Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 53

Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 53 ✝ Þorsteinn SævarJónsson fæddist í Hafnarfirði 6. nóv- ember 1947. Hann lést á heimili sínu í Hátúni 12 í Reykja- vík 23. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Eggertína Sigurðardóttir hús- móðir, f. 7. október 1908, d. 3. febrúar 1979 og Jón Hall- dórsson skipstjóri og útgerðarmaður í Hafnarfirði, f. 17. maí 1902, d. 1. júní 1963. Systkini Þorsteins eru Sigrún, gift Pétri Ingasyni, búsett í Englandi, Guð- rún gift Ronald Lenahn (bæði lát- in), búsett í Banda- ríkjunum, Ólafía Kristín, gift Sigurði Sigurðssyni, og Pét- ur Einarsson (fóst- urbróðir), kvæntur Ragnheiði Jóns- dóttur. Þorsteinn vann hjá ÍAV Keflavík síðustu starfsárin uns hann varð að láta af störfum sök- um veikinda. Eftir það bjó hann að Há- túni í Reykjavík og naut þar þjónustu ÖBÍ og Sjálfs- bjargar. Útför Þorsteins var gerð frá Fossvogskapellu 1. apríl í kyrrþey. Fallinn er frá sannur vinur, bróðir og mágur. Öll vorum við skólasystkini í Flens- borgarskóla og eigum þaðan margar yndislegar minningar. Steini var ávallt skemmtilegur félagi og áhuga- samur um lífið. Knattspyrnan átti hug hans allan, þar voru vinirnir margir og félagsskapurinn góður. Aldrei dvínaði sá áhugi þrátt fyrir erfiða bar- áttu við veikindi. Steini dvaldist nokkur sumur í sveit hjá ömmusystur sinni Guðbjörgu Þórðardóttur og Sveini sem bjuggu á bænum Bjargi í Selvogi. Síðar var hann í sveit hjá góðu fólki á bænum Skarði norður í Eyjafirði. Átti hann margar skemmtilegar og ljúfar minn- ingar um þessi sumur og talaði títt um upplifanir sínar þessa góðu sumar- daga. Að skyldunámi loknu hóf Steini störf hjá Ísbirninum á Kirkjusandi og þar var hann að störfum um skeið. Um tvítugt var hann í verkavinnu við smíði Búrfellsvirkjunar sem þá stóð yfir. Þar lenti hann í slæmu vinnuslysi og náði sér seint upp úr þeim veik- indum. Eftir slysið vann Steini við út- keyrslu hjá fyrirtækinu Rafha í Hafn- arfirði. Hann var ætíð vel liðinn í starfi og átti marga góða samstarfs- menn. Síðar vann hann hjá Íslenskum aðalverktökum á Keflavíkurflugvelli við smíðar uns hann fór að vinna á lager hjá fyrirtækinu. Steini var ávallt stór hluti af fjöl- skyldu okkar hjóna. Hann dvaldi hjá okkur á stórhátíðardögum og var mikill gleðigjafi barna okkar. Eins eigum við margar góðar minningar um Steina er hann kom til okkar í bú- staðinn á Þingvöllum. Börnin biðu spennt eftir Steina frænda þar sem aldrei var lognmolla í kringum hann, hafði alltaf eitthvað fyndið og skemmtilegt af sjálfum sér og öðrum að segja og naut sín við veiðar með okkur í Þingvallavatni. Þar kom að Steini háði langa og erf- iða sjúkdómsbaráttu er vöðvarýrnun fór að gera vart við sig hjá honum. Þótt styrkur hans færi þverrandi starfaði hann áfram á lagernum hjá Íslenskum aðalverktökum til upphafs 10. áratugarins er hann varð að láta af störfum. Þrátt fyrir þessi miklu veik- indi var lífsviljinn gífurlegur og tjáði hann aldrei biturleika vegna að- stæðna sinna. Þar kom að hann þurfti að þiggja íbúð á vegum ÖBÍ og að lok- um aðstöðu