Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 54
54 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Við munum eftir því þegar við
vorum litlir og þú komst inn í
herbergi okkar bræðra og fórst
með bænir með okkur fyrir
svefninn. Við munum líka eftir
ferðalögum um Ísland, þú varst
mikið náttúrubarn og elskaðir
að fræða okkur um landið. En
sjúkdómurinn sem þú glímdir
við tók þig frá okkur fyrir
löngu. Við vitum að þú gerðir
þitt besta elsku pabbi.
Guð geymi þig.
Einar og Elías.
Kæri Siggi afi. Mér þykir
leitt að þú sért dáinn. Fannst
þér gaman að vera lögga? Ég
held að þér hafi fundist það
gaman. Varst þú duglegur að
vinna? Lastu margar bækur?
Fannst þér gaman að vera lif-
andi?
Lilja Maren.
HINSTA KVEÐJA
✝ Sigurður Ein-arsson fæddist á
Gljúfri í Ölfusi 21.
maí 1955. Hann lést
á heimili sínu í
Reykjavík á páska-
dag, 23. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Freyja
Fanndal Sigurð-
ardóttir, f. 10. nóv-
ember 1936 og Ein-
ar Sigurðsson, f. 3.
maí 1928, bændur á
Gljúfri. Systkini
Sigurðar eru: Jó-
hanna Lilja, f. 10. apríl 1958, gift
Jakobi Gunnarssyni, f. 27. desem-
ber 1955, Sigrún, f. 18. janúar
1962, gift Sigurjóni Sigurðssyni,
f. 5. apríl 1962, Kristján, f. 18. jan-
úar 1962, sambýliskona Ólöf
Birna Waltersdóttir, f. 12. nóv-
ember 1961, og Guðný, f. 16. jan-
úar 1968, gift Unnari Jóni Krist-
jánssyni, f. 12. maí 1966.
Sigurður kvæntist Þórunni
Lind Elíasdóttur, f. 13. júlí 1957.
Börn þeirra eru: 1)
Einar, f. 27. janúar
1980 og 2) Elías Sig-
urðsson, f. 15. mars
1982, sambýliskona
Halla Jónsdóttir, f.
11. ágúst 1982. Börn
þeirra eru Lilja
Maren, f. 10. nóv-
ember 2000 og Jón
Breki, f. 15. apríl
2002.
Sigurður ólst upp
á Gljúfri hjá for-
eldrum sínum. Að
lokinni hefðbund-
inni skólagöngu fór hann í iðn-
nám. Hann lauk námi í trésmíði
við Iðnskólann í Vestmannaeyjum
og starfaði í þeirri iðngrein um
skeið. Síðan lauk hann námi í
Lögregluskólanum og varð lög-
gæsla hans aðalstarf. Hann var
lögreglumaður í Vestmanna-
eyjum, Grundarfirði og á höf-
uðborgarsvæðinu.
Sigurður var jarðsunginn frá
Kotstrandarkirkju 2. apríl.
Þú áttir líf, þú áttir augnablik.
Þú áttir kjark, þú sýndir aldrei hik.
Þú áttir styrk, þú hafðir hreina sál.
Þú áttir ljós, þú áttir barnsins mál.
Þinn tími leið, þú kvaddir lífið skjótt.
Það komu él, það dimmdi eina nótt.
Þú barðist vel, þú lagðir lífi lið.
Þú loksins fannst hjá Guði einum frið.
(Höf. ókunnur.)
