu röð sveitarfélaga varðandi
kynningu á starfs- og iðnnámi fyrir börnum og
unglingum.
Í máli Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, sem
mælti fyrir tillögunni, kom m.a. fram að þetta yrði
gert með skipulagðri starfs- og námsfræðslu í öll-
um skólum, með færanlegum vinnustofum fyrir
námskeið í iðnnámi í samstarfi við atvinnulíf og
iðnskóla borgarinnar. Einnig nefndi hún þá hug-
mynd, sem hluta af hugsanlegri áætlun, að haldin
verði valkvæð samræmd próf í starfs- og iðnnáms-
greinum, til að auka vegsemd þeirra. Tillagan fékk
góðar viðtökur fulltrúa í öllum flokkum og var
samþykkt samhljóða, en þó lýstu bæði Þorleifur
Gunnlaugsson, VG, og Óskar Bergsson, Fram-
sóknarflokki, sem eru iðnmeistarar, efasemdum
um það fyrirkomulag að sinna fræðslunni með
færanlegum kennslustofum. Efaðist Óskar um að
það væri til þess fallið að bæta ímynd námsins í
augum skólabarna. Málinu var vísað til umfjöll-
unar í leikskólaráði og menntaráði.
Boða átak um iðnnám
Tillaga samþykkt um áætlun í kynningu á starfs- og iðnnámi fyrir börnum og
unglingum Skoðað verði að búa til samræmd próf í starfs- og iðnnámsgreinum
Í HNOTSKURN
»Meðal hugmynda er að menntaráð veitiverðlaun fyrir framúrskarandi hæfileika í
iðngrein, spyrnt verði gegn kynbundinni mót-
un ungra barna að ákveðnum starfsgreinum
og rannsóknir verði gerðar til að hámarka
fjölbreytni í námsvali en lágmarka brottfall.
SMS-kerfi Símans bilaði og var
óvirkt í um klukkustund í gær-
kvöldi. Ástæðan var sú að aðili sem
er með svokallaðan heildsölu-
aðgang sendi mikinn fjölda af sms-
skilaboðum til útlanda en símkerfið
sem átti að taka við öllum þessum
skilaboðum lokaði fyrir þau og
sendi þau öll til baka, að sögn Lindu
Bjarkar Waage, upplýsingafulltrúa
Símans. Þegar skilaboðin streymdu
öll til baka varð yfirhleðsla á SMS-
kerfi Símans og því fór sem fór. Að
sögn Lindu varaði bilunin í rúmlega
klukkustund og var kerfið komið í
lag um klukkan 20 í gærkvöldi.
„Við ræðum við þennan aðila og
stillum okkar kerfi þannig að við
getum gripið inn í fyrr þegar við
fáum svona til baka,“ segir hún.
Neyðarlínan notar SMS-skeyti til
að koma boðum til viðbragðsaðila.
Samkvæmt upplýsingum þaðan
hafði bilunin hjá Símanum engin
áhrif á starfsemina enda eru vara-
leiðir fyrir hendi.
Essemmessin
komu til baka
og ollu bilun
REIKNINGUR sem verktaki sendi
sumarbústaðareigendum í Gríms-
nesi fyrir akstur með grús í grunn
og plan bústaðarins sumarið 2006
var 236.000 krónum of hár, sam-
kvæmt niðurstöðu Héraðsdóms
Suðurlands í gær.
Reikningurinn hljóðaði upp á
504.000 og sagði verktakinn að
hluti skýringarinnar á háu verði
væri sá að hann hefði keyrt grúsina
í næturvinnu og þurft að fara frá
öðru verki til að sinna þessu.
Dómkvaddur matsmaður taldi að
sanngjarnt endurgjald fyrir þjón-
ustu verktakans væri 267.000 krón-
ur og undir það tók dómurinn.
Verktakinn tapaði því málinu og
þarf að auki að punga út 744.000
krónum sem var málskostnaður
sumarbústaðareigandans.
Grúsardeilan
reyndist dýr
RÚMLEGA tvítugur maður var í
gær dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi fyrir ýmis afbrot sem flest,
ef ekki öll, voru framin undir áhrif-
um fíkniefna. Hann á marga svip-
aða dóma að baki.
Að kvöldi mánudagsins 23. apríl
stal hann bíl í Njarðvík. Næsta
morgun spurðist til hans þegar
hann stal gluggum og hurð úr gámi
við einingaverkmiðju í bænum og
því næst við Krýsuvíkurkirkju þar
sem hann stal sálmabók og Biblíu.
Þegar lögregla sá til hans á Krýsu-
víkurvegi reyndi hann að stinga af
en hann var þá undir áhrifum am-
fetamíns, metamfetamíns, kannabis
og kókaíns. Ók hann m.a. á öfugum
vegarhelmingi og öfugum megin
við umferðareyju. Síðar um sum-
arið var hann tvívegis stöðvaður
við akstur, í annað skiptið undir
áhrifum amfetamíns, að því er segir
í dómi Héraðsdóms Suðurlands.
Stal úr kirkju
og stakk af
ALLT útlit er fyrir góða færð á veg-
um um land allt í dag og ekki vitað
um ófæra vegi, að sögn Kolbrúnar
Benediktsdóttur, þjónustufulltrúa
hjá Vegagerðinni. Hún segir Vega-
gerðina munu verða með þjónustu
alla páskana, þ.m.t. á föstudaginn
langa og á páskadag. Kolbrún vill
ekki spá um færð næstu helgi, en
segir mikið þurfa að breytast eigi
færðin að verða slæm í dag.
Hún segir Vegagerðina hafa mest-
ar áhyggjur af morgundeginum,
skírdegi, þegar spáð sé allhvassri
norðanátt. Því beri að fylgjast með
færð á vegum á morgun.
Almennt búist
góðu flugveðri
Innt eftir veðurskilyrðum til flugs
um helgina segir Sibyllé von Löwis,
veðurfræðingur hjá Veðurstofunni,
reiknað með að flugsamgöngur verði
greiðar um páskana nema hvað flug
til Akureyrar kunni að raskast síð-
degis á skírdag vegna snjókomu.
Á skírdag sé spáð hvassri norðan-
átt sem gangi niður undir kvöldið.
Snjókoma og skafrenningur norðan-
lands sem dragi úr um kvöldið. Færð
gæti spillst norðan til á landinu. Á
föstudaginn langa sé reiknað með
fremur hægri vestlægri átt, en élja-
gangi norðaustan- og austanlands
með strekkingsvindi framan af degi.
Á laugardag sé spáð fremur hægri
suðlægri eða breytilegri átt. Rigning
eða slydda um vestanvert landið en
annars úrkomulítið. Á páskadag sé
spáð hægri norðlægri eða breytilegri
átt, dálitlum éljum norðan til en ann-
ars skýjað með köflum. Annan í
páskum sé spáð úrkomulitlu veðri og
hægri austanátt.
Spá góðri færð
og mikilli umferð
Gæti versnað með morgundeginum
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
ökumann fyrir of hraðan akstur
rétt fyrir hádegi í gær, en hann ók
á 137 km hraða á Eyrarbakkavegi,
sunnan við Selfoss.
Að sögn lögreglunnar er 90 km
hámarkshraði þarna og á ökumað-
urinn von á 90.000 króna sekt fyrir
hraðaksturinn.
Stöðvaður á
137 km hraða