á vegum Sjálfsbjargar þar sem hann naut mjög góðrar þjón- ustu og öryggis sem hann var þakk- látur fyrir. Steini var mikill áhugamaður um bókmenntir og þegar lestrargetan dvínaði var mikið frá honum tekið. Eitt af aðaláhugamálum Steina voru einnig ferðalög og þótt hann væri orð- inn hreyfihamlaður lét hann ekki bug- ast. Í Hátúni kynntist hann einhverju magnaðasta ferðafélagi landsins sem ber sæmdarheitið Flækjufótur og hefur staðið fyrir mörgum ferðum vítt um álfur og um landið þvert og endi- langt. Með því góða félagi ferðaðist Steini bæði til Kanada og Þýskalands auk margra ferða innanlands. Hann talaði oft um þessar frábæru ferðir og var augljóst hvað þessi góða þjónusta gaf honum mikið. Elsku Steini okkar. Á sama tíma og við erum þakklát fyrir það að þú hafir fengið hvíld frá erfiðum veikindum minnumst við þín með söknuði og virðingu. Þú varst hetjan okkar. Ragnheiður (Lilla) og Pétur. Elsku Steini. Það er svo margs að minnast um þig. Sérstaklega minnist ég allra jólanna sem þú varst hjá okkur þegar ég var lítill snáði heima hjá mömmu og pabba. Jólin hreinlega komu ekki án þín, það var bara fastur liður hver jól að Steini frændi kæmi og það var alltaf jafn spennandi og gaman að fá þig heim. Ég sakna þessara tíma með þér, en ég á minningarnar um þig í hjarta mér og kveð þig því hér með þessum orðum elskulegi frændi minn: Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn frændi Einar. Þegar ég minnist Þorsteins kunn- ingja míns þá er seigla fyrsta orðið sem kemur upp í hugann. Steini barð- ist við erfiðan sjúkdóm og var aðdá- unarvert að fylgjast með honum gera ýmsa hluti sem líkaminn var að verða of veikburða til að gera. Þá skein í gegn ótrúlegur vilji til að lifa sjálf- stæðu lífi, þolinmæði, seigla og dágóð- ur skammtur af þrjósku. Þessi blanda skilaði Steina langt og vakti aðdáun þeirra sem hann þekktu. Við Steini kynntumst fyrir um fimm árum þegar ég hóf störf í Há- túni 10 þar sem hann þá bjó. Við náð- um strax ágætlega saman þótt við værum mjög ólíkir í ýmsum skoðun- um en við náðum fljótt samkomulagi um að vera ósammála. Við náðum ein- staklega vel saman í gegnum ólækn- andi íþróttabakteríu og fylgdist Steini mjög vel með íþróttum, sérstaklega handbolta, fótbolta og golfi. Hann sýndi Hafnarfjarðarfélögunum FH og Haukum mestan áhuga og hafði taugar til beggja félaga. Sjónvarps- stöðin Sýn spilaði þar stóra rullu enda átti Steini ekki auðvelt með að sækja íþróttakappleiki. Það kom sér því oft vel þegar maður var að vinna að lauma sér inn til Steina og horfa með honum á smábolta. Steini var minnugur og talaði mikið um liðna tíma, ræddi um ferðalög sem hann hafði farið í og varð sérstaklega tíðrætt um þann tíma sem hann vann á Keflavíkurflugvelli. Oft barst í tal að við færum saman til útlanda enda hafði Steini mikinn áhuga á að ferðast en veikindi hans gerðu honum erfitt um vik að ferðast hin síðari ár. Steini þekkti marga hér í Hátúninu, var tíð- ur gestur á kaffistofunni og það var sjónarsviptir að honum þegar hann flutti sig um set aðeins neðar í götuna. Mikill baráttujaxl er fallinn frá og mun ég alltaf minnast