Morgunblaðið - 19.03.2008, Page 6

Morgunblaðið - 19.03.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SUNDAGÖNG eru valkostur varðandi fyrsta áfanga Sundabrautar og tengingu hennar við gatnakerfi Reykjavíkurborgar vestan Klepps- víkur. Hugmyndin er að göngin liggi frá Laug- arnesi í vestri, undir Kleppsvíkina og opnist að austan í Gufunesi. Nú er tillaga að matsáætlun Sundaganga og svonefndrar eyjalausnar, sem er annar valkostur varðandi þennan fyrsta áfanga Sundabrautar, til skoðunar hjá Skipu- lagsstofnun. Sundabraut á að tengja borgina við hringveginn ofan við Kollafjörð. Fyrsti áfangi á að ná frá Sæbraut í Gufunes. Með Sundabraut mun vegalengdin frá miðbænum í Geldinganes styttast um fjóra km. Verði Sundagöng gerð verða þau fyrstu jarðgöng hér á landi þar sem umferð er meiri en 10.000 ökutæki á dag. Því verða strax byggð tvenn jarðgöng með tveimur akreinum hvor. Áætluð heildarlengd Sundaganga er um 3.800 metrar og verða vegskálar tveir á hvor- um enda. Tveggja akreina vegskáli á að vera á sjö hektara landfyllingu við Laugarnes og þriggja akreina vegskálar í Gufunesi. Einnig verða vegskálar við tengingar ganganna við Klettagarða og Sæbraut. Heildarkostnaður við gerð Sundaganga er áætlaður 24 milljarðar króna. Undirbúningur og framkvæmd gang- anna eru talin munu taka 5-6 ár. Hvalfjarðargöng lengri en Sundagöng Til samanburðar eru Hvalfjarðargöngin og vegskálar þeirra samtals 5.770 metra löng. Gerð Hvalfjarðarganganna hófst 1996 og lauk í júlí 1998 þegar göngin voru opnuð fyrir um- ferð. Nú fara að meðaltali um 5.500 bílar um Hvalfjarðargöng á sólarhring. Hönnun gang- anna miðaðist við 5.000 bíla á sólarhring en með ýmsum öryggisráðstöfunum hefur tekist að láta þau anna meiri umferð. Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hefur nú haf- ið undirbúning að gerð nýrra ganga við hlið þeirra sem fyrir eru. Gerðar hafa verið rann- sóknarboranir undanfarið í því skyni að kanna jarðlög þar sem ný göng verða væntanlega grafin. Vonast er til að niðurstöður borananna geri kleift að grafa nýju göngin grynnra en nú- verandi göng. Með því yrðu nýju göngin styttri, ódýrari og veghallinn upp úr þeim minni en er í Hvalfjarðargöngum eldri.                                                                             !           !""#$    %    Áætlað er að Sundagöng verði tvöföld          "    #      $ %%   ! &   '(    !                    !     "  #      $ %      &%' ((            !""#$    %    INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra átti fund með hér- aðsstjórann í Maymana í Norð- vestur-Afganistan í gærdag. Samkvæmt upplýsingum frá Urði Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa ut- anríkisráðuneytisins, var um mjög áhugaverðan fund að ræða þar sem héraðsstjórinn kallaði skýrt eftir því að alþjóðaliðið yrði áfram í landinu og styddi yfirvöld í hér- uðunum beint. „Hann lagði þannig mikla áherslu á að fá aðstoð við uppbyggingu landbúnaðar í hér- aðinu,“ segir Urður. Tilgangur heimsóknar utanrík- isráðherra til borgarinnar Maym- ana var, að sögn Urðar, einnig að skoða þau þróunarverkefni sem Ís- lendingar hyggjast styðja. Ingibjörg átti fundi með kvenna- málaráðherra og varautanrík- isráðherra Afganistans í gær þar sem staða kvenna í landinu var rædd sem og aðkoma Íslendinga að uppbyggingarstarfinu