Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÓHÆTT er að segja að hveiti- brauðsdögum um- hverfisráðherra hafi lokið snögglega sl. fimmtudag þegar ráð- herrann kynnti nið- urstöðu úrskurðar vegna kæru Land- verndar sem kærði ákvörðun Skipulags- stofnunar að beita ekki 2. mgr. 5. gr. laga um mat á um- hverfisáhrifum vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Í tilvitnuðu lagaákvæði er heimild til þess að láta fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum þegar fleiri en ein matsskyld framkvæmd er fyrirhuguð á sama svæði eða þegar fram- kvæmdir eru háðar hver annarri. Ekki verður fjallað meira um það mál hér. Hins vegar eru við- brögð umhverf- isráðherra athygl- isverð því hún telur rétt að setja ákvæði í stjórnarskrá, ákvæði sem veiti umhverfinu vernd. Vissulega væri slíkt ákvæði mikið framfaraskref ekki einvörðungu fyrir umhverfisvernd í landinu heldur einnig fyrir þróun íslensks umhverfisréttar og beit- ingu hans. Með slíku ákvæði yrðum við einnig í hópi framsæknustu þjóða og þar í félagsskap t.d. Finna, Norðmanna og Svía. Stjórn- arskrárákvæði, þótt til mikilla bóta væri, leysir þó ekki allan lagalegan vanda og tilvist slíks ákvæðis ein og sér eykur trauðla umhverf- isvernd. Þar að auki telja fræði- menn að slík ákvæði hafa litla sjálf- stæða þýðingu þótt finna megi dæmi þar sem þau hafa reynst gagnleg við lögskýr- ingar. En hvað um einfaldari aðgerðir? Það er mögulegt að bæta íslenska um- hverfislöggjöf umtals- vert, þ.m.t. auka fyr- irsjáanleika og gagnsæi löggjaf- arinnar og einnig efni ákvarðana sem áhrif hafa á umhverfi og náttúruauðlindir, með einfaldari hætti en að breyta stjórnarskrá sem að sjálfsögðu ætti einnig að stefna að. Í fyrsta lagi væri til bóta að hafa í einum lagabálki sem flestar reglur sem varða um- hverfis- og nátt- úruvernd. Í slíkum bálki ættu að vera ákvæði sem skýra og útfæra allar helstu meginreglur umhverf- isréttarins. Á grund- velli þeirra ætti að skilgreina nákvæm viðmið og hafa hluta af einstökum efnisreglum (og ekki einvörðungu í reglugerðum) svo að þeir sem hafa heim- ildir til að taka ákvarðanir sam- kvæmt lögunum, eða endurskoða þær, geri sér grein fyrir hvaða sjónarmið umhverfisréttarins á að styðjast við í einstökum tilvikum. Í öðru lagi væri til bóta að í slík- um lagabálki væri þungamiðjan ekki einvörðungu reglur um ábyrgð og verkaskiptingu opinberra aðila og réttindi og skyldur leyf- isumsækjenda eða leyfishafa, held- ur einnig ítarlegar efnisreglur og málsmeðferðarreglur. Til dæmis má nefna að enn vantar skýr ákvæði í íslenskri löggjöf um fram- kvæmdir, eða réttara sagt tak- markanir á þeim, á aðlægum svæð- um, þ.e. á svæðum sem umlykja friðlýst svæði en eru ekki formlega friðlýst. Í þriðja lagi væri til bóta ef í allri löggjöf, sem inniheldur heim- ildir leyfisveitenda til þess að taka ákvarðanir – oftast leyfi fyrir fram- kvæmdum og rekstri sem háður er mati á umhverfisáhrifum – væru ákveðnir ventlar. Hér er annars vegar átt við efnisreglur sem inni- halda fyrirfram ákveðin og nokkuð nákvæm umhverfismarkmið sem lúta að því hve mikla röskun ein- stakir þættir umhverfisins eða til- teknar náttúruauðlindir þola til langs tíma litið án þess að gengið sé varanlega á höfuðstól þeirra eða gæði. Hins vegar