Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.04.2008, Qupperneq 23
Árið 1976 komum við heim aftur og ég fór að vinna í Hagsýslu- stofnun og í félagsmálaráðuneytinu til helminga. Þar var ég að reikna fjárlög fram og til baka. Allt var reiknað með blaði og blýanti upp á gamla móðinn. Verðbólgan var það mikil að það stemmdi aldrei neitt, hvernig sem reiknað var. Um leið og búið var að prenta niðurstöður var allt orðið breytt vegna verð- bólgunnar. Þarna var ég að störf- um til ársins 1987, fyrst sem ung- liði, svo sem skrifstofustjóri og hagsýslustjóri. Mitt starf var með öðru að rexa í fólki vegna pen- ingaeyðslu. Reyndar eru peninga- mál ekki bara spurning um tölur heldur ekki síður um samskipti. Það hefur ekki breyst, hafi fólki ekki sannfæringu fyrir innihaldi verður niðurstaðan ekki góð. Í árslok 1987 fór ég svo til Bandaríkjanna og starfaði þar hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum í tvö ár. Það var á margan hátt merkilegur tími, bæði það að búa í Bandaríkj- unum og svo hitt að kynnast þeim vinnubrögðum sem tíðkuðust hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Það var lærdómsríkt að starfa hjá þeirri íhaldssömu stofnun sem lagði svo mjög áherslu á fagmennsku. Gogg- unarröðin er reyndar í góðu lagi þar en stofnunin sú er vönd að sinni virðingu. Ég lærði mikið um vinnubrögð – og erlend fjármál, þótt tvö ár séu ekki langur tími á þeim vettvangi. Vera mín þarna var hluti af norrænu samstarfi sem gengur út á að löndin víxla á milli sín störfum við sjóðinn. Ég var fyrst þarna sem ráðgjafi og síðar sem varafulltrúi Norðurlandanna í stjórn sjóðsins. Ég var þarna á miklum átaka- tímum, síðari hluta árs 1989 var járntjaldið að falla og mikið var fjallað um í Alþjóða gjaldeyr- issjóðnum hvernig hagað skyldi uppbyggingu austantjaldslanda. Hvernig átti sjóðurinn að koma inn með sína ráðgjöf varðandi upp- byggingu markaðshagkerfis þess- ara landa, þar sem markaðs- hagkerfið var mjög veikt og jafnvel nánast horfið. Um þetta var mikið fjallað hjá Alþjóða gjaldeyr- issjóðnum og Alþjóðabankanum. Um þetta voru haldnir margir og eftirminnilegir fundir. Menn töldu þessar miklu breytingar jákvæða þróun sem hefur sett mark sitt á starfsemi þessara stofuna síðan og leitt til fjölgunar starfsfólks þeirra. Líklega gerðu menn sér vonir um að breytingar á markaðshagkerfinu í þessum löndum myndu gerast hraðar en raun ber vitni. Í Tékk- landi gekk þetta hratt, en annars staðar hefur þetta gengið hægar og svarti markaðurinn ráðið miklu. Við aðstæður sem þessar verða átök í samfélögum. Ekki pólitískur Árið 1990 fór ég heim til Íslands aftur og fór fyrst að starfa hjá hagsýslunni. Síðan hófst ferli við að endurskipuleggja fjármálaráðu- neytið og hagsýsluna, sem þáver- andi fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, vildi að yrði gert. Starfsmenn tókust á við þetta verkefni.“ Ég spyr Magnús hvort hann sé pólitískur. „Mín skoðun er sú að embætt- ismenn eigi ekki að vera pólitískir og ég hef alveg haldið mig frá þeim vettvangi. Ég hef haldið minni póli- tísku skoðun fyrir mig. Góður emb- ættismaður á að geta unnið með stjórnmálamönnum úr hvaða flokki sem þeir koma. Þeir eiga að geta treyst því að embættismenn séu ekki að blanda saman pólitík og embættisstörfum. Hins vegar er ég kominn af krötum og þess vegna hefur það loðað við mig að ég hlyti að vera krati af því að faðir minn var krati, þingmaður um tíma fyrir Alþýðuflokkinn á Snæfellsnesi. Mín skoðun er raunar sú að til- tekin félagshyggja sé ekki slæm en það sé líka þörf fyrir markaðs- hyggju, þetta er að mínu viti gott í bland fyrir hvert og eitt samfélag, ekki síst hið íslenska. Ég tel að það eigi ekki að vera bara annaðhvort eða í þessum efnum.