Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 45
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Glæsileg og vönduð, 4ra herbergja, 109,3 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í litlu fjölbýli við Laug-
alind í Kópavogi. Parket og flísar á gólfum og þvottahús innan íbúðar.
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 15.00-16.00. V. 31 m. 7512
Laugalind 1 - glæsileg eign
Fróðengi 14, 1. hæð - laus strax. Sérstaklega glæsileg, 112 fm, 4-5 herbergja íbúð á 1.
hæð. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar. Þvottahús í íbúð. Sérgeymsla í íbúð og líka í
kjallara. 24 fm bílskýli fylgir íbúðinni. Timburverönd. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
SUNNUDAG FRÁ KL. 13.00-14.00.
V. 29,9 m. 7237
Fróðengi 14, 1. hæð - laus strax
Vorum fá að sölu glæsilega, 3ja herb., 92 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist
m.a. í stofu, sjónvarpshol og tvö rúmgóð herbergi. Þvottahús inn í íbúðinni. ÍBÚÐIN VERÐ-
UR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 15.00-16.00. V. 28,4 m. 7415
Arnarás 4, Gbæ. - jarðhæð
Mjög falleg og mikið standsett, 3ja herb., 77 fm íbúð í kjallara í 3-býlishúsi með sérinn-
gangi. Húsið stendur á baklóð. Íbúðin skiptist þannig: stofa, tvö herbergi, eldhús, baðher-
bergi, gangur og forstofa. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Sameiginlegt þvottahús.
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13:00-14:00. V. 20,9 m. 7444
Langholtsvegur 198 - kj.
OPIÐ
HÚS
OPIÐ
HÚS
OPIÐ
HÚS
OPIÐ
HÚS
4ra herb. glæsileg,116,8 fm íbúð með frábæru útsýni. Íbúðin er á 8. hæð og skiptist í hol,
3 herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
SUNNUDAG FRÁ KL. 15.00-15.30. (bjalla merkt 8E). Verð 36,9 millj.
Espigerði 4, 8E - útsýni
Háholt - Hfj. Vorum að fá í sölu mjög
fallega, 67 fm íbúð á 4. hæð í eftirsóttu
lyftuhúsi við Háholt í Hafnarfirði. Þvotta-
hús í íbúð. Mjög rúmgóðar svalir til suð-
vesturs. Fallegt útsýni.
Álfkonuhvarf - stórglæsileg Glæsileg
3ja herb., 99,9 fm íbúð með stórri verönd
og fallegu útsýni við Elliðavatn. Sérhann-
aðar glæsilegar innréttingar eru í íbúðinni.
V. 28,0 m. 7443
Hátún - glæsilegt útsýni Glæsileg 68,8
fm, 2ja herb íbúð á 7. h. með glæsilegu
útsýni. Eignin er hefur nýlega verið endur-
gerð frá grunni. Einnig er húsið endurgert.
Eignin skiptist m.a. í svefnh., stóra stofu,
eldh., og baðh. V. 26,9 m. 7400
Súluhólar - fallegt útsýni Falleg ca 60
fm, 2ja herb. íbúð á 2. h. í litlu fjölbýli. Lögn
fyrir þvottavél á baðherb. Góðar svalir.
Nánari uppl veitir Heiðar Birnir sölumaður
í síma 824-9092. Verð 15,5 millj.
OPIÐ
HÚS
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 – FAX 570 4810
www.gimli.is - www.mbl.is/gimli
Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 6.
hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi. 2 góð
svefnherbergi með skápum í öðru.
Eldhús með fallegri innréttingu, stál-
tæki. Baðherbergi með kari og stur-
tu, flísar í hólf og gólf. Stofa með
mikilli lofthæð. Milliloft er í íbúðinni
með góðum gluggum, notað sem
hjónaherbergi. Rúmgóðar vestur
svalir útfrá eldhúsi með miklu útsýni.
VERÐ 27,5 m
Traust þjónusta í 30 ár
M
bl
.9
91
03
8
OPIÐ HÚS
Í DAG MILLI KL. 15-16
FUNALIND 13 - LYFTUHÚS
OPIÐ HÚS VERÐUR Í DAG SUNNUDAG MILLI KL. 15-16,
HRAFN Á BJÖLLU. LAUS Í MAÍ
Íbúðin er 85 fm og skiptist í anddyri,
stofu, rúmgóð herbergi, baðherbergi
og fallegt eldhús. Gríðalega mikið
útsýni frá stofu. Gólfefni er parket og
flísar. Verð 17,9 millj.
OPIÐ HÚS
Í DAG MILLI KL. 14-15
VESTURBERG 28
OPIÐ HÚS VERÐUR Í DAG SUNNUDAG MILLI KL. 14-15,
ERLA OG FANNAR Á BJÖLLU.
