Morgunblaðið - 19.03.2008, Side 4

Morgunblaðið - 19.03.2008, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is HITAVEITA Suðurnesja hefur farið fram á það við skipulags- yfirvöld í Hafnarfirði að hverf- isvernd verði aflétt af Hvera- hvammi í Hveradölum og við Austurengjahveri austan Krýsu- víkur og svæðunum breytt í iðn- aðarsvæði. Stjórn Reykjanes- fólkvangs hefur lagst gegn afléttingu friðlýsingarinnar, mik- ilvægt sé að jarðhitamyndunum svæðanna verði ekki raskað. Hitaveitan hyggst hefja til- raunaboranir á þessum svæðum og til þess að af því geti orðið verður að fara fram breyting á að- alskipulagi Hafnarfjarðar í Krýsu- vík og liggur nú beiðni þess eðlis fyrir skipulags- og byggingarráði bæjarins. Fara verði gætilega Umhverfisráðuneytið staðfesti aðalskipulag fyrir Krýsuvíkur- svæðið árið 2007 með hverf- isvernd fyrir bæði svæðin og í um- sögn stjórnar Reykjanesfólk- vangs, sem skipulagsráð Hafnarfjarðar óskaði eftir, er lagst gegn afléttingu friðunar- innar. Í umsögninni segir m.a. að Hverahvammur sé litríkt hvera- svæði og kjörið fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu, fyrirhugað sé m.a. að leggja göngustíg um svæðið í Seltún sem gæti orðið vinsæl gönguleið. Nýting svæðisins til orkuvinnslu gæti orðið vandasöm og skyggt á uppbyggingu á sviði fræðslu og ferðaþjónustu. Svæðið við Austurengjahveri austan Krýsuvíkur sé ósnortið svæði og hefðu framkvæmdir í för með sér mikið rask. „Við leggjumst engan veginn gegn framkvæmdinni og í sam- komulaginu um fólkvanginn er gert ráð fyrir nýtingu jarðvarma svo það hefur alltaf verið vitað að til þessa kæmi,“ segir Ásta Þor- leifsdóttir, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og for- maður stjórnar Reykjanesfólk- vangs. „Við teljum hiklaust að hægt sé að vernda náttúruna sam- hliða því að nýta orkulindirnar, það fer bara ekki vel saman á sama svæðinu,“ segir Ásta. Mikilvægt sé að fara að öllu með gát og að besta fáanleg tækni verði notuð við borunina. Í um- sögn Reykjanesfólkvangs var lögð til svokölluð skáborun, sem beitt er til að kanna neðri jarðlög án þess að raska yfirborði verð- mætra náttúruverndarsvæða. Með þeirri bortækni væri hægt að bora yfir 1.000 metra til hliðar frá bor- stæðinu og því sér stjórnin ekki ástæðu til að fella niður hverfis- verndarákvæði umræddra svæða. Gísli Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, segir að umsögn Reykjanesfólkvangs hafi ekki enn verið tekin fyrir í ráðinu en það verði væntanlega gert á næstunni. Skáborun verði beitt Gísli segir að í síðustu viku hafi verið farin vettvangsferð um Krýsuvík með bæjarstjórn Hafn- arfjarðar, skipulags- og bygging- arráði, umhverfisnefnd og fleiri aðilum, þar sem litið var á að- stæður ásamt fulltrúum Hitaveitu Suðurnesja. „Í vettvangsferðinni kom skýrt fram hjá verkfræðingi Hitaveitu Suðurnesja að þeir muni nota skáborun og við fögn- um því,“ segir Gísli. Hann segir óhjákvæmilegt að aðalskipulaginu verði breytt fái Hitaveita Suð- urnesja leyfi til tilraunaboran- anna. Ef til kæmi yrði einnig að aflétta friðuninni, það yrði þó að- eins á þröngu svæði. Jarðvarmaboranir í Krýsuvík Reykjanesfólkvangur gegn afnámi friðlýsingar, skáboranir