Morgunblaðið - 19.03.2008, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með þroska-
hömlun | Félagsmiðstöðin Aflagranda 40
er opin kl. 17-22, spilakvöld.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30-9.15,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmálning
kl. 9-12 og 13-16.30, páskaeggjabingó kl.
14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handavinna,
smíði/útskurður kl. 9-16.30, heilsugæsla
kl. 10-11.30. Uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Rútuferð frá Bólstað-
arhlíð kl. 13.15 í Háskólabíó á myndina
Brúðguminn kl. 14. Hárgreiðsla, böðun, al-
menn handavinna, morgunkaffi/dagblöð,
glerlist, fótaaðgerð, hádegisverður, spila-
dagur, kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan Gullsmára 9 er opin kl. 10-11.30.
Sími 554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er
opin kl. 15-16. Sími 554-3438. Félagsvist
er í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Skráning er hafin í 8 daga sögu-
ferð til Kaupmannahafnar – Wroclaw
(Breslá) og Berlínar 7.-14. maí. Nánari
uppl. og skráning hjá Söguferðum/
Þorleifi Friðrikssyni s. 564-3031 og í síma
554-0999, Þráinn.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4,
kl. 10, söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður
Jónsson og Helgi Seljan. Söngfélag FEB
æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi við til kl. 17,
glerlistarhópar kl. 9.30 og kl. 13. fé-
lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16,
bobb kl. 16.30 og samkvæmisdans undir
stjórn Sigvalda kl. 18-20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður, postu-
línsmálun og kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Engin kvennaleikfimi í dag, brids og búta-
saumur kl. 13. Miðar á 40 ára afmæl-
ishátíð félags eldri borgara í Hafnarfirði
25. mars, seldir í Jónshúsi í dag kl. 13-15,
1.000 kr. Lokað í Jónshúsi og Smiðjunni
fram yfir páska.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16, m.a. fjölbreytt handavinna
og tréútskurður, sund og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug kl. 9.50, dansæfing kl. 10.
Frá hádegi spilasalur opinn. Starfsemi
fellur niður á skírdag, föstudaginn langa
og annan páskadag. Sími 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-16.30,
útskurður kl. 9-12, ganga kl. 10.15, hádeg-
ismatur, brids kl. 13, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt á Keil-
isvelli kl. 10, almenn handmennt og línu-
dans kl. 11, handmennt kl. 13, pílukast kl.
13.30, Gaflarakórinn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9-16 hjá Sigrúnu, páskaskraut, glermálun
o.fl. Jóga kl. 10. Samverustund kl. 10.30,
lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Há-
degisverður. Hársnyrting. Gleðilega
páska. Hittumst þriðjudaginn 25. apríl.
Hæðargarður 31 | Tölvukennsla, Íslands-
söguspjall, myndlist, bókmenntir, fram-
sögn og framkoma, Bör Börson, söngur,
páfagaukar, hláturhópur, Skapandi skrif,
postulín, Þegar amma var ung, hug-
myndabanki, Müllersæfingar, nýstárleg
hönnun fermingarkorta, Vorferð á vit
skálda o.fl. Sími 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu í
Dalsmára kl. 9.30, ringó í Smáranum kl.
12. Uppl. í síma 564-1490.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl. 9.15-
16, handavinna kl. 10-12, sund kl. 11.45, há-
degisverður, verslunarferð í Bónus kl. 13-
16, tréskurður kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opin allan daginn, versl-
unarferð kl.12.30, upplestur kl. 12.30,
bókband kl. 13, dans kl. 14 við undirleik
harmónikkuhljómsveitar, uppl. í síma 411-
9430
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9, sal-
urinn opinn og ganga kl. 13, boccia kl. 14.
kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safn-
aðarsal milli kl. 11 og 12.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti kl. 10-12. Opið hús eldri borgara
í Litlakoti kl. 13-16, spilað og spjallað.
Bæna-/kyrrðarstund á leikskólanum
Holtakoti í kl. 20-21.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili eftir stundina.
Bústaðakirkja | Emmaus-námskeiðið um
lífið og trúna hefst eftir páska og er ætl-
að öllum þeim sem áhuga hafa á krist-
indómnum eða vilja dýpka skilning sinn á
kristinni trú. Námskeið hefst fimmtudag-
inn 27. mars og stendur til 1. maí, kl.
19.30-21 og er öllum opið og þátttak-
endum að kostnaðarlausu. Skráning fer
fram í Bústaðakirkju í síma 553-8500.
Digraneskirkja | Alfanámskeið kl. 19.
www.digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10. Léttur
hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir.
Bænarefnum má koma á framfæri í síma
520-9700 eða með tölvupósti til dom-
kirkjan@domkirkjan.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl.
