Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 57 MINNINGAR Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar, mágkonu og frænku, ERLU ÁGÚSTSDÓTTUR fyrrverandi flugfreyju, Grænuhlíð 12. Jóhann Ágústsson, Svala Magnúsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Magnús Valur Jóhannsson, Bjarnveig Ingvarsdóttir, Guðmundur Örn Jóhannsson, Íris Gunnarsdóttir, Sólveig Fríða Jóhannsdóttir, Ingimar Bjarnason, Gunnar Ágúst Harðarson, Guðbjörg E Benjamínsdóttir, Steinunn Harðardóttir, Magnús Ólafsson, Guðrún Harðardóttir, Árni Svanur Daníelsson, Karin Cannaday, Donna Lefever, Bruce Lefever, Jim Houhoulis, Barbara Houhoulis. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa, NICOLAI GISSURAR BJARNASONAR, Stekkjargötu 53, Innri Njarðvík. Svanhildur Einarsdóttir, Ingvar Gissurarson, Margrét Hallgrímsdóttir, Anton Gylfason, Ingvar Gylfason, Sigríður Erna Geirmundsdóttir, og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, ÓLAFS RAGNARSSONAR bókaútgefanda. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka alúð og umönnun. Elín Bergs, Ragnar Helgi Ólafsson, Margrét Sigurðardóttir, Kjartan Örn Ólafsson, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, Diljá, Ólafur Kári og Una Ragnarsbörn, Valtýr Örn, Elín Halla og Ólafur Helgi Kjartansbörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, tengdadóttur og ömmu, SVEINFRÍÐAR S. JÓHANNESDÓTTUR, Einilundi 2, Garðabæ. Hinrik Matthíasson, Matthías Hinriksson, Kristín Dögg Guðmundsdóttir, Sigrún H. Hinriksdóttir, Kristján T. Sveinbjörnsson, Kristín P. Hinriksdóttir, Matthías Bjarnason og barnabörn. ✝ Sigríður Sig-urðardóttir fæddist á Merkigili í Skagafirði 13. októ- ber 1919 og ólst þar upp til níu ára ald- urs. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi 21. mars síðastliðinn. Frá níu ára aldri ólst hún upp í Reykjavík hjá afa sínum Snorra Jó- hannssyni og konu hans Guðborgu Eggertsdóttur. Foreldrar Sigríð- ar voru hjónin Sigurður Ar- onsson, f. á Starrastöðum í Skaga- firði 17. september 1889, d. 8. júlí 1919, og Brynhildur Snorradóttir, f. á Merkigili 23. nóvember 1890, d. 19. febrúar 1930. Systkini Sig- ríðar voru Egill Frímann Dal- mann, f. 24. júlí 1916, d. 9. maí 1919, og Áslaug Dalmann, f. 24. október 1917, d. 2. janúar 1936. Sigríður giftist árið 1943 Gunn- ari Egilson verslunarmanni, f. í Viðey 19. október 1913, d 3. ágúst 1983. Foreldrar hans voru Svein- björn Egilson ritstjóri frá Hafn- arfirði, f. 21. ágúst 1863, d. 25. október 1946, og Elín Vigfús- dóttir frá Kálfárvöllum í Stað- arsveit á Snæfellsnesi, f. 13. maí 1892, d 5. júní 1965. Sigríður og Gunnar slitu samvistum 1963. Börn þeirra eru: 1) Snorri, f. 30. október 1944, kvæntur Þórunni Ragnarsdóttur, f. 9. júní 1945. Börn þeirra eru Kristín, f. 5. janúar 1967, maki Gyrðir Elíasson, Sigríður Ragna, f. 24. júlí 1968, og Ragnar Þór, f. 14. nóvember 1971. 2) Elín, f. 12. janúar 1946, gift Guðmundi Torfa- syni, f. 10. maí 1940. Börn þeirra eru Eggert, f. 6. apríl 1964, maki Annette Guðmundsson, og Elfar, f. 1. júní 1965, maki Catrin Svensson. 3) Bryn- hildur Áslaug, f. 26. mars 1952, giftist Gunnari Jósefssyni en þau skildu. Börn þeirra eru Gunnar Finnur, f. 4. janúar 1973, Sig- urður Snorri, f. 10. ágúst 1976, og Jósef Smári, f. 23. desember 1980. Dóttir Brynhildar er Sigríður Sandra f. 23. ágúst 1993. Lang- ömmubörnin eru ellefu. Síðari maður Sigríðar var Þor- grímur Guðlaugsson kaupmaður, f. í Vík í Mýrdal, d. 1976. Sigríður lauk námi frá Versl- unarskóla Íslands. Síðar hóf hún störf hjá Rannsóknarstofnun Há- skólans á Keldum, lauk námi sem sjúkraliði og lífeindafræðingur og starfaði á stofnunum Landspít- alans fram til 76 ára aldurs árið 1995. Hún bjó í Reykjavík lengst af en átti sitt heimili í Hveragerði síðustu sex árin. Útför Sigríðar fór fram frá Garðakirkju 2. apríl, í kyrrþey. Elsku mamma og amma, nú ertu farin frá okkur, það er