í landinu. Undir lok kvölds bauð hún síðan afgönskum áhrifakonum til kvöld- verðar til þess að fá tækifæri til þess að heyra þeirra sjónarmið. Að sögn Urðar var um að ræða afganskar þingkonur, framakonur, athafnakonur, forsvarsmenn frjálsra félagasamtaka og hershöfð- ingja. „Ingibjörg átti svipaðan kvöldverð þegar hún var í Palest- ínu á síðasta ári og henni þótti mjög áhugavert að heyra hlið kvennanna í þessu umhverfi,“ segir Urður. Óskaði aðstoðar við upp- byggingu í Maymana NORÐURÁL hefur sent frá sér yf- irlýsingu þess efnis að fyrirhugað ál- ver í Helguvík nýti aðeins um þriðj- ung af lausum heimildum til losunar gróðurhúsalofttegunda. Það sé því misskilningur að álver í Helguvík hindri framgang annarra verkefna sem háð eru losunarheimildum. Ágúst Hafberg er framkvæmda- stjóri hjá Norðuráli og segir óþarfa misskilnings hafa gætt í umræðunni undanfarið, en hann telur fyrirsjáan- legt að þau verkefni sem nú er unnið að muni ekki ná að nýta að fullu þær losunarheimildir sem Ísland hefur skv. alþjóðlegum sáttmálum og því fari fjarri að Helguvíkurálver standi öðrum fyrir þrifum. Í tilkynningu Norðuráls er það einnig nefnt að álvinnsla í Helguvík losi mun minna magn gróðurhúsa- lofttegunda en ný álver í Kína og endurræst eldri álver í Bandaríkjun- um sem fá flest orku úr kolaorkuver- um: „Munar um að álverið í Helguvík fær hreina íslenska orku, og einnig mun starfsemin í Helguvík, eins og önnur íslensk álver, losa mun minna af gróðurhúsalofttegundum en með- alálver erlendis,“ sagði Ágúst. Álvinnsla í Helguvík mun þurfa um 637.000 tonn af losunarkvóta, en Ágúst nefnir að sambærileg ál- vinnsla í Kína myndi losa rúmlega fimm milljónir tonna á því tímabili sem um ræðir. Hindrar ekki framgang ann- arra verkefna Morgunblaðið/Ómar Iðnaður Forsvarsmenn Norðuráls segja álver í Helguvík aðeins nýta þriðj- ung lausra losunarheimilda og menga mun minna en meðalálver. ÍSLENSKA rík- ið hefur fengið spurningalista frá Mannrétt- indadómstóli Evrópu vegna máls sem Jónína Benediktsdóttir rekur fyrir dómnum en hún telur að íslenskir dómstólar hafi brotið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu þegar þeir staðfestu ekki lögbann á birtingu Fréttablaðsins á tölvupósti hennar haustið 2005. Jónína telur að með þessu hafi verið brotið gegn 8. grein sáttmál- ans sem kveður á um að sérhver maður eigi rétt til friðhelgi einka- lífs, fjölskyldu, heimilis og bréfa- skipta. Í dómi Hæstaréttar Íslands var fallist á það sjónarmið 365-Prent- miðla að ekki hefði verið gengið nær einkalífi Jónínu en óhjá- kvæmilegt væri í opinberri um- ræðu um málefni sem varðaði al- menning. Jónína Benediktsdóttir Spurt um birtingu FUNDUR var haldinn í Verðlags- nefnd búvara í gær um hugsanlega verðbreytingu á mjólk. Engin nið- urstaða varð á fundinum, en nýr fundur hefur verið boðaður í næstu viku. Kúabændur hafa óskað eftir hækkun á verði til bænda Miklar hækkanir hafa orðið á að- föngum mjólkurframleiðenda, sér- staklega kjarnfóðri og áburði. Kúa- bændur hafa óskað eftir að nefndin taki tillit til þessara breytinga og hækki verð til bænda. Nefndin hefur fylgt þeirri reglu í mörg ár að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Ekki liggur fyrir hvort það verður að þessu sinni. Ræða hækk- un á mjólk ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.