20. Kennsla, tónlist og samvera.
Grafarvogskirkja | Birgir Ármannsson
alþingismaður les 31. passíusálm kl. 18.
Kyrrðarstund kl. 12-13. Fyrirbænir og alt-
arisganga, léttur hádegisverður að lok-
inni stundinni. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18
í Rimaskóla og Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldraðra,
matur og spjall kl. 12. Farið verður frá
kirkjunni kl. 13.30, í föstuguðsþjónustu í
Breiðholtskirkju sem hefst kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga. Morgunverður í
safnaðarsal eftir messuna.
Hallgrímskirkja í Saurbæ | Íhug-
unarsamvera verður föstudaginn langa
kl. 20. Heimamenn lesa píslarsöguna og
valda Passíusálma Hallgríms. Kór Saur-
bæjarprestakalls syngur undir stjórn
Arnar Magnússonar organista. Prestur
sr. Skírnir Garðarsson.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna-
stund kl. 12-13, skrifstofan lokar á meðan,
unglingafræðsla kl. 17.30, fjölskyldu-
samvera kl. 18, létt máltíð gegn vægu
gjaldi, biblíukennsla kl. 19, „Royal Rang-
ers“ skátastarf fyrir 5 ára og eldri.
Íslenska Kristskirkjan | Samkirkjuleg út-
varpsguðsþjónusta á skírdag kl. 11, Fossa-
leyni 14. Unglingakór Grafarvogskirkju,
Svava Ingólfsdóttir og Gróa Hreinsdóttir
sjá um tónlistina. Konur flytja bænir frá
Gvæjana og Svanhildur Sigurjónsdóttir
flytur hugleiðingu. Prestur sr. María
Ágústsdóttir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl. 20.
Margrét Hróbjartsdóttir sýnir myndir frá
ferð sinni til Eþíópíu í desember sl. Ræðu-
maður er Benedikt Jasonarson. Kaffi eft-
ir samkomu.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn kl.
10, sr. Hildur Eir leiðir starfið. Gönguhóp-
urinn Sólarmegin leggur upp frá kirkju-
dyrum kl. 10.30, létt ganga og fólk hvatt
til að slást í för. Kirkjuprakkarastarfið
tekur páskafrí í dag.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús
kl. 15, Örn Bárður Jónsson talar um ann-
að rit læknisins Lúkasar í Nýja testa-
mentinu, Postulasöguna. Kaffiveitingar á
Torginu.
Vegurinn | Páskamót. Opnunarsamkoma
kl. 20, Högni Valsson prédikar, lofgjörð,
fyrirbæn. Samfélag í kaffisal á eftir.
www.paskamot.com
90 ára afmæli. Níræður erí dag, 19. mars, Valdi-
mar Þórðarson húsasmíða-
meistari, frá Ásmund-
arstöðum í Rangárvallasýslu,
nú til heimilis á Heiðarvegi 4,
Selfossi. Valdimar verður að
heiman á afmælisdaginn.
Brúðkaup | Áslaug Hauksdóttir og
Þórður Steinar Árnason voru gefin
saman 26. febrúar síðastliðinn af Ernal
G. Willis á Sunset Jamaica Grande í
Ocho Rios, Jamaica.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 19. mars, 79. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8, 21)
Námskeiðið Vinnusálfræðiog samskipti á vinnustaðverður í boði hjá Endur-menntun Háskóla Íslands
í apríl.
Kennsla er í höndum Guðfinnu Ey-
dal og Álfheiðar Steinþórsdóttir sér-
fræðinga í klínískri sálfræði, en þær
hafa haldið samskonar námskeið um
nokkurra ára skeið.
„Mikil vakning hefur orðið hér á
landi síðustu ár um gildi þess að efla
samskiptaþáttinn í starfi,“ segir Guð-
finna „Þótt verkefnaþáttur starfsins
sé alltaf mikilvægur þá er velgengni
fyrirtækis og líðan starfsmanna mjög
háð því að samskiptin séu í lagi. Í
vinnusálfræði er unnið með hið sál-
fræðilega umhverfi á vinnustaðnum,
hvað hefur áhrif á jákvætt andrúms-
loft og hvað veldur togstreitu og
spennu í samskiptum. Áhersla er lögð
á hvernig má bæta samskipti á vinnu-
stað og stuðla að betri vinnuanda.“
Guðfinna segir samskipti á flestum
vinnustöðum vandasöm og flókin: „Á
námskeiðinu kennum við svokallað
boðgreiningarlíkan: samskiptalíkan
sem gagnast fólki bæði til að túlka
eigin samskiptamynstur og annarra,
koma auga á styrkleika og veikleika.