Hann Siggi bróðir er farinn sína
síðustu ferð hér á jörðu. Síðustu
daga hafa minningarnar runnið í
gegnum huga minn. Sumum hef ég
brosað að, öðrum grátið yfir. Hann
var kannski ekki alltaf sá þolinmóð-
asti við okkur þegar við vorum
krakkar, enda alveg skiljanlegt. Við
Stjáni höfum trúlega verið frekar
þreytandi, ósjaldan vorum við á eftir
honum. En þegar við urðum ungling-
ar þá var hann oft sá besti stóri bróð-
ir sem hægt var að hugsa sér. Átti
alltaf nammi og gerði svo margt fyrir
okkur og stríddi okkur alveg enda-
laust. Ég man alltaf þegar við fórum
einu sinni sem oftar í gönguferð í
Gljúfrið, hann með dýru, flottu
myndavélina sína með, þegar hann
sagði: „Getur ekki einnhver haldið á
myndavélinni fyrir mig?“ Öll vorum
við áköf í það, svo leit hann í augun á
mér og bað mig fyrir hana. Systkini
okkar voru nú ekki ánægð með það,
að treysta Sigrúnu fyrir myndavél-
inni, hún væri alltaf dettandi. En
Siggi sagði: hún Sigrún passar sig.
Mikið ofboðslega var ég stolt og
myndavélina passaði ég sem sjáald-
ur augna minna. Siggi var einn af
þessum mönnum sem eiga svo auð-
velt með að auka sjálfstraust fólks í
kringum sig. Að heimsækja hann og
Lind til Vestmannaeyja var algjört
ævintýri fyrir sveitakrakkana og að
eiga stóran bróður sem var lögga;
mikið svakalega litum við upp til
hans. Þegar ég fór að búa í sveitinni
þá komu þau Lind og strákarnir svo
oft og voru hjá okkur og alltaf var
Siggi tilbúinn að hjálpa okkur. Þegar
við fórum að byggja húsið þá var oft
gott að geta hringt í smiðinn hann
Sigga bróður og spyrja ráða. Oftast
sagði hann: „Heyrðu elskan, ég kem
um helgina og redda þessu,“ sama
um hvað var að ræða. Síðan sátum
við oft framundir morgun og spiluð-
um. Að gefa honum Sigga góðan mat
var alltaf jafn gaman. Hann naut
þess að borða, klappaði svo á belginn
á sér, brosti og sagði: rosalega var
þetta gott. Hann naut þess líka að
elda enda kokkur af Guðs náð. Veiði-
ferðirnar okkar inn á afrétt, fyrsta
utanlandsferðin okkar til London,
Danmerkurferðin okkar þegar við
fórum með alla krakkana, allt eru
þetta yndislegar minningar sem við
eigum um alla framtíð. Síðustu árin
voru Sigga erfið, svo og öllum hans
nánustu. Hann háði erfiða baráttu
við öflugan óvin, sem smátt og smátt
tók persónuleika hans og breytti
honum. Siggi var ekki sá sami en
alltaf fékk maður hlýja góða brosið
hans þegar maður kom og ert þú
komin elskan mín, rosalega er gam-
an að sjá þig. Ég veit að nú er Siggi
kominn á betri stað og amma, afi og
Simmi frændi hafa tekið honum opn-
um örmum. Með þessum fátæklegu
orðum langar mig að þakka Sigga
bróður fyrir allt. Elsku Einar, Elías,
Halla, Lilja Maren, Jón Breki,
mamma, pabbi og aðrir aðstandend-
ur, Guð veri með ykkur.
Sigrún.
Sigurður frændi lést eftir langa
baráttu við erfiðan sjúkdóm. Mér
þótti mikið til hans koma frá okkar
fyrstu kynnum þegar hann var á
barnsaldri, stór og virðulegur með
sterkan svip og athugult augnaráð
sem gaf til kynna að hann vildi fá
svör við spurningum sínum undan-
bragðalaust. Hann var snemma
kraftmikill og vinnusamur og vilda
láta verkin ganga rösklega. Þegar
hann var fimm ára gamall var hann
að hjálpa til við að hirða hey og
fannst það ganga heldur hægt, þá
heyrir mamma hans að hann segir:
Þetta gengur ekki lengur, eg sæki
hjólbörur og dríf þetta af. Þessi litla
saga lýsir vel þeim dugnaði sem ein-
kenndi öll hans störf.