hvernig leyf- isveitandi á að bregðast við ef fyr- irsjáanlegt er að ákvarðanataka muni verða á skjön við umhverf- ismarkmiðin, og loks ef álit Skipu- lagsstofnunar um mat á umhverfis- áhrifum matsskyldra framkvæmda leiðir í ljós og staðfestir að um- hverfisáhrifin vegna þessara fram- kvæmda verði umtalsverð eða óvið- unandi. Ef löggjöfin væri með ofan- greindum hætti væri öllum ljóst, fyrirfram, hvernig ákvarðanir mögulegt er að taka miðað við að- stæður hverju sinni, þ.e.a.s. um- hverfisaðstæður og ástand nátt- úruauðlinda, og þá ætti ekki koma neinum á óvart þegar ómögulegt eða óvarlegt er að ráðast í fram- kvæmdir eða tiltekinn rekstur sem áhrif hefur á umhverfi og nátt- úruauðlindir. Hvernig má bæta umhverfislöggjöfina? Aðalheiður Jóhannsdóttir kemur með tillögur að bættri umhverfislöggjöf » Í greininni eru kynnt nokkur sjón- armið sem varða mögu- legar breyt- ingar á um- hverfis- löggjöfinni án þess að breyta stjórnarskrá sem ætti einnig að gera. Aðalheiður Jóhannsdóttir Höfundur er dósent í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands og sér- fræðingur í umhverfisrétti ENN á ný kýs Sigurður Magn- ússon að ríða fram á ritvöllinn með klisjukennt orðskrúð með grein sinni í Mbl. 30. mars sl. Í undirfyrirsögn greinar hans í Mbl. 30. mars sl. segir: ,,Bæjarfulltrúar Á- lista fagna áhuga íbú- anna á skipulags- málum og munu koma til móts við sjónarmið þeirra.“ Þessi fullyrðing bæjarstjóra stenst ekki nánari skoðun. Hann minnist ekki á né virðist vilja kann- ast við viðbrögð sjálfs sín þegar Gerður Sveinsdóttir, ein skipuleggjenda undir- skriftasöfnunar hóps- ins „Verndum börn- in“, hringdi í hann til að ákveða stað og stund fyrir af- hendingu undirskrifta með mót- mælum gegn lagningu Skólavegar og lokun Breiðumýrar, en þau voru í öðrum anda en hann vill láta í veðri vaka. Þá er einnig vert að rifja upp hvernig hann brást við í upphafi bæjarstjórnarfundar 21. febrúar sl. þegar fulltrúi sama hóps afhenti honum skjal með yfirlýsingu þeirra sem þau óskuðu eftir að fá að lesa upp á sama fundi. Þetta skjal tók Sigurður Magnússon í vitna viðurvist, vöðlaði saman og henti í gólfið án þess að lesa eitt orð! Þannig birtust okkur fagn- aðarlæti hans við áhuga íbúanna á skipulagsmálum! Höggvið í sama knérunn Bæjarstjóri kýs að höggva í sama knérunn með því, einn ganginn enn, að halda því fram að ekki hafi verið unnin skýrsla um umferðarmál eða umhverfisskýrsla í tíð meirihluta sjálfstæðismanna þegar unnið var að núgildandi skipulagi. Bæjarstjóri veit betur en kýs einhverra hluta vegna að fara með ósannindi einn ganginn enn. Reyndar var það nú svo að ekki var gerð krafa af hálfu Skipulagsstofnunar eða umhverf- isráðuneytis um að unnin væri um- hverfisskýrsla fyrr en á árinu 2006 þegar ný lög tóku gildi. Dramb Hann gumar af því að vandað hafi verið til verka við skipulags- vinnu núverandi meirihluta og unn- ar hafi verið ýmsar sérfræði- skýrslur, m.a. um umferðarmál, hljóðvist, skuggavarp og umhverf- ismál. Skýrsla um skuggavarp var unnin eftir að fulltrúar D-lista ósk- uðu eftir því að rannsakað yrði skuggavarp vegna þriggja hæða fjölbýlishúsa sem fyrirhuguð eru við Norðurnesveg. Þetta er senni- lega eina atriðið sem fulltrúar Á- lista hafa samþykkt af tillögum D- lista