Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 55
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR S.R. MARKÚSSON
vöruflutningabílstjóri,
Ægisvöllum 10,
Keflavík,
lést á heimili sínu 11. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elín Óla Einarsdóttir,
Kristín R. Sigurðardóttir,
Þórunn Sigurðardóttir, Grétar Ólason,
Katrín Sigurðardóttir, Klemenz Sæmundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR INGIBJÖRG ARADÓTTIR,
áður til heimilis að Öldugötu 33,
Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn
4. apríl, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 17. apríl kl. 13.00.
Kristín Ingunn Jónsdóttir, Baldur Sveinsson,
Kristinn Friðrik Jónsson, Edda Jóhannsdóttir,
Ingibergur Gunnar Jónsson, Júlía Magnúsdóttir,
Lilja Björk Jónsdóttir, Lárus Þór Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Birkimel 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
14. apríl kl. 15.00.
Kristín Björk Friðbertsdóttir,
Friðbert Friðbertsson, Soffía Huld Friðbjarnardóttir,
Njáll Trausti Friðbertsson, Guðrún Gyða Hauksdóttir,
Jóhann Grímur Friðbertsson, Kristine Feldthus
og ömmubörn.
✝
Elskuð eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
UNNUR KJARTANSDÓTTIR,
Álftamýri 6,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 10. apríl á Landspítalanum við
Hringbraut.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
21. apríl kl. 13.00.
Garðar Ingvarsson,
börn, tengdabörn, fósturbörn og barnabörn.
✝
JENS GUÐMUNDSSON,
Hörpugötu 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn
15. apríl kl. 13.00.
Júlíus Óskarsson, Þorgerður Jónsdóttir,
Sigurður Óskarsson, Málfríður Björnsdóttir,
Trausti Óskarsson, Sólveig Ívarsdóttir,
Jóhann Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir,
Jón Óskarsson, Erla Hálfdánardóttir,
Jens Óskarsson, Íris Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
SANDRA BJÖRK SIGMUNDSDÓTTIR,
er látin.
Útförin hefur farið fram.
Ástarþakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
Landspítalans í Fossvogi fyrir umönnun og hlýju.
Aðstandendur.
Ástkær frænka mín, Sandra
Björk, er látin og vil ég minnast
hennar með þessum fátæklegu orð-
um.
Þær eru ófáar minningarnar sem
þjóta gegnum huga minn og eru
þær flestar frá barnæsku þinni,
þeim tíma sem við vörðum sem
mestum saman. Ég gleymi ekki
ánægjunni sem ég upplifði þegar
þú komst í heiminn og ekki dvínaði
hún á þeim árum sem á eftir
fylgdu. Hvernig þú lýstir upp ver-
öldina með fallega brosinu þínu og
fjörinu sem ávallt fylgdi þér. Það
var aldrei dauf stund þegar þú áttir
í hlut Sandra mín og hafði ég alltaf
gaman af að passa þig sem og að
kíkja í heimsókn til ykkar fjöl-
skyldunnar þar sem mér var alltaf
vel tekið. Ein jólin, ef ekki fleiri,
minnist ég þess að hafa fengið þig
að láni á jólaball í Árgarði og var sá
viðburður, eins og margir aðrir
sem við áttum saman, jafnan festur
á filmu. Það sem ég gat hnoðast
með þig, klætt þig upp í gömlu kjól-
ana mína, knúsað þig og kysst svo
að mörgum þótti oft nóg um en allt-
af brostir þú í gegnum allt þetta
stúss.
Þó að sambandið á milli okkar
hafi því miður rofnað töluvert á
fullorðinsárunum fékk ég að fylgj-
ast með þér og var mjög stolt af að
heyra hvað þú sýndir mikinn styrk
og dugnað í erfiðum aðstæðum síð-
ustu árin. Hefði ég bara fengið að
segja þér það og knúsa þig einu
sinni enn. Elsku Sandra mín, þú
hefur og munt alltaf eiga sérstakan
stað í hjarta mínu og saman áttum
við allar þessar fallegu minningar
sem ég mun varðveita að eilífu.
Elsku Alma, Simmi, Eva Mjöll
og fjölskylda, Stefán Örvar, Þor-
leifur Einar, Sigmundur Anton og
Þorleifur Stefán. Ykkur votta ég
mína dýpstu samúð og óska þess að
algóður Guð blessi ykkur og styrki
í sorginni.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú
grætur vegna þess, sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum)
María Ólöf Sigurðardóttir.
Elsku Sandra Björk, þegar ég
minnist þín sé ég alltaf litlu fallegu
stelpuna með lambakrullurnar og
prakkaraglottið.
Þar sem að ég átti aldrei yngri
systkini fannst mér mjög spenn-
andi þegar til stóð að þú kæmir í
pössun til okkar. Það var alltaf fjör
í kringum þig og alltaf gaman að
labba yfir til ykkar og fara í leiki og
annað skemmtilegt. Enda nýtti
maður sér það oft þar sem fjar-
lægðin var ekki mikil á milli bæja.