Þó hann dveldi löngum fjarri
æskustöðvum var æskuheimilið sá
staður sem var honum kærastur og
margar ferðir fór hann með fjöl-
skylduna austur að Gljúfri þegar
tími gafst.
Það var okkur Halldóru mikil
ánægja að fá að heimsækja foreldra
hans á myndarlegt heimili þeirra á
Glúfri og sjá börnin þeirra vaxa úr
grasi, hvert öðru mannvænlegra. Við
vorum viðstödd fermingu hans og
síðar fermingu sona þeirra Þórunn-
ar.
Það er venja í ætt okkar þegar
eitthvað er um að vera hjá einhverj-
um í fjölskyldunni að sem flestir
komi saman til að fagna og styrkja
fjölskylduböndin.
Sigurður barðist við þungbær
veikindi árum saman en lundarfar
hans var þannig að uppgjöf kom
aldrei til greina og stundaði hann
vinnu sína allt til endadags. Hann
var hraustmenni og bar sig vel fram
á síðasta dag. Það var honum víðs
fjarri að hætta störfum og bíða enda-
lokanna, þó hann vissi að þeirra var
skammt að bíða. Guðrún Jóhannes-
dóttir setti fram mannlýsingu í ljóði
sem á hér vel við.
Hann gekk hér um að góðra drengja sið,
gladdi mædda, veitti þreyttum lið.
Þeir fundu best sem voru á vegi hans
vinarþel hins drenglundaða manns.
Þó ævikjörin yrðu máski tvenn,
hann átti sættir jafnt við Guð og menn.
Þegar góður drengur eins og Sig-
urður kveður má vekja von og leita
huggunar í boðskap í ljóði skagfirska
skáldsins Kristjáns Stefánssonar.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar
því tíminn mér virðist nú standa í stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum ei ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör
sem gist hefur þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl
sem eygir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs,
í vanmætti sem er oss yfir,
ef ljósið á kertinu lifir.
Við Halldóra sendum foreldrum,
systkinum og öllum ættingjum inni-
legustu samúðarkveðjur og viljum
sameinast þeim í hinstu kveðju með
ljóði Þórunnar Sigurðardóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Blessuð sé minning hans.
Ari Sigurðsson.
Góður drengur hefur kvatt þetta
líf eftir erfið veikindi.
Víst er að síðustu árin hafði Siggi
ekki tækifæri til að sinna því sem
hugur hans helst stóð til en það var
frá unga aldri hans ósk að halda utan
um sína nánustu sem eiginmaður,
elsti sonur og stóri bróðir og seinna
sem faðir sem veita vildi sonum sín-
um tveimur allan mögulegan styrk
og stuðning í uppeldi og menntun.
Ekki rætast allar óskir okkar
mannanna en engu að síður ber að
virða þær, því þær endurspegla okk-
ur sjálf og sýna hvern mann við höf-
um að geyma, hvort sem úr rætist
eður ei.
Aldrei bar skugga á samband okk-
ar þau tæpu 25 ár sem við tilheyrðum
sömu stórfjölskyldunni og öll höfum
við margs góðs að minnast og þakka.
Samúðarkveðjur til sona, tengda-
dóttur, barnabarna, foreldra, systk-
ina og fjölskyldna þeirra og megi
góðu minningarnar lifa með okkur
öllum.
Með þökk fyrir liðna tíð,
Halla Guðmundsdóttir og fjöl-
skyldan frá Vestmannaeyjum.
Elsku Siggi.
Stundum förum við á mis við það
sem lífið hefur upp á að bjóða,
gleymum okkur í annríki dagsins og
náum ekki áttum fyrr en það er orðið
of seint. Mér líður svolítið þannig
núna. Þú varst góður maður, Siggi,
og ég mun alltaf minnast þín þannig.
Þú varst hlýr persónuleiki, tókst
mér opnum örmum frá upphafi og
hjálpaðir mér á ótal vegu. Ég gleymi
því aldrei.