Þorsteins með aðdáun. Áðurnefnd seigla hans og ákveðni var aðdáunarverð og til eft- irbreytni. Megi hann hvíla í friði, laus við veikindin. Aðstandendum Þor- steins votta ég mína dýpstu samúð. Kári Þorleifsson. Þorsteinn Sævar Jónsson Ég kynntist Valdi- mar Ólafssyni flugum- ferðarstjóra haustið 1974 er ég sat einka- flugmannskvöldnám- skeið flugskólans Flugstöðvarinnar hf. Valdimar kenndi þar Flugreglur eða ICAO Annex, nokkur bindi. Það gustaði af karlinum. Ég var bara menntaskólanemi á öðru ári sem vildi verða flugmaður ef svo ólíklega vildi til að ég gæti lært öll þau fræði og staðist endalaus próf og kröfur sem til var ætlast. Ég gat ekki annað en hrifist af þessum manni sem kenndi af alúð, brennandi áhuga og sprengikrafti svo eftir var tekið strax á fyrstu mínútu í fyrsta tíma. Hann var flottur á velli hann Valdimar; glæsimenni, grannur, hávaxinn, hafði hljómmikla barítónrödd og svipti af sér lestrargleraugunum annað veifið svo næstum hvein í. Valdimar var þá yfirflugumferðarstjóri á Íslandi og öllum hnútum kunnugur. Hann brenndi inn í mann flugreglutextann orðrétt, m.a. óvissuástandið ef vél er komin framyfir og svarar ekki kalli „INCERFA“ „ALERFA“ „DI- STRESSFA“ svo undir tók í stofunni og aldrei gleymist. Ekki datt mér þá í hug að ég yrði síðar samkennari hans hjá Flugskóla Íslands. Það voru skemmtilegar stundir hjá okkur tveimur í kaffistof- unni, í frímínútum, er við vorum með sinn bekkinn hvor, frásagnargleði hans og kraftur hvað sem umræðu- efnið var þá og þá stundina engu minni en áratugum áður. Valdi kenndi öllum starfandi flug- mönnum á Íslandi flugreglur og morse, hvorki meira né minna, fram að 1998 er hann lét af stundakennslu. Hvort sem Valdi var í hlutverki flug- umferðarstjóra eða kennara skein af honum virðing fyrir okkur flugmönn- um (næstum gamaldags í orðsins bestu merkingu) sem og starfi okkar. Sú virðing var sannarlega gagnkvæm hjá okkur öllum. Ég sit hér á skrifstofu minni í 37.000 fetum og horfi á skjáina fyrir framan mig og stöðumiðið VALDI á N6112.0 og W000 00.0. Það var að sjálfsögðu skírt í höfuðið á „Ví Oh“ um 1988 þegar fimm stafa nöfnin voru tekin upp. Mér hlýnar um hjartarætur að geta kallað í Stavan- ger Control og tilkynnt „Iceair 306 is passing VALDI Flight Level 370“. Nafn Valda á eftir að hljóma yfir Norður-Atlantshafi um ókomna tíð. Helgi S. Þorsteinsson. Kveðja frá Rótarýklúbbnum Reykjavík-Breiðholt Valdimar Ólafsson var einn af stofnfélögum klúbbsins okkar, sem stofnaður var fyrir rúmum 25 árum. Valdimar var ávallt virkur í starfinu og hann var m.a. forseti klúbbsins og heiðursfélagi. Hann var sannur Rótary-maður, mikill félagsmálamaður og forystu- maður í sínu fagi og yfirflugumferð- arstjóri til margra ára. Hann var alltaf hinn jákvæði félagi, sem setti sinn svip á hvern þann fund sem hann sat. Það fór aldrei framhjá félögunum að Valdimar væri mættur og allir muna eftir hans glaðlega við- móti og hvella hlátri. Á síðasta fundi skráði Valdimar sig í ferð, sem klúbbfélagar hans eru að skipuleggja til Lissabon. Hann hefur áður tekið þátt í utanlandsferðum klúbbsins og verið hrókur alls