Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Alveg óhætt að strekkja um eitt gat enn, foringi. Þetta fordekraða lið hefur hlaðið á sig 7-8 kg síðan 1970. VEÐUR Ólafur Ragnar Grímsson, forsetiÍslands, flutti skynsamlega ræðu um stöðu smáríkja á ráð- stefnu í Andorra í fyrradag. Þar lýsti hann árangri Íslendinga á undanförnum árum á ýmsum svið- um viðskipta og benti á, að íslenzk fyrirtæki hefðu náð ótrúlegum ár- angri á alþjóðlegum mörkuðum.     Íslendingar nytuýmissa kosta Evrópusam- bandsins án þess að vera form- legir aðilar að því vegna samn- inganna um EES. Íslendingar gætu því sjálfir gert samninga við ríki í öðrum heims- álfum og væri Ísland fyrsta landið í Evrópu, sem væri að undirbúa frí- verzlunarsamning við Kína.     Forsetinn hvatti loks til þess aðsmærri ríki efldu samstarf sitt og samvinnu.     Þetta er skynsamleg pólitík. ViðÍslendingar eigum meiri sam- leið með smáríkjum – bæði í Evr- ópu og annars staðar, en ekki sízt í Evrópu – heldur en stórþjóðunum, sem starfa á öðru sviði en við.     Þessar hugmyndir Ólafs Ragnarsgeta vel orðið einn af meg- inþáttum í nýrri utanríkisstefnu okkar Íslendinga, sem hefur enn ekki verið mörkuð og meira vit í þeim heldur en að íslenzkir ráða- menn séu stöðugt að reyna að nudda sér utan í stórveldin, sem gera það fyrir okkur af kurteisis- ástæðum að tala við okkur en hafa engan áhuga á því, engan tíma til þess og enga hagsmuni af því.     Það er meira vit í smáþjóða-samstarfi fyrir okkur en að fjölga Íslendingum í Afganistan, eins og utanríkisráðherra hefur boðað. STAKSTEINAR Ólafur Ragnar Grímsson Talað af viti SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                            * (! +  ,- . / 0     + -            !  !                "  # #     12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   $ $  $ $ $%   !           "  # #         :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? &#  &# !#     %#  !#       &#                        *$BCD              !      "!  "  # $    %  &    ! & & "! # *! $$ B *!   ' "(  )  (      * + <2  <!  <2  <!  <2  ' )  ,   -. / CE $                           !  '  &    ( !  )!! !  # $     (* & !# 6  2  $ &+    )! ,, '  &    & !-   # $*!  &!# B  $ &!  . *     .   # $  !  "! !# 01 "22 *"3  *,   4 #  ## Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Jakob Kristinsson | 12. apríl Vestfirðir í eyði Það mætti halda að margir á Vestfjörðum vildu óbreytt ástand og ég verð að segja að ég hef orðið fyrir tals- verðum vonbrigðum með viðbrögð sumra Vestfirðinga við tillögum okkar í BB- Samtökunum […] Fær fólk aldrei nóg af þessu rugli? Finnst fólki allt í lagi að stöðugur fólksstraumur sé frá Vestfjörðum og ekkert lát á og allt stefni í að Vestfirðir fari í eyði. Ég ætla rétt að vona að þegar við förum í fund- arherferð um Vestfirði muni augu fólks opnast. Meira: jakobk.blog.is Bylgja Hafþórsdóttir | 12. apríl Um vegakerfið Kristján Möller talaði fjálglega um það í fjöl- miðlum á dögunum hversu miklu meira væri nú eytt í vegagerð og samgöngubætur heldur en áður. Það er vissu- lega góðra gjalda vert og ég tel að við höfum verið heppin að fá hann sem samgönguráðherra í núverandi rík- isstjórn og ekki hægt þar að hengja bakara fyrir smið. Hann tekur við væg- ast sagt illa reknu búi þar sem metn- aðarleysi hefur ráðið för og framtíð- arsýn á íslenskt samfélag hefur algerlega skort. Meira: bylgjahaf.blog.is Óttarr Guðlaugsson | 12. apríl Fái sér almannatengil Nú held ég að það sé kominn tími til þess að