Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 6

Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 6
6 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þ að er undarleg tilfinning að hossast í rútu dimm jarð- göng í gegnum fjall til að komast á slóðir, þar sem maður átti engan kost að vera ella. Ég tala nú ekki um, þegar áfangastaðurinn er jafn afskekktur og Héðinsfjörður, – eyðibyggð innan hárra fjalla og opið haf til norðausturs, en tor- leiði og þó skammt til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Byggðin fór í eyði um miðja síðustu öld, lengst var búið í Vík og hurfu síðustu ábúendurnir á braut árið 1952. Héðinsfjarðar er ekki getið í Landnámu, en í Svarfdæla sögu segir, að Héðinn úr Héðinsfirði hafi verið bróðir Ólafs bekks. Göngin fara úr Skútudal og opnast í Héðinsfirði við Björnsneshjalla undir Fýlaskálum. Þegar við horfðum yfir dalbotninn blasti við okkur munastæðið að austanverðu við Grundarkot undir Vatnsendahnjúk, en Héðinsfjarðarvatn er skammt til norðurs. Þar er ágæt sil- ungsveiði og einnig í firðinum, en sil- ungurinn var áður og fyrrum veiddur í dráttarnet og hafður til beitu á línu og handfæri. Skipseigandinn lagði silung- inn til án þess að taka beituhlut. Og var svo víðar í Eyjafirði og Þingeyj- arsýslum. Til er merkileg saga frá Grundarkoti af Höskuldi Jónssyni ábúanda þar og konu hans, Guðnýju Árnadóttur, sem Bólu-Hjálmar hefur skráð. En Hannes Þorsteinsson segir í Blöndu, að Bólu- Hjálmari hafi vafalaust fundist „að Höskuldur hafi orðið hart úti í lífsbar- áttunni og verið „hrundið í urð út úr götu“ af mikilsmegandi mönnum“. Vet- urinn 1829-30 var mjög snjóþungur, kallaður harði vetur. Á jólaföstu fór Höskuldur til Siglufjarðar til að sækja nauðþurftir, en komst ekki heim sakir illviðris fyrr en á nýjársdag, – „og ekki erindi feginn, því þá var fennt kotið og fannst ekki, þá til var komið. Hafði þá kona mín verið innilukt í 18 dægur und- ir þessari óttalegu ábreiðu með 2 börn og annað ekki af fólki“, segir í lífssögu Höskulds. Var nú mönnum safnað sam- an til að leita kotsins, en konan hafði þá mokað sig upp þegar þeir komu. Gunn- ar Gunnarsson hefur skrifað frækni- sögu af þessum atburðum, Á botni breðans. Þar er lýst baráttu móð- urinnar með börnum sínum, það þurfti að sinna skepnunum, skjóta stoðum undir þakið svo að það sligaðist ekki, gæta eldsins og moka sig upp. „Þrepin urðu eftir allt saman ekki nema fimm- tán. Raunar sýndust þau í fljótu bragði ætluð bjargrisum,“ segir í sögu Gunn- ars. – Guðný afsagði með öllu að vera einn vetur til í Grundarkoti, þegar Höskuldur ámálgaði það! Enginn vafi er á því, að Héðinsfjarð- argöng skipti sköpum fyrir byggðaþró- un við Eyjafjörð, eins og brátt mun koma í ljós. Víða úti um land horfa menn mjög til ferðaþjónustunnar og þeirra atvinnutækifæra, sem hún gefur. Og reynslan sýnir, að þá skipti miklu, að boðið sé upp á hringferð með marg- víslegri afþreyingu. Ef lagt er upp frá Akureyri eru á þeirri leið Hraun í Öxnadal, Hólar, Vesturfarasetrið á Hofsósi, Síldarminjasafnið og Fagri- skógur. Sagan er hér við hvert fótmál, víða mikil náttúrufegurð og skemmti- legar gönguleiðir eins og um Héðins- fjörð. Og vetrarparadís fyrir skíðafólk. Kjarni málsins er vitaskuld sá, að Eyja- fjörður verður eitt atvinnusvæði og ak- fært um Tröllaskaga sumar, vetur, vor og haust. Þegar mér var boðið að fara göngin fyrir 10 dögum var Lágheiði ófær. Á leiðinni frá Akureyri lærðum við Krist- rún orðið hrafnagusa um norðankast á þessum árstíma, sem að vísu var ekki nákvæmt. Örlygur Kristinsson í Síld- arminjasafninu sagði mér, að hrafna- PISTILL »Ef lagt er upp fráAkureyri eru á þeirri leið Hraun í Öxnadal, Hólar, Vesturfarasetrið á Hofsósi, Síldarminja- safnið og Fagriskógur. Sagan er hér við hvert fótmál, víða mikil nátt- úrufegurð og skemmti- legar gönguleiðir eins og um Héðinsfjörð. Halldór Blöndal Jarðgöng opna nýjar víddir gusan væri níu nóttum fyrir sumarmál. En mér bárust þessar orðskýringar of seint. Ég hafði sagt við konu mína dag- inn áður, þegar ég fór út úr bílnum í Héðinsfirði: Göngin opnast! Útsýnið er álna virði: Hrafnagusa í Héðinsfirði. