Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 19
Fréttir á SMS
um 30,6% frá því sem nú er. Kína
verður líklega innan skamms
stærsti neytendamarkaður heims í
öllum flokkum framleiðslu og kann
hin gífurlega bjórneysla ein og sér
að leiða til verðhækkana um allan
heim, þróun sem, svo dæmi sé tekið,
er þegar farin að hafa neikvæð áhrif
á rekstur breskra kráa.
Staðbundin röskun á framboðinu
hefur áhrif um allan heim. Hveiti-
verð á heimsmörkuðum skaust upp
um 25% á einum degi í febrúar þeg-
ar stjórnin í Kasakstan skýrði frá
því að útflutningurinn yrði takmark-
aður af ótta við hungursneyð heima
fyrir (Kasakstan er eitt mesta hveit-
iræktarríki heims).
Meginskýringin liggur fyrir:
Hveitibirgðir heimsins hafa ekki
verið minni í fimmtíu ár, eða sem
nemur heimsneyslunni í fimm vikur,
samkvæmt gögnum frá Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, FAO.
Gæti umbylt lífsskilyrðunum
En það eru ljós í myrkrinu.
Himinhátt matvælaverð gæti
komið sér vel fyrir bændur í þróun-
arlöndunum sem hafa lítið á milli
handanna og fjölskyldur þeirra,
rætist úr spám um að á næstu árum
verði greitt fyrir verslun með land-
búnaðarvörur með niðurfellingu nið-
urgreiðslna og annarra samkeppn-
israskandi þátta.
Dæmi um þetta er að laun sumra
landbúnaðarverkamanna í Bangla-
desh hafa nær tvöfaldast á einu ári.
Á hinn bóginn hefur óvenjulegt tíð-
arfar víða um heim sett landbún-
aðarframleiðslu úr skorðum og mat-
arverðið hækkað hraðar en tekjur
þorra almennings.
Þá má ekki gleyma því að nýja
millistéttin mun gera kröfu um
sama lífsstíl og íbúar Vesturlanda.
Til að anna þeim kröfum þarf að
framleiða ísskápa og bíla, sauma föt
og byggja milljarða fermetra af ný-
tískuíbúðarhúsnæði, uppbygging
sem kallar á gífurlegan mannafla.
Kola-, járn- og stálnotkun Kín-
verja og Indverja nemur nú yfir
helmingi heimsneyslunnar og því
hefur verið spáð að orkunotkun Ind-
verja muni fimmfaldast á næstu 25
árum. Olíuþörf millistéttarinnar hef-
ur ýtt undir hækkanir á heimsmark-
aðsverði á olíu og má rekja þriðjung
neysluaukningar á síðustu árum til
kínverska Drekahagkerfisins eins
og sér, sem er í þann mund að
byggja upp bílaflota að vestrænni
fyrirmynd.
Orkuþörfin er sögulegt tækifæri
fyrir endurnýjanlega orkuvinnslu og
eins og Mahesh Sachdev, sendiherra
Indlands, benti á í samtali við Morg-
unblaðið fyrir skömmu hyggja Ind-
verjar á uppsetningu gífurlegra inn-
viða fyrir vind- og sólarorkuvinnslu
þegar á næstu árum.
Óþarfa svartsýni um losunina?
Bandaríska orkumálaráðuneytið
ráðgerir að sólarorkan verði innan
nokkurra ára samkeppnishæf við
aðra orkugjafa í bandaríska raf-
orkunetinu og gæti vaxandi orku-
þörf millistéttarinnar og áframhald-
andi þrýstingur á hátt olíuverð orðið
mikil lyftistöng fyrir hinar ýmsu
leiðir til vinnslu endurnýjanlegrar
orku, svo ekki sé talað um hvatann
til að bæta orkunýtnina.