fýsilegastar                                             Eftir Óla Má Aronsson Hella | Yfirstjórn Landgræðslunnar hefur ákveðið í samræmi við áherslur umhverf- isráðherra að leita allra leiða til orkusparn- aðar og hagræðingar í rekstri stofnunar- innar. Ein leið í þeirri viðleitni er að þeir starfs- menn sem mest aka á vegum Landgræðsl- unnar fari á sérstakt spar- og vistakst- ursnámskeið hjá Grétari H. Guðmundssyni ökukennara sem er með sérstakt tæki sem kemur að góðum notum við kennsluna. Ökukennarafélag Íslands hefur haft for- göngu um að koma á þessum námskeiðum. Gert er ráð fyrir að allt starfsfólk Land- græðslunnar sæki bóklegt námskeið í vist- akstri og þeir sem mest aka fari einnig í akstursæfingar. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri sýndi gott fordæmi og fór í akstursæfingar hjá Grétari. Aðspurður sagði Sveinn að nám- skeiðið væri tvímælalaust einföld og góð leið til að tileinka sér hagkvæmt aksturslag. Ef ökumenn tileinka sér ráðlagt ökulag má ná fram miklum sparnaði í eldsneytisnotkun. „Þessar miklu verðhækkanir á eldsneyti að undanförnu koma harkalega niður á rekstri stofnunarinnar,“ sagði Sveinn, en eðli málsins samkvæmt þarf starfsfólk Land- græðslunnar að aka mikið í samskiptum við almenning um allt land. Grétar taldi að landgræðslustjóri hefði staðið sig með miklum ágætum í akstrinum. Landgræðslan sparar Morgunblaðið/Óli Már Vistakstur Sveinn Runólfsson fékk afhent viðurkenningarskjal um árangur í ökuferðinni frá Grétari H. Guðmundssyni ökukennara. ÁRIÐ 2007 fæddust 4.560 börn hérlendis, 2.359 drengir og 2.201 stúlka. Það eru fleiri börn en árið áður, en þá fæddust hér 4.415 börn. Frjósemi ís- lenskra kvenna var heldur meiri árið 2007 en nokkur síðustu ár en hún er reiknuð sem fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu (uppsafnað frjó- semishlutfall), sam- kvæmt upplýsingum á vef Hagstofunnar. Árið 2007 mældist frjósemi hérlendis 2,1 barn á ævi hverrar konu, samanborið við 2,07 börn árið 2006 og 2,05 börn árið 2005. Undanfarna tvo áratugi hefur frjó- semi hérlendis verið í kringum 2 börn á ævi hverrar konu að meðaltali. Ef horft er til þróunarinnar á tuttugustu öldinni var frjósemi hérlendis afar mikil í evrópsku samhengi á sjötta áratug aldarinnar. Há- marki náði frjósemin í lok sjötta áratug- arins og upphafi þess sjöunda en þá gátu íslenskar konur vænst þess að eiga 4,1 barn um ævina. Frjósemi á Íslandi er nú meiri en annars staðar í Evrópu, að Tyrklandi und- anskildu. Fleiri drengir en stúlkur UNDIRBÚNINGUR er nú hafinn að næstu Vetrarhátíð sem haldin verður dagana í febr- úar á næsta ári. Í ljósi þess hvað vind- ar blésu hressilega um landann á síðustu Vetr- arhátíð hefur verið ákveðið að hætta að líta á vindinn sem vandamál, heldur á að líta á hann sem samstarfsaðila. Þemað fyrir næstu Vetrarhátíð mun því tengjast vindum á einhvern hátt – roki, byr, blæstri, stormi, gjólu og kalda. Í framhaldi af því er verið að setja í gang nokkur verkefni tengd vindinum: Vind- orgel, vindhanaslag og vindknúinn kólf fyrir sérstaka vetrarhátíðarklukku. Þeim sem luma á góðum hugmyndum fyrir næstu Vetrarhátíð er bent á að senda póst til Höfuðborgarstofu á netfangið vetrarhatid@vetrarhatid.is Virkja vindinn á vetrarhátíð Vetrarhátíð Harm- onikkuleikarinn Elnara Shafigullina. Á SAMA tíma og frjósemi hefur minnkað hefur meðalaldur mæðra hækkað og kon- ur eignast sitt fyrsta barn síðar en áður var. