Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Flogið verður til Kaupmannahafnar og ekið um Danmörku til
sumardvalarstaðarins Damp við Eystrasaltsströnd Þýzkalands.
Þar verður gist næstu 6 nætur og farið í ýmsar dagsferðir meðan á
dvöl stendur. Meðal annars til Slésvíkur, Hamborgar og Kílar.
Frá Þýzkalandi er síðan siglt til Danmerkur og flogið heim frá
Kaupmannahöfn að kvöldi 10. maí.
Gist verður að Damp2000 í vel útbúnum íbúðum. Hótelið er við
ströndina og þar eru ótal afþreyingarmöguleikar s.s. sjósundlaug,
hitabeltissundlaug, minigolf og bátaleiga og einnig margir
veitingastaðir og smáverzlanir.
FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.,
BORGARTÚNI 34 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 511 1515,
www.gjtravel.is • outgoing@gjtravel.is
Verðið er einstakt: 79.200,- á mann
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna
stúdíó-íbúð á Damp og allur akstur samkvæmt lýsingu.
Verð miðast við gengi og forsendur 10.04. 2008 og 40 manna
hóp.
Þýzkalandsferð
06.-12. sept. 2008
í samvinnu við
Félag eldri borgara
M
bl
.9
93
90
8
HLUTVERK myndlistar í sam-
tímanum er margvíslegt, afstaða
listamanna misjöfn og markmið
þeirra ólík. Gagnrýni á samtímann
og neysluhyggju kemur ósjaldan
fyrir í verkum listamanna og birt-
ist á ýmsan máta.
Bandaríska listakonan Mary
Ellen Croteau er ein þeirra sem
hafa allan sinn feril beitt harðri
ádeilu, í eldri verkum hennar er
að finna beittan femínisma eins og
sjá mátti á samsýningu lista-
kvenna í Nýlistasafninu 1995. Við-
fangsefni hennar á yfirstandandi
sýningu í StartArt er markviss
eyðilegging mannkyns á náttúru
jarðar.
Croteau sýnir skúlptúr úr
plasti, þessu óeyðanlega efni sem
er víða vandamál, notar bæði
plastpoka og plastflöskur. Hún
sýnir einnig ljósmyndir af verks-
ummerkjum mannsins í nátt-
úrunni og á sýningunni er texti
sem m.a. fjallar um nytjarækt
skóga sem vart eru nothæfir í
annað en pappa. Sýningin er
vönduð í alla staði og óaðfinn-
anlega framsett, en hér kemur
fátt á óvart. Boðskapurinn er
kunnuglegur, þó segja megi að
sjaldan sé góð vísa of oft kveðin.
Skilaboðin eru ákaflega einföld og
skýr; verndum náttúruna, og á
sértækari hátt, hættum að nota
plastpoka. Rými StartArt býður
ekki auðveldlega upp á mögu-
leikann á stórkostlegri sjónrænni
upplifun og það má ímynda sér að
verk Croteau geti verið áhrifaríkari
á stærri skala, þau myndu þá ef til
vill skila meiri árangri í nátt-
úruverndarbaráttunni.
Þessi litla sýning vekur engu að
síður athygli á beinskeyttri bar-
áttukonu sem ekki lætur deigan
síga. Listrænn áhrifamáttur hennar
felst helst í vísun í það sem ekki er
á staðnum, náttúru jarðar. Verndun
hennar er listrænt markmið í sjálfu
sér en ef til vill er kominn tími til
að endurskoða baráttuaðferðirnar.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Plast Croteau sýnir skúlptúr úr plasti, efni sem er víða vandamál.
Burt
með
plastið
MYNDLIST
StartArt, Laugavegi 12b
Til 30. apríl. Opið þri. til lau.
kl. 13-17. Aðgangur ókeypis.
Man Made, Mary Ellen Croteau
bbnnn
Ragna Sigurðardóttir
ÞAÐ er sérstakt að ganga inn í
Hallgrímskirkju þessa dagana þeg-
ar við blasir tíu metra hár kross,
sem í fyrstu virðist fljóta í lausu
lofti og fyllir út í altarishvelfingu
kirkjunnar. Krossinn, sem eftir allt
hangir á stillönsum, er listaverk
eftir Baltasar Samper og sam-
anstendur af sjö málverkum, and-
litsmyndum af Jesú Kristi, sem eru
samsett í kross og táknar hver
mynd eitt af sjö síðustu orðum
frelsarans.
Orð þessi eru fengin úr Jóhann-
esarguðspjalli, en þess má geta að
Markúsarguðspjall greinir öðruvísi
frá hinstu stund Krists á kross-
inum, en þar segir Kristur: „Guð
minn, Guð minn, hví hefur þú yf-
irgefið mig?“ kallar hann svo hárri
röddu og deyr.
