Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 47 Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Skipalón 16-20 á Hvaleyrarholti 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir á frábærum stað. www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is ÍS L E N S K A S IA .I S M O T 4 19 50 0 4. 20 08 Söluaðili: > Glæsilegar íbúðir, fyrir 50 ára og eldri, í Hafnarfirði Hvaleyrarholti Sölusýning í dag kl. 14:00 – 16:00 Skipalón • Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu. Ótrúlegt útsýni. • Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi inn af hjónaherbergi. • Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu íbúðunum. • 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og minniháttar tilefni). • Þvottastæði í bílageymslu. • Golfvöllur í göngufæri. Verðdæmi: • 2ja herb. m/ bílskýli frá 18.500.000 kr. • 3ja herb. m/ bílskýli frá 24.500.000 kr. • 4ra herb. m/ bílskýli frá 29.000.000 kr. ÉG HLUSTA mikið á BBC og þegar fregnir fóru að berast af mót- mælum í Tíbet og hvernig kínversk yfirvöld brugðust við (með ofbeldi) fór ég á netið til sjá hvort til væru einhverjar frekari heimildir um samskipti Tíbets og Kína. Á Google Video-síðunni fann ég heimild- armyndir sem fjölluðu um innrás Kína í Tíbet og hvernig undanfarin 58 ár hafa verið fyrir tíbetsku þjóð- ina. Kínverjar komu til Tíbet með friði árið 1949 og hófust handa við að hjálpa til við hin ýmsu búverk, en 1950 lýsti Mao formaður Tíbet sem hluta af Kína og eiginlegt hernám hófst. Það var haldið undir yfirskin- inu „frelsun“ þar sem kínversk yf- irvöld reyndu að telja Tíbetum trú um að þeir væru að frelsa þá frá hinni vestrænu ógn. Sama ár tók Dalai Lama formlega við hlutverki sínu sem trúarleiðtogi Tíbeta aðeins 15 ára gamall. Árið 1959 gerðu Tíbetar uppreisn. Þeirra hermáttur var lítill, sam- anstóð af 8.000 mönnum sem voru með afar frumstæð vopn, en það var ekki hefð í Tíbet fyrir að hafa her, enda friðsöm þjóð. Uppreisnin var brotin á bak aftur og næstu árin gerðust hrikalegir atburðir þar sem hin kínverska frelsun innibar þrælk- un, dauða og fangelsum fjölda Tíb- eta. Nauðganir, morð, geldingar og dæmi um að börn hafi verið látin myrða foreldra sína var hluti af þessari „frelsun“. Dalai Lama ásamt um 80.000 Tíbeta flúði til Indlands og hefur Dalai Lama verið í útlegð þar síðan 1959. Útlagastjórn Tíbeta er starfrækt í Dharamsala á Ind- landi, en þar er stærsta samfélag Tíbeta í heiminum. Á hverju ári flýja um 3.000 Tíbetar land sitt yfir hina ægilegu fjallagarða. Um 6.000 hof, bænahús og bygg- ingar hafa verið jöfnuð við jörðu og Kína hefur gert Tíbet að kjarn- orkuúrgangsruslahaug sínum. Í september 1987 var Dalai Lama í Washington að kynna friðaráætlun sína. Kínverjar svöruðu strax með áróðri um „aðskilnaðarsinnann“ Dalai Lama, þremur dögum síðar tóku þeir af lífi þrjá munka. Við sama tækifæri neyddu þeir 15.000 Tíbeta til að horfa á aftökuna. Upp úr því hófust mótmæli sem kínversk stjórnvöld börðu niður með svip- uðum hætti og þau gera nú, nema þá var Kína ekki að fara að halda Ól- ympíuleika og því gátu þeir stundað sín myrkraverk í friði. Þeir hófu strax að skjóta niður í massavís mót- mælendur sem voru óvopnaðir. Það lýsir ákveðinni örvæntingu að Tíbetar þori almennt að mótmæla í dag, miðað við söguna. Það að þeir þori, segir mér að þeir treysti því að augum heimsins sé beint að Kína vegna Ólympíuleikanna og Tíbetar virðast vera að grípa þetta síðasta hálmstrá. Ég persónulega vil ekki horfa undan lengur. Ég er ekki vanur að mótmæla eða standa að kröfugerð í verki. Ég eins og flestir Íslendingar horfi á frétt- irnar sem sýna stöðugt stríð og mannréttindabrot víða um heim. Ég horfi á hungursneyðir og gíf- urlegan sársauka með þeim doða sem hefur myndast í gegnum árin. Minn doði lýsir sér þannig að ég segi við sjálfan mig og aðra að þetta sé hrikalegt ástand en ég reyni samt að ýta þessu öllu frá mér sem er kannski eðlilegt. Hins vegar vil ég ekki vera dofinn. Ég vil ekki gera ekki neitt, því þá gerist ekki neitt. Þegar ég fór að kynna mér mál Tíbeta vaknaði eitthvað inni í mér. Ég fékk einhvers konar hugljómun um frelsi mitt, sem ég hef alltaf tekið sem sjálf- sögðum hlut. Það er sagt að frelsi fylgi ábyrgð. Gömul tugga sem hentugt er að henda fram við rétt tækifæri en ég finn að það er að vaxa með mér meðvit- und um ábyrgð mína. Ég lít svo á að sem handhafi frelsis og mannréttinda verði að hjálpa og reyna að gefa þeim, sem ekki hafa frelsi til að tjá sig eða iðka sína trú eða trú- leysi, rödd mína. Það er mín ábyrgð. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að kynna sér málin og sjá hvort þeir finni það ekki í hjarta sér að leggja Tíbetum lið í að öðlast frelsi svo þeir fái tóm til að rækta menningu sína og arf. En hún er að glatast. Tíbetar eru þvingaðir til að tala kínversku í Tíb- et. Ég hvet alla til að mæla með friði, málfrelsi, mannréttindum og náungakærleik, ekki aðeins í orði heldur jafnframt í verki. Ég vil líta á sjálfan mig sem með- mælanda fremur en mótmælanda. Það er einhvern veginn jákvæðara. Það sem ég get gert sem ein- staklingur er mjög mikið. Meira en ég hef áður leitt hugann að. Ég get til dæmis skrifa í blöðin, sent sendi- ráði Kína og kínverskum stjórnvöld- um í Peking bréf. Látið í mér heyra. Aðalatriðið er að miðla réttum upp- lýsingum á svona stundu og sýna Tíbetum að við stöndum með þeim. Ég vil að lokum skora á íslensk stjórnvöld að vakna og taka afstöðu til ofbeldisverka kínverskra stjórn- valda. Frændur okkar Norðmenn halda líka páskana hátíðlega en hafa samt sem áður séð sér fært um for- dæma aðfarir kínverskra ráða- manna. Ég mæli með að við gerum eitt- hvað. Fylgir frelsi ábyrgð? Jón Tryggvi Unnarsson skrifar bréf til íslensku þjóðarinnar og handhafa málfrelsis »Ég fékk einhvers konar hugljómun um frelsi mitt, sem ég hef alltaf tekið sem sjálfsögðum hlut. Það er sagt að frelsi fylgi ábyrgð. Jón Tryggvi Unnarsson Höfundur er tónlistarmaður. smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.