En svo á efri árum missti maður
tengslin en fylgdist með úr fjar-
lægð og þá sérstaklega þegar litlu
✝ Sandra BjörkSigmundsdóttir
fæddist í Reykjavík
20. maí 1988. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Borgarspít-
alans 27. mars síð-
astliðinn.
Foreldrar hennar
eru Alma B. Stef-
ánsdóttir, f. 10.1.
1964, og Sigmund-
ur Sigurðsson, f.
13.6. 1952. Systkini
Söndru eru Berg-
lind H., f. 17.9.
1982, d. 25.8. 1984; Eva M., f.
11.1. 1984, maki Fannar H. Ein-
arsson, f. 22.3. 1983, börn
þeirra Berglind H., f. 27.9.
2005, og Fannar A., f. 18.10.
2007; Stefán Ö., f. 3.11. 1989, og
Þorleifur, f. 1.6. 1992.
Synir Söndru eru tvíbur-
arrnir Þorleifur Stefán og Sig-
mundur Anton, fæddir 15.3.
2007.
Útför Söndru hefur farið
fram í kyrrþey.
prinsarnir þínir
fæddust. Ég var mjög
stolt af þér og ánægð
fyrir þína hönd og
dáðist að styrk þínum
í gegnum allt saman.
Það voru sönn for-
réttindi að kynnast
þér og þín verður sárt
saknað kæra frænka.
Elsku Alma,
Simmi, Eva og fjöl-
skylda, Stefán, Þor-
leifur, Sigmundur
Anton og Þorleifur
Stefán, ég óska þess
að þið finnið styrk og stuðning í
gegnum sorgina og votta ykkur
mína dýpstu samúð.
Sóley Sigurðardóttir.
Elsku hjartans vinkona, þegar
við komum í Héraðsdal þar sem þú
ólst upp ásamt foreldrum þínum og
þremur systkinum komst þú alltaf
hoppandi og skoppandi á móti okk-
ur, brosið var svo bjart að það lýsti
upp dalinn. Þú varst fjörug, stríðin
og skemmtileg stelpa. Alltaf að
sýna okkur hvernig þú gætir klifr-
að upp um allar girðingar og veggi
sem urðu á vegi þínum.
Hestarnir voru vinir þinir enda
varstu ekki gömul þegar þú fórst
fyrst á hestbak með mömmu þinni.
Þú varst óhrædd og lagin við þá
enda erum við viss um að þú hefur
hvíslað að þeim nokkrum leyndar-
málum sem þeir kjöftuðu ekki frá.
Tónlistin var líka stór þáttur í þínu
lífi enda lærðir þú snemma að spila
á flautu og píanó.
Árin liðu og þú varst alltaf sama
fallega og fjöruga stelpan en undir
niðri var einhver ólga. Þú lifðir líf-
inu hratt hér í Reykjavík og oft
höfðum við áhyggjur þegar við
höfðum ekki heyrt í þér í einhvern
tíma. En þá skilaðirðu þér með
sama fallega stríðnislega brosið.
Stundum gerast kraftaverk og einn
daginn komstu skælbrosandi í
heimsókn og tilkynntir okkur að þú
værir ófrísk. Frá þeim degi snerir
þú blaðinu við og fórst að safna
orku og byggja þig upp fyrir
ófæddu börnin. Nokkrum mánuð-
um seinna fæddirðu tvíbura, fal-
lega stráka sem komu nokkrum
vikum fyrir tímann.
Dag og nótt í langan tíma varst
þú uppi á vökudeild og hugsaðir um
fallegu augasteinana þína. Það var
eins og þú værir fædd í móðurhlut-
verkið og hefðir aldrei gert annað
en að hugsa um lítil börn. Já, þú
elskaðir þá takmarkalaust því eins
og allir vita sem kynntust þér hafð-
irðu hjarta úr gulli.
Leiðin lá aftur í Héraðsdal til
pabba, þar hugsaðir þú um litlu
demantana þína eins og besta móð-
ir í heimi, hringdir reglulega í okk-
ur til að segja frá strákunum þín-
um, hvað þeir væru að gera og hvað
þú værir að gera og baðst kannski
um eina uppskrift í leiðinni. Já,
elsku Sandra, við vorum og verðum
stolt af þér. Þér leið svo vel með
börnunum þínum og fannst lífið
með þeim svo skemmtilegt og aldr-
ei heyrðum við þig kvarta.
Elsku Sandra, þú varst mikið
inni á okkar heimili, fékkst að sofa,
fékkst að setja í vél, fara út að
hjóla, fara út með hundinn og bara
það sem okkur datt í hug. Sandra,
við elskum þig, þökkum fyrir að
hafa fengið að vera þér samferða
og þá sýn sem þú gafst okkur á líf-
ið.
Við söknum þín kæra vina.
Elsku Alma, Simmi, Eva, Stebbi,
Tolli og fallegu strákarnir Sig-
mundur og Þorleifur, megi guð og
englarnir gefa ykkur styrk í ykkar
djúpu sorg.
Hulda og Gunnar.
Sandra Björk
Sigmundsdóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn,
PÁLL LÝÐSSON,
bóndi,
Litlu-Sandvík,
sem lést af slysförum þriðjudaginn 8. apríl, verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 19. apríl
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elínborg Guðmundsdóttir.