Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 33

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 33 Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl. Seinni umsóknarfrestur er til 30. maí. Kynntu þér námið á www.hr.is ALLIR nemendur í meistaranámi í alþjóðaviðskiptum við HR fara í 3–6 mánuði til útlanda og stunda nám í öðrum háskólum eða sinna sérverkefnum hjá samstarfs- fyrirtækjum HR. Í haust fara 50 nemendur til 20 borga víðs vegar um heiminn. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 6 0 Gíbraltarsund. Samstarfsmennirnir voru ekki af verri endanum, Sophia Loren lék ástina í lífi garpsins og Anthony Mann leikstýrði myndinni, sem naut mikilla vinsælda, ekki síst í Laugarásnum. Það er komið fram á sjöunda ára- tuginn, hver stórmyndin rekur aðra, misjafnar að gæðum, eins og gengur. The Greatest Story Ever Told var sannkölluð epík en löng og leiðinleg – þótt brygði fyrir velflestum úr hópi vinsælustu kvikmyndaleikara heims (slíkt bruðl geisaði eins og stórabóla um kvikmyndaheiminn um þær mundir). 1965 fer stjarnan með titil- hlutverkið í Major Dundee, fáséðri en minnisstæðri Peckinpah-mynd úr Þrælastríðinu. Næstur á döfinni var sjálfur Michaelangelo í The Agony and the Ecstasy, eftir Carol Reed. Það má margt gott um Heston segja, en hann verður seint talinn listmál- aralega vaxinn. Þá var röðin komin að boxarauppreisninni í Kína, í mynd Nicholasar Ray, 55 Days at Peking, og Khartoum (’66) fylgdi í kjölfarið. Sú síðarnefnda er af mörgum talin sú sem státar af bestu frammistöðu Hestons á rösklega 100 mynda ferli. Hann leikur breska hershöfðingjann George Gordon, sem stjórnaði barátt- unni í Súdan við her múslima undir handleiðslu Mohammed Ahmed el Mahdi, sem var í meistarahöndum Laurence Olivier. Ómissandi verk fyrir alla Heston-aðdáendur. Frá fortíð til framtíðar Eins og sjá má af upptalningunni hafði Heston tekið að sér hvert hlut- verk genginna stórmenna af öðru, en nú bauðst honum nokkuð óvænt, harla nýstárlegt hlutverk Georges Taylors, geimfara hjá NASA. Út- koman vakti geysilega hrifningu og metaðsókn á Heston-mynd, hún er klassísk heimsendamynd í vísinda- skáldsögugeira kvikmyndanna. Vestrinn Will Penny kom einnig á óvart, mettaður af ofbeldi og skepnu- skap var hann harla ólíkur fyrri myndum leikarans sem fer með titil- hlutverk kúasmala sem er fengin gæsla á afviknum stað á fjöllum uppi. Þar hefur ekkja og sonur hennar hreiðrað um sig og að þeim sækja óbermi mörg og mergjuð í meðförum Donalds Pleasence, Bruce Derns, Bens Johnsons, Slims Pickens og Anthonys Zerbes. Dúndurgóður of- stopi í anda Peckinpah og Leones. Heston staldrar ekki lengi við í vestrinu og heldur aftur til framtíðar í The Omega Man (’71), sem gerist eftir ragnaök efnavopnastyrjaldar sem virðist hafa gjöreytt mannkyn- inu að lækninum Neville (Heston), undanskildum. Myndin var endur- gerð á síðasta ári undir nafninu I am Legend. Heston hélt sig áfram í framtíðinni í hinni undarlega sjarm- erandi B-vísindafantasíu, Soylent Green (’73), þar sem Edward G. Rob- inson bætir enn frekar upp á fé- lagsskapinn. Bitastæð hlutverk gerast fátíðari þegar síga fer á áttunda áratuginn, reyndar naut Earthquake (’74) ótrúlegra vinsælda, sem var tals- vert að þakka nýrri brellutækni. The Last Hard Men (’76) er á hinn bóginn vel skrifaður og vandaður vestri og The Mountain Men (’80) er af sama toga spunninn, eftir Fraser, son Hestons. Þeir