Í Jóhannesarguðspjalli ákallar
hann einnig Guð sinn, en biður
hann svo að fyrirgefa kvölurum
sínum og segir að lokum „Það er
fullkomnað“ og gefur þá upp and-
ann. Útgáfa Jóhannesar gefur
Kristi dýrðlegri ímynd, hann er yf-
ir þjáninguna hafinn á meðan
Markúsarguðspjall sýnir hann
þjáðan og mennskan í örvæntingu.
Mennskan er í fyrirrúmi í Krists-
ímyndum Baltasars, efniskenndin
er grófgerð og fýsísk, og orðin sjö
tjáir listamaðurinn með svip-
brigðum á andliti Krists og gefur
honum ásýnd þjáningar, sorgar, ör-
væntingar og uppgjafar. Ekki má
svo gleyma, í því sambandi, að orð-
ið „andlit“ merkir „útlit andans“.
Baltasar er snjall með skúfinn og
sækir nokkuð breytt svið, allt frá
Caravaggio til Anselms Kiefers. En
myndirnar, svona sjö saman, minna
þó helst á stillimyndir úr Holly-
wood-kvikmynd, ég hugsa Mel Gib-
son með tilheyrandi dramatík og
erkitýpu.
Sem málverk er þetta tilkomu-
mikið að sjá en um leið heldur yfir-
þyrmandi sem kirkjuskreyting. Er
framtakið metnaðarfullt og ég sé
ekkert að því að gefa altarinu
svona epískan Hollywoodbrag til
skamms tíma. En hér mundi kveða
við annan tón ef verkið hefði verið
hugsað þarna til frambúðar.
Sjö orð Krists „Mennskan er í fyrirrúmi í Kristímyndum Baltasars.“
Jón B.K. Ransu
MYNDLIST
Hallgrímskirkja
Opið alla daga kl. 9-17. Sýningu lýkur
5. maí. Aðgangur ókeypis.
Baltasar Samper
bbbmn
Útlit
andans
ÉG var fullur eftirvæntingar að hlýða
á þau Helgu Bryndísi og Aladár leika
saman fjórhent á píanó.
Þau hafa áður heillað mig með
framúrskarandi leik sínum hvort í
sínu lagi, og nú kom að spurningunni
hvernig færi á með þeim saman í
túlkun þessara glanspíanóverka.
Oft er sagt að píanóleikarar þurfi
öðrum hljóðfæraleikurum fremur að
lifa með list sinni í einrúmi, þess
vegna hef ég oft furðað mig á því að
píanóleikarar skuli ekki leika meira af
þeim fjölda góðu verka sem skrifuð
hafa verið fyrir fjórar hendur á eitt
eða tvö píanó. Tónskáldin drógu
þannig úr félagslegri einangrun pí-
anóleikaranna, en þó fyrst og fremst
unnu þau píanóinu nýjar lendur og
nýttu kosti þess til að koma sjóði tón-
bókmennta á framfæri, sbr. umrit-
anir Liszts á sinfóníum Beethovens.
Verkin sem Aladár og Helga Bryn-
dís léku eru ofarlega á vinsældalista
tónelskra.
Béla Bartók taldi það misskilning
hjá Liszt að telja uppsprettu lag-
flæðis í rapsódíum hans vera ung-
versk þjóðlög, því lögin væru oftar
fengin úr smiðju sígaunatónskálda.
Þessum misskilningi eigum við máski
að þakka þær nítján píanó–rapsódíur
sem Liszt töfraði fram og hafa allar
götur síðan frá miðri nítjándu öld ver-
ið á heimsskrá unnenda píanóverka.
Af þessum nítján hefur þó sú númer
tvö átt mestu fylgi að fagna.
Aladár og Helga Bryndís runnu
eina slóð í mögnuðum og litríkum
flutningi og voru sem einn maður í út-
rás dansandi stefja og innrás í dýpri
tjáningu heitra tilfinninga.
Ef fólk kann að meta slíka tjáningu
þá var þetta rétti staðurinn.
Svo var haldið til hins merka árs
1924, þegar Georg Gershwin kom
Ameríku inn á heimskortið í sígildri
tónlist úr blámanum, og frumflutti
„rapsódíu bláu tónanna“, án þess að
gera sér nokkra grein fyrir mikilvægi
þessa skrefs í tónlistarsögunni. Alad-
ár og Helga Bryndís gerðu sér fulla
grein fyrir áhrifum og merkingu
þessa verks.
Túlkun þeirra var í einu orði sagt
hrífandi.
Útrás dansandi stefja
Jón Hlöðver Áskelsson
TÓNLIST
Föstudagsfreistingar í Ketilhús-
inu á Akureyri
Á efnisskrá: Ungversk rapsódía nr. 2 eftir
Franz Liszt og Rhapsody in Blue eftir
Georg Gershwin úts. f. fjórhendan píanó-
leik. Píanóleikarar: Aladár Rácz og Helga
Bryndís Magnúsdóttir. Föstudaginn 4.
apríl kl. 12.00.
Píanótónleikar Tónlistarfélags Akureyrar
bbbbb
Aladár Rácz Helga Bryndís Magnúsdóttir
Fréttir í
tölvupósti