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yf- ir 1980 var meðalaldur frumbyrja 22 ár en eftir miðjan níunda áratug- inn og til dagsins í dag hefur meðalaldur frum- byrja hækkað og var 26,6 ár árið 2007. Barneignaraldur hér- lendis lækkaði jafnt og þétt frá aldamótunum 1900 fram undir 1960 en eftir það hefur mæðrum í yngstu aldurshópunum fækkað. Ef einstakir ald- urshópar mæðra eru skoðaðir sést að al- gengasti barneignaraldurinn nú er á milli 25 og 29 ára. Á því aldursbili fæddust 128 börn á hverjar 1.000 konur árið 2007. Næstalgengast er að konur eignist börn á bilinu 30-34 ára. Aldursbundin fæðing- artíðni undir tvítugu er nú afar lág og hið sama má segja um fæðingartíðni meðal kvenna yfir fertugu. Hærri meðal- aldur mæðra RÉTT rúmur þriðjungur þeirra barna sem fæddust árið 2007 (36,2%) var fæddur inn- an hjónabands, sem er lágt hlutfall ef mið- að er við önnur Evrópulönd. Hlutfall þeirra barna sem áttu foreldra í óvígðri sambúð var 49,3%. Hlutfall þeirra barna sem áttu foreldra sem ekki voru skráð í sambúð var 14,4% árið 2007, sem er svipað hlutfall og árið áður. Rúmur þriðjungur innan hjónabands „ÉG deili þeirri skoðun með Ástu að það er ákjósanlegt að skoða hvort við getum farið meira ofan í jörðina með raf- línur,“ sagði Kjartan Magn- ússon, formaður stjórnar Orku- veitu Reykjavíkur, um þau um- mæli Ástu Þorleifsdóttur, varafor- manns OR, að tími háspennulína sé liðinn og leggja eigi raflínur í jörðu. Kjartan sagði að það yrði að skoða hvert tilfelli fyrir sig með til- liti til kostnaðar, vegalengdar og umhverfisáhrifa. „Ég er alveg sammála henni um það að í svona lögnum eigum við að líta meira til umhverfisáhrifa en gert hefur ver- ið.“ Kjartan sagðist telja að Orku- veitan hafi verið að auka vægi um- hverfissjónarmiða í línulögnum. Nesjavallalínan lægi t.d. að hluta sem loftlína og að hluta sem jarð- strengur um þéttbýl svæði. Við tengingu virkjana á Hengilssvæð- inu við landskerfið hefði verið reynt að leggja jarðstrengi á við- kvæmum svæðum til að draga úr umhverfisáhrifum línulagnarinnar. Línur fari meira í jörðu Kjartan Magnússon OPNUNARHÁTÍÐ Blúshátíðar í Reykjavík var formlega haldin á Hilton Reykjavík Nordica í gær, en hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Heiðursfélagi Blúshátíðarinnar var formlega kynntur við setn- inguna í gær, en það var trommuleikarinn Ásgeir Óskarsson sem varð fyrir valinu að þessu sinni. „Ég átti alls ekki von á þessu, það eru venjulega gítar- eða munnhörpuleikarar sem fá þetta,“ segir Ásgeir sem fékk forláta trommusett að launum. „Þetta er mjög gott trommusett, og maður á aldrei nóg af þeim,“ segir Ásgeir sem tók að sjálfsögðu í settið á opnunarhátíðinni. Þótt Ásgeir sé hvað þekktastur sem trommari Stuðmanna og Þursaflokksins hefur hann alltaf fengist við blús meðfram poppinu. Ásgeir gerður heiðursfélagi Blúshátíð í Reykjavík hófst í gær Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.