voru býsna góðir saman karlarnir, Heston og Brian Keith, í þessum frumlega öræfa- vestra þar sem þeir fara meðal ann- ars á minnisstæðu hundasundi nið- ur straumþunga og kolmórauða jökulsá í vorleysingum. Tombstone (’93) var síðasti vestr- inn og stórmyndin á ferlinum og síð- asta áratuginn tók Heston lífinu með ró, lét sér nægja lítil hlutverk, gestarullur og sjónvarpsmyndir, hann var búinn að skila sínu dags- verki í framvarðarsveitinni. Ekki svo að skilja að hann lægi í iðjuleysi, fjarri því, hann tók að sér 24 hlut- verk á þessum 10 árum og lét að sér kveða í ræðu og riti. Í einkalífinu var „Chuck“ hæglát- ur sómamaður með ákveðnar skoð- anir sem hann var ófeiminn að verja. Frægt er þegar Spike Lee hafði á orði á kvikmyndahátíð í Cannes, að réttast væri að skjóta skrattakollinn hann Heston (sem var jafnan harð- svíraður talsmaður skotvopnaeig- enda og lengi formaður samtaka þeirra, National Rifle Association of America). Gamli maðurinn lét sér fátt um finnast og sagði að heimurinn væri skrítinn. „Árið 1963 vildu hvítir drepa mig fyrir að taka þátt í kröfu- göngu (undir forystu Martins Lut- her King) fyrir jafnrétti kynþátt- anna,“ sagði hann og sletti í góm. Þá var Heston formaður Samtaka kvikmyndaleikara og virkur, íhalds- samur stjórnmálamaður sem gekk yfir í Repúblikanaflokkinn árið 1987. Eiginkonan, Lydia Clarke, og börn þeirra tvö lifa Heston, sem var fæddur á litlu bóndabýli í Illinois 4. október 1923. Þau giftu sig á meðan Heston var enn óþekktur leikari, rétt áður en hann hélt í stríðið. Að því loknu sneri hann aftur til New York og fékk sitt fyrsta hlutverk á Broadway skömmu síðar – og leit aldrei um öxl. Hann þótti einstak- lega vandvirkur og eljusamur og undirbjó sig vel og lengi undir hvert hlutverk. Síðasta skiptið sem ég sá Heston bregða fyrir var einkar dapurlegt. Hinn undeildi heimildarmyndagerð- armaður Michael Moore sýndi þess- um aldna sómamanni hroka er hann misnotaði sér gestrisni hans við tök- ur á Bowling for Columbine, árið 2002. Hetjur eru dauðlegar eins og aðrir menn. Charlton Heston, sem slagaði hátt í tvo metra, með sína djúpu og hljómmiklu rödd og höfðinglega yf- irbragð, er tákn mikilleika og sak- leysis sem er löngu horfið úr bíósöl- unum. geimfara Apaplánetan Charlton Heston og Linda Harrison í Apaplánetunni 1968.saebjorn@heimsnet.is Já, það er eitthvað sorglegt við þetta allt saman, ekki aðeins fyrir þá sem ekki eru í nógu vel laun- uðum störfum að mati 9 ára drengs eða eru reknir vegna útlits eða ald- urs. Sárindin eru því miður ekki að- eins hlutskipti þeirra, þau sækja á endanum líka hina sem þá stundina telja sig betur setta. Lífið hefur undarlegt lag á því að ná sér niðri á þeim sem haldnir eru hroka, af hvaða tagi sem hann er. Og gerist það ekki í lifanda lífi, sem oftast er þó, hefur sagan tilhneigingu til að fella sinn dóm. Um þetta vitnar margt sem við höfum séð í sam- félaginu undanfarið – þau eru of mörg „Breiðavíkurmálin“ og af ýmsu tagi. Ef réttlætið nær ekki í skottið á þeim sem sýnir hroka, yf- irgang og ofbeldi eru það oft afkom- endur viðkomandi sem líða – og það er arfur sem fáir vilja skilja eftir sig. Hógværð, heiðarleiki og virðing fyrir góðum gjörðum og vel unnu starfi er farsælt í tíma og rúmi. Þetta ætti fólk að fá börn sín til að skilja, þá verða þau síður ógæfunni að bráð þegar fram líða stundir. gudrung@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.