Að viðbættum kenningum fræði-
mannsins David B. Rutledge, pró-
fessors við tæknistofnun Kaliforníu
(Caltech), um að kolabirgðir heims-
ins séu ofmetnar gæti sú staða vel
komið upp að fyrirhuguð losun kol-
díoxíðs sé einnig ofmetin og að
breytingar á veðurfarinu, sam-
kvæmt kenningunni um hlýnun
jarðar, muni þegar fram í sækir
verða minni en svartsýnustu spár
gera ráð fyrir og áhrifin á matvæla-
framleiðsluna verða minni en ella.
Ýmis mótrök má þó tína til, meðal
annars þá spá að ferðamönnum sem
ferðast utan heimalands síns muni
fjölga úr 846 milljónum í ár í 1.600
milljónir árið 2020. Slíkur fjöldi mun
kalla á milljarða lítra af flugvéla-
eldsneyti og eins og gjaldþrot nokk-
urra lággjaldaflugvéla undanfarnar
vikur sýna fram á gætu dagar ótrú-
lega lágra flugfargjalda verið liðnir
og nokkur hundruð króna flugmiðar
heyrt sögunni til, eftir því sem eft-
irspurn millistéttarinnar eykur svig-
rúmið til að halda verðinu uppi.
Helstu heimildir
Eric D. Beinhocker, „At home with
India’s middle class“, The McKinsey
Quarterly, New York, 2007.
Robert F. Worth, Nawara Mahfoud,
„Rising Inflation Prompts Unease in
Middle East“, New York Times, 25. febr-
úar 2008.
„Research and Markets: China’s Food
and Drink Industry to Grow By 30.6% In
Volume Terms to 2012“, M2 Presswire,
Coventry, 29. febrúar, 2008.
Vivienne Walt, „A Furious Hunger“,
Time International, 17. mars 2008.
Heimasíða FAO, www.fao.org.
Moisés Naím, „Can the World Afford A
Middle Class?“, Foreign Policy, mars/apríl
2008.
Adam Morrow, Khaled Moussa al-Omr-
ani, „Egypt: Rising Food Costs Provoke
Fights Over Subsidized Bread“, Global In-
formation Network, 27. mars 2008.
Baldur Arnarson, „Kolafjallið minna en
talið var?“, viðtal við David B. Rutledge,
Morgunblaðið, 5. apríl 2008.
Meira á mbl.is/ítarefni
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 19
*Vextir á SPRON Vaxtabót samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 11. apríl 2008. Vaxtaaukinn leggst inn á reikninginn um næstu áramót.
A
R
G
U
S
/
0
8-
01
5
8
Allt að
16,90% vextir +16% vaxtaauki!*
Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu fyrir 15. apríl nk.
fá 16% vaxtaauka á áunna vexti til 1. júli nk.*
Nýttu þér þetta TILBOÐ
og stofnaðu reikning á spron.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
HJÁ ATVINNULÍFINU
KEMUR ÞÉR Á KORTIÐ
Tölvunarfræði er afar fjölbreytt fagsvið sem býður upp á marga valkosti fyrir nám og störf, allt frá
hagnýtum verkefnum til fræðilegra, frá umsjón tölvukerfa til smíði flókinna hugbúnaðarkerfa, frá
forritun til stjórnunar. Tölvunarfræðinám er góður grunnur fyrir starfsferil á fjölmörgum sviðum.
Tölvunarfræðinám við Háskólann í Reykjavík einkennist af fjölbreytileika og skapandi umhverfi þar
sem nemendum gefst kostur á að vinna verkefni í nánum tengslum við fræðimenn og fyrirtæki.
Við bjóðum nýja nemendur velkomna til náms og starfa við öflugustu tölvunarfræðideild landsins.
• BSc í Tölvunarfræði (90 einingar)
• BSc í Hugbúnaðarverkfræði (90 einingar)
• BSc í Stærðfræði (90 einingar)
• MSc í Tölvunarfræði
• MSc í Hugbúnaðarverkfræði
• MSc í Máltækni
• PhD í Tölvunarfræði
• Kerfisfræðigráða (60 eininga
nám í fjarnámi og með vinnu)
TÖLVUNARFRÆÐI