fagn- aðar. Heiðursmaðurinn Valdimar Ólafs- son er látinn. Kynni mín af Valdimari eru margþætt, sem nábýlingur í Lundahólum í 33 ár, sem samstarfs- Valdimar Ólafsson ✝ Valdimar Ólafs-son fæddist á Mosvöllum I í Ön- undarfirði 13. ágúst 1926. Hann varð bráðkvaddur 2. apr- íl síðastliðinn og var jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju 11. apríl. maður í sóknarnefnd í Hólabrekkusókn í fjölda ára og síðast en ekki síst var Valdimar meðhjálpari í Fella- og Hólakirkju um margra ára skeið. Í kirkjunni naut Valdimar sín vel, hann var vel heima í fræðunum, var mikill og góður söngmaður og alltaf traustur og gefandi. Það var því mjög gott fyrir kirkjuna að fá Valdimar til starfa er hann lauk starfi sínu sem yfirflug- umferðarstjóri, en því starfi gegndi hann um áraraðir. Valdimar var sterkur persónuleiki og var aldrei nein lognmolla í kringum hann þar sem hann kom. Við munum sakna þess í Fella- og Hólakirkju að hann mæti ekki við næstum allar athafnir sem þar fara fram því Valdimar lét sig sjaldan vanta þó hann væri hætt- ur störfum. Í sóknarnefnd hafði Valdimar alltaf eitthvað til málanna að leggja, hann var traustur fulltrúi í hinum ýmsu embættum sem fylgja starfi í sóknarnefnd. Valdimar var mjög góður penni og flutti okkur í sóknarnefndunum alltaf mjög góðar skýrslur af þeim fundum er hann sat sem fulltrúi okkar. Í Lundahólum eru 6 hús og voru Valdimar og Helga frumbyggjar í götunni, fluttu inn haustið 1974. Góð- ur vinskapur myndaðist fljótt við þau hjón og voru börnin ekki undanskilin. Valdimar var mjög barngóður og hafði gaman af börnum. Nú þegar vorar verður tómlegt í Lundahólun- um að sjá ekki Valdimar í garðinum sínum sitjandi með bók í hönd eða við skriftir. Að leiðarlokum sendum við fjöl- skyldan í Lundahólum 1 Helgu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur við fráfall góðs eiginmanns og föður. Þá eru einnig færðar hugheilar þakkir frá sóknarnefndum og starfs- fólki við Fella- og Hólakirkju. Blessuð sé minning Valdimars Ólafssonar. Benedikta G. Waage, formaður Hólabrekkusóknar. Það er ekki algengt að maður undr- ist stórum þegar eldra fólk kveður, en svo var sannarlega raunin er ég las tilkynningu um andlát Valdimars Ólafssonar. Seinast sá ég hann á harðahlaupum í Reykjavíkurhlaupi Glitnis í fyrrasumar og hafði einnig hitt hann við skráninguna í hlaupið þar sem við spjölluðum góða stund ásamt fleiri fyrrverandi nemendum hans. Valdimari kynntist ég við nám hjá Skóla Flugmálastjórnar þar sem hann kenndi atvinnuflugmönnum flugreglur. Líklegt er að langflestir flugmenn hafi einhver kynni af Valdi- mari enda hefur hann kennt flugregl- ur svo lengi sem elstu menn muna. Ég mun minnast hans að góðu einu, þó kennsluhættir hans væru gamaldags þá verður eftirminnileg virðing hans fyrir starfsumhverfi okkar í fluginu. Þessa virðingu tók hann nærri sér og hann sýndi það í kennslu sinni og krafðist þess sama af óhörðnuðum ungliðum í fluginu. Hver man ekki eftir sögunum hans, þar sem hann lýsti reynslu sinni í flug- turninum og samskiptum við flug- menn „púllaðu upp!