erfitt að sætta sig við það. Þú varst ekki bara mamma og amma, heldur frábær vin- ur, margt brölluðum við sem aldrei gleymist. Þú varst okkur stoð og stytta þegar eitthvað bjátaði á. Fyrir allt þetta viljum við þakka þér inni- lega, það er okkur ómetanlegt. Sökn- um þín sárt, minninganar munu lifa. Hinsta kveðja. Heiðskírt er hófið mitt, heil í gegnum lífið þitt. Vertu Guð faðir vonin mín, verndaðu mína lífsins sýn. Haltu utan um heiminn minn, hann er bæði út og inn. Vertu Guð faðir valið mitt, viss um trú á væg- ið þitt. (Höf. ók.) Brynhildur, Gunnar Rúnar, Patrekur og Lilja. Elsku amma, nú hefurðu sofnað svefninum langa, komin á vit forfeðr- anna, til afa og Þorgríms og Plumma frænda og allra hinna. Það er mikið tómarúm sem mynd- ast nú þegar þú ert horfin á braut. Það var fastur punktur í tilverunni að heimsækja þig í Heiðarbrúnina nær daglega og ef mér gafst ekki rúm til þess hringdi ég í þig. Ég á ennþá nokkuð erfitt með að sætta mig við að þú sért farin. Það eru svo margar minningar sem koma í huga minn, minningar sem ég mun geyma um ókomna tíð. Ég man þegar við keyrð- um saman tvö vestur á Ísafjörð á jett- unni. Það er ekki sjálfgefið fyrir konu á áttræðisaldri. En þú komst áfram í lífinu á jákvæðninni og þrjóskunni, sem einkenndi þig. Eins og þú sagðir svo oft við mig, ef maður ætlar sér eitthvað, þá getur maður það. Önnur minning er líka þegar við fjölskyldan bjuggum í Vogum í minni bernskutíð að ef við bræðurnir urðum veikir þá sendirðu alltaf freska og kókópuffs með rútunni. Jólaboðin þín voru ein- stök og verður erfitt að toppa þau, það var alltaf sérstakur sjarmi yfir þeim. Steikti fiskurinn og buffið voru einstök líka, svona mat fær maður hvergi annars staðar. Þetta er aðeins brotabrot af öllum minningunun sem ég á um þig, elsku amma. Þú varst einstök kona, hjartahlý, mikill dýravinur og vinur vina þinna. Þú gafst mér mikið, lagðir mér lífs- reglurnar og kenndir mér muninn á réttu og röngu. Þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu. Stundina sem við áttum seinast saman í Heiðarbrún- inni mun ég alltaf eiga í hjarta mínu, þegar við sátum og spiluðum rommý og spjölluðum saman um vorið og fuglana og margt fleira. Ég læt hér fylgja uppáhaldssálminn okkar, elsku amma. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Jósef Smári (Jobbi). „Enginn veit hvar hann dansar næstu nótt“ sagði pabbi í ræðu sem hann hélt á fermingardaginn hennar Sigfríðar á skírdag. Það hvarflaði ekki að mér þá að næsta dag kæmi ég til þín, elsku Sigga amma, til að kveðja þig í hinsta sinn. Það var ekki átakalaust fyrir mig að horfa á þig dansa þinn síðasta dans þó að hann hafi verið friðsæll og fallegur en ég hefði hvergi annars staðar viljað vera en hjá þér. Mér hefur alltaf fundist þú vera spennandi kona, fórst þínar leiðir, ákveðin, sjálfstæð og með kímnina í lagi lifðir þú lífinu lifandi. Þú varst ekki eins og aðrar ömmur í stöðugum húsverkum þú varst atorkukona, fluttir inn postulín frá Kína, ferðaðist mikið um Ísland og sigldir með stórum skemmtiferða- skipum um heimsins höf og heimsótt- ir framandi lönd. Heimili þitt bar þess merki því þar voru spennandi og öðruvísi hlutir sem gaman var að skoða og snerta. Húsið þitt á Lauga- veginum var ævintýraheimi líkast og ég minnist skemmtilegu stundanna með þér í eldhúsinu þínu þegar ég stóð á stól að hræra í sósunni. Á Brúnaveginum leið þér vel, það sást langar leiðir, í garðinum lékstu við býflugurnar og gekkst berfætt í dögginni og þaðan á ég margar ómet- anlegar stundir með þér. Jólaboðin þín hafa í gegnum tíðina verið þau skemmtilegustu sem ég hef farið í, þar var alltaf mikið hlegið og gantast. Ef þú bara vissir hvað ég hef oft barist í blindbyl síðustu ár á Hellisheiði til að komast í jólaboðin þín í Hveragerði en það var alltaf þess virði að leggja á sig þessar ferð- ir. Ég á eftir að sakna þess að heyra hlátur þinn því hann