Morgunblaðið - 19.03.2008, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Jákvæðara andrúmsloft
Gengi hlutabréfa klifraði á mörk-
uðum í gær, á sama tíma og gengi
Bandaríkjadals hækkaði í kjölfar já-
kvæðra frétta úr bankaheiminum og
0,75 prósenta stýrivaxtalækkunar
bandaríska seðlabankans. » Forsíða
Sundagöng verði tvöföld
Verði ráðist í gerð Sundaganga
verða þau fyrstu jarðgöngin hér á
landi þar sem umferð er meiri en
10.000 ökutæki á dag. Af þeim sök-
um verða strax byggð tvenn jarð-
göng með tveimur akreinum hvor.
Áætluð heildarlengd Sundaganga er
um 3.800 metrar. » 6
Endurspeglar hræringar
Gengislækkun íslensku krón-
unnar kallar ekki á sértækar aðgerð-
ir af hálfu ríkisstjórnarinnar, að
sögn Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra, sem fór yfir stöðu mála í gær.
Það sem sé að gerast í íslenskum
efnahagsmálum endurspegli stórat-
burði erlendis. » Miðopna
Kreppir að í hagkerfinu
Til skamms tíma litið mun kreppa
að í íslensku efnahagslífi, að mati dr.
Gunnars Haraldssonar. Samdrátt-
inn í efnahagslífinu hafi borið upp á
sama tíma og fjármálakreppuna á
erlendum mörkuðum. » Miðopna
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Drýpur blóð af hverju
strái
Staksteinar: Enginn friður til að
gæta
Forystugreinar: Mismunandi mat |
Áhrif gengislækkunar
UMRÆÐAN»
Á að hunsa álitið?
Orðsending til heilbrigðisráðherra
Misskilningurinn er hjá Lands-
virkjun en ekki landeigendum
##3 3$
##3%%
3 3 3$ #%3 3#$ #3#
4!5&! . +
6!
%"
##3 #%3 3 3$ #%3%
3#$ %3 3#
#3$
- 7 )1 &
##3#%
#%3 3$#
3 3 #$3 3#$%%
%3 89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&77<D@;
@9<&77<D@;
&E@&77<D@;
&2=&&@"F<;@7=
G;A;@&7>G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2+&=>;:;
Heitast 7° C | Kaldast 1° C
Sunnan- og suðvest-
an 5-13 m/s og rigning
eða súld. Vestlægari
og skúrir vestanlands
en léttir til austanlands. » 10
Pétur Blöndal veltir
því fyrir sér hvort
hátíðin Iceland on
the Edge í Brussel
sé besta leiðin til að
kynna Ísland. » 46
AF LISTUM»
Ísland á
brúninni
FÓLK»
Carey treystir ekki karl-
mönnum. » 47
Leikritið Ég er
meistarinn eftir
Hrafnhildi Hagalín
verður sýnt á leik-
listarhátíð í Frakk-
landi í sumar. » 44
LEIKLIST»
Íslenskur
maestro
TÓNLIST»
Fjölmargar sveitir
kveðja Gaukinn. » 44
KVIKMYNDIR»
Leikstjóri Enska sjúk-
lingsins er látinn. » 45
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Bannað að bera brjóstin í Hveró
2. Tvö börn stungin til bana
3. Hellti vatni yfir lögmanninn
4. Gríðarlegt flökt á krónunni
Íslenska krónan veiktist um 1,16%
AUÐUR og Rut Jónsdætur, lands-
liðskonur í handknattleik sem leika
með Kópavogsliðinu HK, hafa geng-
ið frá samningum við dönsk lið. Rut
Jónsdóttir, sem er aðeins 17 ára
gömul, samdi við Tvis Holstebro en
Auður Jónsdóttir, sem er 19 ára,
samdi við Ringköbing. Þær fara til
Danmerkur í júlí og hjá dönsku fé-
lögunum er mikil eftirvænting.
„Rut er eitt mesta, ef ekki mesta
efni sem upp hefur komið í íslensk-
um handbolta. Hún er bráðefnileg
og getur tvímælalaust náð mjög
langt,“ segir þjálfari Tvis Holstebro,
Niels Agesen Nielsen.
Þær systur verða á ferðinni næstu
daga með 20-ára landsliðinu í hand-
knattleik kvenna sem tekur þátt í
undanriðli heimsmeistaramótsins en
keppt er á heimavelli þeirra, íþrótta-
húsinu Digranesi í Kópavogi, og
fyrsti leikurinn er gegn Ungverja-
landi í dag. | Íþróttir
Systur til
Danmerkur
Rut Jónsdóttir Auður Jónsdóttir
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„LYKILLINN að íslensku samfélagi
er íslenskan. Þrátt fyrir að skóla-
ganga mín hér hafi verið mjög stutt
hef ég náð góðum tökum á íslensku.