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is PEYSUFATADAGUR var haldinn í Kvennaskól- anum í Reykjavík í föstudag. Þriðja árs nemar hittust í morgunmat árla dags og héldu svo uppi skemmtidagskrá yfir daginn. M.a. voru fyrrver- andi skólastjórar heimsóttir og gömlu dansarnir stignir fyrir utan skólann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dansað og sungið á peysufatadegi Kvennaskólans Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is REYNA mun á lögmæti útvarps- gjalda eða afnotagjalda Ríkisútvarps- ins í núverandi mynd fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur. „Umbjóðandi minn telur ekki fullnægjandi laga- heimild fyrir innheimtu afnotagjald- anna,“ segir Oddgeir Einarsson hdl. sem rekur málið fyrir hönd stefn- anda. Spurður um grundvöll málshöfðun- arinnar segir Oddgeir hana byggjast á þeim skilningi að útvarpsgjöld séu skattur. „Í stjórnarskránni er ákvæði þess efnis að löggjafinn megi ekki framselja skattlagningarvald til stjórnvalda,“ segir Oddgeir og bendir á að samkvæmt ákvæði V til bráða- birgða með lögum nr. 6/2007 um Rík- isútvarpið ohf. sé hins vegar kveðið á um að menntamálaráðherra skuli staðfesta útvarpsgjöld að fengnum tillögum útvarpsstjóra. Sambærileg ákvæði var einnig að finna í 10. gr. laga nr. 122/2000 um Ríkisútvarpið. Segir Oddgeir ljóst að þessi ákvæði standist ekki ákvæði stjórnarskrár- innar en þar komi skýrt fram að skattamálum skuli skipað með lögum. Ekki megi fela stjórnvöldum ákvörð- un um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann. „Fyrirkomulagið er hins vegar það að ráðherra ákveður fjárhæð gjaldsins og breytir því reglulega til hækkunar án nokkurrar aðkomu eða tak- markana af hálfu löggjafans. Í því felst framsal á skattlagningarvaldi sem er andstætt stjórnarskrá.“ Að sögn Oddgeirs má einnig ljóst vera að telji Ríkisútvarpið útvarps- gjöldin vera þjónustugjöld fremur en skatt þá blasi við að grundvallarskil- yrðum um tengsl þjónustu og gjalda sé ekki fullnægt og innheimta þeirra þar með ólögmæt. „Það eitt að eiga viðtæki jafngildir ekki notkun eig- anda á allri þeirri þjónustu sem mögulegt sé að njóta með því.“ Um- bjóðandi Oddgeirs krefst þess að Rík- isútvarpið endurgreiði sér tæplega 79 þúsund krónur með vöxtum en það svarar til þeirra útvarpsgjalda sem viðkomandi greiddi á tímabilinu frá miðju ári 2005 til loka árs 2007. Spurður hvað það gæti þýtt tapaði Ríkisútvarpið ohf. málinu á efsta dómstigi segir Oddgeir ljóst að dóm- urinn hefði fordæmisgildi og myndi þá þýða að allir sem greitt hefðu út- varpsgjald ættu endurkröfurétt á Ríkisútvarpið allt að fjögur ár aftur í tímann með vöxtum. Lætur reyna á lögmæti innheimtu útvarpsgjalda Oddgeir Einarsson hdl. telur fullnægjandi lagaheimild skorta fyrir innheimtu Í HNOTSKURN »Í lögum um útvarpsgjald oginnheimtu þess segir að eig- andi viðtækis sem nýta megi til móttöku á útvarpssendingum RÚV skuli greiða afnotagjald, út- varpsgjald, af hverju tæki. » Í lögum um Ríkisútvarpiðohf. segir að fyrrgreint ákvæði falli úr gildi 1. janúar 2009 en frá og með þeim tíma verður tekinn upp nefskattur. HREINSUNARÁTAK í miðborg Reykjavíkur hefur að sögn verkefn- isstjóra gengið afar vel og viðbrögð verið mjög jákvæð. Margir hafa tekið til hendinni og málað og snyrt eignir sínar og nán- asta umhverfi, en borgin hefur lagt til málningu. Samhliða hreinsunarátakinu verður vöktun komið á laggirnar með það að markmiði að hindra frekara veggjakrot, auk þess að gerðir verða samningar við húseig- endur um að þeir haldi eignum sín- um hreinum. Laugavegur hreinsaður Hreingerning Búið er að hreinsa um 70% af kroti við Laugaveg. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu hafði afskipti af skóladansleik framhaldsskólanema á fimmtu- dagskvöld. Sex ungmennum var meinaður aðgangur að ballinu vegna ölvunar. Í þeim hópi voru þrjár stúlkur sem neituðu að segja til nafns. Voru stúlkurnar því færðar á lög- reglustöð en lögreglunni tókst um síðir að ná í foreldra þeirra og for- ráðamenn. Vildu ekki segja til nafns LÍÐAN fólksins sem slasaðist í bíl- slysi á Reykjanesbraut á miðviku- dag fer batnandi. Einum er enn haldið á gjörgæslu en hann hefur verið tekinn úr öndunarvél og að sögn vakthafandi læknis gjörgæslu- deildar styttist í að hann verði út- skrifaður af deildinni. Sex voru fluttir á slysadeild Landspítala, þar af þrír á gjör- gæslu, eftir slysið, sem varð skammt frá Vogaafleggjara. Slysum hefur fjölgað mjög á svæðinu vegna lélegs frágangs og merkinga. Laus úr öndunarvél

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.