Hvíldu í friði.
Þín tengdadóttir,
Halla.
Sigurður Einarsson
✝ Guðjón Guð-mundsson fædd-
ist á Álafossi 21.
febrúar 1928. Hann
lést á Landspít-
alanum 13. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Kristín Jónsdóttir,
f. á Læk í Ölfusi 7.
júní 1903, d. 1. apríl
1937, og Guð-
mundur Kristinn
Guðjónsson, f. 17.
júní 1891, d. 29. jan-
úar 1971. Systkini
Guðjóns eru Hallgrímur Valgeir,
f. 5. október 1930, d. 11. maí 2004,
María Halldóra, f. 23. janúar
1934, Hulda Ester, f. 15. maí 1935,
og Kristín, f. 6. mars 1937. Hálf-
systir samfeðra Finnbjörg, f. 18.
mars 1941, d. 10. nóvember 2002,
móðir hennar var Guðný Finn-
bogadóttir, f. 17. júní 1901, d. 25.
febrúar 1942.
Fyrri eiginkona Guðjóns var
Elisabet Sveinsdóttir, f. 1926, d.
1989. Börn þeirra eru: 1) Fríða
Kristín Elísabet, f. 1949, maður
hennar Hans Hafsteinsson, f.
1946. Börn þeirra eru Hafsteinn,
f. 1972, sambýliskona Erla Anna
Ágústdóttir, f. 1982, Elísabet, f.
1974, gift Gunnari R. Jónssyni, f.
1974, þau eiga fjögur börn, Daði,
f. 1980, og Jón Pétur, f. 1983. 2)
Sonja Guðbjörg, f.
1951, giftist Guð-
mundi Bernhar-
dssyni, f. 1951, þau
skildu. Börn þeirra
eru: Gísli Valgeir, f.
1974, á einn son,
Guðbjörg, f. 1978,
maður hennar Jón
Gunnar Krist-
jánsson, f. 1979, þau
eiga tvo syni, og
Bernharður, f. 1983.
3) Guðmundur
Kristinn, f. 1953, d.
1979. Seinni kona
Guðjóns var Hulda S. Fjeldsted, f.
8. júní 1919, d. 23. febrúar 2002.
Sonur þeirra er Gunnar Þór, f. 25.
nóvember 1959, kvæntur El-
ínborgu Magnúsdóttur, f. 23. maí
1960. Þau eiga þrjár dætur,
Huldu Rós, f. 25. febrúar 1984,
Ester Ósk, f. 11. mars 1988, og
Lindu Björk, f. 28. júlí 1990. Fyrir
átti Hulda tvö börn: a) Sigurður
Rúnar Jónasson, f. 6. febrúar
1939, fyrri kona hans er Ebba Ás-
geirsdóttir og börn þeirra eru:
Ásgeir Jónas og Lára Guðrún.
Seinni kona hans er Hulda Böðv-
arsdóttir. b) Bára Böðvarsdóttir,
f. 11. október 1942, maður hennar
er Friðrik Hróbjartsson. Þau eiga
tvo syni, Böðvar og Friðrik Inga.
Útför Guðjóns var gerð frá
Fossvogskapellu 25. mars.
Ég kynnist Guðjóni fyrst að ráði
þegar ég fór að fara í heimsókn til
mömmu og Guðjóns í sumarbústað-
inn við Álftá á Mýrum. Þangað var
gott að koma og dvaldi Ásgeir sonur
minn t.d. hjá þeim um tíma. Þetta
er fyrsta minningin en þó hafði ég
töluvert meira af honum að segja í
seinni tíð og sérstaklega er hann
kom á verkstæðið til mín í morg-
unkaffi. Þá var oft skeggrætt um
ýmis málefni og sagði mér oft frá
ýmsum atvikum tengdum starfi
hans fyrir bankann. Einnig bar oft
á góma málefni tengd Álftá á Mýr-
um og hve mikið þeir hefðu gert
leigutakarnir á sínum tima til að
lífga hana við. Svo skemmtilega vill
til að nú er ég sjálfur farinn að
stunda þessa sömu á þannig að
Guðjón hefur greinilega kveikt
áhuga minn.