Ég var heppin því ég eignaðist ís-
lenska vini sem tóku mig að sér og
kenndu mér íslensku. Þannig hef ég
komist inn í íslenskt samfélag og finn
að hér á ég heima. Því segi ég með
stolti í dag: Ég er Íslendingur,“ sagði
Falasteen Abu Libdeh, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar á fundi í borgarstjórn
Reykjavíkur í gær. Hún tók þar sæti í
stað Sigrúnar Elsu Smáradóttur, sem
vék sæti, enda Falasteen fulltrúi
Samfylkingarinnar í mannréttinda-
ráði borgarinnar, en í borgarstjórn í
gær fóru fram viðamiklar umræður
um mannréttindastefnu. Hún er þar
með fyrsti Íslendingurinn af erlend-
um uppruna sem tekur sæti í borg-
arstjórn.
Lætur mannréttindi sig varða
Mannréttinda- og innflytjendamál
eru Falasteen sérstaklega hugleikin,
ekki síst málefni þeirra barna sem
hingað flytjast. „Það þarf að tryggja
að þau nái það góðum tökum á ís-
lensku að þau eigi raunverulega
möguleika á að mennta sig, standa
jafnfætis jafnöldrum sínum og verða
fullgildir meðlimir í samfélaginu,“
sagði hún í ræðu sinni og nefndi sér-
staklega að vandi gæti steðjað að að-
lögun þeirra barna sem eiga foreldra
sem hvorki skilja né tala málið og
hafa engin tengsl við íslenskt sam-
félag.
Aðspurð segir Falasteen það hafa
verið frábæra upplifun að tala í borg-
arráði. „Það var mjög gott að fá að
komast að. Nú er árið 2008 og það var
orðið tímabært að fyrsti Íslending-
urinn af erlendum uppruna kæmist
að í borgarstjórn,“ segir hún og
kveðst munu beita sér mest innan
mannréttindaráðs. Hún segir hægt
að ná til heimavinnandi mæðra af er-
lendum uppruna í gegnum skólana.
„Þessi hópur býr oftar en ekki við al-
gjöra einangrun og hefur litlar for-
sendur til að aðlagast,“ sagði hún í
ræðu sinni í borgarstjórn og kvað
nauðsynlegt að ná til þessa hóps. Hún
segist andvíg hvers kyns heim-
greiðslum til fólks, ekki eigi að greiða
fólki fyrir að vera heima hjá sér, en
leikskólagjöld megi heldur ekki vera
svo há að fæli fólk frá leikskólunum.
Talaði fyrst aðfluttra Ís-
lendinga í borgarstjórn
Fyrst Falasteen tók til máls í um-
ræðu um mannréttindamál.
Í HNOTSKURN
»Falasteen Abu Libdeh fædd-ist 1. nóvember 1978 í Jerús-
alem.
»Hún fluttist hingað ásamtfjölskyldu sinni frá Palestínu
árið 1995 og hóf nám við Austur-
bæjarskóla, 16 ára gömul og
komin af skólaskyldualdri, enda
fá úrræði í skólakerfinu.
»Hún skipaði 14. sæti á listaSamfylkingar í borgarstjórn-
arkosningum 2006 og vinnur
skrifstofustörf á Hagstofunni.
BJÖRGÓLFI Guðmundssyni, for-
manni bankaráðs Landsbankans,
voru í gærkvöldi veitt Hvatning-
arverðlaun Samtóns fyrir marghátt-
aðan stuðning við tónlistarlífið í
landinu. Það var Jakob Frímann
Magnússon, formaður Samtóns, sem
afhenti verðlaunin en afhendingin
var hluti af Íslensku tónlist-
arverðlaununum.
Björgólfur sagðist afskaplega
stoltur, hefði hann getað lagt eitt-
hvað fram sem væri tónlistinni til
framdráttar. Hann tók reyndar
fram, í léttum dúr, að hann hefði
auðvitað fremur viljað fá verðlaun
fyrir tónlist. En ef tónlistin lægi ekki
fyrir mönnum yrðu þeir að gera eitt-
hvað annað, t.d. vinna við fjármál.
„En í dag skuluð þið ekkert vera að
hugsa um að skipta um, haldið ykkur
bara í tónlistinni,“ sagði Björgólfur
við góðar undirtektir.
Björgólfur Guðmundsson fékk hvatningarverðlaun Samtóns
Stoltur
af því að
styrkja
Morgunblaðið/Árni Sæberg