trukkahópurinn ráði sér almannatengil sem gætir hagsmuna þeirra í fjölmiðlum. Því klár- lega eru að koma röng skilaboð frá hópnum og stundum misvísandi, fer svolítið eftir því við hvern er talað hjá þeim, þó svo að meginlínan sé sú sama. Það er bara ekki nóg, kröfurnar þurfa að vera kristalskýrar [...] Það er ég fullviss um að þau skila- boð sem berast úr herbúðum hóps- ins í gær og dag, hótanir sem þess- ar: „Menn vilja fá svör og svo verður séð til hvað verður gert. Það fer eftir því hvernig svörin verða,“ fara illa bæði í almenning sem og stjórnvöld enda er erfitt að semja við þá sem fara fram með hótanir […] Allavega get ég ekki betur heyrt í kringum mig en að fólk sé ekki eins ánægt með þessar aðgerðir og það var áður. Meira: otti.blog.is Pjetur H. Lárusson | 12. apríl Steinn Steinarr XXVI Í gær fjallaði ég um lögin hennar Bergþóru Árna- dóttur við ljóð Steins Steinars. Eins og les- endur geta séð, nefndi ég nokkur þeirra. Nú hef- ur einn bloggvina minna vakið athygli á því, að ég sleppti „einu fallegasta og einlægasta“ lagi Berg- þóru, en það gerði hún við ljóðið Verkamaður. Já, mikið rétt, lag Berg- þóru við þetta ljóð Steins er bæði fal- legt og einlægt. En einhvern veginn hefur mér alltaf þótt þetta ljóð Steins skera sig úr öðru, sem eftir hann ligg- ur. Ég get ekki að því gert, að mér finnst í því holur rómur. Ljóðið birtist í fyrstu bók skáldsins, Rauður loginn brann, sem kom út árið 1934. Það sama ár var hann rekinn úr Komm- únistaflokknum, þar sem hann hafði verið félagi í svo sem tvö ár. Raunar má geta þess, að upphaflega birtist ljóð þetta í Rétti, 1. hefti ársins 1933. Þá var enn ólokið því verki að sparka Steini úr Kommúnistaflokki Íslands. Ljóðið Verkamaður fjallar sem kunn- ugt er um verkamann, sem lætur hverjum degi nægja sína þjáningu, uns þar kemur, að stéttarbræður hans rísa upp til blóðugrar baráttu, í hverri hann lætur lífið. Mér finnst þetta ljóð vera sósíalrealísk sam- suða, sem hefði sómt sér ágætlega í stalínísku „bókmenntariti“ austur í Moskvu. En Steinn er ungur maður og leitandi, þegar hann yrkir þetta ljóð. Sjálfur hef ég ekki úr háum söðli að detta í þessum efnum; pólitískur skáldskapur, sérstaklega ungra og óreyndra manna, er yfirleitt barna- legur. Bergþóra Árnadóttir var hrif- næm listakona og lag hennar við Verkamanninn hans Steins er gert á umbrotatímum [...] Meira: hafstein.blog.is BLOG.IS Hertz Car Rental Flugvallarvegi 101 Reykjavik, Iceland hertz@hertz.is Tel. +354 522 44 00 Fax. +354 522 44 01 www.hertz.is Taktu tvöfalda vildarpunkta með þér í fríið 1000 Vildarpunktar          Bókaðu bílinn fyrir 1. maí á www.hertz.is og fáðu 1000 vildarpunkta hjá Vildarklúbbi Icelandair. Tilboðið gildir til 1. maí. Hertz hefur yfir 7600 afgreiðslustaði í 146 löndum. Jón Valur Jensson | 12. apríl Heimurinn horfir til Tíbets Heimurinn er fyrst nú að ranka við sér og beina sjónum að hlutskipti Tíbetþjóðar eftir áratuga kúgun hennar og hörmulega meðferð í kjölfar blóð- ugrar innrásar bylting- arhers kommúnistanna í Kína 1949-51. Margar uppreisnir voru reyndar hér og þar um Tíbet á næstu áratugum, en sú víðtækasta 1959, þegar Dalai Lama varð að flýja land og um 100.000 manns um sama leyti. Voru málefni Tíbets þá mikið í umræðunni fram á 7. áratug- inn, en síðan hefur hljóðnað yfir henni. Það var þó sízt ástæða til, því að harðstjórn og tök Kínverja á land- inu hafa færzt nær og nær fullkomnu alræði. Meira: jonvalurjensson.blog.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.