Guðjón var þægilegur í viðmóti,
fróður um menn og málefni og var
ætíð gaman að spjalla við hann.
Hann sagði aldrei meira en hann
gat staðið við og hallmælti aldrei
einum né neinum.
Ég vil þakka Guðjóni fyrir allar
góðar samverustundir á liðnum ár-
um.
Blessuð sé minning hans.
Sigurður Rúnar.
Kær vinur minn og fósturfaðir
konunnar minnar Báru Böðvars-
dóttur er látinn.
Ég kynntist Guðjóni árið 1959 er
ég fór að venja komur mínar á
heimili tengdamóður minnar Huldu
S. Fjeldsted og Guðjóns til að hitta
heimasætuna.
Við Guðjón urðum fljótt góðir fé-
lagar og í nær 50 ár höfum við átt
mikil og góð samskipti.
Ég minnist margra og skemmti-
legra veiðitúra í Álftá á Mýrum sem
við stunduðum um margra ára bil.
Vorum við meðal leigutaka árinnar í
17 ár og áttum þar margar ógleym-
anlegar samverustundir. Í þannig
umhverfi og félagsskap kynnist
maður miklu nánar heldur en í erli
hvunndagsins. Í upphafi þessa tíma,
eða í byrjun sjöunda áratugarins,
voru aðstæður harla fábrotnar og
bjuggum við í tjaldi við ána. Síðar í
samvinnu við samleigjendur útveg-
uðum við okkur lítinn vinnuskúr
sem við notuðum sem veiðikofa. Síð-
ar byggði Guðjón sitt eigið sum-
arhús sem var jafnframt notað sem
veiðihús af okkar fjölskyldu. Þar
var fjölskyldan oft saman á sumrin í
góðu yfirlæti hjá Guðjóni og Huldu.
Hulda kona hans fékk heilablóð-
fall aðeins 67 ára gömul og lamaðist
að hluta og var á hjúkrunarheimili
upp frá því eða í 14 ár. Þetta var
mikil breyting fyrir okkur öll því
Hulda var mikil húsmóðir og góð
heim að sækja.
Á þessum tíma var ekki auðvelt
fyrir ungt fólk að koma yfir sig
þaki, lítið um lán og fyrirgreiðslu
banka. Okkur hjónunum tókst að
kaupa fokhelda íbúð í Kópavogi og
með dyggri hjálp Guðjóns við að
innrétta íbúðina tókst okkur að
eignast okkar fyrstu íbúð.
Seinna og alltaf þegar við stóðum
í byggingarframkvæmdum var Guð-
jón okkur stoð og stytta. Hans frá-
bæra kunnátta og fagmennska sem
byggingarmeistara kom okkur oft
vel.
Guðjón var traustur vinur, alltaf
rólegur og einbeittur og það var
gott að vera í návist hans.
Alla tíð voru samskipti hans við
Báru fósturdóttir sína mjög náin.
Hann kom mjög oft í heimsókn á
heimili okkar og nutum við fé-
lagsskapar hvert annars. Við sökn-
um hans sárt en þökkum með eft-
irsjá samverustundirnar.
Drengjunum okkar Böðvari og
Friðrik Inga og þeirra fjölskyldum
var hann sem góður afi og töluverð
samskipti voru á milli þeirra. Þau
minnast hans öll með virðingu og
kærleika.
Það er mikil eftirsjá að Guðjóni,
hann var merkur maður og naut
virðingar allra þeirra er hann starf-
aði með. Ég þakka þér, Guðjón, all-
ar samverustundirnar og kveð þig
með söknuði í hjarta.
Friðrik Hróbjartsson.
Guðjón Guðmundsson
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919