“ kallaði hann hátt yfir kennslustofuna með tilheyr- andi handapati og áherslum. Þessar stundir lifa. Morskennsla lagðist að mestu af fyrir nokkrum árum, en Valdimar var harður fylgismaður þess að flugmenn hlytu grundvallarþekkingu í morsi. Til þess notaði hann forláta lampa- magnara sem ekki var nothæfur í fyrstu kennslustund sökum þess að hann þurfti tíma til að hitna. Þetta var gamaldags kennslumáti en skemmti- leg minning um gamla tíð. Virðing fyrir fluginu var ekki ein- göngu áberandi hjá Valdimari, heldur var það virðingin fyrir starfsfélögun- um. Mér þótti sérstaklega vænt um það þegar ég sá að Valdimar hafði skrifað minningargrein um föður minn Kára Guðmundsson flugum- ferðarstjóra sem lést í flugslysi 1971, en á þeim tíma var Valdimar yfirflug- umferðarstjóri. Fór Valdimar fögrum orðum um fallinn starfsbróður sinn og hefur alla tíð mátt sjá að hann bar mikla virðingu fyrir starfsfélögum sínum og hann leit svo sannarlega á okkur flugmenn sem nána samstarfs- menn. Minning hans lifir um ókomna tíð í hugum flugfólks, enda átti Valdimar stóran þátt í mótun flugsögu Íslend- inga, bæði hvað varðar flugumferð- arþjónustuna sem hann lagði krafta sína í frá upphafi en einnig varðandi kennslu- og menntunarmál flug- manna. Fjölskyldu hans og vinum votta ég innilega samúð mína. Kári Kárason. Mig langar að minnast fyrrverandi kennara míns og félaga Valdimars Ólafssonar, fyrrverandi yfirflugum- ferðarstjóra. Valdimar var einn þeirra manna sem hafa smitandi áhuga fyrir flugi og öllu því tengdu. Hann kenndi mér og bekkjarfélögum mínum flugreglur og mors í Flug- skóla Íslands fyrir rúmlega áratug. En Valdimar var ekki bara kennari heldur alveg frá byrjun félagi okkar sem vorum í þessu námi. Hann tók þátt í félagslífinu eins og lífsglaður unglingur, þótt kominn væri yfir sjö- tugt – sagði stórkostlega frá upphafs- árum sínum í bransanum – t.a.m. held ég að býsna margir flugmenn kannist við frasann „pullaðu upp“ – sem hann gargaði í lófann á sér, eins hann héldi á talstöð og væri lifandi staddur í gamla flugturninum á Reykjavíkur- flugvelli og Katalínan að renna sér til lendingar yfir Suðurgötuna. Einnig er mér minnisstætt að við tveir sung- um manna mest þegar haldið var upp á einn áfangann í flugnáminu á góðri stund í heimahúsi, enda var hann mikill unnandi tónlistar og ljóða. Það var alltaf áberandi hversu vel Valdi- mar bar sig – hnarreistur og glað- lyndur, lífskúnstner og fagurkeri. Hann var skemmtilegur kennari, en um leið ákveðinn og lét þá nemendur heyra það sem að hans mati sýndu náminu ekki þá virðingu sem það átti skilið. Vestfirðingurinn Valdimar frá Mosvöllum í Önundarfirði var einn frumkvöðla í íslenskri flugsögu og lagði svo sannarlega sitt af mörkum í faginu. Í tæp 40 ár kenndi hann at- vinnuflugnemum bókleg fræði. Hann var fyrsti fyrsti formaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra og heið- ursfélagi þess félags. Hafðu þökk fyr- ir framlag þitt til flugsins kæri félagi. Ég sendi fjölskyldu Valdimars, vin- um og öðrum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags íslenzkra at- vinnuflugmanna. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.