3.000 fm skrifstofuhúsnæði
óskast á höfuðborgarsvæðinu
3.000 fm skrifstofuhúsnæði óskast til leigu sem fyrst
á höfuðborgarsvæðinu. Ekki eru gerðar miklar kröfur
til innréttinga, en næg bílastæði þurfa að vera fyrir
hendi.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17
Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
HALLDÓR Blöndal, formaður
bankaráðs Seðlabankans, virðist
hafa ruglast nokkuð í
ríminu þegar hann
heimsótti Snæfellsnes
nýverið. Hann hefur
slitið sig frá önnum í
bankanum og farið að
kynna sér þær fram-
kvæmdir sem standa
yfir við endurbygg-
ingu vegarins fyrir
Jökul, eins og við
Snæfellingar köllum
þá leið. Í pistli sem
hann skrifar í Morg-
unblaðið síðasta
sunnudag segir hann
frá ferð sinni að Malarrifi á Snæ-
fellsnesi, sem er innan þjóðgarðs-
ins. Hann rifjar upp viðureign
Kölska og Kolbeins Jöklaskálds á
Þúfubjargi, en notar óvænt þetta
tækifæri til þess að vega að und-
irrituðum þegar hann skrifar um
nauðsyn þess að leggja nýjan veg
að Dettifossi. Hann segir m.a.: ,,Við
höfum háð langa baráttu fyrir því
að koma vegi niður að Dettifossi.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hafði ekki skilning á mál-
inu, sem vitaskuld tafði það.“ Held-
ur finnast mér þetta kaldar kveðjur
frá manni sem var heil átta ár sam-
gönguráðherra án þess að hafast að
við vegagerð að Dettifossi. Þau tvö
kjörtímabil sem ég var samgöngu-
ráðherra var af minni hálfu ríkur
vilji til þess að byggja upp veginn
að Dettifossi. Vandinn var hins-
vegar sá að skipta þurfti fjár-
munum á milli verka og einhugur
ríkti ekki um það á heimaslóð hvar
hann ætti að liggja, eða hvort hann
ætti að vera forgangsverkefni.
Hugur þingmanna kjördæmisins
var ekki síður við önnur aðkallandi
verkefni. Enn virðist deilt um lagn-
ingu Dettifossvegar og það rifjar
Halldór upp í pistlinum. Hið rétta
hvað varðar undirbúning Dettifoss-
vegar er að fyrstu fjárveitingarnar
til framkvæmda komust á sam-
gönguáætlun í minni tíð sem sam-
gönguráðherra, en ekki í tíð for-
vera míns Halldórs Blöndal og
hefur þó væntanlega ekki skort
skilning hans á verkefninu. Af
hálfu þingmanna kjördæmisins var
lögð meiri áhersla á önnur verkefni
í vegagerð en Dettifossveg, enda af
mörgu að taka. Þar er um að ræða
verkefni svo sem Héðinsfjarð-
argöng, endurbyggingu hringvegar
um svokallaða Háreksstaðaleið
milli Norður- og Austurlands,
Reyðarfjarðargöng og
Tjörnessveg svo dæmi
séu tekin. Í ræðum
sem ég flutti sem ráð-
herra ferðamála um
nauðsyn samgöngu-
bóta, ítrekaði ég oft
nauðsyn þess að
byggja upp veg að
Dettifossi og mér
tókst að koma und-
irbúningi þess verk-
efnis af stað. Það sem
tafði þá framkvæmd
var ágreiningur um
legu vegarins eins og
áður sagði, en ekki ,,skortur á
skilningi“ samgönguráðherra. Von-
andi rennur sá dagur fljótlega upp
að þeirri framkvæmd ljúki, enda
hefur verkið verið boðið út og er
gert ráð fyrir verklokum árið 2009.
Það eru ónotaðir fjármunir í sam-
gönguáætlun til verksins. Þeir fjár-
munir eru ættaðir frá þeirri sam-
gönguáætlun sem undirritaður lét
vinna og fékk samþykkta á Alþingi
en með þeirri áætlun var veittur
rúmlega milljarður króna til fram-
kvæmda við Dettifossveg.
Til fróðleiks fyrir
Halldór Blöndal
Sturla Böðvarsson svarar pistli
Halldórs Blöndals »Heldur finnast mér
þetta kaldar kveðjur
frá manni sem var heil
átta ár samgöngu-
ráðherra án þess að haf-
ast að við vegagerð að
Dettifossi.
Sturla Böðvarsson
Höfundur er forseti Alþingis.
Fréttir
í tölvu-
pósti
smáauglýsingar
mbl.is