varðandi skipulagsmál frá því að Á-listi tók við völdum. Erfiðlega gekk að fá svokallaða umferð- arskýrslu upp á borðið sl. haust þrátt fyrir að fulltrúar Á-lista væru ítrekað að vitna í þá skýrslu allt frá því að íbúafundur var haldinn 10. september 2007 þar sem umfangs- miklar breytingar á vinningstillögu Gassa voru kynntar. Á endanum fékkst afhent skýrsla sem ber yf- irskriftina „Samgönguskipulag – Drög“ dagsett 30. október sl. Sú skýrsla er hálfþunnur þrettándi og lítt marktæk þar sem engar raunhæfar tölur liggja fyrir, nema sá fjöldi bíla sem tveir starfsmenn Álftaness náðu að telja þá dag- stund sem þeim var gert að standa við sitt- hvorn enda Breiðumýr- ar sl. haust. Allt vinnu- ferlið hefur einkennst af óðagoti og flumbru- gangi sem síðan leiðir til þess að staðfesting á nýju skipulagi mun tefjast enn meir en orðið er. Þannig að það er ekki eins og bæj- arstjóri og hans félagar í meirihluta Á-lista séu að kynna til sögunnar eitthvert tímamóta verkferli við skipulags- mál! Gildandi skipulag Þegar bæjarstjóri talar um „fyrra gildandi skipulag miðsvæðis“ er hann að vísa til „gildandi skipu- lags“ sem lögfest var 2006 og er enn í gildi þrátt fyrir allt! Það er því illskiljanlegt af hverju hann kýs að tala um „fyrra gildandi skipulag“ nema þá helst að hann vilji reyna að rugla fólk í ríminu með orð- skrúði. Í gildandi skipulagi er gert ráð fyrir hringtorgi austan við skólalóð og einnig á vinningstillögu Gassa. Sú breyting hefur nú orðið á þeirri tillögu að hringtorgið er fellt út og í stað þess er fyrirhugað að byggja 3-4 hæða skrifstofublokk vestan Skólavegar inn á núverandi bíla- stæði á milli leikskólans Krakka- kots og lausra kennslustofa við Álftanesskóla. Þessar breytingar hafa lítið sem ekkert fengist rædd- ar í skipulagsnefnd bæjarins, enda sú ágæta nefnd hreinlega upp á punt og hennar eina hlutverk virð- ist vera að samþykkja tillögur bæj- arstjóra og arkitekta. Þessum vinnubrögðum og áformum hefur ítrekað verið andmælt sem og lokun Breiðumýrar og legu fyrirhugaðs Skólavegar. Þrátt fyrir hörð and- mæli íbúanna kýs bæjarstjóri að drepa umræðunni á dreif og koma sér undan því að svara íbúum af hverju ekki er tekið tillit til sjón- armiða þorra íbúa Álftaness? Vinnufriður „Við viljum vinnufrið,“ hafa fulltrúar Á-lista látið hafa eftir sér í ræðu og riti. Þau kvarta undan skrifum okkar sjálfstæðismanna og annarra íbúa sem hafa látið í sér heyra. Með fullri virðingu fyrir fulltrú- um Á-lista verða þeir að gjöra svo vel að lifa með því að vinnubrögð þeirra eru ekki yfir gagnrýni hafin, langt í frá! Það er réttur okkar íbú- anna sem og þeirra sem sitja í minnihluta að hafa skoðanir á vinnubrögðum meirihlutans og á meðan Á-listi kýs að hunsa góðar og málefnalegar ábendingar og til- lögur verða fulltrúar hans að búa við það að fá á sig gagnrýni! Blekkingar bæjar- stjóra Álftaness Elías Bjarnason svarar grein Sigurðar Magnússonar um skipulagsmál á Álftanesi Elías Bjarnason » Þessi fullyrð- ing bæj- arstjóra stenst ekki nánari skoðun. Höfundur er framkvæmdastjóri. REYKJANESBÆR hefur tekið upp svonefndar hvata- greiðslur til allra barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára í bæjarfélaginu og gilda þær til niðurgreiðslu á viðurkenndu menning- ar-, íþrótta- og