hefur alltaf yljað mér um hjartarætur og hann ætla ég að geyma í hjarta mínu með öllum þeim góðu minningum sem ég á um þig. Sigríður Ragna Egilson. Það var fyrir löngu að ég hitti Sig- ríði vinkonu mína í fyrsta sinn. Næst- um 42 ár, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Ég var hjúkrunarnemi og hún var sjúkraliðanemi. Okkur varð starsýnt hvoru á annað. Hún var rauðklædd sem sjúkraliðanemi og ég í bláu og hvítu. Það var nærri 30 ára aldurs- munur á okkur, en við urðum góðir vinir frá fyrsta degi. Á þeim tíma var ekki algengt að strákar væru í hjúkr- unarnámi og að nærri fimmtugar konur færu að mennta sig, það var enn ósennilegra. Þannig urðum við bæði svolítið sér- stök á deildinni. Sigríður var fyrir með meinatæknismenntun sem þá var kölluð. Hún hafði áður starfað á Keldum í einhver ár. Ég var sendur til Ísafjarðar á nematímanum, en þangað kom Sig- ríður líka á sama tíma til starfa, þá út- skrifuð sem sjúkraliði. Þetta var á gamla spítalanum á Ísafirði. Þar kynntumst við ennþá betur. Oft var gaman og hlegið og er þetta í minn- ingunni mjög góður tími. Þá var allt einfaldara í sniðum en í dag og vinnan með sjúklingana var okkur ánægju- leg. Við tengdumst þarna miklum vináttuböndum. Það var líka ferðast smávegis um Vestfirði og sigldum við t.d. um Ísafjarðardjúp með Djúp- bátnum en þá var stundum farið í skemmtiferðir heilan dag með ferða- menn um helgar. Þegar ég og kona mín gengum í hjónaband hélt Sigríður okkur rausn- arlega veislu á heimili sínu. Ekkert var til sparað að gera okkur daginn ánægjulegan. Sigríður hafði á þessum tíma eign- ast barnabörn sem kölluðu hana Siggömmu. Þetta varð til þess að elstu börn mín kölluðu hana líka Siggömmu. Var hún upp frá því köll- uð Siggamma heima hjá okkur. Henni þótti þetta bara skemmtilegt að fá þennan flotta titil. Árin liðu og við höfðum alltaf gott samband, mis- mikið þó eins og gengur og gerist. Sigríður starfaði í mörg á Land- spítalanum á rannsóknarstofum og víðar. Alls staðar var hún vel látin af samstarfsfólki sínu. Hún var dugleg og hafði mikla útgeislun. Síðar var hún í viðskiptum með manni sínum í nokkur ár. Sigríður fór síðan að starfa aftur á Landspítala eftir að maður hennar lést. Vann hún á glasa- frjóvgunardeild í nokkur ár. Fyrir um það bil 10 árum flutti hún austur í Hveragerði og keypti sér hús þar. Undi hún hag sínum vel fyrir austan. Hún var svo heppin að vera við góða heilsu mestan hluta ævi sinnar. Börn hennar þrjú reyndust henni afar vel og hjálpuðu henni eins og þurfti, en hún gat búið í húsinu sínu áfram með góðri hjálp þeirra. Það gerir mann ríkari að eignast vini í lífinu eins og Sigríði okkar sem alltaf var til staðar og hafði svo góða nærveru. Hún hvatti unga fólkið áfram og var alltaf gott að leita til hennar. Ég vil fyrir hönd konu minn- ar og fjölskyldu okkar þakka henni langa og trausta vináttu. Við sendum börnum hennar samúðarkveðjur á þessari kveðju stund. Ég veit að einhvers staðar í eilífð- inni er á göngu brosandi kona með hrokkið hár og kápuna fráhneppta. Farðu í friði. Jóhann Marinósson. Amma mín ég kveð þig með söknuð í huga, ást og kærleik. Ég mun aldrei gleyma þér amma mín. Allar stund- irnar sem við áttum saman, þegar við prjónuðum saman sokka á mömmu, Guffa eða Snorra frænda eða á þig. En hvað ég elska þig heitt, því máttu aldrei gleyma og ég veit að þú gerir það ekki. En núna færðu að hvíla í friði, hjá pabba og Gunnari afa. Og allir þessir englar þarna uppi passa þig. Þú munt alltaf sitja á rúminu hjá mér og vernda mig og passa. Ég mun passa Leydí og Perlu vel, amma mín. Þakka þér fyrir allt sem við gerðum saman. Guðs barn deyr sælt, það deyr í Jesú örmum. Frá dánarbeð það fer með englum heim. Við bylgjur Jórdans bros er því á hvörmum og borg Guðs sér það ljós í fögrum geim. (Höf. ók.) Amma ég elska þig. Sandra litla. Sigríður Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.