“ En hvernig gekk sameining hag- sýslu og fjármálaráðuneytis? „Hún gekk ágætlega, tiltekin verkefni voru flutt á milli stofnana. Mín skoðun er sú að ráðuneyti eigi fyrst og fremst að vinna stefnu- mótandi starf í málum sem það fer með, en síður að vinna að fram- kvæmd þeirra. Það á að fela und- irstofnunum það. Ég starfaði í fjármálaráðuneyt- inu frá 1991 til ársloka 1998. Ég vann sem fyrr sagði fyrst með Ólafi Ragnari en svo varð Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, hann kom til starfa sem slíkur í apríl 1991 og starfaði óslitið þar til Geir H. Haarde kom til sögunnar. Mér gekk ágætlega að vinna með þess- um mönnum, þótt þeir séu um margt ólíkir. Hlutverk fjár- málaráðherra er að halda utan um heildina. En hver hefur sitt vinnu- lag. Friðrik var lengi og fyrir vikið setti hann sitt mark á kerfið sem slíkt. Hann hafði áhuga á þessum málum og ýmsum veigamiklum lög- um var breytt í hans tíð, m.a. um fjárreiður ríkisins. Bókhalds- löggjöfin var aðlöguð Evrópulög- gjöfinni og fjölmargt annað var gert af þessum toga. Þá má nefna grundvallarbreytingar á skattkerf- inu, svo sem fjármagnstekjuskatti. Mér finnst þó standa upp úr sam- starf Seðlabankans, Lánasýslu rík- isins og fjármálaráðuneytisins í þá veru að hjálpa til að byggja upp markað fyrir verðbréf. Þá var byrj- að að bjóða út og selja ríkisverð- bréf. Þetta var alveg nýtt og hjálp- aði til að koma á markaði fyrir verðbréf og síðar hlutabréf hér á landi.“ Heldur varkár maður Ertu sjálfur áhættufíkill? „Nei, ég er meðalmaður í því. Auðvitað var viðhorf til sveita íhaldssamt í fjármálum, laust fé var ekki mikið milli handa. Afi minn var fremur varkár í fjár- málum en amma var frekar gefin fyrir að taka áhættu. Þetta liggur líklega eitthvað í ættum. Séra Magnús Andrésson á Gilsbakka, langafabróðir minn, var sagður af- ar varkár maður. Sem dæmi var sagt að hann hafi verið svo varkár þegar hann fór yfir vatnsföll að hann hafi sundriðið fyrir ofan vaðið – til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig. Svo varkár er ég þó ekki. Það á að gera þá kröfu til þeirra sem fara með almannafé að þeir fari vel með. Það er skylda. En hins vegar er stundum erfitt að meta hvað er að fara vel með, það verður að meta afraksturinn. Það er ekki endilega víst að það sé að fara vel með að skera sem mest niður. Stundum þarf að fjárfesta. Það er kannski einn veikleikinn í » Við Hannes lærðum saman hálfan vetur með þeim árangri að við urðum fux og semifux. Mæðrum okkar þótti það ekki nógu gott svo eftir það lærðum við sinn í hvoru lagi. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 23 Fátt er mikilvægara en að tryggja æsku landsins örugga og bjarta framtíð. Ef þú gefur fermingarbarni 5.000 kr. gjafabréf í Framtíðarsjóð bætir Sparisjóðurinn 2.000 kr. við gjöfina. Við höfum trú á framtíðinni. Líttu við á spar.is og kynntu þér kosti Framtíðarsjóðsins Há raunávöxtun innlánsreikninga Verðtryggður reikningur Hægt að semja um reglubundinn sparnað Hægt að leggja inn hvenær sem er Það þarf ekki kraftaverk Við breytum 5.000 kr. í 7.000 kr. spar.is F í t o n / S Í A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.