Með því að tileinka sér líkanið er
auðveldara að leysa samskiptamál á
farsælan hátt, auka samstarfshæfni
þátttakenda og þjálfa viðbrögð sem
leysa ágreining og deilur.“
Sniðið að þörfum nemenda
Námskeiðið fer fram í formi fyr-
irlestra og verkefna: „Það er mjög
misjafnt efir starfshópum hvað er í
brennidepli og reynum við í upphafi
námskeiðs að fá innsýn í hvað helst
brennur á þátttakendum. Reynt er að
taka mið af þeim atriðum á nám-
skeiðinu,“ segir Guðfinna. „Stundum
getur verið um að ræða vissa álags-
þætti vegna eðlis starfsins, eitthvað í
samskiptum stjórnenda og undir-
manna eða í innbyrðis samskiptum
hjá þeim sem starfa þétt saman.
Stundum vantar meiri vinnugleði og
áhuga“.
Námskeiðið verður haldið dagana
1., 3. og 8. apríl, kl. 9 til 12 í hvert
skipti. Finna má nánari upplýsingar
um námskeiðsgjöld og skráningu á
heimasíðu Endurmenntunar,
www.endurmenntun.hi.is.
Símenntun | Námskeið hjá Endurmenntun hí um vinnusálfræði í apríl
Lykill að liprum samskiptum
Guðfinna Eydal
lauk embættisprófi
í sálfræði frá
Kaupmannahafn-
arháskóla 1975.
Sálfræðingur við
sálfræðideild skóla
í Reykjavík 1976-
78. Sérfr. í klín-
ískri sálfræði frá
1992 og hefur auk kennslustarfa unn-
ið við Foreldraráðgjöfina 1979-83 og
við rannsóknir á Heilsuverndarstöð
Rvk. Hún sat í Barnaverndarráði Ísl.
1979-83 og 91-02. Frá 2002 hefur Guð-
finna setið í kærunefnd barnavernd-
armála og hefur frá 1983 rekið eigið
fyrirtæki Sálfræðistöðina.
Tónlist
DOMO Bar | ASA tríó leikur á Múlanum kl. 21.
Tríóið skipa; Andrés Þór, gítar, Scott McLemore,
trommur og Agnar Már. Efnisskráin sam-
anstendur af eigin tónsmíðum, lögum úr smiðju
Coltrane, Fiona Apple, Red Hot Chili Peppers,
Jimi Hendrix o.fl.
Sauðárkrókskirkja | Páll Óskar Hjálmtýsson og
Monica Abendroth leika og syngja tónlist á skír-
dagskvöld kl. 20.30. Í hléi verður altarisganga
þar sem brotið verður nýbakað brauð og bergt
á vínberjum. Enginn aðgangseyrir.
Fyrirlestrar og fundir
Dýraverndarsamband Íslands | Aðalfundur
verður haldinn í Brekknaási 9 (dýrahóteli), Rvk.,
25. mars kl. 18. Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir og tilkynningar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Mat-
arúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Sími 551-4349,
netfang maedur@simnet.is
Frístundir og námskeið
Nýsköpunarmiðstöð Íslands | Námskeið í verk-
efnastjórnun „Lykill að árangri í verkefnun er
kunnátta í stjórnun verkefna“, verður 27. og
28. mars kl. 9-13. Fjallað um grundvallaratriði
verkefnastjórnunar og kenndar aðferðir sem
koma að góðum notum, hvort heldur er innan
fyrirtækja, stofnana eða hjá félagasamtökum.
Börn
Páskaeggjaleit í Elliðaárdalnum og á Ægisíðu
| Árleg páskaeggjaleit við gömlu rafstöðina og
við grásleppuskúrana á Ægisíðu verður laug-
ardaginn 22. mars kl. 14 á báðum stöðum. Allir
velkomnir, félög sjálfstæðismanna í Árbæ,
Breiðholti og Nes- og Melahverfi.
FRÉTTIR
NÚ um páskana leggja margir
landsmenn land undir fót. Af því
tilefni vill Slysavarnafélagið
Landsbjörg vekja athygli á
nokkrum góðum ferðareglum
sem rétt er að hafa í huga áður
en lagt er af stað í ferð um land-
ið, sama hvort er á láglendi eða
hálendi, með það að markmiði að
koma í veg fyrir slys.
