Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 26
athafnamaður
26 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
etta tosast, eins og menn
sögðu í gamla daga,“
segir Lárus Welding,
forstjóri Glitnis, þegar
hann tekur á móti blaða-
manni í höfuðstöðvum Glitnis á
Kirkjusandi.
„Ástandið virðist hafa róast er-
lendis, markaðir eru að taka við sér
og það er töluvert af skuldabréfaút-
gáfum, sem er jákvætt. En það er
mikið verk eftir óunnið og ég held að
íslensku bankarnir verði ekkert
fremstir í röðinni þegar kemur að
endurfjármögnun.
Það hefur verið gríðarlegur upp-
gangur undanfarin ár og greitt að-
gengi að fjármagni. Nú þurfum við
að vinna úr því sem áunnist hefur.
Við finnum að gæði eignasafnsins
vinna með okkur og á svona tímum
verða allir valkostir skýrir. Nú er
tímabært að skerpa fókusinn og ein-
beita sér að þeim styrkleikum sem
við höfum. Í janúarlok fórum við af
stað á skuldabréfamörkuðum, eins
og frægt er orðið…“
– Voru það mistök?
„Við vorum bara að sinna okkar
starfi og gæta að markaðs-
aðstæðum, en skilyrðin voru óhag-
stæð eins og allir vita. Það varð til
þess að við endurskoðuðum okkar
stöðu. Við höfum því aukið áherslur
á kjarnastarfsemina á Íslandi og lyk-
ilfyrirtæki í eigu Glitnis á Norð-
urlöndum, ásamt því að styrkja
stöðu okkar enn frekar í orkugeir-
anum og sjávarútveginum, en þar
höfum við byggt upp þekkingu á
undanförnum árum. Þar þekkja
margir okkur að góðu og vilja koma
að bankanum. Svo vorum við að
ljúka skemmtilegri ráðstefnu með Al
Gore.“
Hann lítur á Má Másson, sem er
yfir kynningarmálum bankans, og
segir brosandi: „Þú hefur varla sofið
mikið undanfarna daga!“
Svo beinir hann máli sínu aftur að
blaðamanni: „Í Kúbudeilunni var
sagt að varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna hefði ekki sofið í heila
viku.“
– Mér er sagt að þú hafir sjálfur
verið mikið í vinnunni undanfarna
mánuði?
„Já, ég hef að vísu alltaf unnið
mikið, en þetta er búið að vera …
áhugavert!“
Storminn verður að lægja
– Í hverju felst sú mikla hagræð-
ing sem boðuð hefur verið innan
Glitnis?
„Við lokuðum skrifstofunni í
Kaupmannahöfn, niðurskurður var
töluverður í Noregi og við lögðum
niður útlánastarfsemi í Lúxemborg.
Sú starfsemi var barn síns tíma, því
þá var mikið aðgengi að fjármagni,
en nú beinum við því á staði sem eru
arðsamari. Við höfum greint starf-
semina með það í huga hvað má bet-
ur fara og byggt ákvarðanir okkar á
þeirri vinnu. Sú hagræðing heldur
áfram á öðrum ársfjórðungi, en slík-
um aðgerðum verður vonandi að
mestu lokið á síðari hluta ársins. Við
höfum verið að leggja aukna áherslu
á þennan hluta starfseminnar. Til
þess höfum við m.a. fengið til liðs við
okkur mjög öflugan og reyndan
rekstrarmann, Kristin Geirsson,
sem mun styrkja þennan þátt enn
frekar. Banki sem vaxið hefur jafn-
hratt og Glitnir þarf að bregðast
hratt og rétt við breyttum aðstæðum
og við erum að því. Nú gefst tími til
að skoða spilin – hver er kjarna-
rekstur Glitnis.“
– Íslensku útrásinni er þá lokið?
„Storminn verður að lægja. Það er
að rofa til, en við þurfum að búa við
stöðugt ástand í einhvern tíma áður
en við getum haldið áfram. Það er
eðlilegt að einbeita sér að kjarna-
starfsemi, fara í heilbrigða sjálfs-
skoðun og spyrja á hvaða mörkuðum
við getum verið samkeppnishæf og
skarað fram úr.“
– Hafa menn verið of djarfir?