tóm- stundastarfi. Með hvatagreiðslum er lögð áhersla á að styðja og hvetja börn og ungmenni í Reykja- nesbæ til þátttöku í uppbyggilegu frí- stundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Þessar greiðslur koma til viðbótar þeim stuðningi sem þegar er fyrir hendi til ungmenna í Reykjanesbæ en þess má geta að Reykjanesbær leggur til um 700 milljónir króna á hverju ári til rekstrar íþrótta- og tómstundastarfs ungmenna auk tón- listarskóla. Hvatagreiðslurnar eru mik- ilvægur stuðningur við ungmenni og fjölskyldur þeirra í Reykjanesbæ en vonir standa til að þær auki jafn- framt virka þátttöku ungmenna í viðurkenndu menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi. Greiðslurnar eiga einnig við um Tónlistarskóla Reykjanesbæjar enda er menning- arstarf ekki síður mikilvæg forvörn en íþróttir og nauðsynlegt að hver einstaklingur finni sér verkefni við hæfi. Reykjanesbær leggur áherslu á virka þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi og hefur m.a. stuðlað að aukinni hreyfingu barna með því að gefa öllum grunnskólabörn- um frítt í sund. Reykjanesbær greið- ir jafnframt æfinga- gjald fyrir eina íþrótta- grein fyrir nemendur í 1.-4. bekk sem eru í Frí- stundaskólanum og stunda íþróttir, auk þess sem þeim er ekið til og frá æfingum. Hvatagreiðslur eru kr. 7.000 með hverju barni á hverju ári og geta foreldrar ráðstafað styrknum á vefnum mittreykjanes.is eftir að gengið hefur verið frá skráningu barnsins í viðurkennt menningar-, íþrótta- eða tómstundastarf. Fræðslufundir fyrir foreldra Hvatagreiðslur til ungmenna á aldrinum 14-18 ára eru skilyrtar því að foreldrar þeirra sæki fræðslufund hjá Reykjanesbæ um það helsta sem hafa ber í huga við uppeldi ung- menna. Gylfi Jón Gylfason, yfirsál- fræðingur hjá Fræðsluskrifstofu, mun hafa umsjón með fræðslufund- unum og verða þeir fyrstu haldnir 31. mars og 14. apríl. Fundirnir verða auglýstir sérstaklega. Þessi aldurshópur varð fyrir val- inu þar sem rannsóknir sýna að brottfall ungmenna á þessu aldurs- bili er hvað mest úr skipulögðu menningar-, íþrótta- og tómstunda- starfi. Einnig byrja mörg ungmenni að neyta áfengis á þessum aldri og í kjölfarið getur ýmis önnur áhættu- hegðun látið bæra á sér. Með slíkum fræðslufundum er gerð tilraun til þess að seinka áhættuhegðun unglinga og stuðla þannig að betra mannlífi í Reykja- nesbæ. Hvatagreiðslur í Reykjanesbæ gilda út árið og er einnig hægt að nýta þær til niðurgreiðslu á sum- arnámskeiðum, s.s. Listaskóla barna. Það er einlæg von okkar að sem flestir foreldrar nýti sér þessar hvatagreiðslur og hvetji börn sín til virkrar þátttöku í uppbyggilegu frí- stundastarfi. Frekari uppýsingar eru á mitt- reykjanes.is en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hvatagreidslur@mittreykjanes.is. Hvatagreiðslur í Reykjanesbæ Reykjanesbær leggur áherslu á virka þátttöku barna og ung- menna í frístundastarfi segir Stefán Bjarkason Stefán Bjarkason »Reykjanesbær hefur tekið upp rafrænar hvatagreiðslur til allra barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára í bæj- arfélaginu Höfundur er framkvæmdastjóri Íþrótta- og tómstundasviðs Reykja- nesbæjar. Nöfn fermingarbarna á mbl.is FERMINGAR 2008 NÝTT Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.