Ef ferðast er um láglendið:
Fylgist með veðurspá
Farið yfir hjólbarðana og
hreinsið tjöru af þeim
Verið viss um að rúður séu
hreinar, sólin er lágt á lofti og
blindar auðveldlega
Stillið aksturshraðann miðað
við aðstæður en þó aldrei um-
fram hámarkshraða
Munið að akstur og áfengi
fara ekki saman
Hafið beltin spennt og tryggið
öryggi barnanna
Ef ferðast er um hálendið:
Fylgist með veðurspá
Gerið ferðaáætlun og skiljið
hana eftir hjá aðstandendum
Kynnið ykkur vel það svæði
sem ferðast á um
Hafið í huga að mikið er af
krapa á stórum svæðum þessa
dagana og margir hafa lent í
vandræðum þar undanfarið
Hafið með góðan hlífðarfatnað
Takið með sjúkragögn og neyð-
arfæði
Fjarskipti þurfa að vera í lagi,
gps, kort, áttaviti og talstöð/sími
og kunnátta verður að vera til
staðar til að nota þau
Verið viss um að farartækið sé
í góðu ásigkomulagi áður en lagt
er af stað
Ferðist ekki einbíla
Takið með grunnviðgerðardót
fyrir farartækið og festið allan
farangur
Munið að akstur og áfengi
fara ekki saman
Ef ferðast er í bíl: spennið
beltin og tryggið öryggi
barnanna og notið hjálma, brynj-
ur og annan hlífðarfatnað ef far-
ið er um á vélsleða eða skíði
Betra er að snúa við í tíma en
að koma sér í ógöngur
Gefur ráðleggingar
fyrir páskaferðalögin
NÝ hvítasunnukirkja hefur
starfsemi sína á höfuðborg-
arsvæðinu á páskadag.
Nýja kirkjan hefur fengið
heitið Mózaik og vísar þar til
þess fjölbreytileika og gjafa sem
hver og einn einstaklingur hefur
fram að færa við uppbyggingu
safnaðar í kirkju Krists, segir í
fréttatilkynningu.
Prestar nýju kirkjunnar,
verða Halldór N. Lárusson og
Theodór Birgisson. Stofn-
samkoma Mózaik verður eins og
áður segir á páskadag og hefst
hún kl.14:00 í Háborg, Stang-
arhyl 3A. Vörður Leví Trausta-
son, hirðir Hvítasunnukirkj-
unnar á Íslandi og prestur
Hvítasunnukirkjunnar Fíla-
delfíu, mun flytja ávarp og bless-
unarorð. Stofnsamkoman er öll-
um opin.
Hvítasunnukirkjan á sér langa
sögu á Íslandi og var fyrsta
kirkjan stofnsett í Vest-
mannaeyjum árið 1926. Hvíta-
sunnukirkjan Fíladelfía, fyrsti
og eini Hvítasunnusöfnuðurinn á
Reykjavíkursvæðinu fram til
þessa, var síðan sett á laggirnar
árið 1936. Alls eru söfnuðir
Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi
nú 18 talsins. Vöxtur kirkjunnar
hefur verið mikill undanfarin ár
og er nú svo komið að færa þarf
út kvíarnar til að sinna aðkall-
andi verkefnum og þjónustu við
íbúa á höfuðborgarsvæðinu, seg-
ir í tilkynningunni.
Ný hvíta-
sunnukirkja
hefur starf-
semi
RÁÐSTEFNA um þjóðfélags-
fræði, ,,Líf og störf í byggðum
landsins“; verður haldin að Hól-
um í Hjaltadal dagana 28. til 29.
mars. Fluttir verða yfir 20 fyr-
irlestrar um rannsóknir frá
sjónarhóli félagsfræði, mann-
fræði, stjórnmálafræði og
skyldra greina. Ráðstefnunni er
ætlað að skapa umræðuvett-
vang þjóðfélagsfræðinga og
annarra sem starfa í háskólum
og framhaldsskólum og við
rannsóknir á öðrum vettvangi.
Jafnframt gefur hún nemendum
á háskóla- og framhalds-
skólastigi kost á að kynnast og
taka þátt fræðastarfi þjóð-
félagsfræðinnar.
Meðal umfjöllunarefna má
nefna þjóðfélagsbreytingar, bú-
setufyrirætlanir unglinga,
ferðaþjónustu, fjölmiðla, lýð-
heilsu grunnskólanema af er-
lendum uppruna, málnotkun, af-
brot, umhverfismál og
þróunarsamvinnu, segir í frétta-
tilkynningu.
Háskólinn á Hólum sér um
ráðstefnuna en að henni standa
Háskólinn á Akureyri, Háskól-
inn á Hólum, Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra, Framhalds-
skólinn á Húsavík, Framhalds-
skólinn á Laugum, Mennta-
skólinn á Akureyri,
Menntaskólinn á Egilsstöðum,
Menntaskólinn á Ísafirði, Verk-
menntaskóli Austurlands og
Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Ráðstefna
um störf í
byggðum
landsins