„Það er erfitt að segja. Uppgjör
bankanna fyrir árið 2007 voru fín og
ég vænti þess að uppgjör fyrsta árs-
fjórðungs 2008 verði ágætt. Ég hef
ekki áhyggjur af gæðum eignanna
sem fjárfest hefur verið í. Stóra
vandamálið á heimsvísu er að fjár-
festar hafa áhyggjur af því sem kann
að leynast í bönkunum. Á sama tíma
eru íslenskir bankar gagnrýndir fyr-
ir að hafa vaxið hratt. Vissulega er
það rétt, en við þurfum að útskýra á
hvaða forsendum og að eignasafnið
sé traust. Það var skynsamlegt af
bönkunum að dreifa sínum tekjum
utan Íslands og fjármálageirinn hef-
ur skilað gríðarlegum hagnaði hing-
að til lands. Hann býr við óvissu
núna eins og allur fjármálageirinn í
heiminum.“
– Af hverju stafar þessi mikli
áhugi erlendra fjölmiðla á stöðu fjár-
málamarkaðarins á fámennri eyju
við heimskautsbaug?
„Í fyrsta lagi vekur athygli að
hægt sé að byggja upp öflug al-
þjóðleg fyrirtæki frá þessu litla landi
og það er nokkuð sem við getum ver-
ið stolt af.
En við þurfum líka að horfa í eigin
barm. Hugsanlega höfum við farið of
geyst. Og það verður að segjast eins
og er, að okkur hefur ekkert leiðst
sviðsljósið. Þú þarft að selja Morg-
unblaðið eins og aðrir, finna áhuga-
verðar fréttir og spennandi fyrir-
sagnir. Og við vorum með skráð
fyrirtæki sem fóru mikinn í fjárfest-
ingum og stundum yfirlýsingum. Í
stað þess að tóna niður það sem gert
var, þá hafa menn barið sér á brjóst.
Ég er ekkert saklaus af því frekar en
aðrir. Við höfum sóst eftir sviðsljós-
inu og þá leita menn að næstu frétt!
Það þarf að selja blöð.
En ekki verður litið framhjá því,
að við höfum náð árangri, bæði
markaðshlutdeild og viðskiptavin-
um, og það hefur áhrif á samkeppn-
isaðila okkar, sem eru knúnir til að
tjá sig um okkur. Við erum komin í
hinn stóra heim, þar sem sam-
keppnin er mikil – „all is fair in love
and war“. Við erum ekki lengur litla
saklausa Ísland.
Þetta kom berlega í ljós nú fyrir
helgi þegar erlendir fjölmiðlar
mögnuðu upp frétt um eitt dóttur
fyrirtækja Glitnis vegna at-
hugasemda frá yfirvöldum sem það
er nú að bregðast við. Umfjöllunin
var úr öllu samhengi við stærð fyr-
irtækisins og þýðingu þess fyrir
samstæðuna. Raunin er að félagið
hefur nær engin áhrif á rekstur okk-
ar og er aðeins aukastafur í efna-
hagsreikningi bankans. Það sama á
við um samkeppni um innlánsreikn-
inga, þar sem íslensku bankarnir
bjóða einföld kjör með góðri ávöxt-
un. Hvernig eiga bankar með mikla
yfirbyggingu að geta keppt við okk-
ur – í Finnlandi erum við með sex
manns í einu herbergi sem sjá um
þetta fyrir okkur. Svo hringir kúnn-
inn og segir: „Það er verið að bjóða
mér 6,2% vexti, hvað ætlar þú að
bjóða?“ Þá beita menn öllum ráðum
til að þurfa ekki að keppa í verði. „Þú
getur ekki lagt inn pening hjá ís-
lenskum banka! Ertu búinn að tapa
glórunni!?“ er þá viðkvæðið“
Brjáluðu Íslendingarnir
– „Glitnir veðjar á jarðvarmann“
var ein fyrirsögnin í bæklingi sem
dreift var á fyrirlestri Al Gores!
„Það hefur gefist bankanum vel að
sérhæfa sig með þessum hætti. Við
höfum góða reynslu af því úr sjávar-
útveginum, enda skilur umheimur-
inn vel að banki á Íslandi og í Noregi
búi yfir þekkingu á sjávarútvegi.
Við ákváðum að búa okkur til aðra
slíka markaðssyllu í orkugeiranum
fyrir þremur árum, enda hefur mikil
gerjun verið á því sviði, ekki síst fyr-
ir tilstuðlan forseta Íslands. Það tek-
ur langan tíma að byggja upp slíka
sérhæfingu. Það tók tíu ár í sjávar-
útveginum og menn hafa verið að
uppskera á undanförnum tveim ár-
um. Þá komst til skila að brjáluðu Ís-
Ekki lengur litla sa
Morgunblaðið/Frikki
Mikið hefur mætt á Lárusi Welding síðan
hann settist í forstjórastól Glitnis fyrir ári
síðan. Pétur Blöndal talaði við hann um
niðursveifluna á fjármálamörkuðum, hag-
ræðinguna og sóknarfærin hjá Glitni, sam-
keppnina og sviðsljós fjölmiðla.